Tíminn - 15.03.1977, Blaðsíða 20
20
Þriðjudagur 15. marz 1977
„Spurs”
aftur
niður á
sama
lága
planið
— eftir tvo
góða leiki.
WBA vann
auðveldan
sigur, 2:0
á White
Hart Lane.
Á mánudaginn var kcypti
WBA Laurie Cunningham frá
Orient fyrir 120.000 pund. A
laugardaginn var það sá sami
Laurie Cunningham, sem var
maðurinn á bak við sigur WBA
á Tottenham, en það var ann-
ar sigur liðsins i London á
fjórum dögum.
Ýmsir vilja spá þvi, að
Cunningham verði fyrsti
blökkumaðurinn til aö spila
landsleik fyrir England. Ef
marka má leik hans á laugar-
daginn, þá gæti verið að sú
stund væri ekki langt undan. A
24. minútu leiksins var það
frábær sending frá Cunning-
ham á Robson, sem skapaði
fyrra mark Albion. Robsonlék
að marki Tottenham og lét
vaða af 25 metra færi, og
knötturinn hafnaði i mark-
horninu. Staðan i hálfleik var
þannig 1-0 WBA i vil.
1 seinni hálfleik reyndi lið
Spurs allt sem þeir kunnu til
að jafna, en allt kom fyrir
ekki. A 68. minútu lék Cunn-
ingham á hvern varnarmann
Tottenham á fætur öðrum og
varð hann aðeins stöövaöur
með ólöglegum hætti, rétt fyr-
ir utan vitateig. Giles tók
aukaspyrnuna, og eins og hon-
um er lagið þá sendi hann
knöttinn beint á höfuð David
Cross, sem skoraði glæsilega
með skalla.
Skömmu eftir þetta mark
komst mark WBA i mikla
hættu þegar Pratt, Taylor og
Armstrong misnotuðu allir
góð færi á sömu minútunni og
eftir það voru úrslit leiksins
ráðin.
Það vantaði alla baráttu I lið
Tottenham i þessum leik, bar-
áttu, sem svo sannarlega örl-
aði á i leikjum liðsins við Nor-
wich og Liverpool I slðustu
viku. Ef Tottenham ætlar að
halda sæti sinu i 1. deild verða
þeir að gjöra svo vel og berj-
ast i þeim leikjum, sem þeir
eiga eftir.
Ó.O.
L
já Wembley
— þegar Aston Villa og Everton
skildu jöfn 0:0 i úrslitaleik
deildabikarsins
Fyrir leik Aston Villa og Everton á Wembiey, úrslitaleik deildar-
bikarsins, var mikii stemmning hjá hinum 100.000 áhorfendum, sem
álitu sig heppna að hafa komizt yfir miða að leiknum. Sumir greiddu
allt aö30 pundum fyrir miðann á „svörtum markaði”, eöa nánasttifalt
verð. Ahorfendur höfðu sig mjög I frammi, og þeir fjölmörgu, sem
komið höfðu frá Birmingham og Liverpool til að hvetja sfna menn,
sungu við raust áður en leikurinn hófst.
tima heföi að öllum likindum
En eftir aö dómarinn, Gordon
Kew, flautaöi til leiks og leikurinn
hófst, minnkaöi hávaðinn smám
saman á áhorfendapöllunum.
Leikurinn var hreinlega hund-
leiðinlegur, og smám saman rann
það upp fyrir mönnum, aö þeir
væru fremur óheppnir en heppnir
að vera viðstaddir þessa vitleysu.
Bezta dæmiö um þaö hvað leikur-
inn var lélegur, var aö 82 sinnum I
leiknum var knötturinn sendur
aftur til markvarðanna, en það er
nýtt met i úrslitaleik á Wembley.
Já, það þarf ekki aö eyða mörg-
um orðum að leiknum, sem bauö
næstum ekki upp á nein tækifæri,
helzt var það McKenzie, sem
skapaði sjálfum sér nokkur færi
fyrir Everton. A 9. minútu leiks-
ins munaði litlu að honum tækist
að skora, þegar hann vippaði
skemmtilega yfir Burridge I
marki Villa, en knötturinn datt
ofan á þversíána. Mark á þessum
hleypt lifi I leikinn, en þvi var
ekki að heilsa. A timabili I seinni
hálfleik virtist sem Villa væri að
lyfta sér upp úr drunganum, og
var Alex Cropley maðurinn á bak
við nokkur góð upphlaup á þess-
um tima, en Gray og Deehan spil-
uöu eins og svefngenglar, og voru
ávalltof seinir að notfáera sér þau
færi sem buðust.
Leikurinn varð siðan mjög þóf-
kenndur eftir þvl sem leið á seinni
hálfleik, varla kom fyrir aö send-
ing lenti hjá samherja, og allir
voru þvl mjög fegnir, þegar
dómarinn flautaði til leiksloka, en
liöin verða að reyna með sér aftur
á morgun á Hillsborough, velli
Sheffield Wed.
Eftir leikinn var þaö samdóma
álit fréttamanna, að þetta væri
leikur, sem myndi llöa fljótt úr
minni þeirra sem á hann horfðu,
og leikurinn á Hillsborough gæti
Loksins vann
Chelsea leik
3—1 sigur i Cardiff og Chelsea
styrkti stöðu sina i 2. deild mjög
I Allni r* Pofrliff n r* nL „I_ J íll_. _ _ . .
Leikur Cardiff og Chelsea á
Ninian Park I Cardiff var leiöin-
legur á að horfa fyrstu 60
minúturnar, en þá varð skyndi-
lega mikil breyting á leiknum.
Britton skoraði mark eftir
varnarmistök hjá Cardiff og við
þetta mark færðist mikið llf i leik-
inn. Leikmenn Cardiff upphófu nú
mikla sókn og skalloft hurð nærri
hælum við mark Chelsea. En þaö
var Chelsea sem skoraði næsta
mark. Eftir mikla sókn Cardiff
fékk liö Chelsea skyndilega
skyndisókn, þar sem sóknarleik-
menn Chelsea voru þrlr á móti
aðeins tveimur varnarleikmönn-
um Cardiff. Swain var leikinn frlr
og skoraði hann auöveldlega, 2-0
fyrir Cheisea. Aðeins fimm
minútum siðar skoraði Dwyer
fyrir Cardiff, og eygöu nú leik-
menn Cardiff aftur möguleika á
að jafna leikinn. Þeir gerðu nú
aftur mikia hrið að marki
alls ekki orðið verri en þetta.
Liöin voru þannig skipuð:
Aston Villa: Burridge, Gidman,
Robson, Phillips, Nicholl, Morti-
mer, Deehan, Little, Gray, Crop-
ley, Garrodus.
Everton: Lawson, Jones, Darra-
cott, Lyons, McNaught, King,
Hamilton, Dobson, Latchford,
McKenzie, Goodlass.
Leikur þessi mun aö öllum
likindum verða sýndur I Islenzka
sjónvarpinu innan tlðar.
Ó.O.
DUNCAN Mc-
Kenzie.... sést
hér spyrna knett-
inum að marki
Aston Villa, en
e k k i v i 1 d i
knötturinn I nctið
á Wembley á
laugardaginn.
Chelsea, en það varð aöeins tii
þess, aö gefa Chelsea sitt þriðja
mark. Aftur sótti Cardiff meö of
marga menn og upp kom sú staða
að Chelsea fékk skyndisókn, þar
sem þrir voru á móti tveimur
varnarmönnum. 1 þetta skiptið
var það Stanley sem skoraði
markið, eftirað hafa verið Ieikinn
frlr, og innsiglaði hann þar meö
sigur Chelsea, 3-1.
Leikmönnum og forráðamönn-
um Chelsea hlýtur að hafa létt
mikið við þennan sigur, þar sem
Chelsea hefur ekki unnið leik I
deildinni siðan þeir unnu Carlisle
á útivelli 5. febrúar. Einnig kem-
ur þaö sér vel fyrir Chelsea aö
Bolton tapaði og Luton tókst að-
eins að ná jöfnu á Plymouth á
heimavelli. Chelsea getur litiö
framtlðina aðeins bjartari aug-
um.
Ó.O.
Montgomery
óstöðvandi
— og Derby mátti sætta sig við
enn eitt jafnteflið á heimavelli
Jim Montgomery, maðurinn,
sem varði mark Sunderland, er
liðið vann sigur á Leeds I bikar-
úrslitunum 1974, var maöur
þessa leiks. Hann er nú I láni hjá
Birmingham og eftir frammi-
stöðu hans I þessum leik kæmi
ekki á óvart þó að Birmingham
keypti hann til sin. Hvað eftir
annað varöi hann á ótrúlegasta
hátt, það var alveg sama, hvað
leikmenn Derby reyndu, allt
varði Montgomery.
Þegar korter var til leiksloka
voru áhorfendur farnir að fagna
marki, en þá átti Peter Daniel
gott skot að marki, eftir að
Montgomery hafði varið skot
frá Hector, og var hálfpartinn
úr jafnvægi. En þrátt fyrir það
skauzt hann upp og tókst aö ýta
knettinum yfir þverslána. En
þegar sjö mlnútur voru til leiks-
loka virtist mark loks ekki um-
flúið. Tony Want frá Hector inn-
an vltateigs og vítaspyrna var
þegar dæmd. Charlic George
tók spyrnuna og Montgomery
varði þrumuskot hans alveg úti
við stöng. Allir á vellinum
klöppuðu fyrir þessari frábæru
markvörzlu hans, meira að
segja leikmenn Derby líka, þó
að þarna hefðu þeir misst dýr-
mætt stig I fallbaráttunni.
Tækifæri Birmíngham I leikn-
um voru ekki mörg, en snemma
I fyrri hálfleik varði Daniel á
llnu skalla frá Francis og nýlið-
inn Fox átti skot, sem Boulton
varði naumlega. Gerry Daly lék
nú með Derby og bar ekki mikið
á honum I ieiknum.
Liðin voru þannig skipuð:
Derby: Boulton, Langan,
Webster, Daly, Daniel, Todd,
Powell, Hector, Hales, George,
James.
Birmingham: Montgomery,
Rathbone, Styles, Kendall,
Burns, Want, Calderwood,
Francis, Fox, Hibbitt, Connolly.
iEm
Brian Alderson
lék Coventry grátt
þegar Leicester vann Coventry 3:1 á Filbert Street
Á miövikudaginn seldi
Coventry sinn bezta
varnarmann til Tottenham
fyrir 120.000 pund, og þar
sem Dugdale, Coop og Hol-
ton voru allir meiddir,
vantaði Coventry illilega
varnarmenn i leiknum við
Leicester á Filbert Street á
laugardaginn. Yorath og
Roberts léku aftast í vörn
Coventry en ekki þótti leik-
ur þeirra þar sannfærandi.
Leicester var ekki lengi að not-
færa sér þennan veikleika
Coventry og var Brian Alderson,
fyrrum leikmaður Coventry,
maðurinn á bak við mörk þeirra.
Snemma I fyrri hálfleik fékk hann
knöttinn rétt fyrir utan vltateig
Coventry og Blyth I markinu réði
ekki við gott skot hans. A 38.
minútu sendi hann góða sendingu
á Kember, sem gaf knöttinn fyrir
markið og Earle skoraði meö
þrumuskoti. 1 hálfleik var staðan
þannig 2-0 fyrir Leicester.
Það var eKki langt liðið á seinni
hálíleik, þegarstaðan var orðin 3-
OLeicester i vil. Eftir varnarmis-
tök skoraði Worthington með
góðu lágskoti. Eftir þetta press-
aði Leicester stift en mörk þeirra
urðu ekki fleiri, og var það aðal-
lega að þakka góöum leik Blyth I
marki Coventry. A siðustu
minútu loksins skoraði Ferguson
fyrir Coventry meö skalla, og má
segja að það hafi verið eina færið
I leiknum, sem Coventry fékk.
Sigur Leicester varð þannig 3-1,
og 16.766 áhorfendur héldu
ánægðir heim.
Ó.O.
BRIAN ALDERSON.... lék fyrrum félaga sina nja coventry ofi grátt.