Tíminn - 19.03.1977, Blaðsíða 8
8
Laugardagur 19. marz 1977
70 ára starf
Hlífar
á Akureyri
FYRIR nokkru átti KvenfélagiO
Hlif 70 ára afmæli og var þess
minnzt meO hófi aO Hótel KEA
sama kvöld. Þar var glatt á
hjalla og margt sér til gaman
gert.
Viö þetta tækifæri var Jónina
Steinþórsdóttir kjörin heiöurs-
félagi fyrir mikil og vel unnin
störf i þágu félagsins. Aörir
heiöursfélagar, sem eru á lifi,
eru Gunnhildur Ryel, Elinborg
Jónsdóttir og Kristín Péturs-
dóttir.
Félagiö var stofnaö af 8 kon-
um, en brátt fjölgaöi i félaginu
og þaö lét mjög til sin taka.
Fyrstu starfsárin beindi þaö
kröftum sinum aö liknarstörf-
um, s.s. hjúkrun sjúkra og hjálp
viö aldraö fólk og bágstadda. En
er franv liöu stundir og betur var
séö fyrir þessum málum t.d.
meö tilkomu Rauöa krossins,
tók félagiö sér fyrir hendur aö
koma fátækum börnum f sveit
til sumardvalar. Þetta starf
kom sér mjög vel einkum á
striösárunum.
Ariö 1946 gaf svo Gunnhildur
Ryel félaginu lóö til þess aö
reisa barnaheimili. Var nú haf-
izt handa um fjársöfnun og
vinnu og drógu HHfarkonur
hvergi af sér og nutu aðstoöar
margra aðila sem sizt mætti
vanþakka. Áriö 1950 haföi félag-
inu tekizt aö koma upp býsna
myndarlegu húsi fyrir sumar-
dvalardagheimili, og hlaut þaö
nafnið Pálmhol;t. Við þann staö
kannast vist flestir bæjarbúar.
Þetta heimili rak félagiö svo á
sumrin allt til ársins 1972, en þá
var þaö öllum ljóst, aö þörfin
fyrir dagheimili allt áriö var
oröin mjög brýn, og rekstur
sliks heimilis ofvaxinn fátæku
félagi. Hinn 29. febr. 1972 gaf
Hlif þvi Akureyrarbæ Pálmholt
meö öllum búnaöi og án allra
skuldbindinga.
Þetta uröu aö visu timamót,
en Hlif hætti samt ekki aö hlúa
aö börnum. Næsta verkefni var
að safna fé til tækjakaupa fyrir
barnadeild FSA, og aö þvi er
unniö enn af fullum krafti og
e.t.v. hefir félaginu aldrei riöiö
meira á að afla fjár en nú.
Viö þessi tækjakaup hefir ver-
iö haft fullt samstarf viö lækna
og hjúkrunarliö deildarinnar.
Tæki þau sem gefin hafa veriö,
eru: hitakassi (fóstra), súrefn-
istæki og ljósalampi, blóöþrýst-
ingsmælir, vökvadæla, barna-
röggur upphitaöar meö ljósa-
perum, sogdæla til aö sjúga úr
vitum sjúklinga, rakaúöunar-
tæki, blöndunarkranar fyrir
súrefni og loft, vöggur sem
skoröa börn I hitakassa og ná-
kvæm vog. öll eru þessi tæki af
vönduöustu gerö og miöuð viö
þarfir ungbarna og íyrirburöa.
A siöastliönú hausti gaf félagiö
lika vandaöa smásjá á rann-
sóknarstofu sjúkrahússins, sem
starfsfólkiö þar lýkur miklu
lofsoröi á.
Minningarsjóöur Hlifar hefir
búiö deildina vel aö leikföngum
og nokkrum bókakosti, og viö
opnun hennar færði sjóöurinn
vandaö sjónvarpstæki aö gjöf.
Þaö ætti raunar ekki aö þurfa
aö afla lifsnauösynlegra
lækningatækja meö samskotum
og sjálfboðastarfi, en reyndin er
samt sú, aö þrátt fyrir mjög há
framlög þess opinbera til heil-
brigöismála, skortir oft þau
tæki, sem til eru i þessum tækni-
vædda heimi, og gætu e.t.v.
bjargað litlu sjúku barni og
komið þvi til heilbrigði. Islend-
ingar voru aö visu vanir ung-
barnadauöa til forna, en gott
væri aö geta foröað sem flestum
foreldrum frá slikri raun, og
enginn veit hvers viröi nýr
borgari kann að veröa þjóö
sinni, nema hann haldi lifi og
nái þroska.
Kvenfélagið Hlif er fremur fá-
mennt félag og ekki auöugt aö
fjármunum. Nú hefir hins vegar
verið ákveöiö að bjóöa bæjarbú-
um aö gerast styrktarfélagar
þess. Hugmyndin er sú aö þessir
styrktarfélagar greiði ákveöiö
lágmarksárgjald, en hafi ann-
ars engar félagslegar skyldur
viö Kvenfélagiö Hlif.
Stjórn félagsins skipa nú:
Guömunda Pétursdóttir,
formaöur, Emelia Siguröar-
dóttir, Fanney Eggertsdóttir,
Ragnhildur Jónsdóttir og Hólm-
fríður Jónsdóttir.
Vinahjálp af-
hendir gjafir
Miövikudaginn 16. marz 1977,
fór fram I Átthagasal Hótel
Sögu afhending gjafar,, Vina -
hjálpar” til fæðingarheimilis
Reykjavfkurborgar aö Þor-
finnsgötu 14.
Gjafir þessar eru:
1. Sonic-aid Fetal Monitor
ásamt fylgihlutum. Tæki
þetta er til þess gert aö fylgj-
ast meö hjartslætti móöur og
barns, á meöan á fæöingu
stendur, auk annars.
2. 3 Elliott-fæöingarbekkir
ásamt fylgihlutum.
3. Segulbandstæki meö 2
hátölurum. Tæki þessi eru
valin af læknum stofnunar-
innar og i samráði viö próf.
Sigurö Magnússon.
Andviröið er aröur af 2 bösur-
um „Vinahjálpar” á árunum
1975 og 1976.
Formaöur „Vinahjálpar”,
Doris Briem, afhenti gjöfina, en
forstööukona fæðingarheimilis-
ins, Hulda Jensdóttir, veitti
henni móttöku. Læknar stofn-
unarinnar ásamt eiginkonum
voru viöstaddir.
Doris Briem afhendir gjafir Vinahjálpar og Hulda Jensdóttir,
forstööukona fæöingarheimilisins, veitir þeim viötöku.
Danskennarasam-
bandið heldur
fj ölsky lduskemmtun
og unglingadansleiki
Danskennarasamband Is-
lands gengst fyrir fjölskyldu-
skemmtun á Hótel Sögu (Súlna-
sal) næstkomandi sunnudag kl.
14.00. Þarna verður tilvaliö
tækifæri fyrir alla fjölskylduna
aö fara saman út og skemmta
sér, þvi börnin fá aö dansa, og
nemendur og kennarar dans-
skóla Sigvalda og Heiöars Ast-
valdssonar sýna nokkra dansa.
Skemmtanir sem þessar hafa
verið árviss þáttur I starfi
D.S.Í., og þarna gefst almenn-
ingi kostur á aö sjá þaö sem
kennt er I dansskólunum.
Þessi skemmtun veröur ekki
endurtekin, en aftur á móti
stendur D.S.Í.fyrir dansleikjum
I Tónabæ næstu tvo sunnudaga
fyrir unglinga, þar sem dans-
sýningarnar veröa endurteknar
og er dansleikurinn n.k. sunnu-
dag kl. 19.00-22.00 ætlaður 12 og
13 ára aldrinum, en sunnudag-
inn 27. marz er dansleikur kl.
20.00-23.00 og ætlaöur 14 og 15
ára aldurshópnum.
Aögöngumiöar eru seldir I
dansskólum borgarinnar og viö
innganginn á skemmtanirnar ef
eitthvaö veröur óselt. D.S.Í. vill
hvetja allt dansáhugafólk til aö
notfæra sér þessi tækifæri til
skemmtunar og gleöi.
Félagar í D.S.I. eru nú liölega
20, og vinna af einhug saman aö
uppbyggingu danslistarinnar I
landinu. Hafa félagsmenn unnið
kappsamlega aö undirbúningi
þessarar sýningar og lagt á sig
mikla vinnu viö æfingar, saum á
búningum og annaö sem fylgir
sliku stórfyrirtæki, en eins og
flestum er kunnugt á dansinn
erfitt uppdráttar og hefur vart
ennþá slitið barnsskónum.
Undirbúningur hefur þvi aö
mestu hvílt á herðum stjórnar
D.S.I., en hana skipa nú Guö-
björg Pálsdóttir formaður,
Edda Rut Pálsdóttir ritari, Iben
Sonne Bjarnason gjaldkeri, og
meöstjórnendur Klara Sigur-
geirsdóttir og Heiðar R. Ast-
valdsson.
Heiöar Ástvaldsson og Edda Rut Pálsdóttir veröa meöal þelrra •
sem sýna dans.