Tíminn - 14.09.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 14. september 1976.
TÍMINN
3
REYKJAVÍKUR-SKÁKMÓTIÐ
TIMMAN EINN
í EFSTA SÆTI
l\Aatera getur orðið alþjóðlegur meistari
MÓL-Reykjavik. í gærmorgun
voru tefldar biðskákir á
Reykjavikur-skákmótinu og
urðu úrslit, sem hér segir:
Björn-Margeir 1/2-1/2
Guðmundur-Gunnar 1-0
Friðrik-Helgi 1-0
Haukur-Tukmakov 0-1
Helgi Najdorf • 1/2-1/2
Margeir-Timman 0-1
Vukcevich-Björn 0-1
Westerinen-Antoshin 1/2-1/2
Staðan eftir 14 umferðir er þá
þannig:
1. Timman 10.5, 2-3. Friðrik og
Tukmakov 10, 4. Najdorf 9.5, 5.
Antoshin 8.5, 6-9 Ingi, Guð-
mundur, Keen og Westerinen 8,
10. Matera 6.5 11. Vukcevich
5.5., 12. Margeir 5, 13. Haukur
4.5,14-15. Björn og Helgi 4 og 16.
Gunnar 2 vinningar.
Siðasta umferð mótsins verður
tefld I kvöld. Þá tefla saman:
Tukmakov-Helgi, Najdorf-
Gunnar, Friðrik-Ingi, Guð-
mundur-Margeir, Timman-
Vukcevich, Björn-Westerinen,
Antoshin-Keen og Matera-
Haukur.
Eins og menn sjá, verður
Friðrik að vinna Inga og Vukce-
vich að taka vinning af
Timman, svo að Friðrik eigi von
um 1. sætið, en hann er eini
íslendingurinn, sem á mögu-
leika I það.
Aðeins einn maður i mótinu
hefur einhverja möguleika á
titli, en það er Bandarikja-
maðurinn Salvatore Matera.
Vinni hann Hauk Angantýsson
íslandsmeistara hlýtur hann 7.5
vinninga, sen það nægir honum I
foukiurik Í9 7-Iq / l 3 Y 6 / $ 9 /<? (f U n /9 /3
1 Helgi olafsson X 'k % ’h 0 0 'k ö ’/í .0 0 o '4 t
2 Gunnar Gunnarsson ‘U X o 0 O o I o o o o o 0 0
3L Ingi R Jóhannsson 'lx 1 X l 0 Vi ‘4 /x 'h ( o 1 1
Margeir Pétursson 'h 1 ö X o o Ö & I Vx O h o 0 vh
f Milan Vukcevich 'h 1 1 1 X ’/z O 0 o O 'k V* o Va
& Heikki Westerinen I 1 i k X 4 'A 0 h 0 'h ’tl I
JL Raymond Keen 1 0 Vi i 1 4 X i 0 Íx o 'h
Salvatore Matera l Vx Á i X 'k 1 o 'h o c 0
9 Vladimir Antoshin i I 'A ó 'h X % •h % V% '/a k 1
/ó Björn Þorsteinsson ‘/d ! 0 Á 1 0 O ’h X K 0 o 'A 0 O
f/ Jan Timman I t 1 1 1 i % & X i •k o 0 1
/2 Guðmundur Sigurjónsson l I i ’ll 'k 'h V* 1 0 X !k 0 ’/a '4
Æ Friðrik ólafsson l % 'h i i I 'A % 'k X i /a Vz
m Miguel Najdorf Á. 1 1 'k % 'h \ 'A 1 I u X 1
ts Vladimir Tukmakov 1 O 1 1 h Vz i A l 1 Í4 & X
ÍL Haukur Angantýsson y* i o ‘A k o 1 Ö j2l lh J2. d X
titilinn, þar sem hann hefur
þegar unnið sér inn fyrri hlut-
ann. Það gerði hann á allsterku
móti i Birmingham I fyrra.
Umferðin hefst klukkan hálf
sex.
Fjðgurra
ára telpa
drukknar
gébé Rvik. — Það hörmulega
slys varð á sunnudaginn, að
fjögurra ára telpa drukknaði i
frárennslisþró að Teigi I Mos-
fellssveit. Hún hét Jóna Sig-
urðardóttir, fædd 2. marz 1972,
frá Ásmundarstöðum II, Ása-
hreppi, Rangárvaliasýslu.
Litla telpan var að leik á-
samt systkini sinu á hlaðinu
við Teig, meðan foréldrarnir
brugðu sér frá stutta stund til
að sinna erindum sinum á
bænum: Þegar þau hugðust
fara, var litla stúlkan horfin,
en fannst skömmu slðar i frá-
rennslisþró, sem liggur frá
hænsnahúsunum á staðnum.
Kallað var á sjúkrabifreið og
lækni, en litla telpan reyndist
látin, þegar hann kom.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar I Hafnarfirði,
sem kölluð var á staðinn, mun
slysið hafa átt sér stað á milli
klukkan 18:30 og 19:00 á
sunnudagskvöldið. Frá-
rennslisþróin frá hænsnahús-
unum er steypt, en veggir
hennar eru jafnháir jarðvegi,
og var þróin alls óvarin.
MIKILL AHUGI
Á MJÓLKURSÖLU
hjá kaupmönnum
Gsal-Reykjavik — Það má segja,
að verulegur skriður sé nú komin'
á þetta mál, og 6-7 umsóknir hafa
þegar borizt, en enn ber þó mest á
Flutningar á gömlum lýsisgeymi
fró Siglufirði til Reykjavíkur:
Geymirinn sökk í
r
r
r
Gsal-Reykjavik. - OHufélagið
Skeljungur festi fyrir nokkru
kaup á gömlum lýsisgeymi, sem
var i eigu sildarverksmiðju á
Siglufirði, en hafði ekki verið
notaður um langan tima. Drátt-
arskipið Goðinn var siöan fengið
til þess að draga geyminn frá
Siglufirði til Reykjavikur, en
svo óheppilega vildi til, þegar
geymirinn var svo að segja
kominn á áfangastað, að hann
sökk I djúpið.
Aö sögn Guðmundar Þor-
steinssonar hjá Oiiufélaginu
Skeljungi átti aö koma þessum
geymi upp i örfirisey og nota
hann undir oliu. Guðmundur
kvað félagið þurfa á auknu
geymslurými að halda fyrir
oliu, og þvi hefði verið ákveðið
að kaupa lýsisgeyminn á Siglu-
firði.
Geymirinn var 5000 kúbik-
metrar að stærð og var dráttar-
skipið goðinn komiö með hann I
togi inn á Faxaflóa, þegar hann
sökk skyndilega i djúpið. Ekki
kvaðst Guðmundur vita ástæð-
una til þess, aö geymirinn sökk,
en sagöi, að ekki myndi verða
reynt að ná honum á flot, enda
geymirinn á miklu dýpi.
— Þaðvarleittaðmissa hann
i djúpið, rétt þegar hann var
kominn heim að bæjardyrunum,
sagði Guðmundur.
Skeljungur mun ekki verða
fyrír fjárhagstjóni vegna þessa
óhapps, þvi geymirinn var
tryggöur.
pví, að kaupmenn spyrjist fyrir
um það, hvaða kröfur við gerum,
o.s.frv., sagði Jóhannes Long
heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigð-
iseftirliti Reykjavikur, en hann
hefur með höndum eftirliti vegna
mjólkursölu.
Eins og alkunna er hefur verið
ákveðið að leggja niður brauð- og
mjólkurbúðir Mjólkursamsölunn-
ar i Reykjavik þann 1. febrúar á
næsta ári — og flytja alla
mjólkurvöruverzlun yfir I ný-
lenduvöruverzlanir. • Þegar hafa
margir kaupmenn I nýlenduvöru-
verzlunum mjólkúrvörur á boð-
stólum, en þó eru margir einkum
kaupmenn i smærri verzlunum,
sem ekki selja mjólk.
Jóhannes sagði að nú væru að
berast inn umsóknir um leyfi til
sölu á mjólkurvörum frá kaup-
mönnum, sem fram að þessu hafa
ekki selt mjólkurvörur, og hafa 6-
7 umsóknir borizt eins og áður er
sagt.
— Aðstæðurnar hjá þessum
kaupmönnum eru mjög mis-
munandi sumir þurfa ekki annað
en að brjóta niður einn vegg, og
þá er verzlunin orðin mun stærri
en aðrir hafa ekki upp á neitt við-
bótarhúsnæði að hlaupa, og þegar
þeir taka mjólkina inn, minnkar
plassið fyrir aðrar vörur sagði
Jóhannes.
Heilbrigðiseftirlitið gerir ýms-
ar kröfur til þeirra verzlana sem
ætla séf að selja mjólkurvörur
s.s. um stærð kælis, söluop hans
aðstöðu til að pakka skyri og
ýmislegt fleira.
Jóhannes kvað mikinn áhuga
hjá kaupmönnum á mjólkúrsölu.
Olympíuskákmótið:
Búið að ákveða
íslenzka liðið
Gsal-Reykjavik. — Það er búið
að ákveða, hvaða islenzkir
skákmenn fara til Israels á
óiympíuskákmótið, og það eru
allsterkir skákmenn, sagði Ein-
ar S. Einarsson forseti Skák-
sambandsins í samtali við Tim-
ann i gær.
Ekki er þó hægt að birta nöfn
skákmannanna, sem halda til
ísrael, þvi að Skáksambandið á
eftir að ganga frá ýmsum atrið-
um I sambandi við þessa ferð,
en að sögn Einars munu nöfnin
væntanlega verða birt um miðja
vikuna.
Skáksambandið ákvað sem
kunnugt er að senda sveit á
Olympiumótið i ísrael eftir að
rikisstjórnin hafði ákveðið að
styrkja sambandið til fararinn-
ar, en áður hafði Skáksamband-
iðsent ísraelsmönnum bréf, þar
sem það tilkynnti að íslendingar
gætu ekki tekið þátt I mótinu að
þessu sinni sökum fjárskorts.
' Olympíuskákmótið hefst i
næsta mánuði.
Styrkir til Skáksambandsins
Frádráttarbærir
til skatts
Gsal-Reykjavik. — Skáksam-
band tslands hefur fengið stað-
festingu á þvi, með bréfi rikis-
skattstjóra, að gjafir og styrkir
til þess á árinu 1976 megi nota til
frádráttar við skattauppgjör, og
segir I frétt frá skáksamband-
inu, að ætla megi, að svo verði
framvegis.
Skilyrði fyrir frádrætti er. að
viðkomandi láti fylgja framtali
sinu til skattyfirvalda sérstaka
móttökukvittun frá Skáksam-
bandinu fyrir styrkveitingunni.
— Stjórn Skáksambands Is-
lands leyfir sér að vænta þess,
að þessi heimild verði til þess,
að velunnarar -skáklistarinnar
veiti þvi aukinn stuðning, segir I
frétt Skáksambandsins.
Hlaup í
Skeiðará?
— margir dagar geta liðið þangað
til hlaupið nær hámarki
—hs-Rvik. Sterkar likur eru nú
taldar á þvi, að hlaup sé að hefj-
ast i Skeiðará, en vöxtur vatnsins
I ánni hefur þó verið nokkuð hæg-
fara, þannig að margir dagar
geta liðið áður en hlaupið nær há-
marki.
Fyrir tiu dögum fannst allmikil
jökulfýla I grennd við Skeiðará og
Skaftá, en það hefur jafnan veriö
talinn fyrirboði hlaupa i ánum.
Við nánari athugun kom i ljós, að
fýlan var i grennd við Skeiðará.
Ekkert frekar benti þó til þess, að
hlaup væri i aðsigi, þvi að allt
fram til 8. september minnkaði I
ánni, en vatnið var þá I dekkra
lagi.
I lok siðustu viku varð svo vart
vatnavaxta i ánni og á sunnu-
dagsnótt jókst þaö þó nokkuð og
ennfremur i gær. Samkvæmt
reynslu fyrri ára geta liðið marg-
ir dagar, frá þvi að vatn fer að
aukast, þangað til hlaup nær há-
marki. Siðasta hlaup I Skeiðará
var i marz 1972.