Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.02.2006, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 28.02.2006, Qupperneq 37
ÞRIÐJUDAGUR 28. febrúar 2006 25 LEIKHÚS ÍSMEDÍA/AUSTURBÆ Hafið bláa Leikarar: Ívar Örn Sverrisson/Halla Vilhjálmsdóttir/Jón Jósep Snæbjörns- son/Valgerður Guðnadóttir/Árni Pétur Guðjónsson/Ólafur Þorvaldz/Aðalbjörg Árnadóttir/Matthías Matthíasson/Erlendur Eiríksson/Selma Björnsdóttir/Dansarar: Ásta Bærings/Íris María Stefánsdóttir/ Þórdís Schram/Hljóðfæraleikur: Jóhann Hjörleifsson/Eiður Arnarsson/Kjartan Valdemarsson/Þorvaldur Bjarni/Vignir Snær Vigfússon Höfundur: Kristlaug María Sigurðardóttir/ Tónlist: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson/ Danshöfundur: Cameron Corbett/Bún- ingar: María Ólafsdóttir/Leikmynd og leikmunir: Arna Valsdóttir/Ljósahönnun: Freyr Vilhjálmsson og Björn Bergsteinn Guðmundsson/Hljóð: Bongó ehf. Ívar Ragnarsson og Dimitra Drakopoulou/ Förðun: Skjöldur Eyfjörð/Leikstjórn: Agnar Jón Egilsson. Niðurstaða: Þótt útlit sýningarinnar sé flott nær það ekki að gera sýninguna að eftirminnilegu leikhúsi. Í Hafinu bláa segir frá litla karf- anum Kletti, sem býr í torfu í kyrrlátum hyl í hafinu risastóra hjá mömmu sinni og afa, hafi þar sem ógnir leynast víða. Það eru ekki allir fiskarnir í sjónum vinir, sumir eru leiðinda stríðni- spúkar, aðrir eru beinlínis hættu- legir. Hættulegust eru þó net fiskimannanna og leikurinn hefst á því að torfan sem Klettur býr í lendir í netinu. Allir nema hann. Klettur, sem er bara lítill fisk- ur, verður að leggja út í hið stóra haf og finna hjálp til að frelsa sitt samfélag úr netinu áður en það verður híft upp. Hann hittir fljótlega karfastelpuna Lukku sem segir honum að hans eina von sé Skuggi. Þau halda af stað í leit að Skugga, lenda í smá átök- um við skötuna Harpý og véla risahumarinn Hrím til að hjálpa sér. Umgjörð og útlit sýningarinn- ar er ákaflega falleg. Leikmynd og lýsing, búningar og förðun mynda heildrænan ævintýra- heim sem gaman hefði verið að sjá ganga upp. En, því miður, er handritið stóra brotalömin. Tal- aður texti er fremur sundurlaus og átakalítill, á köflum hrein flat- neskja og söngtextar óttalegt bull. Það er svona rétt eins og orðin hafi verið sett inn bara til að hafa orð og skiptir í rauninni engu máli hvað er sagt. Þar af leiðandi vantar verkið bæði skilaboð og dýpt. Forsendur ævintýrisins eru ekki fyrir hendi. Klettur og Lukka þvælast um hafið, verða áhorfendur að einu og öðru – en lenda lítt í raun- um, hafa fátt til að sigrast á og vaxa af. Á endanum slampast þau einhvern veginn á Skugga. Hvað tónlistina varðar, þá hefur Þorvaldi Bjarna oft tekist betur upp. Ekki eitt einasta lag í sýningunni hljómar í höfðinu á manni eftir að henni lýkur. Lögin eru of einsleit og gera lítið til að undirstrika karakter. Nema lagið sem skatan Harpý syngur stuttu fyrir hlé. Þar lifnaði sýningin svo um munar. Flutningur Selmu Björnsdóttur var svo stórkost- legur að maður óskaði þess að hún héldi bara áfram að syngja. Röddin naut sín út í æsar og var fylgt eftir með látbragði sem var óaðfinnanlegt. Þetta líf endurtók sig þegar þau Klettur og Lukka hittu Harpý í seinni hlutanum. Það má alveg segja að skúrkur- inn sé þakklátt hlutverk – en Selma gerði einfaldlega svo miklu meira en að vera bara skúrkur. Hún virtist ein um það í sýningunni að skilja út á hvað leiklist gengur. Ekki þar fyrir, leikurunum var nokkur vorkunn að reyna að moða einhvern kar- akter úr innihaldsleysi textans. Ekki lífguðu dansararnir mikið upp á sýninguna, voru of stirðir og klunnalegir til að hrífa áhorfandann. Í leikstjórninni eru of mörg klaufaleg mistök. Þau stærstu hljóta þó að vera léleg nýting á leikhópnum til að skapa líf í haf- inu. Í hvert sinn sem sólónúmer eru flutt á sviðinu, hverfur lífið úr sjónum, viðkomandi söngvari (fiskur) flytur bara númerið sitt, stundum með dansarana þrjá að gera einhverjar hreyfingar og hopp. Afleiðingin verður of mikið endurtekið rof í framvindunni svo áhorfandinn er fljótur að gleyma að hann er á leiksýningu en ekki tónleikum. Annað óskilj- anlegt klúður er atriðið þegar torfan hans Kletts lendir í net- inu. Netið birtist á sviðinu þar sem fiskarnir virðast vera að leika sér að því – en svo þegar hópurinn lokast inni í því er það horfið. Þótt útlit sýningarinnar sé flott nær það ekki að gera sýn- inguna að eftirminnilegu leik- húsi. Til þess er innihaldið of rýrt. Súsanna Svavarsdóttir Um útlit og innihald ��������������������������������� ��������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� �������������������������� ���������������������������������������� ������������������� ������������ �������������� ����������������� �������������������������������� ������������� ����������������� ������������������������������� ����������������������� ������������ �������������� �� ����������� ����������������������������� ��������������� ��������� ������������� �� ������������ ������������������� ���� �������� ���������� ����������������������������������� ��������������������� �������������������� ����������������������� ����������� ����������� ��������������� Fös. 3. mars. kl. 20 örfá sæti laus Fös. 10. mars. kl. 20 Lau. 18. mars. kl. 20 SÝNINGUM LÝKUR Í MARS! Ef eftir Valgeir Skagfjörð/ Einar Má Guðmundsson Þri. 28. feb. kl. 09.00 UPPSELT Mán. 6. mars. kl. 09.00 UPPSELT Þri. 7. mars. kl. 09.00 UPPSELT Mið. 8. Mars. kl. 09.00 UPPSELT VIÐTALIÐ eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur fim. 2. mars kl. 20 - forsýning lau. 4. mars kl. 20 - frumsýning sun. 5. mars kl. 20 lau. 11. mars kl. 20 sun.12. mars kl. 20 fös. 17. mars kl. 20 sun. 19. mars kl. 20 fös. 24. mars kl. 20 sun. 26. mars kl. 20 www.performer.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMINFS ER Á VISIR.IS Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir leikritið GLÆPIR OG GÓÐVERK Byggð á verki Antons Delmer, “Don´t utter a note” Leikstjóri: Bjarni Ingvarsson Þýtt og staðfært af Sigrúnu Valbergsdóttur Sýningar í IÐNÓ 4.sýning mið. 22. febrúar kl. 14.00 5. sýning sun. 26. febrúar kl. 20.00 (ath: breyttan sýningartíma) 6. sýning mið. 1. mars kl. 14.00 7. sýning sun. 5. mars kl. 14.00 8. sýning mið. 8. mars kl. 14.00 9. sýning sun. 12 mars Uppselt 10. sýning mið. 15. mars kl. 14.00 11. sýning sun. 19. mars kl. 14.00 Sýningar eru miðvikudaga og sunnudaga kl. 14.00 Miðapantanir í Iðnó s. 562 9700 www.midi.is Miðaverð kr. 1.200

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.