Fréttablaðið - 28.02.2006, Síða 14
28. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR14
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Á batavegi eftir lífshættulegt hjartaáfall
Hjálmar á
heimleið
heill á
húfi
„HVÍLDIN SKIPTIR NÚ ÖLLU,“
SEGIR EIGINKONA HJÁLMARS
dv215-lesið 27.2.2006 20:34 Page 1
„Hvert er gildismat okkar? Er það það
sem mest er upp úr að hafa í krónum
og nautnum eða er það hið andlega?“
spyr Anna Marta Guðmundsdóttir,
bóndi á Hesteyri í Mjóafirði. Það
eru nýlegar fréttir sem vekja hana til
umhugsunar um þessi mál. „Ráðist
var á konu á almannafæri og henni
misþyrmt hrottalega. Læknar mátu
örorku hennar tíu prósent. Henni
voru dæmdar 120 þúsund krónur og
glæpamaðurinn var dæmdur í tíu daga
fangelsi. Á sama tíma hlaut maður
tveggja mánaða fangelsi, þar af annan
mánuðinn skilorðsbundinn, fyrir stuld
á viskípela. Ef afbrotin og refsingarnar
eru borin saman þá virðast pening-
arnir vera gildismatið en mannlegu
tilfinningarnar eru lítilsvirtar.
Mér finnst hræðilegt að þessi blessaða
stúlka sé bara einskis virði. Hvernig
verður maðurinn eftir tíu daga, hann
er sama villidýrið þegar hann kemur út
og þegar hann fór inn. Þeir sem fremja
svona glæpi þurfa að fá þunga dóma.
Það varnar þeim frá því að fremja
glæpina.
En hitt málið aftur á móti, á að sekta
fyrir, það á að sekta þá sem stela, þeir
eru ekki eins hættulegir á almanna-
færi. Og síst ef það er nú eitthvað
svona. Þetta virðist meinlaus stuldur.
Einn peli, það var þá til þess að setja
hann í fangelsi fyrir.“
HVAÐ SEGIR ANNA Á HESTEYRI?
GILDISMAT SAMFÉLAGSINS
Tilfinningarnar lítilsvirtar
Hreggvið í borgar-
stjórn
„Ég mundi bjóða Reykvíking-
um 3.000 lóðir fyrir einbýli
í fyrstu lotu á eðlilegu verði
og algjörlega án möguleika
á að hægt væri að braska
með þær.“
HREGGVIÐUR JÓNSSON, FYRRVER-
ANDI ÞINGMAÐUR, Í GREIN UM
BORGARMÁL Í MORGUNBLAÐINU.
Var ekki búið að segja
þessa frétt?
„Málið nú síðast gerir ekkert
annað en að styrkja okkur í
þeirri trú að hér á landi séu
starfandi erlendir glæpa-
hringir.“
JÓHANN R. BENEDIKTSSON,
SÝSLUMAÐUR Á KEFLAVÍKURFLUG-
VELLI, Í DV.
ÖRYGGIS GÆTT Á KJÖRSTAÐ Vopnaður öryggisvörður var við kjör-
staði í síðustu kosningum í landinu.
NORDICPHOTOS/AFP
ÁFRAM TRÍNIDAD OG TÓBAGÓ! Þessi skrautlegi Trínidadi er meðal
stuðningsmanna knattspyrnulandsliðsins og fagnaði óspart þegar
liðið tryggði sér sæti í lokakeppni HM. NORDICPHOTOS/AFP
Knattspyrnulandslið Ís-
lands og Trínidad og Tób-
agó mætast í Lundúnum í
kvöld. Leikurinn er liður í
undirbúningi Trínidad og
Tóbagó fyrir Heimsmeist-
aramótið í Þýskalandi í júní
en þá leikur liðið í keppn-
inni í fyrsta sinn.
Trínidad og Tóbagó er fámennasta
þjóð sem komst hefur í lokakeppni
HM í knattspyrnu. Íbúar landsins
eru rétt rúmlega 1.200 þúsund og
eins og gefur að skilja eru þeir
afar stoltir af sjálfum sér og knatt-
spyrnulandsliðinu sínu.
Trínidad og Tóbagó er í Karíba-
hafi og liggur skammt undan
ströndum Venesúela. Ríkið sam-
anstendur af 23 eyjum og er Tríni-
dad þeirra stærst en Tóbagó
næststærst. Höfuðborgin heitir
Port-of-Spain en Kristófer Kól-
umbus sigldi til eyjanna 1498 og
voru þær lengi nýlendur Spán-
verja. Raunar ríktu flest
nýlenduríkin yfir Trínidad og Tób-
agó til lengri eða skemmri tíma,
síðast Bretar. Íbúar öðluðust sjálf-
stæði 1962 og tóku upp lýðveldi
1976.
Efnahagur Trínidada er ágætur
og hvað bestur meðal þjóða í Kar-
íbahafinu. Gas er meðal útflutn-
ingsvara og ferðaþjónusta fer
vaxandi.
Landsmenn eru lífsglaðir og
dans og tónlist er snar þáttur í
daglegu lífi þeirra. Calypso-söngv-
ar eru upprunnir í Trínidad og
Tóbagó og íbúarnir hófu fyrstir
manna að leika á stáltrommur sem
eru gerðar úr tunnum og eru nú
notaðar í tónlist víða um heim.
Trínidadar gera tilkall til
tveggja rithöfunda sem hlotið hafa
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum:
Derek Alton Walcott sem fékk
verðlaunin 1991 og V.S. Naipaul
sem hlaut þau 2001. Naipaul fædd-
ist í landinu en hefur lengst af alið
manninn í Englandi en Walcott er
frá nágrannaríkinu St. Lucia.
Trínidadar eru miklir íþrótta-
menn og hafa meðal annars unnið
til verðlauna á ólympíuleikum.
Spretthlauparinn Ato Boldon er
þekktasti íþróttamaður Trínidada
í dag ásamt knattspyrnumannin-
um Dwight Yorke. Yorke er fyrir-
liði knattspyrnulandsliðsins og
gerði garðinn frægan með
Manchester United.
Þá má geta þess að konur frá
Trínidad hafa oft orðið meðal
efstu keppenda í Miss World-
keppninni.
Trínidadar leggja mikið upp úr
samvinnu og eru kjörorð þjóðar-
innar: Saman sækjum við fram á
við, saman náum við árangri. ■
Samvinna og lífsgleði í
Trínidad og Tóbagó
FEGURÐIN EIN Mikil náttúrufegurð er á Trínidad og Tóbagó, laufin eru sígræn og hafið
blárra en víðast hvar. Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein og æ fleiri leggja leið sína til
landsins. NORDICPHOTOS/AFP
„Ég er að flytja þessa dagana í nýtt hús sem
við hjónin vorum að festa kaup á hér vestur
á Ísafirði,“ segir Ólína Þorvarðardóttir. Þau
hjúin hafa heldur betur sett mark sitt á þjóð-
félagsumræðuna síðustu daga en hún var að
segja upp sem skólameistari Menntaskólans
á Ísafirði en mikill styr hefur staðið um starf-
semina þar. Á sama tíma sigraði eiginmað-
ur hennar, Sigurður Pétursson, í prófkjöri
Í-listans á Ísafirði. „Nú erum við að hefja
nýtt líf við nýjar aðstæður og munum horfa
á menntaskólann ofan úr brekkunni um
óráðna framtíð.“ Aðspurð hvað hún muni
taka sér fyrir hendur þegar hún lýkur störfum
segir hún: „Það er of snemmt að segja til
um það að svo stöddu en þó er ýmislegt
sem kemur til greina. Ég myndi til dæmis
gjarnan vilja sinna þjóðfræðinni aðeins betur
því hún er náttúrlega það sem heillar hvað
mest. En svo verð ég líka að vinna fyrir salti í
grautinn og þá er það bara spurning hvernig
mér gengur að sameina þetta tvennt.“ En
þótt hún hafi verið að kaupa hús á Ísafirði
reiknar hún jafnvel með því að vera meira á
ferðinni í höfuðborginni en hún hefur gert
að undanförnu. „En hér á Ísafirði er yndislegt
að búa í fallegu umhverfi og innan um
gott fólk. Allavega skynja ég ekki annað en
velvilja fólks hér.“
En með hvaða hugarfari mun hún líta til
þessara stormasömu tíma í menntaskólan-
um. „Þetta hefur verið lærdómsríkasti tími
lífs míns og ég er þakklát fyrir það.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR
Horfi á menntaskólann úr brekkunni