Tíminn - 06.10.1976, Page 3
Miðvikudagur 6. október 1976
TiMINN
3
r—————
Litlar
breyt-
ingar
við
Kröflu
gébé Rvik — Litlar breyting-
ar hafa verið á jaröskjálfta-
virkninni á Kröflusvæöinu nú
siöustu daga. A siðasta
sólarhring mældust 48 jarö-
skjálftar. en voru 52 sólar-
hringinn þar á undan.
„Hef ekkert annað
sagt en það sem
ég tel rett og satt'
— segir Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri alþingis
gébé Rvik — Mér finnst mál þetta
einkennilegt og furöuleg persónu-
leg árás og ómakleg, þvf aö ég hef
ckkert annaö sagt en þaö sem ég
tel rétt og satt, sagöi Friöjón
Sigurösson, skrifstofustjóri
alþingis i gær, þegar Tlminn
grennslaöist fyrir um viöbrögö
hans viö kæru Gunnlaugs Þóröar-
sonar. Eins og skýrt var frá I
blaðinu I gær, hefur Gunnlaugur
kært skrifstofustjórann til saka-
dóms, fyrir aö hafa fariö meö
rangt mál I svonefndu jafnréttis-
máli, sem mikiö hefur veriö til
umræöu aö undanförnu. Friöjón
kvaöst ekkert hafa um kæru
þessa heyrt, nema þaö sem hann
hefur lesið I dagblööunum.
— Mér finnst þaö dálitiö
einkennilegt, aö Gunnlaugur
virðist ganga út frá því sem sjálf-
sögðu, aö hann einn hafi rétt fyrir
sér, að hans skoöun eigi aö ráöa,
en tekur ekkert tillit til umsagnar
jafnlaunaráðs né til dómstólanna,
sem fellt hafa dóm I umræddu
máli, sagði Friðjón.
Skrifstofustjóri alþingis sagöi
einnig, aö svo virtist sem lögmaö-
urinn, þ.e. Gunnlaugur Þóröar-
son, túlkaöi hlutina eins og honum
þóknaðist. Hins vegar heföi ýmsu
verið ábótavant I meðferö Gunn-
laugs I málinu, t.d. hefði dómur-
Línusjómenn á Vestfjörðum:
inn talið kröfugerö hans svo ófull-
komna, aö þurft heföi aö flytja
málið tvisvar fyrir dómi meö
tveggja mánaöa millibili. — En
honum finnst ekki ástæöa til aö
lúta venjulegum dómstólum,
sagði Friðjón Sigurðsson.
Friðjón sagöi aö sér virtist sem
um málið heföi veriö fjallaö mjög
á einn veg I fjölmiðlum. Var hann
þá spurður að þvi, hvers vegna
verjandi i málinu heföi ekki
mætt, þegar dómsuppkvaöningin
var lesin upp i bæjarþingi, þvi aö
þá hefði verið hægt að fá umsögn
verjanda um málið. Svaraöi hann
þvi til, að dómara heföi láöst aö
láta verjanda vita hvenær sá
atburður ætti að fara fram.
gébé Rvik — Þaö viröist enginn
áhugi vera á þvi aö koma til móts
viö sjómenn á linubátum á Vest-
fjörðum, og þvi situr enn viö það
sama hér, sagöi Pétur Sigurös-
son, formaður Alþýðusambands
Vestfjaröa I gær. Sem kunnugt er
hafa sjómenn á linubátum fyrir
vestan veriö I „setuverkfalli”
undanfariö til aö mótmæla bráöa-
birgðalögum rikisstjórnarinnar
frá 6. september, og þeir hafa
ekki róiö á linuveiöar.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá I Tímanum, var sérstakur
samningur geröur við linubáta á
Súgandafirði, en þar er linufisk-
urinn aðaluppistaðan I hráefni
frystihússins. — Hins vegar sjá
togararnir á hinum stöðunum um
aðnógsé af fiski, og þvi er nóg at-
vinna, sagði Pétur Sigurðsson. —
Það verður verst fyrir útgerðar-
mennina að missa kannski þarna
vanan mannskap, sem nú leitar
annað i atvinnu. Þeir verða ekki
öfundsverðir, ef þeir ætla að
byggja á utanbæjarmönnum I
þessar veiðar, sagði hann. —
Þetta er ekki svo stórkostlega af-
gerandi útgerð, að menn séu at-
vinnulausir vegna þess að ekki er
róið á linu, en hins vegar er það
ekkert vafamál, að bezti fiskur-
inn til vinnslu er sá, sem linubát-
arnir koma með, sagði Pétur
Sigurðsson.
Gsal-Reykjavik — Hraunhitaveit-
an hefur gefiö mjög góöa raun, og
viö væntum þess aö fá nauösyn-
legar Iánafyrirgreiöslur til þess
aö hægt veröi aö halda áfram
framkvæmdum viö hana af
krafti, sagöi Páll Zóphaniasson,
bæjarstjóri i Vestmannaeyjum i
samtali viö Timann.
Fyrsta húsið, sem hraunhita-
veita var tengd við, var sjúkra-
húsið iEyjum, og var það gert s.l.
sumar, auk þess sem hún var
einnig lögð i nokkur ibúöarhús.
Sfðustu vikur hefur svo verið unn-
ið aö þvi að tengja enn fleiri hús
hraunhitaveitunni og sagði Páll,
að hvert húsiö á fætur öðru hefði
verið tengt veitunni að undan-
förnu, og stefnt væri að þvf, að
25-30 hús yrðu hituð upp meö
hraunhitaveitu fyrir árslok.
Húsin, sem nú er verið aö
tengja hraunhitaveituna við, eru
austan Kirkjuvegar og noröan
Sólhlíöar.
— Þaö er búið að taka ákvörðun
um þaö, að næsta skrefið í sam-
bandi viö hraunhitaveituna, verði
það, að nýta hraunvarmann fyrir
Vesturbæinn, — þ.e. nýja hverfiö,
sem byggzt hefur upp eftir gosið
— meö því að tengja fjarhitunar-
kerfið, sem þar er, við hraunhita-
veituna. Það er veriö að undirbúa
þessar framkvæmdir núna, og
ætti að vera hægt að tengja þessi
tvö kerfi um áramót, sagði Páll.
I Vesturbænum eru um 30 ein-
býlishús, rúmlega 80 Ibúðir í sam-
býlishúsum, auk íþróttahússins
og elliheimilisins.
Við spurðum Pál um það, hvort
einhyerjir sérstakir gallar hefðu
komið fram varðandi hraunhita-
veituna, og kvað hann það ekki
vera. — Það koma hins vegar
alltaf óhjákvæmilega upp ein-
hverjir erfiöleikar, þegar verið er
að vinna að einhverjum nýjung-
um. Ég held að ég geti þó alveg
fullyrt, að búið sé aö yfirstíga alla
byrjunaröröugleika, sagði Páll.
Um frekariáætlanir I sambandi
viö hraunhitaveituna sagði hann,
að fyrir lægi áætlun um það, að
fjarhitunarkerfi kæmi I allan bæ-
inn með þeirri undantekningu þó,
aö nokkur hverfi verði áfram hit-
uð upp meö rafhitun.
— Takmarkiö er það, aö geta
veriö með samræmt verö á orku
til húsahitunar hér I Vestmanna-
eyjum.
— Hvenær búist þið við að ná
þvi marki?
— Það fer eftir þvi hversu vel
gengur að afla fjár til þessara
framkvæmda, en ég hygg, að
þessu marki ætti aö vera náö um
1980, sagði bæjarstjóri.
Að lokum inntum við Pál
Zóphaniasson eftir þvi, hvað
vísindamenn teldu að hiti i hraun-
inu gæti haldizt lengi. Páll sagði,
að visindamenn ættu erfitt með
að spá nokkru um þaö.en sagði að
sennilega væri ekki óraunhæft að
reikna með þvi að hitinn dygði 110
til 30 ár.
Hraunhitaveitan í Eyjum lofar góðu:
Nýja hverfið og 25-30
önnur hús hituð upp
með hraunvarma í árslok
Trygging
og Vængir
deila um
tjóna-
uppgjör
— auðvelt að
tryggja annars
staðar, segír
Guðjón
Styrkársson
ASK-Reykjavfk. Næstkom-
andi föstudag, rennur út
trygging á flugvélum
Vængja h/f, en vélar félags-
ins eru tryggðar hjá Trygg-
ingu h/f. I samtali við Tim-
ann I gærkveldi, sagði Guð-
jón Styrkársson, hrl.,
stjórnarformaður Vængja,
að tryggingin hefði ekki ver-
ið framlengd vegna þess að
ágreiningur væri um tjóna-
uppgjör. Deilurnar standa
um bætur vegna Island-
er-vélar félagsins, sem varð
fyrir óhappi á Snæfellsnesi i
fyrravor.
— Þetta eru álika upphæð-
ir, sagði Guðjón Styrkárs-
son, — og það er allsendis
óvisthvort við skuldum þeim
eða öfugt. Starfsemi Vængja
er allsendis óháð þvi hvort
Trygging h/f vill tryggja
vélarnar, þvi að auðvelt er
að fá önnur tryggingarfélög
til þess.
Enn í„setu
verkfalli"
ávíðavangi
Gylfi Þ. og Benedikt hafa
miklar áhyggjur af þverrandi
siðferði i þjóðfélaginu.
Ahyggjur þeirra eru ekki
ástæðulausar.
Hverjir hafa
gefið út
Alþýðublaðið?
Upplýst hefur verið, að allir
hclztu leiðtogar Alþýðuflokks-
ins stofnuðu mcö sér sam-
eignarfélag til hliöar við AI-
þýðublaðiö í þvi skyni að koina
taprekstri biaðsins yfir á
herðar almennings I landinu.
Skiptu þeir skuldum Alþýöu-
blaðsins á milli sin og kröfðust
siðan lækkunar á persónuleg-
um sköttum sinum. Þeirri
kröfu hefur verið hafnað.
Ekki er óiiklegt, að fyrrver-
andi viðskiptaráðherra, Gylfi
Þ. Gislason, núverandi for-
maöur þingflokks Alþýðu-
flokksins, eigi höfundarréttinn
að þessu verki.
Til fróðleiks skal hin furðu-
lega útgáfustarfsemi Alþýðu-
blaðsins rifjuð upp:
1. Samkvæmt lauslegri athug-
un virðist Alþýðufíokkurinn
skráður fyrir útgáfu blaös-
ins frá upphafi til ársloka
1967.
2. Frá ársbyrjun 1968 til októ-
ber 1970 cr blaðið gefið út af
félagi, sem bar nafnið
,,Nýja útgáfufélagið”. For-
maður þessa félags er
skráður Jón H. Guömunds-
son, Kópavogi. Félag þetta
varð gjaldþrota, og mun
mál þess enn fyrir skipta-
rétti.
3. Frá október 1970 til marz
1972 er Alþýðuflokkurinn
talinn útgefandi blaðsins.
4. Frá marz 1972 til júli sama
ár er „Útgáfufélag Alþýöu-
blaösins” skráð fyrir útgáf-
unni. Formaður þessa fé-
lags var Gylfi Þ. Gislason.
Félag þetta hefir hætt út-
gáfunni, en mun cnn á skrá
sem fyrirtæki.
5. Frá júli 1972 til marz 1974 er
„Alþýðublaösútgáfan”
skráð fyrir útgáfu blaösins.
Formaöur þessa félags var
Axcl Kristjánsson. Félag
þetta hefir hætt útgáfunni,
en mun þó enn á skrá yfir
skráð fyrirtæki.
6. Frá marz 1974 til ársloka
1973 er „Blað h.f.” skráður
úlgcfandi blaðsins. For-
maöiir þessa félags var Ey-
jólfur K. Sigurjónsson. Við
slofnun þcssa félags er lýst
yfir, að félagiö taki ckki aö
sér neinar skuldbindingar
tilheyrandi hinu fyrra fé-
lagi, þ.e. félaginu, sem bar
nafnið „Alþýðublaðsútgáf-
an”. Blað h.f. hefur nú hætt
útgáfunni, en mun enn á
fyrirtækjaskrá.
7. Frá árslokum 1975 til dags-
ins i dag er skráður útgef-
andi biaösins ncfndur ,,A1-
þýðuflokksfélag s/f.” For-
maður þessa félags er Jón
Armann Héðinsson. Þessu
félagi virðíst meðal annars
hafa veriö ætlaö, að semja
við Visi um fjármál Alþýðu-
blaðsins eöa reksturskostn-
að þess.
Verkefni fyrir
atvinnubiaðamenn
Samkvæmt framangreindu
er Ijóst, aö á s.l. 8 árum hafa
Alþýðuflokksmenn stofnað 5
fyrirtæki til að annast útgáfu
Alþýöublaösins. Um cndan-
Framhald á bls. 19.