Tíminn - 15.03.1977, Síða 2
2
Þriðjudagur 15. marz 1977
Bræöurnir Haukur og Höröur þeir sýna vatnslitamyndir, túss- myndirnar á sýningunni eru flest-
Haröarsynir opnuöu s.l., laugar- myndir, hugverk lír tré og fleira. ar einkaeign, en þeim sem girn.
dag, myndlistarsýningu á „Loft- Sýningin veröur opin á venjuleg- ast tréverkin, er ætlaö aö gera til-
inu” viö Skólavöröustig, þar sem um verzlunartima. Vatnslita- boö i þau.
Aftari röö frá vinstri.: Ingigeröur Maria Jóhannsdóttir, Elsa Zimsen, Margrét Jónsdóttir,*
Birna Jóhannsdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Hallfriöur Guömundsdóttir, Kristjana Aöalsteins-
dóttir, Lára Erlingsdóttir, Guölaug Eiiasdóttir, Koibrún Magnúsdóttir, Edda Lóa Skúia-
dóttir, Steinunn Stephensen, Bjarndis Markúsdóttir, Asdfs, Magnúsdóttir, Elln Þrúöur Theódórs-
Fremri röö frá vinstri.: Fanný Guöjónsdóttir, Haildóra Teitsdóttir, Maria Jörgensen, Hafrún
Kristjónsdóttir, Axel Sigurösson skólastjóri, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir,
Guöriöur Friöriksdóttir og Dagbjört Þóröardóttir.—Ljósmyndastofa Gunnars Ingi marssonar
23 lyfjatæknar útskrifast
Lyfjatækniskólinn útskrifaöi
fyrir skömmu tuttugu og þrjá
nýja lyfjatækna. Skólastjóri er
Axel Sigurösson lyfjafræöing-
ur, og námiö tekur þrjú ár,
bæöi verklegt og bóklegt.
Skömmu eftir áramótin i
fyrra var stofnaö Lyfjatækna-
félag Islands, og frá siöustu
áramótum hafa lyfjatæknar
borið merki þess, sem er meö
gylltu letri á bláum grunni, viö
vinnu sina.
Bræðurnir á ,,Loftinu”
Flengingar á
almannafæri
— segja málmiðnaðarmenn
á Skaga
JH-Reykjavik — Málm-
iönaöarmenn á Akranesi eru
harösnúnir náungar, frábitnir
öllum vettlingatökum. A aöal-
fundi I sveinafélagi þeirra nú
fyrir skömmu voru ýmsar
samþykktir geröar, þar á
meöal um dómsmál og refsi-
mál. Segir I niöurlagi þeirrar
samþykktar: „Viö krefjumst
þess einnig, aö þyngdar veröi
refsingar, og má nefna rass-
skellingu á almannafæri og
Ilfstlöarfangelsi I reynd”.
Aöur fyrr voru likamsrefs-
ingar mjög algengar hér eins
og annars staðar, þó einkum
hýöingar, og riöu valdsmenn
meö bööla um héruö til þess aö
fullnægja refsidómum.
Það hefur aftur á móti vart
boriö viö um mjög langt skeiö,
aö nokkur hafi lagt til, aö húö-
látsrefsing yröi tekin upp aö
nýju, hvaö þá aö samþykkt
hafi veriö gerö um slíkt á
félagsfundi.
Ekki er þess getiö I sam-
þykktinni, hvaöa afbrot þaö
eru.er ættuaövaröa opinberri
hýöingu.
Alþýðusamband
Vesturlands stofnað
um helgina
JAE-Borgarnesi — Stofnþing
Alþýöusambands Vesturlands
var haldiö á Hótel Borgarnes
laugardaginn 12. marz 1977. Jón
Agnar Eggertsson, formaöur
Verkalýösfélags Borgarness,
setti þingiö, slöan flutti Björn
Jónsson, forseti Alþýöusambands
tslands, ávarp. Forsetar þingsins
voru kjörnir Einar Karlsson,
Stykkishólmi, og Sigurður Lárus-
son, Grundarf irði. Ritarar
þingsins voru Árndis F. Kristins-
dóttir Borgarnesi og Gisli Gunn-
laugsson, Búðardal. Þingiö sóttu
fulltrúar frá niu aðildarfélögum.
Hinrik Konráðsson, formaður
undirbúningsnefndar, rakti að-
draganda aö stofnun sambands-
ins. Siöan voru lög fyrir sam-
bandið samþykkt.
Stefán Gunnarsson, bankastjóri
Alþýöubankans hf., flutti ávarp á
þinginu. I stjórn sambandsins
voru einróma kjörnir formaöur
Gunnar Már Kristófersson Hellis-
sandi, varaformaöur Hinrik
Konráösson ólafsvik, ritari Guö-
rún Eggertsdóttir, Borgarnesi,
gjaldkeri Einar Karlsson
Stykkishóimi, meðstjórnendur
Gisli Gunnlaugsson Búöardal,
Jón Agnar Eggertsson, Bórgar-
nesi, Sigurður Lárusson,
Grundarfiröi. Varamenn: Ingi-
björg Magnúsdóttir Borgarnesi,
Kristin Nielsdóttir Stykkishólmi,
Jóhann Þóröarson Hvalfirði,
Árndis F. Kristinsdóttir, Borgar-
nesi.
Endurskoöendur Marla J.
. Einarsdóttir, Borgarnesi, og
Ólafur Jóhannsson, Búöardal og
Fjárfesting vegna fóðuriðn-
aðar aðeins 34 milljónir
— þyrfti að vera 160-180 milljónir króna
MÓ-Reykjavik — Samkvæmt
fjárlögum þessa árs er ráö-
gert aö verja til fjárfestingar I
grænfóöursverksmiöjum 34
milljónum króna, en sam-
kvæmt áliti fóöuriönaöar-
nefndar, sem skýrt var frá I
Tlmanum á laugardag, þyrfti
fjárfesting I grænfóðuriönaö-
inum aö nema 160-180 millj.
kr. á ári fram til ársins 1990
svo unnt veröi aö minnka
verulega innflutning kjarnfóö-
urs og spara meö þvl veruleg-
an gjaldeyri.
Til samanburöar má geta
þess, aö framlag rikissjóös til
hafnarframkvæmda viö
Grundartanga á þessu ári er
samkvæmt fjárlögum 150
milljónir kr., eöa nær þvl
fimm sinnum hærri upphæö en
ráögerö er úr ríkissjóöi til efl-
ingar innlends fóöuriönaöar.
I nefndaráliti fóöuriönaðar-
nefndar kemur fram, aö sam-
kvæmt niöurstöðum tilrauna,
sem geröar hafa veriö viröazt
graskögglarnir fullkomlega
samkeppnisfærir viö innflutt
kjarnfóöur, sem fóöurbætir
fyrir jórturdýr. Þar kemur
einnig fram, aö notagildi gras-
köggla til fóörunar er meira
en fóöurgildisákvaröanir á
þeim gefa til kynna. Þetta er
taliö stafa af jákvæöum sam-
verkandi áhrifum milli gras-
kögglanna og heyfóöurs. Niö-
urstööur tilrauna hérlendis og
erlendis ber saman um þetta.
Þá kemur einnig fram I
nefndarálitinu, aö grasmjöl
má nema 15-20% I fóöurblönd-
um handa varphænum og
sama gildir um fóöur varp-
fugla I uppeldi. Veriö er aö
gera tilraunir meö aö nota
miklu meira af grasmjöli i
hænsnafóöur, en niöurstööur
liggja ekki fyrir. Þá er vitaö,
aö I fóöri svina — annarra en
sláturgrlsa — má grasmjöl
nema 15-20% af heildarfóör-
inu. Þá hafa graskögglar einn-
ig verið notaöir I stórum stíl
sem fóöur handa hestum og
gefizt mjög vel.
Loks er þess getið i nefnd-
arálitinu, aö nokkrar tilraunir
hafa á slöari árum veriö gerö-
ar meö Iblöndun fitu og fleiri
innlendra fóöurefna I gras-
mjöliö áöur en þaö er kögglaö.
Meö þessu má auka orkugildi
kögglanna og koma I nýtan-
legt form ýmsum innlendum
fóöurefnum, s.s. tólg lýsi,
slógkjarna og fl. Þvi bendir
margt til þess, aö graskögglar
geti oröiö uppistaöan I fjöl-
breyttum innlendum fóöuriön-
aöi.
Nefndin telur þvi réttmætt,
aö gera skipulegt átak til þess
aö stórauka fóðuriönaö i þvi
skyni aö draga sem frekast
má vera úr innflutningi
erlends kjarnfóöurs.
varaendurskoöandi Agnar Ólafs-
son, Borgarnesi.
A þinginu voru HinrikiKonráös-
syni færöar sérstakar þakkir fyr-
ir starf hans að undirbúningi
stofnfundar sambandsins. Ný-
kjörinn formaður Gunnar Már
Kristófersson, flutti ávarp og
árnaði sambandinu heilla.
Eftirfarandi tillaga um kjara-
mál var samþykkt einróma:
„Stofnfundur Alþýðusambands
Vesturlands, haldinn i Borgarnesi
12.3. 1977, lýsir fyllsta stuöningi
við kröfur Alþýöusambands Is-
lands i þeim kjarasamningum,
sem nú eru hafnir og heitir þvi að
standa sem órofa heild að þvi að
fullur árangur náist. Jafnframt
vitir fundurinn harðlega þá
kjaraskeröingastefnu, sem nú-
verandi rikisstjórn hefur rekið
gagnvart öllum launþegum i
landinu. Fundurinn heitir á
samninganefnd ASI, aö standa
fast á kröfunni um 100 þús. kr.
lágmarkslaun og fullar visitölu-
bætur.
A þinginu virtist mikill einhug-
ur um að gera nýstofnaö sam-
band að sterku afli innan verka-
lýðshreyf ingarinnar.
Embætti
auglýst
með níu
mánaða
fyrirvara
EMBÆTTI rlkisféhiröis hefur
auglýst laust til umsóknar. Er
þaö meö góöum fyrirvara
gert, þvl aö þaö skal veitast
frá 1. janúar 1978.
Her eru þvl riflega nlu
mánuöir til stefnu.
Jón Dan rithöfundur hefur
veriö rikisféhiröir siöan 1.
janúar 1959, en mun nú hafa
hug á aö helga sig ritstörfum,
er hann lætur af embætti.
BARNA-
fatnaður
Fataskápurinn
Laugavegi 12 .
Sími 2-16-80