Tíminn - 15.03.1977, Side 15

Tíminn - 15.03.1977, Side 15
Þriöjudagur 15. marz 1977 15 meö upplestri eftirhermum og almennum söng frá sam- komu Islendingafélagsins I Kaupmannahöfn, sem hald- in var I Jónshilsi 19. f.m. 15.00 MiOdegistónleikar Kornél Zempléni og Ungverska rlkishljóm- sveitin leika Tilbrigöi um barnalag fyrir pianó og hljómsveit op. 25 eftir Dohanányi: Gyorgy Lehel stjónrar. Útvarpshljóm- sveitin í Berlfn leikur „Skýþiu-svítu” fyrir hljóm- sveit eftir Prokofieff. 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Popp 17.30 Litli barnatlminn Finnborg Scheving stjórnar tlmanum. 18.00 Tónléikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Vinnumál. Lögfræöing- arnir Arnmundur Backman og Gunnar Eydal sjá um þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins Ásta R. Jóhannesdóttir kynnir. 20.50 Aö skoöa og skiigreina Kristján E. Guðmundsson og Erlendur S. Baldursson sjá-um þátt fyrir unglinga. 21.30 Frá orgeltónleikum Martins Haselböcksi kirkju Filadelfiusafnaðarins i september s.ll. a. Sónata i A-dúr eftir Mendelssohn. b. Tveir þættir úr „Fæöingu frelsarans” eftir Messiaen. c. Danstokkata eftir Heiller. d. Hugleiðing um „ísland, farsælda frón”, leikin af fingrum fram. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Lestur Passiusáma (32) 22.25 Kvöldsagan: „Sögukaflar af sjálfum mér” eftir Matthias Jochumsson Gils Guö- mundsson les úr sjálfsævi- sögu hans og bréfum (7). 22.45 Harmonikulög Garöar Olgeirsson leikur. 23.00 A hljoöbergi Lesið og sungiö úr ljóöúm Roberts Burns. Meöal flytjenda eru lan Gilmour, Duncan Robertson og Margaret Fraser. 23.30 Fréttir. Einvigi Horts og Spasskýs: Jón Þ. Þór rekur 8. skák. Dagskrárlok um kl. 23.50. sjónvarp Þriðjudagur 15.mars 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Skákeinvigiö 20.45 Reykingar. Skaösemi reykinga.Fyrsta myndin af þremur um ógnvekjandi af- leiðingar sigarettureyk- inga. I Bretlandi deyja ár- lega meira en 50.000 manns af völdum reykinga, eða sex sinnum fleiri en farast i um- ferðarslysum. Meöal ann- ars er rætt viö rúmlega fertugan mann, sem haldinn er ólæknandi lungnakrabba. Hinar myndirnar tvær veröa sýndar næstu þriöju- daga. Þýöandi og þulur Jón O. Edwald. 21.15 Grunnskólinn — og hvaö svo? Umræöuþáttur um grunnskólann og tengsl hans viömenntakerfiö. Um- ræöunum stýrir Hinrik Bjarnason, og meöal þátt- takenda eru Óli Þ. Guöbjartsson skólastjóri og Stefán Ólafur Jónsson, fulltrúi i Menntamálaráöu- neytinu. 21.55 Colditz Bresk-banda- riskur framhaldsmynda- flokkur. Fyllsta öryggi. Þýöandi Jón Thor Haralds- son. 22.45 Dagskrárlok. Hættulegt ferðalag eftir AAaris Carr ar í London. En það gæti hún ekki vitað fyrr en hún fengi fréttir þaðan. Væri maðurinn hins vegar hér í grenndinni, var allt útlit fyrir að hann kærði sig ekki um að ná sambandi við hana. Þær tvær vikur, sem hún hafði nú verið hér, voru nægur tími fyrir hana. Undar- legt að hún skyldi svo f úslega samþykkja það sem Will sagði, fyrst hún hafði brugðizt svo illa við, þegar Mike sagði hið sama. Júlía minntist ekki einu orði á að bezt væri að hún færi úr sjúkraskýlinu, þrátt fyrir að hún var látin vita af því að María og hitt starf sf ólkið hef ði nóg að gera. Hún var afar erfiður sjúklingur, kvartaði stöðugt, ef henni var ekki veitt næg athygli og gat alls ekki skilið, hvers vegna allir snerustekki sífelltum hana. Hins vegarvar Grace ekkert nema hjálpsemin og fór meira að segja fram úr til að færa hinum sjúklingunum mat áður en hún fékk leyfi til fótavistar. Penny kom iðulega að henni sitjandi á rúmstokk ungs Brasilíumanns, sem hafði fótbrotnað og gat ekki hreyft sig. Honum leiddist ósköp og kunni vel að meta líflegtspjall við Grace. En Júlía varð bara erfiðari, þegar hún sá að Grace var þakkað og Penny veittist æ örðugra að kyngja sær- andi athugasemdum hennar orðalaust. Langt var síðan henni hafði gefizt tími til að synda í pollinum og hún fór að verða hrædd um að taugarnar færu að slitna. Ég hef einbeitt mér allt of mikið að sjúkraskýlinu og starf- inu þar, hugsaði hún með sér. Það er heimskulegt að láta það koma niður á heilsunni. Skapvond hjúkrunar- kona er það versta sem til er. Fyrst Grace er orðin það hressaðhún getur hjálpað okkur, hiýtégaðgeta slakað á. Morguninn eftir fór hún niður að pollinum. Fanný og Nellie veifuðu til hennarúr dyrum kofans, sem reistur hafði verið við pollinn. Þar lágu þær og nutu lífsins á þykkum sefmottum. — Loksins! Við höfum verið að velta fyrir okkur, hvort þú ætlaðir aldrei að koma hingað aftur, sagði ( Fanný og settist upp. — Það eru margir dagar, sfðan þú ' hefur látið sjá þig hér. Penny brosti og smeygði sér úr kjólnum, sem hún hafði verið í utan yfir bikini-baðfötunum. — Er óhætt að fá sér sprett? spurði hún og leit út yf ir spegilsléttan mórauðan pollinn. — Paul er þarna einhvers staðar. Kallaðu á hann, því hann hefur áreiðanlega fengið sér blund. Við Nellie erum allt of latar til að synda. Við skvettum bara svolítið á okkur. Þegar Penny gekk niður að pollinum, fældi hún upp stóran hóp af skrautlegum f iðrildum, sem hurf u út yf ir vatnið eins og fljúgandi regnbogi. Hún horfði á eftir þeim andartak áður en hún kallaði á Paul, sem vaknaði af værum blundi og kleif upp á plankann, sem notaður var sem stökkbretti. Penny óð út í. Ef lyktinni var sleppt, var vatnið ekki sem verst. En nú þreytist hún fljóttog var ekki lengi. Þegar hún fór að sækja hand- klæðið, varð hún hissa að sjá ókunnan ungan mann standa og tala við Fannýju og Nellie. Hann leit upp þeg- ar hún kom og hún tók eftir að hann var aðeins lítið eitt hærri en hún. hann var ekki ómyndarlegur, Ijóshærður og brúneygur. Hann var þreklega vaxinn, en liðlegur. Hann virti hana fyrir sér, helzt til vandlega, að henni fannst. Hún f lýtti sér að segja: — Afsakið, en ég þekki yður ekki, er það? Hann brosti svo skein í jaf nar, hvítar tennur. — Ekki nema faðir þinn hafi minnzt á mig í bréfum sínum, svaraði hann vingjarnlegri röddu og þúaði hana rétt eins og þau hefðu þekkzt árum saman. — Ég vann mik- ið með honum á plantekrunni. Einmitt. Hún áleit bezt að forvitnast svolítið. — Þú ert þá læknir? Hann hristi höf uðið. — Nei, ekki er það nú svo merki- legt. Ég vinn við gúmmí, en ég var vanur að gerast eins konar sjúkraliði, þegar faðir þinn þarfnaðist hjálpar. Ég hef alltaf haft áhuga á læknisfræði. Penny tók upp handklæðið og byrjaði að þurrka sér. jafnframt því sem hún veitti því athygli að Fanný og Nellie horfðu á þau. — Það getur vel verið að faðir minn haf i minnzt á þig, en það get ég ekki vitað f yrr en ég veit hvað þú heitir. — Að sjálfsögðu ekki. Ég er Roy Matheson. Ég kom hingað á bátnum með Vincent í morgun. Mike hafði þá sent eftir honum! Penny smeygði kjólnum yfir höfuðið og hristi rakt hárið aftur á bakið. — Júlía var að spyrja um þig, sagði hún og óskaði þess, að hann horfði ekki svona fast á hana. — Ég veit það. Ég leit inn til hennar áður en ég kom hingað. Maria sagði, að það væri svo sem ekkert að henni. Hann brosti. — María sagði líka, að ég þyrfti að fá leyfi þitt til að heimsækja hana. Fanný ræskti sig og Penny vonaði að hún léti vera að koma með eina af sínum venjulegu athugasemdum um Júlíu, en Nellie greip fram í: — Ættum við ekki að hreyfa okkur svolitið, Fanný? Það hlýtur að fara að koma matur. — Jú, við getum það svo sem. Ég held að ég sé að festa rætur hérna. Stundum velti ég fyrir mér, hvers vegna við vöxum ekki eins og hinn gróðurinn í þessu loftslagi. Penny hló. — Er það nú hugsanagangur. Ertu með sólsting? — Hitinn hef ur engin áhrif á mig. Það veiztu. Fanny brosti. — Ef þér hef ur dottið í hug að leggja mig inn til rannsóknar, þá slepptu því. Mér liður alveg prýðilega. ? — Ef Vincent er kominn aftur, verð ég ekki meira í sjúkraskýlinu. Kannski ég ætti að f ara og tala við hann. — Vilja dömurnar ekki að einhver beri fyrir þær dót- ið? spurði Roy kurteislega og beygði sig til að taka upp handklæðin. — Og, ætli við björgum okkur ekki svaraði Fanný stuttlega. — Við Nellie förum á undan. — Þú virðistekki sérlega vinsæll þarna, sagði Penný, þegar þau Roy voru ein eftir. — Það er ólíkt Fannýju að vera svona stutt í spuna. — Æ, ég gerði henni grikk seinast þegar ég var hérna og hún hefur ekki fyrirgefið mér. Roy stakk handlegg sínum undir handlegg Pennýjar. — Eigum við að koma? Það er svalara undir trjánum. — Hvað gerðirðu henni? — í rauninni var það hreimskulegt, en ég heyrði af tilviljun að þær voru að tala illa um Júlíu og ákvað að hef na min. Ég vissi að Fanný var hrædd við snáka, svo ég setti snák í rúmið hennar. — Roy þó! Það hefurðu ekki gert? — Hann var ekki lifandi. Ég hafð áhuga á töfra- brögðum um þær mundir og snákurinn var hluti af út- búnaðinum. Einn af þessum gúmmísnákum. En þess vegna komust þær að því hver hafði sett hann þarna. Hann brosti.— En ég hef þroskazt síðan. Vertu svo væn að dæma mig ekki of hart. — Nú jæja, það var ekki svo mjög slæmt, en ég get ímyndaðmér hvernig Fannýjuleið. Ensamtfinnst mér skrýtið að hún skuli ekki hafa fyrirgefið þér Hún er ekki langrækin. — Hmm. Ég veit ekki. En við skulum ekki eyða tím-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.