Tíminn - 14.09.1976, Qupperneq 17
Þriðjudagur 14. september 1976.
TÍMINN
17
Greenwood
fyrstur til
að skora
hjá „Boro"
— en markið dugði Sunderland ekki
til sigurs
Middlesbrough fékk á sig fyrsta markið í deildarkeppninni á móti
Sunderland. Greenwood skoraði fyrir Sunderland i fyrri hálfleik, og leit
iengi vel út fyrir, að það mark myndi duga þeim til sigurs. En mjög
hvattir áfram af 29.000 áhorfendum tókst Middlesborough að jafna og
skora sigurmarkið stuttu seinna, og var þar hinn 19 ára Alan Willey að
verki i bæði skiptin. Middiesbrough er þvi með átta stig, eins og Liver-
pool, eftir 5 leiki.
5f-Manchester City lék á Maine
Road á móti Bristol City, og var
leikurinn að mestu leyti einstefna
á mark Bristol. En mörkin létu á
sér standa þar til á 27. mlnútu að
Tueart lék upp vinstri kant, lék á
leikmenn Bristol City hvern af
öðrum og vippaði siðan knett-
inum laglega yfir Cashley i marki
Bristol, en hann hafði hætt sér of
framarlega. Aðeins minútu siðar
gerði Peter Barnes hiö sama upp
hægri kant, sú breyting varð
aöeins á hjá honum, að skot hans
lenti i stöng og inn. Það sem eftir
var af leiknum átti Manchester
City, en knötturinn vildi ekki
aftur i mark Bristol. Fear skoraði
mark þeirra rétt fyrir leikslok, og
eins og svo oft vill verða, segir
markatalan 2-1 mjög rangt til um
gang leiksins.
^t’Newcastle og Manchester
United kepptu i hifandi roki og
grenjandi rigningu á St. James
Park I Newcastle. Cannell náði
forystunni fyrir Newcastle á 13.
minútu, en 5 minútum seinna
hafði Pearson jafnað metin fyrir
Manchester, er hann notfærði sér
varnarmistök Newcastle. Á 35.
minútu skoraði Greenhoff með
skoti af 35 metra færi, og hjálpaði
vindurinn þar mikið til. Staðan
var þannig 2-1 i hálfleik fyrir
Manchester. I seinni hálfleik
haföi Newcastle vindinn i bakið,
og tókst þeim að jafna, er Burns
skoaraði. Þrátt fyrir góð tækifæri
beggja liða urðu mörkin ekki
fleiri og jafnteflið var sanngjarnt
eftir gangi leiksins, en leikmenn
þóttu sýna góðan leik þrátt fyrir
hinar slæmu aöstæður.
^ 38.448 áhorfendur voru á St.
Andrews i Birmingham, en þar
keppti heimaliðiö við WBA, sem
er frá útborg I Birmingham. Þótti
þetta vel leikinn leikur og sigur-
markið skoraði Tony Brown,
þegar langt var liðið á seinni hálf-
leik. WBA náði þannig báðum
stigunum, og var það nokkuð
sanngjarn sigur.
Jf-Coventry átti alls kostar við
Norwich á heimavelli sinum,
Highfield Road. Ferguson skoraði
fyrra mark þeirra fljótlega I fyrri
hálfleik, og Forbes skoraði siðan
sjálfsmark i seinni hálfleik og
gerði það út um leikinn. Lið
Norwich er alls ekki eins sann-
færandi nú og á slðasta keppnis-
timabili, það sem liðið vantar til-
finnanlega er einhver, sem getur
skorað mörk.
^Everton sýndi stórgóðan leik i
seinni hálfleik á móti Stoke og
skoraði þá þrjú mörk. Telfer
skoraði fyrstu tvö mörkin og Bob
Latchford bætti hinu þriðja við
rétt fyrir leikslok. Everton sýndi
þarna fyrsta flokks knattspyrnu,
liðið getur dottið niður á góða
leiki, en á siðan afar slæma leiki
inn á milli, leiki, sem valda þvi að
Everton kemur aö öllum likind-
um ekki til með að vera i barátt-
unni um efstu sætin I þetta sinn.
Jf-Tottenhamsýndi stórgóðan leik
á móti Leeds á White Hart Lane.
Jones skoraði mark þeirra i fyrri
hálfleik, en miðao við gang
leiksins, hefði þriggja til fjögurra
marka sigur Tottenham alls ekki
verið ósanngjarn.
^■Arsenalfór létt með West Ham
á Upton Park, heimavelli West
Ham. Alan Ball var i miklum
ham og undirbjó bæði mörkin, hið
fyrra fyrir Stapleton i fyrri hálf-
leik, og það siðara fyrir Ross á 46.
minútu. Leikurinn var einstefna
að marki West Ham, og það þrátt
fyrir, að MacDonald væri ekki
með, en hann var meiddur. West
Ham vantar tilfinnanlega marka-
skorara i lið sitt, og á laugar-
daginn bauö liðið 200.000 pund I
Ray Hankin frá Burnley, en ekki
er vitað um undirtektir forráða-
manna Burnley.
J^-Varla þarfað taka þaö fram, aö
Leicester gerði jafntefli, hið
fimmta I röö I jafnmörgum
leikjum. Nú léku þeir á Portman
Road I Ipswich, og úrslitin uröu 0-
0 jafntefli i leiðinlegum leik..
Hereford kemur
enn d óvart
Nýliðarnir I 2. deild, Hereford,
koma æ ofan i æ á óvart með góð-
um leikjum. Nú iéku þeir á City
Ground i Nottingham á móti liði
Brian Clough, Nottingham For-
est. Hereford náði fljótlega
tveggja marka forystu með
mörkum McNeil og Spiring, en
þeir Butlin og Bowyer jöfnuðu
fyrir hlé fyrir Nottingham. I
seinni hálfleik skoraði Bowyer
aftur, og siðar Robertson, og náði
Nottingham þannig 4-2 forystu.
En Hereford var ekki á þvi að
gefast upp, og McNeil skoraði
þriðja mark þeirra, og sitt sjötta
mark i deildinni, i fjórum leikj-
um. Þrátt fyrir góðar tiiraunir
tókst Hereford ekki að jafna, en
leikurinn þótti mjög fjörugur og
skemmtilega leikinn, og vonandi
er, að póstsamgöngur veröi I lagi
I næstu viku, þar sem þetta er
leikurinn, sem á aö sýna I Is-
lenzka sjónvarpinu á laugardag-
inn kemur.
Best dregur enn áhorfendur að
hjá Fulham. Hvorki fleiri né færri
en 25.800 mættu til að sjá Fulham
leika á móti Wolves 12. deildinni á
Carven Cottage, en það er u.þ.b.
þreföld meöalaðsókn hjá Fulham
siöasta keppnistimabil. Eftir að
Framhald á bls. 19.
Evróþumeistarar Tékka 1976: Leikmenn Slovan eru skrifaðir með feitu letri: Ondrus, Viktor, Dobias,
Capkovic, Masny.Moder, Svehlik, Pivarnik.Peneka, Nehoda og Gögh.
Framarar mæto stjörnum Slovan á
Laugardalsvellinum í dag
„Geta leikið í 90
mínútur án þess
að blása úr nös"
— segir Asgeir Sigurvinsson um hina frábæru
leikmenn Slovan Bratislava
— LEIKMENN Slovan Bratislava eru af ar skemmtilegir
knattspyrnumenn, léttleikandi og sterkir, sagði Ásgeir
Sigurvinsson, þegar við spurðum hann um Slovan-liðið,
en Ásgeir og félagar hans hjá Standard Liege léku gegn
Slovan fyrir stuttu og lauk leiknum með jafntefli — 1:1
— Þetta eru karlar, sem geta leikið í 90 mínútur, án þess
að blása úr nös, sagði Ásgeir.
, Ásgeir sagði, að leikmenn
Slovan væru mjög góðir einstak-
lingar. — Þeir eru samt sterkari
sem heild, leika knattspyrnu, er
gleður augað. Framarar fá þarna
frábært lið, sem leikur mjög
skemmtilega sóknarknattspyrnu
ÞORBERGUR Atiason, hinn
kunni markvöröur úr Fram,
er nú enn einu sinni farinn á
spitala til að láta skera sig
upp við brjósklosi I hné. Þor-
bergur hefur fjórum sinnum
verið skorinn upp við' brjósk-
— og byggist leikur liðsins á
snöggum og útsjónarsömum
skiptingum, sagði Asgeir.
Framarar mæta Slovan-liðinu á
Laugardals.vellinum kl. 17.30 i
kvöld og má búast við skemmti-
legum leik. Slovan-liðið kom
losi — tvisvar I hægri fæti og
verður aðgerðin nú einnig
gerð á honum. — Ég reikna
fastlega með að leggja skóna
endanlega á hilluna, sagöi
Þorbergur.
hingað i gær og komu allir sterk-
ustu leikmenn liðsins með þvi,
þar af 7 leikmenn, sem tryggðu
Tékkum Evróputitil landsliða
með þvi að vinna sigur yfir Hol-
lendingum og V-Þjóðverjum i
Júgósláviu. Það er valinn maður i
hverju rúmi i liðinu, sem er talið
eitt allra sterkasta félagslið
Evrópu i dag.
Þeir leika
Fram-liðið mun stilla upp sinu
sterkasta liði gegn Slovan, en það
verður skipað þessum leikmönn-
um: Arni, Trausti, Simon, Jón,
Sigurbergur, Ásgeir, Gunnar,
Agúst, Eggert, Rúnar og Krist-
inn. Þaö verður gaman að fylgj-
ast með leikmönnum Fram-liðs-
ins og þá sérstaklega Arna
Stefánssyni, landsliðsmarkverði,
sem átti stórleiki i markinu gegn
Belgum og Hollendingum. 1 kvöld
kl. 17.30 fær hann að spreyta sig
gegn 7 landsliðsmönnum Tékka.
Verði aðgöngumiða á leikinn er
stillt I hóf, þannig aö stúkusæti
kostar kr. 800, stæði kr. 600 og
barnamiði kr. 200. Knattspyrnu-
unnendur ættu ekki að láta sig
vanta á Laugardalsvöllinn i dag
— þar fá þeir að sjá nokkra
fremstu knattspy rnumenn
heims.
✓
Þorbergur enn
d skurðarborðið
„NÁÐUM OKKUR
EKKI Á STRIK"
F
— sagði Asgeir Sigurvinsson og Standard Liege gerði jafntefli
— VIÐ náðum okkur ekki á
strik, en það var gott að ná
stigi gegn Molenbeek,
sagði Ásgeir Sigurvinsson
eftir að Standard Liege
gerði jafntefli (0:0) gegn
Molenbeek í fyrsta leik
liðsins í 1. deildarkeppn-
inni i Belgíu.
Ásgeir er nú að veröa góður eft-
ir meiðslin, sem hann hefur átt
við aö glima. Standard-liöiö var
afar óheppiö að tryggja sér ekki
sigur, þvi að það sótti nær látlaust
undir lokin, en tókst ekki að
skora, þrátt fyrir góð markfæri.
Charleroi vann sigur 2:1 yfir
Beveren. Guðgeir Leifsson lék
ekki með liöinu og hefur ekki leik-
iö meö þvi aö undanförnu. Mar-
teinn Geirsson og félagar hans
hjá Royal Union unnu góban sigur
(2:1) um helgina og eru þeir nú i
einu af efstu sætunum i 2. deildar-
keppninni. Stefán Halldórsson
hefur ekki getað leikið meö liðinu
að undanförnu, vegna meiðsla.