Fréttablaðið - 28.02.2006, Qupperneq 21
ÞRIÐJUDAGUR 28. febrúar 2006
Það eru ekki margar íslenskar
íþróttakonur sem geta helgað líf
sitt íþrótt sinni og þannig orðið
eins góðar og þær mögulega geta
orðið. Silja Úlfarsdóttir, hlaupa-
drotting og afrekskona úr FH er
ein þeirra og býr nú og stundar
æfingar í Atlanta í Georgíu í
Bandaríkjunum. Hún er nýút-
skrifuð úr bandarískum háskóla
og er svo sannarlega frábær fyr-
irmynd ungra stúlkna og okkar
allra sem langar að láta draum
okkar rætast (hver svo sem hann
er). Konur eins og Silja minna
okkar á að allt er hægt ef hugur-
inn er með í för. Hér segir hún
okkur meðal annars frá viðhorf-
um sínum til hreyfingar og nær-
ingar og gefur okkur góð ráð.
Silja segist byrja hinn dæmi-
gerða dag um kl. 9 með vítamín-
um, Weetabixi, eggjahvítum og
banana. Kl. 10.30 hefst svo æfing
dagsins í þrjá til fimm klukku-
tíma. Eftir slík átök er mikilvægt
að teygja og næra sig vel, segir
hún og stundum segist hún fara í
ísbað til að hjálpa vöðvunum að
jafna sig eftir erfiða æfingu. Þá
segir hún líka stundum gott að
leggja sig aðeins seinni partinn.
Getur helst ekki setið kyrr
Þegar ég spyr hana hvað hreyf-
ingin geri fyrir hana, segir hún
að hreyfing sé jafn mikilvæg
fyrir sig og að fá næringu í lík-
amann. Hún segist helst ekki
geta setið lengi kyrr og líði illa ef
hún hreyfir sig ekki í smá tíma.
Finnur líkamann slappast og
skynjar hann öðruvísi.
Er að byrja að borða lífrænt
Þegar talið berst að mataræði
segir Silja að það skipti miklu
mál fyrir sig. Hún reyni að borða
bæði prótein og kolvetni í hvert
mál, en stundum sé það erfitt en
hún verði að vera öguð. Þá er
hún nýbyrjuð að hugsa um að
borða lífrænan mat til að komast
hjá eiturefnum. Einnig reynir
hún að forðast brauð og pasta
eða þessi „vondu“ kolvetni eins
og hún orðar það.
Að lokum spyr ég hana hvort
hún geti ekki gefið okkur góð
ráð, og þá sérstaklega börnum
og unglingum, varðandi hreyf-
ingu. Hún svarar því til að fyrst
og fremst vilji hún hvetja börn
og unglinga til að mæta á æfingu!
Regluleg hreyfing hjálpar til við
hreyfiþroska barna og kennir
þeim ýmislegt sem reynist mjög
nytsamlegt síðar meir. Mikil-
vægt er að unglingar mæti á
æfingu með opinn huga og öllum
kemur vel að vita að það eru
hlaupahópar úti um allan bæ.
Aðalmálið er að vera hugrakkur
og mæta. Hún segist hafa sent
mömmu sína í einn hlaupahópinn
og að hún sé alveg svakalega
ánægð. Það er gaman að vera
með sín eigin markmið, skora
svolítið á sjálfan sig og reyna að
bæta sig.
Við skulum láta þessi lokaorð
verða okkar.
Látið ykkur líða vel,
Borghildur
Á hlaupum með
Silju Úlfarsdóttur
Brynhildur Briem, sérfræð-
ingur hjá Umhverfisstofn-
un, og dr. Elín
Soffía Ólafsdóttir,
prófessor við
Lyfjafræðideild
Háskóla Íslands, halda
fyrirlestur um fæðubótar-
efni hjá Umhverfisstofnun klukkan
15.00 í dag. Ítarlega verður fjallað
um fæðubótarefni og rætt um hvort
að þau séu okkur nauðsynleg. Allir
eru velkomnir á fyrirlesturinn sem
verður haldinn á 5. hæð Umhverfis-
stofnunar, Suðurlandsbraut 24 og er
aðgangur ókeypis.
Fyrirlestur um fæðubótarefni
Í DAG VERÐUR HALDINN FYRIRLESTUR HJÁ UMHVERFISSTOFNUN UM FÆÐU-
BÓTAREFNI.
Á morgun verður haldið
námskeið um regnbogafæði í
Manni lifandi.
Hildur Hákonardóttir, höfundur
Ætigarðsins, verður með nám-
skeið um regnbogafæði í Manni
lifandi á morgun frá klukkan 18.30
til 20.00. Hildur lýsir góðri reynslu
sinni af regnbogafæðinu og veltir
upp spurningunni hvort að regn-
bogafæði sé raunhæft á Íslandi.
Námskeiðsgjald er 1.000 krónur
og hægt er að skrá sig hjá Manni
lifandi.
Lýsir reynslu sinni
af regnbogafæði
Hildur Hákonardóttir lýsir reynslu sinni af regnbogafæði. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
TT-námskeiðin sívinsælu!
Frá Toppi til táar
Dansrækt JSB hefur sérhæft sig í námskeiðum
fyrir konur sem vilja komast í kjörþyngd. Þau fela
í sér líkamsrækt, leiðbeiningar um mataræði og
líkamsbeitingu, fundi, aðhald, vigtun og mælingar
ásamt ráðgjöf frá stílista um tísku og förðun. Þú
nærð árangri hjá okkur - ef þú vilt!
Vertu velkomin í okkar hóp!
Viltu ná glæsilegum árangri?
Hafðu samband!
Skráning hafi n
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Þú léttist og styrkist andlega og líkamlega
TT-tímatafl a
Kl Mán Þri Mið Fim Fös
06:20 x x x
07:20 x x x
08:20 x x x
12:05 x x x
14:30 x x x
18:25 x x x
19:20 x x x x x
20:15 x
Heilbrigð sál
BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR
EINKAÞJÁLFARI OG BA Í SÁLFRÆÐI