Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 4
4 28. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR
HEIMSFRIÐUR „Þetta myndi hafa
mikla þýðingu fyrir íslenskt og
alþjóðlegt menningarlíf. Þetta er
mjög góð hugmynd
og við eigum að
styðja við hana á
allan hátt,“ segir
Ágúst Einarsson,
prófessor í hag-
fræði við Háskóla
Íslands, um hug-
myndir Yoko Ono,
ekkju Johns
Lennon, um að
árleg friðarvika í nafni Lennons
verði haldin á Íslandi í kringum
fæðingardag hans 9. október. Þá
leggur hún til að stofnað verði til
friðarverðlauna í nafni þeirra
Lennons og þau veitt á friðarvik-
unni.
Ágúst, sem hefur rannsakað sér-
staklega hagræn áhrif tónlistar,
segir mikil efnahagsleg áhrif geta
orðið af slíkri viku og verðlaunum,
bæði bein og óbein. Fjöldi fólks
kæmi til landsins vegna friðar-
vikunnar, ímynd Íslands sem
menningarlands myndi
styrkjast, íslensk menning
eflast og möguleikar
íslenskra listamanna á
útflutningi á list sinni auk-
ast. „Öll rök styðja að við
tökum þessu opnum
örmum. Svona tækifæri
gefast ekki oft og það
verður að grípa þau þegar þau
gefast,“ segir Ágúst.
Ef af yrði myndi Íslenskt samfé-
lag án efa hafa talsverðan kostnað
af tilstandinu en Ágúst segir þeim
peningum, sama hve miklir þeir
yrðu, vel varið. „Við eigum að leggja
það fram sem þarf í þessu efni. Það
þarf að hugsa eins og Lennon gerði
sjálfur á sínum tíma, hugsa stórt.
Stjórnvöld og aðrir eiga að taka
þessu af stórhug enda er það í anda
þeirra sem
verð-
launin
verða
kennd við.“ Hugmyndin er afar
skammt á veg komin og því ógjörn-
ingur að slá fram tölum um mögu-
legan kostnað og hugsanlegan hagn-
að. Ágúst efast þó ekki um að
ágóðinn gæti numið háum fjárhæð-
um. „Beinu áhrifin er hægt að telja í
tugum og jafnvel hundruðum millj-
óna þegar hugsað er lengra fram í
tímann. Óbeini ávinningurinn hleyp-
ur líka á stórum upphæðum.“
Bæði Steinunn Valdís Óskars-
dóttir borgarstjóri og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra hafa tekið vel í hugmyndir
Yoko Ono. bjorn@frettabladid.is
NOREGUR Efnahagskreppa á Íslandi
getur haft neikvæð áhrif á sjávar-
útveg í Noregi, að sögn vefútgáfu
Fiskeribladet í Noregi. Ef íslenska
krónan fellur gefur það Íslending-
um forskot í samkeppninni við
Norðmenn á markaði fyrir sjávar-
afurðir.
„Ef það verður efnahagslegur
jarðskjálfti á Íslandi getur það
komið illa út fyrir sjávarútveginn
í Noregi. Ef Íslendingarnir fara á
fyrsta farrými til helvítis þá mun
sterkt og viðvarandi fall krónunn-
ar gefa þeim forskot í baráttunni
við Norðmenn í sölu sjávaraf-
urða,“ segir blaðið.
Sveinn Hjörtur Hjartarson,
hagfræðingur LÍÚ, segir að þetta
sé ekki rétt. Það sé ekki gengi
krónunnar sem stýri framboði og
eftirspurn sjávarafurða erlendis.
Það sé bara hluti af markaðnum.
„Það er markaðsverð sem gild-
ir. Það hefur frekar verið vöntun á
sjávarafurðum þannig að verðið
er frekar hátt. Það er engin ástæða
til að ætla það að fall krónunnar
hafi áhrif á sölu sjávarafurða hjá
Norðmönnum.“ - ghs
FISKVEIÐAR Fiskeribladet veltir fyrir sér áhrifum gengis krónunnar á samkeppnina við
Norðmenn í sölu sjávarafurða. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Fiskeribladet fjallar um áhrif krónunnar á sölu sjávarafurða hjá Norðmönnum:
Á fyrsta farrými til helvítis
ÁGÚST EINARS-
SON PRÓFESSOR
Mikill hagur yrði af
friðarviku Lennons
Friðarvika og veiting friðarverðlauna í nafni Johns Lennon gæti haft mikinn
efnahagslegan ávinning í för með sér að mati Ágústs Einarssonar hagfræðipró-
fessors. Hann hvetur stjórnvöld til að taka hugmyndum Yoko Ono af stórhug.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 27.2.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 66,12 66,44
Sterlingspund 115,02 115,58
Evra 78,35 78,79
Dönsk króna 10,503 10,565
Norsk króna 9,759 9,808
Sænsk króna 8,293 8,341
Japanskt jen 0,569, 0,5724
SDR 94,94 95,595
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
110,3704
JOHN LENNON OG YOKO ONO
Mikil hagræn áhrif gætu orðið af
árlegri friðarviku í nafni Lennons á
Íslandi og friðarverðlauna í nafni þeirra
hjóna. Borgarstjóri og menntamálaráðherra
hafa tekið vel í hugmyndir Yoko Ono þess
efnis. NORDICPHOTOS/AFP
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra
segir koma til greina að ríkið taki þátt
í að halda árlega
friðarhátíð sem
Yoko Ono vill hafa
á Íslandi í kring-
um 9. október,
afmælisdag Johns
Lennon heitins.
Málið hefur ekki
komið inn á
borð samgöngu-
ráðherra ennþá
en hann segir
líklegt að vinnan yrði þá í samstarfi við
Reykjavíkurborg sem hefur verið með
frumkvæðið að þessu.
,,Þetta eru athyglisverð áform hjá
Yoko Ono og sérstaklega það að hún
skuli velja Ísland,“ segir Sturla sem
telur að sú athygli sem landið fær á
þessum jákvæðu forsendum sé mikils
virði. - sdg
STURLA BÖÐVARS-
SON SAMGÖNGU-
RÁÐHERRA
Árleg friðarhátíð á Íslandi:
Samstarf milli
ríkis og borgar
Borgin sér um friðarhátíðina:
Algerlega á
okkar vegum
Stefán Jón Hafstein, formaður menn-
ingar- og ferðamálaráðs, segir að
borgin muni ekki
leita til ríkisins
með eitt né neitt
varðandi árlega
friðarhátíð sem
er fyrirhuguð á
Íslandi í tengslum
við friðarsúluna
sem Yoko Ono
ánafnaði Reykja-
vík og mun rísa
í Viðey. En öllum þeim sem vilja sé
velkomið að taka þátt í undirbúningi.
,,Höfuðborgarstofa er í góðu samstarfi
við ferðaþjónustuaðila á svæðinu og
fullfær um skipulagninguna,“ segir
Stefán.
Friðarverðlaunin verða afhent næst
9. október 2007. - sdg
STEFÁN JÓN HAF-
STEIN
SLYS Líðan ökumannsins, sem lifði
af um tuttugu metra fall jeppa
niður í sprungu á Hofsjökli á laug-
ardag, er eftir atvikum góð. Hann
liggur á gjörgæsludeild Landspít-
alans í Fossvogi.
Sérfræðingur á gjörgæsludeild
segir manninn verða útskrifaðan
af deildinni í dag.
Maðurinn var ásamt félaga
sínum, Tómasi Ými Óskarssyni, í
samfloti tveggja annarra jeppa
þegar slysið varð. Tómas lét lífið.
Um sjöleytið í gærkvöld höfðu
á annað hundrað manns vottað
aðstandendum Tómasar samúð
sína á vef ferðaklúbbsins 4x4. - gag
Ökumaður jeppa á Hofsjökli:
Losnar af gjör-
gæslu í dag
FRÁ SLYSSTAÐ Þyrlur danska og bandaríska
hersins fóru á slysstað auk um 150 björg-
unarsveitarmanna. MYND/NFS
PALESTÍNA, REUTERS Fyrrverandi for-
stjóri Alþjóðabankans, James Wolf-
ensohn, spáir efnahagslegu hruni í
Palestínu innan tveggja vikna vegna
ákvörðunar Ísraels að hætta skatta-
endurgreiðslum til nýrrar stjórnar
Palestínu sem Hamas-hreyfingin
leiðir. Fjórði hver Palestínumaður
er á launaskrá hjá ríkinu og miklar
líkur á að ef stjórnvöld ná ekki að
greiða út laun skapist ólga með ófyr-
irséðum afleiðingum.
Þrátt fyrir fjárhagsaðstoðina frá
ESB og fleirum vantar palestínsk
stjórnvöld 100 milljónir upp á til að
uppfylla fjárhagslegar skuldbind-
ingar sínar fyrir febrúarmánuð.
- sdg
Fjárhagur Palestínu:
Hrun á næstu
tveimur vikum
Árangurslaus fundur Sáttafundi
slökkviliðsmanna og viðsemjenda þeirra
lauk í gærkvöld án árangurs. Annar
fundur hefur verið boðaður í hádeginu
á morgun. Það virðist enn nokkuð langt
í land með að samkomulag náist en
samþykkt um verkfallsboðun var gefin
út nýlega.
KJARAMÁL
Ránsfengurinn yfir 6 milljarðar
Breska lögreglan greindi í gær frá því
að ránsfengurinn í ráninu í reiðufjár-
geymslumiðstöð Securitas í Tonbridge í
Kent í síðustu viku hefði numið 53 millj-
ónum punda, andvirði um 6,15 milljarða
króna. Þetta er stærsta fjárupphæð sem
nokkru sinni hefur verið stolið í einu
ráni í Bretlandi.
BRETLAND