Fréttablaðið - 28.02.2006, Síða 13

Fréttablaðið - 28.02.2006, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 28. febrúar 2006 13 FERÐAMENNSKA ,,Við sjáum fyrir okkur að menn þeytist um á þess- um tækjum á sléttum flötum hvort sem það er sandur, malbik, möl, gras eða ís,“ segir Jón Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofunnar Highlanders um ný farartæki sem eru að ryðja sér til rúms hér á landi. Þetta tæki sem kallað hefur verið bæði blókart og feykildi er vindknúin hjólrennireið með myndugu segli en einnig stýri. „Þetta er fundið upp á Nýja-Sjá- landi og hefur verið notað mikið í nágrannalöndum okkar. Nú erum við farnir að bjóða hópum í ferðir á þessum tækjum og það er allt útlit fyrir að þetta verði næsta sprengja enda eru þessir vinnu- hópar sem sækjast eftir stuttum ævintýraferðum flestir búnir að prófa allt sem í boði er.“ Jón Ólaf- ur segist hafa komið feykildi sínu í um 80 kílómetra hraða á kvart- mílubraut en þó sé það mun hæg- farara þar sem jarðvegurinn er mýkri. „Við erum því farnir að fagna íslenska rokinu og látum allt tal um hækkun bensínverðs sem vind um eyru þjóta þar sem þetta er algjörlega vistvænt tæki,“ segir hálendingurinn. Hann segir svona ferð kosta 5.900 krónur á manninn og er þá ekið í klukkustund á hentugum stað en það ræðst töluvert af veðri og vindum hvar hann er hverju sinni. - jse Nýtt farartæki er að ryðja sér til rúms hér á landi: Ferðast um allt á feykildum FERÐAMAÐUR Á FEYKILDI Hægt er að ferðast víða um sléttlendi á feykildi. DANSAÐ Í RÍÓ Sambadrottningin Luciana Gimenez tekur sporið í sambaskóla í Ríó de Janeiro í Brasilíu í gær. Kjötkveðjuhá- tíðin stendur þar nú sem hæst. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÓÐAMÁL Dagur B. Eggertsson, formaður Skipulagsráðs Reykja- víkurborgar, segir borgarstjórn hafa fengið af því spurnir að meira en helmingur lóðanna í Lambaseli hafi verið seldur. Dregið var úr umsóknum um lóðirnar. „Við töldum ráðlegt að fara út í að draga úr umsóknum um lóðir í Úlfarsfelli þar sem okkur bárust þær upplýsingar að helmingur þeirra sem fengu lóð í Lambaseli hafi þegar selt lóðina sína.“ Umsækjendur um lóð í Úlfars- felli geta ekki fengið meira en eina lóð þar en ákveðið var að breyta útboðsreglum eftir að í ljós kom að einn og sami maðurinn, Benedikt Jósepsson, átti hæsta boð í 39 af 40 einbýlishúsalóðum. - mh Húslóðir í Lambaseli: Helmingur lóðanna seldur DANMÖRK Húsnæðisverð í Kaup- mannahöfn er orðið hið lang- hæsta á Norðurlöndum og er með- alverð á fermetra komið upp í um það bil 300 þúsund íslenskar krón- ur. Það er því orðið hærra en í Stokkhólmi sem lengi hefur stát- að af titlinum dýrasta borg í Skandinavíu. Til skamms tíma var Ósló í öðru sæti. Dæmi eru um að fer- metraverðið fari yfir 300 þúsund krónur í Reykjavík en meðaltalið er talsvert lægra. Að mati spá- kaupmanna mun verðið áfram haldast hátt í Kaupmannahöfn því miklir vaxtamöguleikar séu nú á Eyrarsundssvæðinu. ■ Norrænn húsnæðismarkaður: Dýrast í Kaup- mannahöfn www.toyota.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 31 42 3 01 /2 00 6 Toyota Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyotasalurinn Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 421-4888 Toyotasalurinn Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Einstaklega veglegur Meiri Corolla – sama verð Nú færðu í takmarkaðan tíma meiri Corolla fyrir sama verð. Veglegur aukahlutapakki gerir aksturinn enn ánægjulegri: álfelgur, vindskeið og skyggðar rúður fylgja öllum Corolla bifreiðum. Corolla er einn vinsælasti bíll síðustu tveggja áratuga. Aksturseiginleikar, öryggi, sparneytni og lág bilanatíðni hafa skipað honum sérstakan sess í hugum Íslendinga. Á endanum velur þú Corolla. 150 þúsund króna aukahlutapakki fylgir öllum Corolla bifreiðum: álfelgur, vindskeið og skyggðar rúður. Verð frá 1.685.000 kr. Margir á sjó Alls voru fjögurhundruð bátar og skip á sjó í hádeginu í gær. Vaktmaður hjá tilkynningaskyldunni segir þetta með bestu sjósóknardögum ársins en þó hafi síðasti föstudagur verið betri þegar 446 voru á sjó. SJÓSÓKN Nýr skrifstofustjóri orkumála Guðjón Axel Guðjónsson lögfræðingur hefur verið settur skrifstofustjóri á skrif- stofu orkumála í iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytinu frá 1. mars næstkomandi. Helgi Bjarnason sem gegndi starfinu frá árinu 2000 mun hverfa til starfa hjá Landsvirkjun. STJÓRNSÝSLA KAUPMANNAHÖFN Tólf til fjórtán byssukúlum var skotið að nætur- klúbbi á Norðurbrú í Kaupmanna- höfn á laugardagsnótt. Vegfarandi sem átti leið um fékk minniháttar skotsár á læri og tvö skot hittu leigubíl sem keyrði framhjá. Byssumaðurinn er ófundinn en hann var í hópi ungra manna sem vísað var frá staðnum stuttu áður en skothríðin hófst. Samkvæmt frétt Berlingske tidende í gær voru sjötíu gestir á staðnum þegar atvikið átti sér stað. Sluppu þeir allir ómeiddir. - ks Skotárás á Norðurbrú: Lögregla leitar byssumanns LÓÐAÚTDRÁTTUR Dregið var úr lóðaum- sóknum hjá sýslumanni. Peningar í fuglaflensu Norskir laxeldismenn sjá mikil sóknarfæri á Evr- ópumarkaðnum vegna fuglaflensunnar og telja að hún verði til þess að fólk snæði meiri fisk. Intra Fish greinir frá því að kjúklinganeysla hafi dregist saman um 70 prósent á Ítalíu vegna ótta fólks við flensusmit úr alifuglum, en fiskneysla fólks aukist þess í stað. NOREGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.