Tíminn - 19.03.1977, Qupperneq 11

Tíminn - 19.03.1977, Qupperneq 11
Laugardagur 19. marz 1977 M leiklist unnið. Hvort ég hef allt i einu oröiö þreyttur á þvi, ég veit þaö ekki, nema altieinu var ég byr jaður aö skrifa þetta leikrit, hérumbil óundirbúið utanum einfalda hugmynd, sem hlýtur aö hafa myndast, án þess ég væri nokkuö aö leita eftir henni. Þaö tók mig mjög stuttan tima aö skrifa þetta, varla meira en viku. Ég haföi veriö á Spáni siö- sumars ’33 og fór siðan til Kaup- mannahafnar nær jólum: sat þar mikinn part úr vetri Gunn- ari Gunnarssyni til aðstoðar meöan hann var aö þýöa Sölku Völku. Viö unnum venjulega saman tvo daga i viku. Og ég man eftir þvi aö ég sýndi honum leikritiö. Hann haföi þaö hjá sér f tvo þrjá daga, las þaö og var jákvæöur gagnvart þvf. Á ein- um eöa tveimur stööum gaf hann mér góöar visbendingar, man ég var. Siðan sendi ég þetta heim, baö Þorstein ú. Stephen- sen fyrir þaö, en hann var þenn- an vetur viö leiknám I Kaup- mannahöfn.” ,,... Ég mun hafa séö þaö I örkum hér heima um sumarið, þegar veriö var aö prenta þaö. Mig rámar i aö þaö hafi gerst I litlum skúr hérna suður á Grimsstaðaholti, mig minnir ég hafi komið þangaö og skilaö próförkum. Sjálfa bókina sá ég ekki fyrr ai löngu seinna”. Straumrof segirfrá miðaldra hjónum og dóttur þeirra, ungri. Allt er til fyrirmyndar, efna- hagur, ráðslag og uppeldiö, og En hvers vegna nú? Af hverju er verk sem er nánast hrópaö niður áriö 1934 oröið svona gott áriö 1977? Astasöan er liklega sú, fyrst og fremst, aö nú rikir meira frelsi. Þaö sem menn þoröu ekki aö hugsa fyrir striö , skrifa menn nú f blöö undir nafni, eöa setja upp á sviö. Þaö sem vekur mesta furöu manns er hversu útsmoginn og gjörhugsaöur þessi leikur er, þrátt fyrir aö látiö sé aö þvi liggja aö þetta hafi aðeins tekiö viku. Leikurinn ber svip yfir- leguverks, gnægö smámuna skýra linurnar i myndinni: Kon- an kann ekki aö sjóöa fisk, en leikur á pianó, hún stýrir fari sinu meö smálygum, heimsókn- ir i hús veröa eftirbreytnis- veröir leikir lúterska ung- menna, en svo er fáum oröum breytt og allt snýst upp i kyn- svall og brennivinsdrykkju meö sólbrúnum sveitamönnum, og með þessum tveim útgáfum af sögum og aö viöbættum út- varpsfréttum, undir ýmsum sálfræðilegum skilyröum, tálg- ast smám saman utan af kjarna verksins — og viö sjáum allt i nýju ljósi. Inn í þetta fléttar höfundur kimni, og stundum var liklega hlegiö á röngum stöðum, ein- faldlega af þvi að viö höfum áö- ur brotiö þetta gler. Ef maöur á aö finna aö ein- hverju, þá er það sem fyrr reynsluleysi skáldsins i prakt- iskum málum og tækni: Verk- fræöingar tala ekki i sveitasima Skáldiö og leikstjórinn LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR STRAUMROF Sjónleikur eftir: Halldór Laxness Leikstjórn: Brynja Bendiktsdóttir Leikmynd: Steinþór Sigurösson Búningar: Andrea Oddsteinsdóttir Lýsing: Daniel Williamsson Leikh Ijóö: Guömundur Guömundsson Leikfélag Reykjavfkur frum- sýndi Straumrof eftir Halldór Laxness síöastliöinn miöviku- dag, en leikrit þetta var siöast á dagskrá hjá félaginu veturinn 1934 og vakti þá hneykslun og var hrópaö niöur, þvi sýningar uröu aöeinsfimm. Jeppi á Fjalli var þá sýndur 14 sinnum og Variö yður á málningunni (René Fauchois) var sýnt niu sinnum. Straumrof á einni viku Ekki skorti þó umræðuna, sem svo ofter talin iöin viö sölu á bókum og leikhússmiðum. Nei, Straumrof var á undan sin- um tfma, og menn tóku slika vinnu illa upp, þvf konur voru ekki orönar svona miklar skepnur þá i bókmenntum og menn varla heldur. Höfundur lýsir tildrögum aö sjónleiknum á þessa leiö: „—Þetta var i lok janúar ’34. Ég var búinn aö vera nokkuð lengi meö Bjart f Sumarhúsum á pr jónunum, var i miöju verki. Þaö var dálitiö erfitt og sein- STRAUMROP eftir Halldór Laxnes dóttirin er trúlofuö ungum tón- listarmanni, sem á hlutabréf. Ádeila á hjónaband nútiðarinnar? Móöirin er fyrirferöarmikil i lifi ungu stúlkunnar, vakir ekki aöeinsyfir henni imislingum og skarlatsótt, heldur lika yfir hverjuskrefihennar, einkum og sér i lagi ef jafnaldrar eru á næsta leiti —en svo kemur mið- aldra verkfræöingur i spiliö, fráskilinn maöur sem fæst viö hafnargerö og áöur en varir tek- ur lífiö nýja stefnu og leikurinn snýst upp i ádeilu á „hjónaband nútfðarinnar”, eins og þaö var oröaö áriö, sem þaö var sýnt fyrst og gefiö út, 1934. Svo er helzt aö skilja á höf- undi, aö hann hafi i rauninni aö- eins þurft að rita leikritiö niöur, þaö hafi birzt þvi i fullri mynd i einni svipan, meöan hann var aö vinna aö öðru verki. Halldór Laxness haföi þó hugsað mikið um leikhús. Hann haföi t.d. ritaö leikdóma fyrir Alþýöublaöiöpart úr vetri, m.a. um Fröken Júliu eftir Strind- berg, sem lika réöist á fjöl- skylduna, en hvaö um þaö. Straumrof er stórkostlegt verk, liklega bezta leikritsem Halldór Laxness hefur ritaö um ævina. i þrumuveöri, margir taka stofnöryggi úr og stilla útvörpin sin á jörö, en þetta eru þó hrein- ir smámunir. Nýir kraftar LR Leikfélag Reykjavikur beitir fyrir sig nýjum kröftum, til aö takast á viö Straumrof Halldórs Laxness. Þaö er ávallt gott aö sjá ný andlit, nýja vinnu i leikhúsunum, en ekki alltaf þaö sama. Þó er þetta siöur en svo reynslulaust fólk. Brynja Benediktsdóttir, leik- stýrir þessu verki, sem gestur og henni bregzt ekki bogalistin fremur en venjulega. Hún legg- ur áherzlu á timasetninguna. Sjálfsagöir hlutir millistriösár- anna, veröa frumlegir og sér- kennilegir eftir rúmlega fjöru- tiu ár. Leikbrögö hennar falla betur aö efninu en oft áöur, eöa auöveldlegar, þannig aö textinn nýtur sin til fulls. Árangur lætur heldur ekki á sér standa, þetta ervönduö sýning og áhrifamik- il. Andrea Oddsteinsdóttirsá um búninga, sem voru óvenjulega vel geröir. Maöur hefur ekki séð svona vel klætt eöa „rétt” klætt fóik lengi. Sama má segja um leikmynd Steinþórs Sigurðssonar, sem er hreinasta afbragð. Meö hlutverk fara sex leikar- ar. Jón Sigurbjörnsson leikur föðurinn, Loft Kaldan, og gerir hlutverkinu trúveröug skil, en Margrét Helga Jóhannsdóttir fer meö hlutverk frúarinnar, Gæju Kaldal. Margrét Helga hefur liklega aldrei leikiö betur á sviöi en þarna. Ragnheiöur Steindórsdóttir leikur ungu stúlkuna, Oldu Kaldan, og er Ragnheiöur aö ná sér vel á strik, sem leikkona, þrátt fyrir ungan aldur. Asa Helga Ragnarsdóttir leikur þjónustuna. Hjalti Rögnvaldsson leikur tónlistarmanninn, sem er fædd- ur ihlutafélagi. Hann gerirhlut- verki sinu sem er ekki vanda- laust, ágæt skil og eftirminni- leg. Arnar Jónsson leikursvoDag Vestan verkfræöing og er nú aldeilis frábær. Vonandi helzt leikhúsunum fyrir sunnan eitt- hvað á þessum mikilhæfa leik- ara. Hljómleikur eftir Elgar var i hléum. Jónas Guömundsson Félagsmálanámskeið í Reykjahverfi t febrúar og marzmánuöi var haldiö félagsmálanámskeiö á vegum Ungmennafélagsins Reykhverfungs og Kvenfélags Reykjahrepps I S-Þing i félags- heimili Reykjahrepps. Þátttak- endur voru 14 talsins. Kennslu- kvöld voru 7. Leiöbeinendur voru þeir Arn- aldur Bjarnason á Fosshóli, og Gunnlaugur Arnason kennari i Hafralækjarskóla. Stuözt var viö námsefni frá félagsmálaskóla U.M.F.I. Og, fólst kennsla einkum i fundar- stjórn, ræöumennsku og félags- störfum. Siöasta kvöldiö var haldin kvöldvaka, sem tókst mjög vel. Þátttakendur voru mjög ánægöir meö námskeiö þetta, og töldu aö þaö glæddi mjög áhuga á félagsstarfsemi, einnig hjálpaöi þaö fólki, sem ætti t.d. i erfiöleik- um aö tjá sig, til þess aö öölast sjálfstraust. Vilja þessi félög hvetja önnur félagssamtök til aö koma slikum námskeiöum á fyrir félagsmeð- limi sfna, þeim til ánægju og félagsþroska. m IMPEX Vestur- ..... hen mi°9 mi Þýzk hagstæti gæðavarct verd Pj UMBOÐSMENN: asgrca. „***» pir>9e^r_ ' m, Oesiur-Hun- Xffh&SSf DaW'kor ,r Gunt'»rsson efl'^^ÍÍwrTBrnrur M*u“Sss0" yci. R»n9*'n^9núsSon' ^6bTflfl'n«8v6rode' SVERRIR ÞÓRODDSBON &CO Fellsmúla 24-26 • Hreyfilshúsinu • Sími 82377

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.