Tíminn - 01.10.1976, Blaðsíða 8

Tíminn - 01.10.1976, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Föstudagur 1. október 1976 Síldarútvegsnefnd: Erlendir síldarsölusamningar í ár — söluverð allt ab 22% hærra en í fyrra gébé Rvík. — Þar sem sfldarver- tl&in er nú I fullum gangi — og gengur vel — er ekki úr vegi að gera nokkra úttekt á þeim sfldar- sölusamningum, sem geröir hafa veriö viö erlenda kaupendur, jafnvel þó svo aö frá þessu hafi aö mestu verið skýrt áöur i smá- skömmtum f Tfmanum. Þegar hafa veriö geröir fyrirframsamn- ingar um sölu tæplega 120 þúsund tunnum af saltaöri Suöurlands- sild. Langmest er selt til Sovét- rikjanna, eöa 60 þúsund tunnur, en 43 þúsund tunnur til Sviþjóöar og rúmlega 8 þúsund tunnur til Finnlands. 1 upplýsingabréfi Sild- arútvegsnefndar segir aö veriö sé aö ganga formlega frá samning- um um mismuninn viö aöra kaup- endur. 20% verðhækkun Eins og kunnugt er, gengu samningaviöræöur við Svia mjög erfiðlega á siðastliðnu ári og slitnaði þá tvivegis upp úr samn- ingaviðræðum við þá vegna á- greinings um verð og stærð. Var þó aö lokum samið við Svia um aöeins 15 þús. tunnur af stór- sild. Sölumagnið til Sviþjóðar I ár er þvi næstum þrefalt miðað við fyrra árs samningsmagn. All- mikil veröhækkun náðist nú i Svl- þjóð frá fyrra árs verði, eða um 20%. Finnar kaupa minna magn nú Búizt hafði verið viö þvl að Finnar myndu auka kaup sln frá A sl. ári voru gerðir fyrirfram samningar við Sovétmenn I sept- ember, um sölu á 20 þúsund tunn- um af heilsaltaðri sfld, en þar sem heildarsöltunin I fyrra fór langt fram úr þvl, sem gert hafði verið ráð fyrir áöur en vertið hófst, var hluti umframsöltunar- innar heilsaltaður I trausti þess að Sovétmenn myndu fást til að auka kaup sin siðar á vertiðinni eða eftir að nýr viðskiptasamn- ingur rnilli landanna lægi fyrir. Þetta reyndist þó miklum erfið- leikum bundið, þar sem hinir sov- ézku kaupendur kröfðust mikillar lækkunar á söluverði umfram- magnsins og tók það um 2 mánuði að ná endanlegu samkomulagi um viðbótarsölu þangað. Ekki fengust þó Sovétmenn til að semja um kaup á nema 2/3 hlut- um viðbótarmagnsins eða 10 þús- und tunnum. Með tilliti til þessar- ar reynslu siðastliðinnar vertiðar svo og þess, að mikil óvissa rikir um það hvaða stærðarflokkar verði uppistaöan i veiðinni i ár, var þegar I sumar óskað eftir þvi, að reynt yrði að tryggja sölu á sextiu þúsund tunnum til Sovét- rikjanna með fyrirframsamning- um. Eins og áður er greint frá, hefur þetta tekizt og er hið nýja söluverð til Sovétrikjanna 8% hærra en verð það, sem samiö var um með fyrirframsamningnum á siðasta ári og 22% hærra en verð það, sem samið var um með áðurnefndum viöbótarsamningi siðastliðinn vetur. Á sl. ári voru saltaöar samtals um 95 þúsund tunnur af Suöur- iandssild og er þvi fyrirframsalan i ár um þaö bil 25% meiri en sölt- unin nam á s.l. ári. Þetta er failegt sýnishorn af Suöurlandssild, sem veiddist á fyrsta sólarhringnum eftir aö herpinóta- vei&arnar hófust þann 25. september sl. Þetta er svokölluð demantssild og öll I fyrsta veröflokki eöa 33 cm og stærri. Timamynd: G.E. Islandi á þessu ári, en sú varö ekki raunin, þvi sölumagnið þangað minnkaði um 20%. Ástæð- an er sú, að Finnar fá síld frá öðr- um löndum á allt að 30-40% lægra veröien frá íslandi. Mest af þeirri sild sem Finnar nota, er sykur- söltuð, en einnig nota þeir tak- markað magn af kryddsaltaðri sild. Verð þaö, sem nú hefur verið samiö um við Finna, á sykursalt- aöri Suðurlandssild, er 5% hærra en veröiö á sl. ári. Gott söluverð til Sovétríkjanna 1 upphafi viöræðnanna við Sovétmenn skýröu þeir frá þvi, að þeir hefðu I höndunum tilboð frá fjórum framleiðslulöndum salt- sildar um sölu á heilsaltaðri sild af sömu stæröum og með svipuöu fitumagni og Islendingar byðu, á 36-43% lægra verði en endanlega var samið um I Moskvu um heil- saltaöa Suðurlandssild. Gert WB / hafði verið ráð fyrir að semja við Sovétmenn um að afgreiöa mætti hluta hins umrædda sölumagns með sykur- og kryddsild, en þar sem Sovétmenn treystu sér ekki til að greiða neitt svipað verð fyrir þessar tegundir og samið hafði veriö um við Svia og Finna, var eingöngu samið við þá um sölu á heilsaltaðri sfld. Alla heil- söltuðu sildina selja Sovétmenn til neytenda eins og hún kemur upp úr tunnunum. Verkakonur á Akranesi mótmæla mjólkursölubreytingum Fundur var haldinn i kvenna- deild Verkalýðsfélags Akraness 22/9. Þar var meðal annars fjall- að um mjólkursölumálin og var samþykkt samhljóða eftirfarandi ályktun, segir i frétt frá félaginu: Kvennadeild V.L.F. Akraness, lýsir andstööu sinni við þær breytingar á lögum um mjólkur- sölumál, sem samþykkt voru á Alþingi á siðastliðnu vori. Fundurinn telur, að þjónusta Mjólkursamsölunnar við neyt- endur hafi veriö með þeim ágæt- um, að ekki hafi verið þörf á breytingum. Hér á Akranesi hef- ur Mjólkursamsalan t.d. haft búðir sinar opnar 1/2 klst. lengur dag hvern en matvöruverzlanir. Alls er óvist, aö matvöruverzl- anirnar á Akranesi vilji eða geti ábyrgst alla mjólkursölu til bæjarbúa nema með auknum til- kostnaði, sem trúlega myndi þýöa meiri dreifingarkostnað og þar með hækkað mjólkurverð. Auk þess standa þær konur, sem flestar eru orönar fullorönar, andspænis atvinnumissi, ásamt þvi aö missa þau félagslegu rétt- indi, sem þær hafa áunnið sér á löngum starfsaldri. Félagið telur, aö Mjólkursamsalan hafi þvi miklum skyldum aö gegna við þær konur, sem hafa unnið hjá fyrirtækinu um langt árabil, og þurfi þvi 1. að tryggja þeim konum, sem þess óska, atvinnu, 2. að greiða þeim konum lifeyri, sem orðnar eru 60 ára eða eldri, og hafa unnið hjá fyrirtækinu um árabil. 3. að ábyrgjast Sjúkra- og Orlofs- sjóði A.S.B. til þess að félags- konur geti notið áunninna rétt- inda. Kvennadeild V.L.F. Akraness lýsir samstöðu sinni með 'baráttu A.S.B. fyrir hagsmunum og rétt- indum félagskvenna sinna, svo og þeim hópum neytenda, sem hafa beitt sér fyrir þvi, að mjólkurbúð- unum verði ekki lokað. Félagið heitir þeim konum, sem vinna i mjólkurbúðunum á Akranesi, öllum þeim stuðningi, sem það getur i té látið, til að gæta hagsmuna og réttinda þeirra. 7. ÁRSFUNDUR HAFNA- SAMBANDS SVEITARFÉLAGA 7. ársfundur Hafnasam- bands sveitarfélaga á Höfn i Hornafirði 24. september. ASJÖUNDA ársfundi Hafnasam- bands sveitarfélaga, sem haldinn var á Höfn I Hornafirði sl. föstu- dag, 24. september,sátu 46 fulltrú- ar frá rúmlega 30 höfnum á land- inu, auk nokkurra gesta. Fjórar hafnir óskuðu inngöngu I sam- bandið, og eru aðildarhafnir þess nú samtals 51. 1 stjórn Hafnasambandsins til eins árs voru kosnir Gunnar B. Guðmundsson, hafnarstjóri I Reykjavik, Bolli Kjartansson, bæjarstjóri á Isafirði, Sigurður Hjaltason, sveitarstjóri á Höfn I Hornafirði, Haukur Harðarson, bæjarstjóri á Húsavik og Alex- ander Stefánsson, oddviti i ólafs- vik. I fundarbyrjun minntist for- maður Hafnasambandsins, Gunnar B. Guðmundsson, Péturs Bjarnasonar, hafnarstjóra á Akureyri, sem átti sæti i stjórn sambandsins frá stofnun þess fyrir 7 árum. I setningarræðu sinni ræddi for- maður sambandsins nauðsyn þess að bæta hafnaraðstöðu fiski- skipastólsins. Slikt sé ein af for- sendum þess, að það fjármagn, sem variö hefur veriö til kaupa á fiskiskipum á siðari árum, nýtist á hagkvæman hátt. Beint framlag rikissjóös til hafnargeröa á öllu landinu er nú á við andvirði eins skuttogara, og gengur þvi upp- hygging hafnanna seint og erfið- lega. Hin slæma aðstaða hefur og valdið stórtjóni á mörgum skip- um. Þá var bent á, að nú horfði til vandræða, ef ekki yröi gert stór- átak i að bæta viögerðaraðstöðu flotans innanlands, auk þess sem miklum gjaldeyri væri varið til skipaviögerða erlendis, sem is- lenzkir iðnaðarmenn væru full- færir um að annast. Ólafur Steinar Valdimarsson, skrifstofustjóri I samgönguráöu- neytinu, flutti á fundinum ávarp og gerði m.a. grein fyrir hafnar- framkvæmdum i ár. Kom fram, að samtals myndi i ár veröa unniö fyrir 1500 milljónir króna aö hafn- argeröum. Þar af væri unnið fyrir 800 millj. króna á 30 stööum I al- mennum höfnum, I landshöfnum væri unnið fyrir 630 millj. króna, 25 millj. króna væri varið til sjó- varnargarða og 15 millj. króna I ferjubryggjur. Af almennum höfnum væri mest unnið á einum ■ stað á Akureyri, fyrir 100 millj. króna. Einnig skýrði hann frá þvi, að fest hefði verið kaup á nýrri bylgjuvél til þess að efla módeltil- raunir með hafnarmannvirki. Aðalmál fundarins voru gjald- skrár hafna og fjármál. Gylfi tsaksson, verkfræðingur, lagði fram á fundinum niðurstööur könnunar, sem hann hefur gert að beiðni stjórnar Hafnasambands- ins um fjárhagsafkomu hafn- anna. Kom þar m.a. fram, að 17 hafnir, sem könnun hans náði til, hefðu á sl. ári veriö reknar með tapi, sem næmi um 7 milljónum króna. Meira en helmingur al- mennra rekstrarútgjalda þessara hafna væri afborganir og vextir af föstum lánum, eða um 120 mill- jónir króna. Framlög úr sveitar- sjóöum til þessara hafna nam 27 milljónum króna, en fram kom á fundinum það sjónarmið, að kom- ast yrði hjá þvi, að sveitarsjóðir greiddu með rekstri hafnarsjóö- anna. Upplýst var, að frestun á hækkun hafnargjaldskráa fyrr á þessu ári hafi valdiö hafnarsjóð- unum verulegu rekstrartapi. Til þess að tekjur hafnanna geti fylgt verölagsbreytingum var á fund- inum talið nauðsynlegt að hækka gjaldskrár hafna um 25% frá næstu áramótum. Einnig var lögö áherzla á, að aflagjald, sem var lækkað úr 1% f 0,95% aflaverð- mæta, er seinasta gjaldskrá var staðfest yrði á ný hækkaö I 1%. Ennfremur að efla hafnabóta- sjóð. Aðalsteinn Júliusson, hafna- málastjóri og Bergsteinn Gizur- arson, verkfræðingur, geröu á fundinum grein fyrir þeim frum- drögum að 4 ára framkvæmda- áætlun, sem Hafnamálastofnun rikisins hefur nýlega kynnt sveit- arstjórnum. Fram kom á fundin- um, að gert væri ráð fyrir hafnar- framkvæmdum fyrir samtals 5,1 milljarð króna á næstu 4 árum. Samþykkt var tillaga um nauðsyn þess að efla tæknilegar rannsókn- ir Hafnamálastofnunar, svo unnt verði að ljúka yfirlitsrannsóknum á hafnarstæðum, svo i ljós komi valkostir um gerð hafnarmann- virkja. Skorað var á fjárveitinga- valdið að verja nægilegu fjár- magni til þessa undirstöðuverk- efnis. Hannes Valdimarsson, verk- fræðingur, flutti á fundinum er- indi, er fjallaði um nýjungar I flutningatækni, þar sem hann gerði grein fyrir þróun vöruflutn- inga hér á landi og erlendis á seinustu árum. I framhaldi af er- indi Hannesar samþykkti fundur- inn ályktun, þar sem lagt var til við samgönguráðherra, að skipuð verði nefnd með aðild rikisvalds, hafna, skipafélaga og e.t.v. fleiri aðila, til þess að gera tillögur um fyrirkomulag strandflutninga. Nefndin leiti leiða, er veitt geti landsbyggðinni nauðsynlega, ör- ugga og hagkvæma flutninga- þjónustu. Að loknum þessum ársfundi Hafnasambandsins bauö Hafnar- hreppur þátttakendum i sjóferð, þar sem m.a. var skoöuð innsigl- ingin i Hornafjarðarós.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.