Tíminn - 24.03.1977, Síða 2
2
Fimmtudagur 24. marz 1977
Lóan
komin
Tveir ráövandir og sannorö-
ir menn komu aö máli viö
Timann I gær og kváöust hafa
heyrt I lóu, sem söng fullum
hálsi „dýröin dýröin” I skrúö-
garöinum I Laugardal i gær.
Er lóan aö minnsta kosti mán-
uöi á undan timanum, þvi
venjulega kemur hún ekki fyrr
en upp úr miðjum aprilmán-
uöi. Veöurfar i vetur og ekki
sizt nú, er dregur aö vori, er
meö slikum eindæmum á Suö-
ur- og Vesturlandi, aö elztu
menn muna ekki annaö eins,
og skulum viö vona aö
snemmbúnum sumargestum
okkarveröiþaö ekkiaöfalli aö
leggja leiö sina hingaö mánuöi
fyrr en venjulega.
Víðir AK
seldur til
Noregs og
aftur til
íslands
PÞ-Sandhóli. Ekki alls fyrir
löngu keyptu Akurnesingar
skuttogara og seldu þá Viöi
AK úr landi eins og lög gera
ráö fyrir. Kaupendur voru
norskir. 1 gær sigldi sami bát-
ur undir nafninu Jóhann
Gislason AR-47 inn i nýja
heimahöfn, Þorlákshöfn. Eig-
andi bátsins, sem er 220 lestir
er nú Glettingur hf. i Þorláks-
höfn, sem keypti hann frá
Noregi. Litlar sögur fara af
útgerö bátsins i Noregi.
Ályktun um
bjór
FRAMTÍÐIN, málfundafélag
M.R., hefur sent frá sér ályktun,
sem samþykkt var meö meiri-
hluta atkvæöa á ályktunarhæfum
félagsfundi þess. Þar segir. —
Fundurinn samþykkir aö beina
þvi til alþingismanna, aö þeir
stefni aö þvi aö leyfa bjórsölu á
tslandi, enda sé engin ástæöa til
þess aö Islendingar, einir allra
Evrópuþjóöa, fari á mis viö þá á-
nægju og þaö andrúmsloft, sem
honum fylgir. Fundurinn mælist
til þess, aö strangt eftirlit skuli
haft meö bjórsölu og sömu reglur
skuli haföar um hann eins og ann-
aö áfengi,
.
Um hvaö skyldi hún vera aö hugsa, þarna mRt I ysi umferöarinnar?
Þaöfáum viö liklega aldrei aö vita, — enef hugsanirnar eru eins falleg-
ar og hiöytra útlit, má hún vei viö una. Tlmamynd Gunnar.
Bændafundur á Egilsstöðum:
„Leggja ber sex-manna-
nefndina niður og semja
beint við rikisvaldið”
JK-Egilsstööum. — Bændafé-
lag Fljótsdalshéraös gekkst
fyrir almennum bændafundi
siöastliöiö mánudagskvöld.
Fundurinn, sem var haldinn I
Valaskjálf á Egilsstööum, var
mjög fjölsóttur og stóöu um-
ræöur langt fram á nótt.
Rætt var um verölags- og
lánamál landbúnaöarins, og
voru framsögumenn þeir
Stefán Pálsson frá Stofnlána-
deild landbúnaöarins og
Gunnar Guöbjartsson formaö-
ur Stéttarfélags bænda.
Eftirfarandi ályktanir voru
geröar á fundinum:
Almennur fundur i Bænda-
félagi Fljótsdalshéraös, hald-
inn 21. marz 1977, lýsir megnri
óánægju meö, aö bændur hafa
ekki náö þeim tekjum sem
þeim ber, lögum samkvæmt.
Þvi gerir fundurinn eftirfar-
andi ályktanir.
I. Um verölagsmál.
1. Leggja ber niður
sex-mannanefndar fyrir-
komulagiö og taka upp beina
samninga viö rikisvaldiö um
verölagningu búvöru.
2. Niöurgreiöslur veröi
færöar af sölustigi landbúnaö-
ar yfir á framleiöslustig hans,
þvi þar myndu þær verka bezt
til lækkunar á söluverði bú-
vöru.
3. Felldur veröi niöur sölu-
skattur af kjöti.
4. Meö tilvisun til þeirrar
gagnrýni, sem fram hefur
komið á útflutningsuppbætur
á landbúnaöarafuröir, bendir
fundurinn á aö þær eru trygg-
ing fyrir þvi aö bændur fái
umsamiö verö. Þvi komi ekki
til greina aö skeröa rétt þeirra
I þvi efni, enda veröi fram-
leiöslunni beint, meö verö-
lagningu og lánafyrirgreiösl-
um, inn á þær brautir sem
hagkvæmastar eru hverju
sinni.
II. Um lánamál.
1. Fundurinn bendir á aö
hagkvæm stofnlán til upp-
byggingar I landbúnaði eru
forsenda þess aö hann geti
gegnt hlutverki sinu sem ein
af undirstöðum atvinnuliís
þjóöarinnar. Leggur þvi
fundurinn áherzlu á aö Stofn-
lánadeild landbúnaöarins
veröi séö fyrir nægilegu og
ódýru fjármagni.
2. Hækkuö veröi rekstrar- og
afuröalán til landbúnaöarins,
þannig aö hægt veröi aö greiöa
aö minnsta kosti 90% af veröi
afuröa viö afhendingu.
III. Atvinnurógur.
Fundurinn vitir harölega
þann rakalausa óhróöur, sem
rekinn hefur verið gegn land-
búnaöinum I vissum fjölmiöl-
um og flokkar slikt undir at-
vinnuróg. Skorar hann á for-
ystumenn landbúnaöarins aö
svara honum af fullri einurö.
Öryggislokavantaði í kyndikerfið
að Klébergi 4 í Porlákshöfn:
Öll hitunarkerfi
í Þorlákshöfn
könnuð
Búnaði og frágangi víða ábótavant
SJ-Reykjavik—Viö teljum vist,
aö ofhitun vegna bilunar á raf-
magnsbúnaöi hafi valdiö
sprengingunni I húsinu aö Klé-
bergi 4 I Þorlákshöfn á dögun-
um, sagöi Friögeir Grimsson
öryggismálastjóri Timanum I
gær. — Ennfremur vantaöi
öryggisloka eöa útblásturspipu
til að koma I veg fyrir spreng-
ingu vegna ofhitunar.
Oryggiseftirlit rikisins kann-
aöi aöstæöur I húsinu eftir
sprenginguna, og sagöi öryggis-
málastjóri aö telja mætti þessar
niöurstööur öruggar þótt hann
væri að visu ekki búinn aö fá öll
gögn frá sýslumanni Árnessýslu
um máliö.
Svo sem mönnum er kunnugt
uröu ekki slys á mönnum af
völdum sprengingarinnar I Þor-
lákshöfn, en húsiö skemmdist
mikiö. Þó var ekkert álitamál
að borgaöi sig aö gera viö þaö,
og ernú unniö að endurbótum á
þvi af fullum krafti.
Aö sögn Svans Kristjánssonar
sveitarstjóra I ölfushreppi er nú
búiö aö fara 1 öll hús I Þorláks-
höfn og ölfushreppi og kanna
kyndikerfi, bæöi I húsum sem
kynt erumeö rafmagniog oliu. I
ljós kom, aö viöa var búnaöi
ábótavant, og voru þar skilin
eftir fyrirmæli um hvaö gera
þyrfti. Bjóst Svanur viö aö hægt
ætti aö vera aö bæta um á öllum
þessum stööum á næstu dögum.
Fariö var I samtals hátt I 300
hús, rúmlega 200 i Þorlákshöfn
og 60-70 I ölfushreppi. Svanur
haföi ekki tölu á hve kyndikerf-
um heföi viöa veriö ábótavant,
þar sem verið var aö ljúka þess-
ari könnun, þegar viö ræddum
viö hann. Hann sagöi, aö
væntanleg væri reglugerö frá
öryggiseftirlitinu um frágang
og búnaö kyndikerfa, en kvaöst
ekki vita hvort þar yröu gerðar
aörar og meiri kröfur en geröar
voru I nýafstaöinni könnun.
75 ára í dag:
Guðmundur Bjömsson
fréttamaður Tímans á Akranesi
Guömundur Björnsson,
fréttaritari Timans á Akra-
nesi er sjötiu og fimm ára I
dag.
Guömundur fæddist aö
NÚpsdalstungu I V.-Hún. 24
marz 1902. Foreldrar hans
voru Björn Jónsson bóndi þar,
og kona hans Asgeröur
Bjarnadóttir. Guðmundur
stundaði nám I Flensborg
1920- ’21, og kennarapróf tók
hann 1934. Enn fremur fór
hann námsför til Danmerkur
og Noregs 1951.
Guömundur var farkennarí 1
Torfustaöahr. I V.-Hún.
1921- 1933, og eftirlitskennari I
V.flún var' hann 19Í2-33
skóla Akraness 1934 og kenndi
auk þess viö Iönskóla Akra-
ness 1936-1960.
Guömundi hafa veriö falin
mörg trúnaöarstörf um dag-
ana. Hann var umboösmaöur
Almennra trygginga á Akra-
nesi frá upphafi, hann er meö-
al stofnenda Framsóknarfé-
lags Akraness, og hefur til
skamms tima átt sæti i stjórn
þess. Hann hefur verið
vara-bæjarfulltrúi á Akranesi
og setiö I ýmsum nefndum á
vegum bæjarins. Enn fremur
var hann i skólanefnd og I
stjórn Sparisjóös Akraness.
Guömundur Björnsson er
mikill áhugamaöur um nor-
ræna samvinnu. Hann er i
stjórn Norræna félagsins á
Akranesi og á enn fremur sæti
I stjórn sambands norrænu
félaganna á lslandi.
Guömundur Björnsson hef-
ur um langt skeiö veriö frétta-
ritari Tfmans á Akranesi.
Timinn sendir honum hugheil-
ar árnaöaróskir á þessum
Guömundur Björnsson
tlmamótum i lifi hans og
þakkar honum dugnaö og ár-
vekni.
Eiginkona Guömundar
Björnssonar er Pálina Þor-
steinsdóttir Mýrmanns, bónda
á óseyri I Stöövarfiröi, og eiga
þau fimm uppkomin börn.
Guömundur veröur aö
heiman i dag.
Jafnréttisnefnd
ályktar um skattamál
Jafnréttisnefnd Kópavogs hélt
fund þ. 14. marz sl., og var þaö 23.
fundur nefndarinnar. A fundinum
var lagt fram bréf frá starfshópi
rauösokka um skattamál og lögö
fram umsögn jafnréttisráös um
skattamál. Nefndin tók undir þau
meginsjónarmiö, sem fram komu
I greinargeröunum, en þau eru:
aö fulltiöa maöur sé sjálfstæöur
skattþegn og greiöi skatta af
eignum sinum og tekjum án tillits
til hjúskaparstéttar og njóti jafn-
framt þess réttar, sem þeirri
skyldu fylgir. Persónuafsláttur
veröi hinn sami fyrir alla, þar
sem óeölilegt sé aö skattbyröi
fólks aukist, gangi þaö i hjúskap.
Ónýttan persónuafslátt hjóna og
sambýlisfólks skal millifæra, þar
sem eölilegt sé, aö annaö hjóna
geti unniö inni á heimilinu, án
þess aö glata persónuafslætti sin-
um. Barnabætur veröi raunhæfar
og sama upphæö fyrir öll börn, og
skiptist jafnt milli hjóna og sam-
býlisfólks. Framfærendur, sem
vinna utan heimilis fái afslátt
vegna barna. Lágmarksviömiö-
unin sé gjald á opinberum dag-
vistunarstofnunum, einnig veröi
heimilt aö veita afslátt, ef á
heimili er fólk, sem sakir sjúk-
leika eöa elli, þarfnast sérstakrar
umönnunar. Skattfrjáls eign
hjóna veröur hin sama og tveggja
einstaklinga. Ennfremur var
nefndin sammála um aö lág-
marksllfeyrir veröi skattfrjáls,
aö taka beri upp staögreiöslukerfi
skatta eins fljótt og unnt er, og aö
ekki skuli skattleggja fengiö meö-
lag.