Fréttablaðið - 28.02.2006, Síða 20
[ ]Karate er skemmtileg íþrótt og hæfir ungum sem öldnum. Börn sem læra karate fá góða hreyfingu og öðlast sjálfstraust auk þess sem þau læra að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
Fyrir tæpu ári breytti Helga
Braga Jónsdóttir algjörlega
um lífsstíl. Hún hætti að borða
sykur og hvítt hveiti og áfengið
fór sömu leið. Breytingin er
algjör og Helga hefur aldrei
litið betur út.
Helga leikur nú í sýningunni
Hungur. Þar leikur hún konu sem
á við offituvandamál að stríða og
þarf Helga að klæðist svokölluð-
um fitabollubúningi, sem gerir
hana vægast sagt digra. Lífstíll
persónunnar í leikritinu gæti vart
verið ólíkari þeim háttum sem
Helga hefur tekið upp. „Ég er
búin að vera grænmetisæta í
mörg ár og ég hef alltaf vitað
þetta með sykurinn, að hann
veikti mig,“ segir Helga. „Loks-
ins gafst ég upp og kvaddi sykur-
inn, pítsur, pasta og allt draslið.“
Ákvörðunin var ekki erfið og
Helgu tókst að hætta sykurneyslu
án teljandi erfiðleika. „Ég hef
alltaf verið svona. Ef ég tek
ákvörðun þá er það bara þannig,“
segir Helga.
Árangurinn lét ekki á sér
standa. Orkubúskapurinn breytt-
ist til hins betra og kílóin hafa
fokið, en Helga stundar bæði
hestamennsku og magadans auk
þess sem henni líkar vel í vatni.
„Ég hef gaman af því að fara í
sund og ég var afskaplega mikil
sundmanneskja þegar ég var lítil
og bjó uppi á Skaga. Þar er svo
mikil sundmenning sem hentaði
mér mjög vel,“ segir Helga.
Helga hætti líka að drekka
þegar sykurinn fékk að fjúka.
„Áfengi er náttúrulega bara
sykur svo núna drekk ég hvorki
né reyki. Ég hef reyndar aldrei
reykt því ég var svo heppin að ég
var í stúku á Akranesi, en stúku-
böllin voru heitustu böllin. Ég fór
á fullt af fundum þar sem við
sáum svona ógeðsmyndir og
þegar aðrir byrjuðu að reykja
slapp ég alveg við það,“ segir
Helga.
Hætti að borða hveiti og
sykur og kílóin fuku
Helga í frumsýningarveislu Hungurs. Hér heldur hún á mynd af sér í fitabollubúningnum
sem hún þarf að klæðast í sýningunni. MYND/ÁGÚST INGI
01. mars 2006 Að vinna með regnboga-
fæðið. Lausn sem hentar öllum.
Hildur Hákonardóttir kl 18.30-20.00
07. mars 2006 Þarmaflóran og heilbrigði.
Helgi Valdimarsson prófessor kl17.30-19.00
08. mars 2006 10 grunnreglur
Þorbjörg Hafsteinsdóttir kl 19.00-23.00
14. mars 2006 Hvað heldur þú að þú sért?
Þorvaldur Þorsteinsson kl 18.00-19.30
15. mars 2006 Heilbrigði og hamingja
Benedikta Jónsdóttir. 18.30-22.00
��������������
����������� ������
��������������
������������������
����������� ������������������
Betra úthald
Góð næring • Brennsluaukandi
Útsölustaðir m.a: Yggdrasill, Fjarðarkaup, Maður lifandi í Borgartúni og Hæðarsmára,
Lífsins Lind í Hagkaupum, Lyfjaval í Mjódd og Hæðarsmára og Lyfja á Selfossi.
S: 462-1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet.is/heilsuhorn
Póstsendum
um land allt
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
3
60
.0
4
5
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
MT-stofan, Síðumúla 37, býður upp á hóptíma í æfingasal stofunnar.
Einstaklingmiðuð þjálfun.
Fáir í hverjum tíma.
Sérhæfð styrktarþjálfun sem eykur stöðugleika liða í mjóbaki eða hálsi.
Fyrir langvarandi vandamál í mjóbaki og/eða hálsi s.s:
• Fyrir viðkvæma ofhreyfanlega liði.
• Eftir tognanir.
• Eftir brjósklosaðgerðir.
• Eftir brjósklos- eða brjóskþófaröskun.
• Við slitgigt.
7 vikna þjálfun – Hádegis- og eftirmiðdagstímar. Æft tvisvar sinnum í viku – Skráning í vikunni.
Leiðbeinandi: Oddný Sigsteinsdóttir, sjúkraþjálfari og sérfræðingur í greiningu og meðferð á hrygg.
Upplýsingar og skráning á MT stofunni í símum 568 3660 og 568 3748.
Netfang: mtstofan@mmedia.is
Bakþjálfun
Hálsþjálfun
Þjálfun stöðugleika mjóbaks og/eða háls