Tíminn - 24.03.1977, Síða 11
Fimmtudagur 24. marz 1977
/ffia♦
11
Ctgefandi Framsóknarfiokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri:
Steingrímur Gislason.Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu
viö Lindargötu, sfmar 18300 — 18306: Skrifstofur i Aöal-
stræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — auglýsingá-
' simi 19523.. Verö I lausasölu kr. 60.00. Áskriftargjald kr.
1.100.00 á mánuöi. Blaðaprenth.f..
Mannréttindi
Þótt stjórnarferill Carters Bandarikjaforseta sé
ekki orðinn langur, hefur hann þegar sett sér-
stakan svip á alþjóðlegar stjórnmálaumræður.
Hann hefur sett mannréttindamálin meira á odd-
inn en leiðtogar Bandarikjanna hafa áður gert.
Hann hefur lýst stuðningi við mannréttindabar-
áttuna viða um heim, m.a. i Sovétrikjunum.
Þessu hefur ekki verið vel tekið af valdamönnum
þar og jafnvel orð látin liggja að þvi.að þetta geti
orðið til þess að torvelda þiðuna svonefndu og
viðræður um afvopnunarmál.
Vissulega má segja, að þess hafi verið orðin
mikil þörf, að áhrifamikill stjómmálaleiðtogi
tæki upp merki hinnar almennu mannréttinda-
baráttu á alþjóðlegum vettvangi. Umræðiim um
mannréttindamál á þeim vettvangi hefur að
undanförnu verið skorinn mjög þröngur stakkur.
Þær hafa einkum beinzt að kynþáttamisré.tti og
nýlendumálum sem er sjálfsagt og nauðsynlegt,
en mannréttindabaráttan nær til miklu viðtæk-
ara sviðs. Þetta hefur hálfgleymzt og eiga leið-
togar lýðræðisrikjanna sinn þátt i þvi. Þeir hafa
talið það vænlegt til samskipta bæði við kommún-
istarikin og riki þriðja heimsins, sem flest búa við
einræðisstjórn, að halda ekki uppi mannréttinda-
baráttu, sem túlka mætti sem ádeilu á stjórnar-
far þessara landa. Einkum ágerðist þetta i
stjórnartið þeirra Nixons og Fords og mun Kiss-
inger hafa átt sinn þátt i þvi. önnur vestræn stór-
veldi hafa fylgt i slóðina. 1 þessu sambandi er
vert að minnast þess að það eru vestrænu smá-
rikin sem eiga mestan þátt i mannréttindaá-
kvæðum Helsinki-sáttmálans.
Carter forseti hefur ákveðið að taka af skarið
og hverfa i málflutningi sinum frá þeirri deyfð
sem var að skapast i þessum efnum. Þvi ber að
fagna. En hins er að gæta að mannréttindum
verður ekki komið á með einu átaki. Til þess þarf
áreiðanlega langan tima. óhjákvæmilega verður
að taka tillit til þess, að einræði rikir i flestum
rikjum heims og þvi eru samfara margvislegar
skerðingar á mannréttindum. Einræðisherrarnir
eru viðkvæmir og hræddir um völd sin. Þvi verð-
ur að heyja hina alþjóðlegu mannréttindabaráttu
með hæfilegri gætni, svo að hún verði ekki nei-
kvæð i reynd. En merkið má samt aldrei láta nið-
ur falla. Þvi á Carter forseti þakkir skildar fyrir
frumkvæði sitt og þess ber að vænta að honum
takist að fylgja því fram með festu og gætni og
það leiði þvi til árangurs, þótt hægt gangi, én hér
mun þróun gefast betur en bylting.
Heilsugæzlan
Matthias Bjarnason heilbrigðisráðherra flutti
nýlega á Alþingi fróðlega skýrslu um heilsu-
gæzlumálin. Þar kom m.a. fram að siðasta aldar-
fjórðunginn hafa opinber útgjöld vegna heilbrigð-
ismála vaxið úr 3% af vergri þjóðarframleiðslu
árið 1950 i 7.1% á árinu 1975. Þó er enn mikið ó-
unnið til að koma heilsugæzlunni i fullnægjandi
horf. Bæði þarfnast heilsugæzlan stóraukins hús-
næðis og mannafla, t.d. 70 lækna og 80 hjúkrunar-
fræðinga. Hætta er á, að þessar framkvæmdir
geti dregizt á langinn, ef sú stefna verður ofan á
að draga úr samneyzlunni, en heilsugæzlan er
einn stærsti þáttur hennar. Sennilega gera þeir
sem eru að berjast gegn samneyzlunni, sér þess
ekki nægilega greín, þvi að vafalitið vilja þeir
ekki siður en aðrir auka og bæta heilsugæzluna.
Þ.Þ.
Vladimir Lomeiko:
Framkvæmd Hel-
sinkisáttmálans
Rússar hafa reynt að gera sitt
Brésnjev
Framkvæmd Helsinkisátt-
málans ber nú alltaf meira
og meira á góma, enda
framundan á þessu ári ráö-
stefna aöildarrikjanna um
framkvæmdina. Þá hefur
barátta Carters forseta fyr-
ir mannréttindum aukiö
umræðurnar um þetta efni.
Rússneskir fjöimiölar láta
ekki sinn hlut eftir liggja i
þessum efnum. Eftirfarandi
grein sýnir hvernig Rússar
túlka þessi mál, en athygli
vekur, aö þar er litiö minnzt
á mannréttindaþátt sátt-
málans.
EF TIL væri mælikvaröi á
þaö hvernig menn færu eftir
ákvæöum Helsinkisáttmálans
hygg ég aö Sovétmenn mundu
hljóta flest stig. Mun ég nú
reyna aö leiöa rök aö þessari
skoöun. Leonid Brésnjev hefur
ekki haldiö svo ræöu á tima-
bilinu, aö hann hafi ekki gert
grein fyrir framförum okkar á
þessu sviöi. Viö höfum ekki
skipaö neinar nefndir til aö
fylgjast meö framkvæmd ann-
arra rikja á ákvæöum sátt-
málans, en i ráöuneytunum
sem sjá um utanrikismál,
utanrikisviöskipti og menn-
ingu, svo og i stofnunum er
annast visindi, tækni, feröa-
mennsku ofl. hafa veriö gerö-
ar ráöstafanir til aö ákvæöun-
um sé framfylgt.
Hvernig hefur veriö staöiö
viö ákvæöi sáttmálans á sviöi
stjórnmála? („Fyrsta karf-
an”) Sáttmálinn gerir ráö fyr-
iraö þátttökurlkin muni „þróa
samstarf sitt á jafnréttis-
grundvelli og hvetja til gagn-
kvæms skilnings og trausts,
vinsamlegra samskipta sin á
milli og friöar, öryggis og rétt-
lætis á alþjóöavettvangi”.
Sovétmenn hafa einmitt
grundvallaö samskipti sin viö
aörar þjóöir á þessum megin-
reglum.
Síöan Helsinkiráöstefnunni
lauk hafa fariö fram margir
fundir æöstu manna og utan-
rikisráöherra Sovétrlkjanna
annars vegar og Frakklands,
Finnlands, V-Þýzkalands og
fleiri vestrænna rikja hins
vegar. Mörg skjöl, sem undir-
rituö hafa veriö á þessum
fundum, fjalla einmitt um
framkvæmd á ákvæöum Hel-
sinkisáttmálans.
1 samræmi viö þau ákvæöi
sáttmálans, sem fjalla um
ráöstafanir til eflingar trausti,
tilkynntu Sovétmenn viökom-
andi rlkjum um allar veiga-
meiri heræfingar og buöu
vestrænum fulltrúum aö vera
viöstaddir æfingarnar Kavkas
(Kákasus) og Sjever (Norö-
ur).
HVERNIG hefur veriö staöiö
viö framkvæmd Helsinkisátt-
málans á sviöi efnahagssam-
vinnu („önnur karfan”). í
sáttmálanum segir, aö efna-
hagsskýrslur og náttúruauö-
lindir þátttökurlkjanna „leyfi,
meö sameinuöu átaki lang-
timasamstarf viö framkvæmd
stærstu áætlananna”. Sovét-
menn hafa boöiö Vesturlönd-
um þátttöku I sliku samstarfi.
I upphafi reyndu sumir aö
halda þvi fram aö þaö væru
Sovétmenn sem heföu sér-
stakan áhuga á vestrænni
tækni og lánum, en nú, þegar
kreppan og atvinnuleysiö fær-
ast stööugt I aukana á Vestur-
löndum, eru margir farnir aö
viöurkenna aö þessi lönd
munu hagnast á viöskiptunum
viö Moskvu. Framtiöarhorf-
umar á þessu sviöi sjást bezt
ef viö tökum dæmi af gas-
leiöslunni, sem veriö er aö
leggja yfir Evrópu. Lengd
hennar er 5000 km og flutn-
ingsgeta 30.000 milljónir rúm-
metra af jarögasi árlega.
Leiöslan mun gera kleift aö
auka gasflutning til RGE-
landannai A-Evrópu og einnig
til Austurrikis (4.500 milljónir
rúmmetra á ári), Italiu (5000
milljónir), Frakklands (2.500
milljónir) og V-Þýzkalands
(yfir 7000 milljónir). Gas-
leiöslan milliSovétrikjanna og
Finnlands er þegar tekin til
starfa. Unniö er aö áætlana-
gerö I sambandi viö gasleiöslu
milli SSSR og Sviþjóöar.
Orkuskorturinn I vestri ger-
ir tillögu Sovétrlkjanna og
annarra sóslallskra rlkja um
sameiginlegt orkukerfi fyrir
Evrópu mjög mikils viröi.
Vesturlönd mundu hagnast
mest á sllkum framkvæmd-
um, vegna þess aö hinum
megin viöA-Evrópu er Síberla
meö allar sinar gas- og ollu-
lindir og allar slnar vatns-
birgöir. Ekkert annaö land
býr yfir sllkum orkumöguleik-
um. Sovétmenn hafa einnig
stungiö upp á sameiginlegu
samgöngukerfi, sem mundi
bjarga Evrópu frá umferöar-
teppum i framtiöinni. Loks
hefur veriö stungiö upp á sam-
eiginlegum ráöstöfunum á
sviöi umhverfisverndar, sem
á næstu árum veröur aö mæli-
stiku á öll mannleg verömæti.
HVAÐ snertir „þriöju körf-
una” bera Sovétmenn fulla
viröingu fyrir þeim ákvæöum
er fjalla um sarhstarf á sviöi
mannúöarmála ofl. i þvl skyni
aö „stuöla aö friöi og skilningi
meöal þjóöa og andlegri auög-
un einstaklingsins án tillits til
kynþáttar, kynferöis, tungu-
máls eöa trúarbragöa”.
Listinn yfir ráöstafanir sem
geröar hafa veriö á þessum
sviöum er langur, enda hafa
menningartengsl okkar viö
Vesturlönd aukizt gifurlega
slöan Helsinkiráöstefnunni
lauk. T.d. eru nú rúmlega 200
erlend leikrit i sýningu á sov-
ézkum leiksviöum, þar af 129
verk eftir vestræna nútima-
höfunda. 1 hverri viku er
frumsýnd ný kvikmynd frá
Vesturlöndum i Sovétrlkjun-
um og nær til mikils fjölda á-
horfenda. Aukin hefur veriö
útgáfa á þýddum bókmennt-
um. A árinu 1976 komu út 1500
bækur erlendra höfunda I 60
milljón eintaka heildarupp-
lagi. Þessar bækur voru þýdd-
ar úr rúmlega 40 málum.
Eftir Helsinkiráöstefnuna
hafa Sovétmenn gert milli-
rikjasamninga um feröalög
viö ttallu, Finnland, Belglu,
Frakkland og fleiri rlki.
Feröamenn frá 155 löndum
heimsækja Sovétrikin og
sovézkirferöamenn feröast til
130 landa. Áriö 1975 heimsóttu
rúmlega 3 milljónir erlendra
feröamanna Sovétrikin og 2.2
milljónir Sovétborgara fóru I
utanlandsferöir. I fyrra komu
4 milljónir erlendra feröa-
manna og 3 miUjónirsovézkra
feröuöust erlendis.
A tlmabilinu 1976-1980 munu
feröamannaskiptin aukast um
50%. Vert er aö geta þess, aö
verölag á Vesturlöndum gerir
feröalög sovézkra borgara
þangaö mjög kostnaöarsöm.
Sem stendur eru rúmlega
260 fréttaritarar frá 50 löndum
skráöir I Moskvu. Þeim fer
fjölgandi, enda eru engar tak-
markanir settar af hálfu sov-
ézkra yfirvalda varöandi
fjölda þeirra. Strax eftir Hel-
sinkiráöstefnuna náöist sam-
komulag viö flest Evrópulönd,
Bandarikin og Japan um
vegabréfsáritanir fyrir er-
lenda fréttamenn sem gilda
fyrir margar feröir inn og út
úr viökomandi landi, þannig
aö ekki þarf aö sækja um árit-
un I hvert skipti. Þetta gildir
einnig fyrir tæknimenn, sem
vinna aö kvikmyndatöku,
sjónvarpsupptöku og hljóö-
upptöku. Enginn tollur er
lagöur á tækniútbúnaö þeirra.
1 þvi skyni aö auövelda enn
frekar aögang aö upplýsing-
um gaf Æöstaráö Sovétrikj-
anna út iög 29. júnl 1976 sem
heimila bein samskipti sov-
ézkra samtaka og fyrirtækja
viö erlenda fréttamenn.
Sovézka þjóöin tekur Hel-
sinkisáttmálann alvarlega og
telurhann skuldbinda alla viö-
komandi aöila til aö taka þátt I
leitinniaö friöi, gagnkvæmum
skilningi og samstarfi i
Evrópu.