Fréttablaðið - 28.02.2006, Qupperneq 22
28. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Sýkingin, sem kallast onychomycosis,
sest á tá- og fingurneglur. Sveppurinn
fer undir nöglina þar sem hún ver
hann á meðan hann dafnar sem gerir
það að verkum að erfitt er að ná til
hans og eyða honum.
Sveppasýkingar er algengari við
táneglur því sokkar og skór skapa full-
komið umhverfi fyrir hann að dafna
í, dimmt, hlýtt og rakt. Sveppirnir eru
smitandi þar sem sýkingin getur lifað
í umhverfi sem er rakt, eins og sturtu-
klefar, baðherbergi og búningaklefar.
Einnig getur sýkingin smitast með
þjölum og naglaklippum sem hafa
komist í snertingu við sýktar neglur.
Auk þess smitast hún frá einni nögl
til annarrar.
Til eru tvær gerðir af lyfjum: til að
gleypa og til að bera á. Fyrra lyfið
fer í gegnum blóðrásina og ræðst
á sveppinn undir nöglinni en það
seinna er borið á nöglina en verkar
ekki eins fljótt.
sveppir }
Sveppir við
neglur
SVEPPASÝKING VIÐ
NEGLUR ER VANDAMÁL
SEM MARGIR KANNAST
VIÐ.
Gunnar Páll Jóakimsson hefur
hjálpað fjölmörgum hlaup-
urum í gegnum tíðina að ná
settu marki, hvort sem um
er að ræða landsliðsmenn í
langhlaupum eða húsmæður
í Vesturbænum. Nú þegar sól
hækkar á lofti taka margir
fram hlaupaskóna en það er
ekki sama hvernig hlaupunum
er háttað.
Mikilvægasti útbúnaður hlaupara
er góðir skór. Það er til lítils að
eiga flottan galla og litríkt svita-
band ef skóbúnaðurinn er lélegur.
„Það er mikilvægt að eiga hlaupa-
skó, það er skó sem eru sérhann-
aðir með hlaup í huga.“ segir
Gunnar. „Margir eiga góða íþrótta-
skó sem ætlaðir eru fyrir aðrar
íþróttir og það eru ekki endilega
skór sem eru góðir fyrir hlaup.“
Til að fá ráð í þessum efnum segir
Gunnar að flest starfsfólk versl-
ana sem selja íþróttaskó geti gefið
góð ráð og lóðsað fólki er kemur
að skóvali.
Skórnir skipta sérstaklega
miklu máli þegar hlaupið er á
hörðu undirlagi eins og malbiki og
hlaupabretti. „Menn fá álags-
meiðsli ef þeir hlaupa mikið á
hörðu undirlagi og því er æskilegt
að fólk hlaupi á breytilegu undir-
lagi,“ segir Gunnar. Malarstígar
eru tilvaldir og þá eru staðir eins
og Öskjuhlíð og Heiðmörk einkar
hentugir því ekki er verra að
skokka í skemmtilegu umhverfi.
Algengt er að byrjendur fari of
geyst af stað og missi áhugann á
hlaupunum. „Það er um að gera að
byrja varlega og flestir þola að
byrja á 20-30 mínútum. Þá getur
fólk verið óhrætt við að ganga
stóran hluta tímans til að byrja
með en skokka eins og þol leyfir,“
segir Gunnar. Þetta á sérstaklega
við um þá sem eru yfir kjörþyngd
því með kröftugri göngu má ná
ágætis brennslu. „Í svoleiðis til-
vikum er gott ráð að velja krefj-
andi gönguleiðir með mikið af
brekkum,“ segir Gunnar.
Skokkarar eru jafn mismun-
andi og þeir eru margir og árang-
urinn er misfljótur að koma í ljós.
„Þetta tekur tíma og það er mikil-
vægt að fólk átti sig á því að hver
hlaupari er einstakur,“ segir
Gunnar. „Sumir sjá miklar fram-
farir eftir viku en aðrir þurfa að
bíða mun lengur. Það þarf að setja
sér markmið og halda út í 8-12
vikur og ef það tekst þá kemst fólk
á annað plan í hlaupunum.“
Gunnar vill benda fólki á skokk-
hópa en hann fer einmitt fyrir
einum slíkum hjá ÍR. Þeir geta
veitt það aðhald sem mörg okkar
þurfa og þar er líka að finna góðan
félagsskap. tryggvi@frettabladid.is
Góðir skór mikilvægastir
Gunnar Páll fremstur í flokki. Hann er mikill hlaupagikkur og gefur meðal annars út
hlaupadagatalið Hlaup 2006. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Hitapúðar eru til í ýmsum
stærðum og gerðum. Þeir ylja
baki og bringu á stirðum degi.
Þeir sem eru bakveikir, hvort
sem er vegna sjúkdóms, slysa
eða vöðvabólgu, þekkja vel undr-
amátt hitans. Flestir þeirra eru
tíðir gestir í heitum pottum sund-
lauganna til að leyfa hitanum að
mýkja stirða vöðva.
Verslanir Lyfju
selja nokkrar gerð-
ir af hitapúðum
sem ættu að nýt-
ast vel fyrir þá
sem glíma við
eymsli í baki.
Hægt er að fá
rúmteppi eða
minni púða sem
leggja má á axlir,
bringu eða bak.
Einnig má fá púða
sem hægt er að
binda
um
mitti og háls og leysa
þannig krossgátur á meðan
hitinn streymir um sára
vöðva. Allir púðarnir
ganga fyrir raf-
magni, hafa þrjár
hitastillingar og
auðvelt er að þvo
baðmullarverið
sem er utan um
púðana.
Bakið hitað upp
Hita-
teppið má
setja undir lakið
í rúminu og hita upp fyrir
svefn. Það kostar 4.780 kr. Til eru
tvær tegundir af minni púðanum. Báðir
hafa þrjár mismunandi hitastillingar
en annar púðinn slekkur á hitanum
eftir 90 mínútur. Hitapúði án þannig
stoppara kostar 2.981 krónur og
hitapúði með stoppara kostar 3.760
krónur. Fæst í Lyfju Laugavegi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þú borðar þær með uppáhalds álegginu,
kannski ylvolgar úr ofninum,
ristaðar, með hvítlauksolíu,
stundum eins og pizzur
... eða eins og Strandamenn, glænýjar
með íslensku smjöri.
Fáðu þér Speltköku og Kartöfluköku í
næstu matvöruverslun.
Hollara brauð finnst varla.
Rammíslenskar Speltkökur og Kartöflukökur af Ströndum
100 ára hefð og ekkert nema hollusta
Heitustu vörurnar
Verslun Vítamin.is - Ármúla 32
s. 544 8000 • Opið mán-fös 10-18 & laug 11-15
Verslun Vítamin.is - Gránufélagsgötu 4 (JMJ Húsi)
s. 466 2100.
Opið mán-fös 16-18.30 & laug 11-13.
Reiki
Heilunar- og sjálfsstyrkingarnámskeið RVK
Kvöld- og helgarnámskeið í boði,
næstu námskeið eru:
I. stig helgarnámskeið
4. og 5. mars
II. stig kvöldnámskeið
13.–15. mars
Fyrir bætta líðan og betri stjórn á lífi þínu.
Pantanir í síma 553 3934
milli kl. 10 og 13 virka daga.
Guðrún Óladóttir
reikimeistari
Þeir sem hafa áhuga á framhaldsnám-
skeiði í sjálfsstyrkingu hafi samband.
Stór hitapúði sem helst
á sínum stað þannig að
auðvelt er að sinna ýmsum
verkum meðan hitinn
vinnur sitt verk. Fæst í
Lyfju Laugavegi og kostar
3.760 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN