Tíminn - 14.09.1976, Síða 14

Tíminn - 14.09.1976, Síða 14
14 TÍMINN Þriðjudagur 14. september 1976. Það var dýrlegt að sjá knöttinn hafna í netinu" — sagði Hermann Gunnarsson, — Þetta var auðveldari leikur en ég étti von á, sagði Ingi Björn Albertsson, fyrirliði Valsliðsins, eftir að Valsmenn voru búnir að tryggja sér bikarinn á Laugar- dalsvellinum. — Ég bjóst við, að Skagamenn myndu verða erfiðari, sérstaklega þar sem þeir höfðu aldrei unnið bikarinn, þrátt fyrir 7 tilraunir. Þeir voru mjög frískir i byrjun, en samt náðu þeir aldrei að ógna, þar sem vörnin hjá okkur var góð. — En eftir að við vorum búnir að skora, náðum við öllum tökum á leiknum, og Skagamennirnir hreinlega gáfust upp, sagði Ingi Björn. — Hvernig var að byrja leikinn — Þaö var mjög erfitt að byrja, þar sem taugaspennan hafði sitt að segja, og svo var Laugardals- völlurinn mjög þungur og erfiður. Við ákváðum þvi i byrjun, að reyna snöggar lang- sendingar á milli varnarmanna Skagamanna og hlaupa siðan inn i eyðurnar. Þetta tókst full- komlega hjá okkur og eftir að við vorum búnir að skora (2:0) gátum við farið að slappa af og leika meira með knöttinn. Það var mjög auðvelt að leika siðari hálfleikinn, þar sem mótspyrna Skagamanna var engin, sagöi Ingi Björn. Hermann Gunnarsson kom Valsmönnum á bragðið með þvi aö skora 2 góö mörk með stuttu millibili. — Það var stórkostlegt að taka á móti bikarnum og standa þar með uppi með tvö- faldan sigur — bæði Islands- meistaratitilinn og bikarinn. Þessu hef ég lengi beðið eftir, sagði Hermann. — Það var dýrlegt að sjá knöttinn hafna i netinu. Guðmundur átti algjörlega fyrra markið — hann sendi knöttinn út til min, og ég gat ekki annað en skorað. — Nú voruð þið seinir I gang — Já, það var eins og Skaga- menn losnuðu undan okkur úr hinni miklu spennu, sem fylgir • / unum — seglr Knapp — Þetta er giæsiiegt hjá strákunum i Val, þcir sýndu það, að Valslíðið er sterkasta liö tsiands, sagði Tony Knapp, landsliösþjálfari eftir úrslita- leikinn. — Skagamenn voru betrií fyrri hálfleik —já, mjög góðir. En þeim tókst ekki að skora. Valsliðið sýndi ekki mikiö af knattspyrnu i fyrri hálfleiknum — en þær sóknar- lotur, sem Valsmenn náðu, voru stórhættulegar Vals- menn eiga þrjá mjög snjalla sóknarleikmenn, sem ógna alltaf mikið, þar sem þeir Hermann, Gunnarsson, Ingi Björn Albertsson og Guð- mundur Þorbjörnsson eru. Það er alltaf hætta á feröum, þegar þeir eru meö knöttinn uppi við mark andstæöing- anna. — Valsmenn tóku siðan leik- inn i sinar hendur i siöari hálf- leik og yfirspiluðu Skaga- menn, sem höfðu misst trúna á, að þeir gætu orðiö bikar- meistarar. Mikil örvænting greip um sig hjá þeim. Þaö var sorgiegt aö sjá hvernig þeir féllu saman, sagði Knapp. — SOS SAGT EFTIR LEIKINN úrslitaleikjum I bikarkeppninni. Við vorum seinir í gang, en þegar við vorum komnir á skrið, réðu Skagamenn ekkert við okkur. Það var greinilegt, að þeir höfðu sætt sig við það I hálfleik, að þeir væru búnir að tapa báráttunni um bikarinn j 8. skiptið. Karl Þórðarson, hinn leikni leikmaður Skagamanna, var ekki mjög ánægður með leik sfns liðs. — Þetta var mjög erfiður leikur — og taugaspennandi. Það voru ódýr mörk, sem við fengum á okkur, við brotnuðum við mót- lætið og örvæntingin fór að segja til sin. Það virðist vera erfitt áð vinna bikarinn, sagði Karl. — Nú náðuð þið góðum tökum á leiknum i byrjun — Já, en okkur tókst ekki að skora. Ef við hefðum náð að skora i byrjun, er ómögulegt að segja hvernig farið hefði. Ég hef trú á, að hefði okkur tekizt það, værum við nú sigurvegarar, en ekki Valsmenn, sagði Karl. Þröstur Stefánsson lék sinn sjötta úrslitaleik með Skagamönnum i bikarkeDDninni: — Það er sárt að þurfa enn einu sinni að horfa á eftir bikarnum. Þetta var mjög taugaspennandi leikur og erfiður — sérstaklega eftir að Valsmenn voru búnir að skora mörkin, sem voru ódýr. Þeir fengu frið inni I teignum hjá okkur — og þeir nýttu varnarmis- tök okkar fullkomlega, sagði Þröstur. Sigurður Dagsson, landsliðs- markvörður úr Val, lék sinn þriðja úrslitaleik gegn Skaga- mönnum. Hann er mjög ánægður með árangur Vaisliðsins: — Það HERMANN GUNNARSSON.... sést hér kljást við Arna Sveinsson, Jón Alfreðsson sést I baksýn. (Tima- mynd Róbert) er greinilegt, að Skagamenn bola ekki spennuna, sem fylgir þvf að leika úrslitaleiki um bikarinn. Þeir hafa alltaf verið auðveldir viðfangs I þeim úrslitaleikjum, sem ég hef leikið gegn þeim. Dýri Guð.undsson átti mjög góðan leik I vörn Valsmanna: — Það var litil ógnun i þessu hjá Skagamönnum. Þeir voru auð- veldari en ég bjóst við. Albert Guðmundsson, hinn efnilegi leikmaður Vals: — Þetta er gifurleg upplifun. Það var mjög erfitt að byrja leikinn, og ég hef aldrei verið eins tauga- óstyrkur fyrir leik. Hin mikla spenna, sem fylgir þvi að leika úrslitaleiki, þar sem ekkert má fara úrskeiðis, varð til þess, aö við náöum ekki tökum á miðj- unni, fyrr en við vorum búnir að skora, sagði þessi leikni piltur. SOS — mæfa Skagamönnum annað kvöld í Evrópukeppni meisfaraliða — VIÐ ERUM komnir hingað til að vinna sigur á Skagamönnum, sögðu forráðamenn tyrkneska „spútnikliðsins” Trabzonspor, sem kom til landsins i gær. Skagamenn mæta tyrkneska liðinu á Laug- ardalsvellinm annað kvöld I Evrópukeppni meistaraiiða. Trabzonspor-liðið er nú eitt sterkasta iið Tyrklands og I iiöinu leika 5 iandsliðsmenn. Trabzonspor lék sl. keppnistimabil I fyrsta skipti 11. deildarkeppninni í Tyrklandi og tryggði sér þá meistara- titil Tryklands. SIGURÐUR DAGSSON.... markvörðurinn snjalli hjá Val, sem var kosinn Knattspyrnumaður ársins hjá Val 1976, sést hér hlaupa „heiöurs- hring” ásamt félögum sinum á Laugardalsvellinum. (Timamynd Róbert)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.