Tíminn - 06.10.1976, Qupperneq 1
Landsfyrirtæki um lagningu varanlegs slitlags? — Sjd bls. 2
'ÆHGIRf
Áætlunarstaðir:
Bíldudalur-Blönduós-Búðardalur
Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug
um allt land
Símar:
2-60-60 og 2-60-66
t2
224. tölublað — Miðvikudagur 6. október—60. árgangur
xaflagnir
í virkjanir — hús
verksmiðjur — skip
SAMVIRKIS’
Skemmuveqi 30 c£\
Kópavogi
ASK-Reykjavík. —
ig hef heyrt að
fundizt hafi
sprungur í Breið-
holtinu/ en vandinn
er sá að þær sjást
ekki á yfirborðinu/
sagði Jón Jónsson
jarðf ræðingur í
samtali við Tímann
fyrir skömmu. —
Sprungurnar sjást
hins vegar ekki fyrr
en búið er að ryðja
jökulurðinni af
berginu.
Jón sagðist telja, að eitt
— ein misgengissprunga fundin í
Hólahverfinu en ítarlegar rannsóknir
hafa ekki verið gerðar
varhugaverðasta svæðið I
Breiðholti, með tilliti til
sprungna, væri dalverpið
vestan við Vatnsenda-
hæð, en það er austasti
hlutinn i Breiðholti þrjú.
Sjálfur sagðist Jón fyrir
nokkru hafa kannað
svæðið kringum gamla
Breiðholtsbæinn. Þar
hefði ekki sést nein mis-
smiði á jarðvegi, en það
útilokaði hins vegar ekki
þann möguleika, að undir
jökulurðinni væru jarð-
sprungur.
— En það er mjög erfitt
að . framkvæma rann-
sóknir á þessum
sprungum, sagði Jón. —
Það er ekki um neitt
annað að ræða, en að rifa
upp jarðveginn ofan á
fast berg. Hins vegar
hefði verið möguleiki á
þvi áður en framkvæmdir
hófust, að gera rispu
hornrétt á sprungustefn-
una, en jökulurðin er vfða
3-4 metrar, þannig að það
hefði orðið mjög
kostnaðarsamt fyrirtæki.
Jón tók sem dæmi um
hve erfitt væri að segja til
um hvort ákveðin svæði
væru hættuleg að árið
1954 kortlagði hann
landsvæði við Sandskeið.
Þegar það var gert var
ekki hægt að sjá nein mis-
smiði á þvl, en tlu árum
siðar hafði þar myndazt
sprunga.
Þóröur Þorbjarnarson,
borgarverkfræðingur,
sagði að ekki hefðu verið
gerðar neinar rannsóknir
á sprungum i Breiðholti
III, en hins vegar hefðu
slikar rannsóknir verið
gerðar i Seljahverfi.
Hins vegar sagði
Þórður að segja mætti að
nokkur vitneskja heföi
fengizt með sniðtöku af
byggingars væðum I
Breiðholti III, hús-
grunnum og holræsagerð.
Hefði þá fundizt ein mis-
gengissprunga I Hóla-
hverfinu, en hún hefði
ekki verið rannsó'kuð
nánar.
Stöðumælasektir:
Bifreiðin á upp-
boð ef sektin er
ekki greidd
Gsal-Reykjavik — Um-
ferðarnefnd Reykjavikur
hefur að undanförnu fjall-
að um þann mikla vanda,
sem flest embætti eiga
við að etja varðandi inn-
heimtu stöðumælasekta,
og hvernig bezt yrði að
leysa þann vanda. Nefnd-
in hefur orðið sammála
um það, að tekiö verði
upp nýtt fyrirkomulag,
sem Norðmenn hafa not-
að um skeið með góðum
árangri, en það er, að
taka svonefnt lögveð i bif-
reiðum fyrir sektum, sem
á þær falla á stöðumæla-
reitum.
Þetta þýöir meö öðrum
oröum, aö eigandi bif-
reiðarinnar er gerður
ábyrgur fyrir sektinni,
burtséð frá þvi hver hafi
verið á bifreiðinni er
sektin féll á hana. Lög-
reglustjóra er siðan
heimilt að láta auglýsa
hana á opinberu uppboði
og selja hana, ef eigand-
inn greiðir ekki sekt sina.
Sjá nánar bls. 2
Nú á það ekki að duga lengur að hunza stööu-
mælasektirnar áfallalaust, þvi breytingin gengur út
á það, að blllinn fer beina leið á uppboð, ef stöðu-
mælasekt erekki greidd. Timamynd: G.E.
FASTEIGNASALAR MUNA
EKKI AÐRA EINS DEYFÐ
Gsal-Reykjavík. —
Það hefur ekki verið
jafn mikil deyfð í
fasteignamarkaðin-
um í mörg ár, sagði
Birgir Ásgeirsson
sölumaður hjá Aðal-
fasteignasölunni í
samtali við Tímann í
gær, en blaðið ræddi
við nokkra fast-
eignasala i Reykja-
vik í gær og spurðist
fyrir um hlutfallið á
milli framboðs og
eftirspurnar á fast-
eignum.
— Sem dæmi um það,
hversu framboðið er
glfurlega mikið núna, og
eftirspurnin lltil, get ég
nefnt, að við höfum núna
um 200 fasteignir á sölu-
skrá, en höfðum á sama
tlma I fyrra á milli 50 og
60, sagði Þorsteinn Stein-
grlmsson hjá Fasteigna-
þjónustunni, en gat þess
að tölurnar væru ekki ná-
kvæmar.
Fasteignasalarnir voru
allir sammála um það, að
framboð á fasteignum
hefði verið mjög mikið I
allt sumar, allt frá þvl I
april, en eftirspurn að
sama skapi litil. Einn
þeirra sagöi að I septem-
bermánuði hefði ávallt
verið mikil eftirspurn, en
i ár hefði það algjörlega
brugðizt.
Einkum hefur verið
erfitt að selja stærri fast-
eignir, að sögn fasteigna-
salanna, en eftirspurn
eftir litlum Ibúðum hefur
alltaf verið mun mciri.
Fasteignasalarnir voru
ekki frá þvi, að nú færi að
koma betri tið I fasteigna-
málunum og sögðu, að
talsvert hefði verið aö
gera siðustu daga.
.
Kratarnir sem ætluðu að lóta ríkið borga brúsann Sjó baksíðu