Tíminn - 15.03.1977, Page 1
Mikið umbótastarf —
sjá bls. 9
^fÆNGIfíT Slöngur — Barkar — Tengi
Áætlunarstaðir: Bíldudalur-Blönduóc BúðardalOi ! Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur Súgandaf jörður jjm ^ Sjúkra- og leiguflug um allt land 7 Símar: tL i 2-60-60 oa 2-40-66
■ , 61. tölublað —Þriðjudagur 15. marz 1977—61. árgangur SAAIÐJUVEGI 66 Kópavogi — Sími 76-600
LJ
Mikill stétta- og tekjumunur eftir hverfum i Reykjavík:
Tekjur fólks í Laugarási þrefalt
meiri en í tekjuminnsta hverfinu
JH-Reykjavik. — Læknar i
Reykjavik eiga langflestir aö
tiltölu heima viö Hvassaleiti
og Stórageröi og þar i
grennd, Fossvogsh verfi
vestra, I Hliöunum og Hög-
unum. Alls enginn læknir býr
i smáibúöahverfinu, vestur-
hluta Bústaöahverfis, vestri
hluta Árbæjarhverfis né f
Fellunum. t grannbyggöum
Reykjavíkur, Garöab- og
Mosfellsveit, búa hlutfalls-
lega fleiri læknar en nemur
meöaltali i Reykjavik i heild.
Yfirleitt skera Garöabær og
Seltjarnarnes sig úr um mik-
inn fjölda háskólamenntaöra
manna.
Frá þessu og mörgu öðru
segir i grein eftir Bjarna
Reynarsson, sem birtist i
siðasta hefti Fjármálatiö-
inda. t greininni er um það
fjallað, hvernig fólk skiptist
á bæjarhverfi I Reykjavik
eftir menntun, atvinnu, tekj-
um, aldri fjölskyldustærð og
ýmsu öðru.
Verkfræðingar eru hlut-
fallslega fjölmennastir i
Garðabæ og á Seltjarnar-
nesi, en i Reykjavik sjálfri
eru kjörsvæði þeirra Stekkir,
hluti Bakka, Vesturberg,
Hólar i Breiðholti og
Laugarásinn. Þeir eru aftur
á móti sjaldhittir i Þingholt-
um, i hverfinu vestan
Reykjavikurtjarnar, smái-
búðahverfi, gamla vestur-
bænum, Túnunum, Árbæjar-
hverfi og Selási.
Konur i verkakvenna-
félaginu Framsókn eru flest-
ar i sömu hverfum og minnst
er um háskólamenntaö fólk
— Túnunum, við Laugaveg
og i Skuggahverfi, i Norður-
mýri og Rauðarárholti.
Stekkjum og Bökkum i
Breiðholti, smáibúðahverfi
og Bústaðahverfi. Þær eru
fáar i vesturhluta Fossvogs-
hverfis, Laugarási, Arbæj-
arhverfi og austurhluta Hlið-
anna.
Roskið fólk meö uppkomin
börn býr hlutfallslega margt
i vesturhluta Reykjavikur,
en ungir foreldrar meö börn
á skólaskyldualdri i austur-
bænum. Til dæmis má nefna
að árið 1974 var aðeins 16%
ibúa á Tjarnarsvæðinu yngri
en sextán ára, en 49,5% i
Fellunum i Breiðholti. Eftir-
tektarvert er, að barnafjöl-
skyldur virðast mynda hring
út frá miðbænum og vera
flestar i úthverfunum, en
einhleypt fólk eða roskið
þeim mun fleira á miðsvæð-
unum.
Tekjuhæsta fólk býr i
Laugarási, en hið tekju-
lægsta við Laugaveg og i
Skuggahverfi, og munaði þar
hvorki meira né minna en
einni milljón og tvö hundruð
og fimmtiu þúsundum á
meðaltekjum árið 1974. Mjög
háar voru lika meöaltekjur
fólks á Vesturbergi og i Hól-
um, Stekkjum og Bökkum,
austurhluta Hliöahverfis og i
Skjólum. Sérstaklega lágar
tekjurvoruiTúnunum og við
Skólavörðuholt.
Við þetta, sem hér hefur
verið sagt er þess þó að
gæta, að ekki mun hafa verið
búið að rýma braggahverfið
neðan viö Samtún til fulls
þegar athugun var gerð, svo
að tilvitnanir um Túnin hafa
sjálfsagt breytzt siðan.
1 niöurstöðum greinar-
höfundar segir:
„Einangrun ákveðinna
aldurs-, menntunar- og
tekjuhópa i borginni fellur
ekki vel viö hugmyndir um
stéttlaust samfélag, sem
verða þvi að dæmast ómerk-
ar og úreltar. Landfræöileg
dreifing hinna tveggja
meginfélagsþátta, fjöl-
skyldu- og efnahagsþáttar, i
Reykjavik er ekki jafnreglu-
leg og i mörgum vestrænum
borgum, en virðist samt
fylgja sömu grundvallarlög-
málum. Ekki er jafnmikill
munur á einstökum ibúareit-
um i Reykjavik og I mörgum
bandariskum borgum, sér-
staklega er tekjumunur milli
reita i Reykjavik mun
minni.”
1 þessu hverfi býr rikasta og tekjuhæsta fólkið I Reykjavik.
KRAFLA AÐ RÓAST?
gébé Reykjavlk — Klukkan
15 I gærdag höfðu mælzt 100
jaröskjálftar I Mývatnssveit
frá deginum áður. Sólar-
hringinn þar áöur urðu þeir
136, og 121 á laugardaginn.
Virknin virðist þvl eftir
þessu að dæma, fara minnk-
andi. Landris heldur áfram
en mjög hægt. Norðurendi
stöðvarhússins, miðað við
suöurendann, var kominn i
8,311 mm I gær og hefur ekki
mælzt meiri siðan gosiö varð
I Leirhnúk.
Frá klukkan 15 i gær til kl.
17, .mældust aöeins fimm
jarðskjálftar að sögn Einars
Svavarssonar á skjálftavakt
i gær,— Menn vinna á virkj-
unarsvæðinu við Kröflu i
fullri vinnu og kippa sér litt
upp við skjálftana. A laugar-
dagskvöldið mældust sterk-
ustu skjálftarnir sem komiö
hafa i þessari hrinu, 3,6 og
3,5 stig á Richterkvaröa.
Skjálftarnir siðan hafa yfir-
leitt verið litlir að styrkleika
og i gær mældist aðeins einn
vera 2,5 stig á Richter, hinir
allir töluvert minni.
,,Dugar ekki að gleðjast of lengi
heldur setja markið hærra”
sagdi Hreinn, sem varð Evrópumeistari
í kúluvarpi á innanhúsmóti i San Sebastian
á sunnudaginn
SOS-Reykjavik. — Ég er
mjög ánægður með þennan
áfanga, en það þýðir ekkert
að gleöjast of lengi, heldur
stefna að bvi að bæta enn
árangurinn sagði Hreinn
Ilalldórsson, kúluvarparinn
sterki, sem tryggði sér
Evrópumeistaratitilinn I
Hreinn Halldórsson er frá
Hróbergi f Steingrlmsfirði.
Hér er hann með kúluna á
öxlinni.
kúluvarpi innanhúss I San
Sebastian á Spáni á sunnu-
daginn. Arangur Hreins hef-
ur vakiðheimsathygli, þvi að
á Spáni voru saman komnir
miklir afreksmenn I kúlu-
varpi, sem hafa unniö til
verðlauna á stærstu frjáls-
Iþróttamótum heims.
Hreinn hefur nú endurvakiö
hróður Isiands i kúluvarpi,
en nú eru liðin 27 ár siðan
Gunnar Huseby varö
Evrópumeistari i Brussel
1950, en þar varði hann
Evrópumeistaratitilinn, sem
hann náði 1946 i Osló. Hreinn
kastaði kúlunni 20.59 m i San
Sebastian, sem er nýtt
glæsilegt Islandsmet. Þess-
um árangri náði Hreinn i
fyrsta kastinu sinu og ætlaöi
þá allt vitlaust að verða á
áhorfendapöllunum, þar sem
3 þús. áhorfendur voru sam-
an komnir. Nánar segir frá
þessu afreki Hreins i Iþrótta-
siðum blaösins.
Sjá bls. 18-21
• Fær ísaf jörður hitaveitu? — Sjá bak