Fréttablaðið - 11.12.2005, Qupperneq 36
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá
borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Áhugaverð störf í boði
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Verkfræðingur / tæknifræðingur
Auglýst er eftir verk- eða tæknifræðingi til starfa hjá
byggingarfulltrúanum í Reykjavík sem tilheyrir Skipu-
lags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf sem m.a. felst
í því að hafa eftirlit og umsjón með því að skipulagsskil-
málum og ákvæðum byggingarreglugerðar sé framfylgt í
lögsögu Reykjavíkur.
Hæfniskröfur:
Víðtæk sérþekking á byggingarmálum er æskileg. Enn-
fremur þarf viðkomandi að eiga gott með að tjá sig bæði
í orði og riti ásamt því að hafa á að skipa lipurð í mann-
legum samskiptum og hæfni til að starfa sjálfstætt.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborg-
ar og viðkomandi stéttarfélags.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Skriflegri umsókn, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, skal skila til starfsmannahalds Skipulags- og
byggingarsviðs, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, fyrir 22. des-
ember 2005.
Arkitekt
Auglýst er eftir arkitekt til starfa hjá byggingarfulltrú-
anum í Reykjavík sem tilheyrir Skipulags- og bygging-
arsviði Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Yfirferð aðaluppdrátta og undirbúningur mála fyrir af-
greiðslufundi byggingarfulltrúa og fundi skipulagsráðs
ásamt samskiptum við umsækjendur og hönnuði vegna
þeirra.
Hæfniskröfur:
Viðkomandi skal hafa réttindi til að gera aðaluppdrætti
og hafa starfsreynslu á því sviði. Ennfremur þarf viðkom-
andi að eiga gott með að tjá sig bæði í orði og riti ásamt
því að hafa á að skipa lipurð í mannlegum samskiptum
og hæfni til að starfa sjálfstætt.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar
og viðkomandi stéttarfélags.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Skriflegri umsókn, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, skal skila til starfsmannahalds skipulags- og
byggingarsviðs, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, fyrir
22. desember 2005.
Hlutverk skipulags- og byggingarsviðs er m.a. að veita borgarbúum,
borgarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum, byggendum og öðrum þeim
sem á þurfa að halda góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um skipu-
lags- og byggingarmál auk þess að vera skipulagsráði til ráðgjafar
við stefnumótun í skipulags- og byggingarmálum borgarinnar
Frekari upplýsingar um sviðið má finna á heimasíðu þess
www.skipbygg.is.
Undrabörn
og annað hæfileikafólk
Scope Communications ehf. er í leit að hæfileikaríku fólki
sem klæjar í fingurnar að takast á við krefjandi verkefni á
sviði almannatengsla, auglýsingagerðar og netlausna. Við
erum helst að leita að fólki á eftirfarandi sviðum:
Grafísk hönnun
Vefhönnun
Forritun
Textagerð
Þýðingar
Um er að ræða tímabundin verkefni og lausamennsku.
Ekki er boðið upp á fastráðningar að svo stöddu en
möguleiki er á þeim síðar meir.
Ef þú telur þig hafa hæfileika á ofantöldum eða skyldum
sviðum og hefur áhuga á að vinna að ákveðnum
verkefnum í lausamennsku, sendu þá umsókn ásamt
ferilskrá (CV) á netfangið atvinna@scope.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
Skipulagsfulltrúi
uppsveita Árnessýslu
Auglýst er laus til umsóknar staða skipulagsfulltrúa upp-
sveita Árnessýslu. Skipulagsfulltrúi fer með skipulagsmál
sveitarfélaganna og starfar í nánum tengslum við Bygg-
ingarfulltrúa uppsveitanna. Aðsetur skipulagsfulltrúa er
á Laugarvatni og starfssvæði hans er Bláskógabyggð,
Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur
og Skeiða- og Gnúpverjahreppur.
Skipulagsfulltrúi mun starfa að skipulagsmálum fyrir of-
angreind sveitarfélög í samræmi við skipulagslög og á
grundvelli erindisbréfs sem honum verður sett. Æskilegt
er að viðkomandi hafi reynslu af skipulagsmálum og
starfsemi sveitarfélaga.
Æskilegt er að viðkomandi hafi fasta búsetu á starfs-
svæðinu. Um menntun og starfsreynslu vísast til gr. 2.7
í Skipulagsreglugerð.
Frekari upplýsingar veita Margrét Sigurðardóttir sveitar-
stjóri Grímsnes-og Grafningshrepps og Gunnar Þorgeirs-
son oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps í síma 486-
4400 milli kl. 9.00 og 14.00.
Skriflegum umsóknum skal skilað til skrifstofu Gríms-
nes-og Grafningshrepps, Borg, 801 Selfoss í síðasta lagi
19. desember n.k. merkt “Skipulagsfulltrúi.”
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
ATVINNA
10 11. desember 2005 SUNNUDAGUR