Fréttablaðið - 28.02.2006, Side 38

Fréttablaðið - 28.02.2006, Side 38
 28. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR26 Hártískan fyrir næsta vetur hjá hár- greiðslufyrirtækinu Vidal Sassoon var kynnt á sýningu í London þann 13. febrúar. Herdís Sigurðardóttir, hár- greiðslukona hjá Jóa og félögum, fór á sýninguna og tók myndir af hárinu. „Það sem er áberandi í vetrartísk- unni eru djúpir litir eins og fjólublár, rauður, blár og grænn sem eru notaðir til að brjóta upp hár í náttúrulegum litum. Þá er til dæmis hægt að hrista upp í dökku hári með sterkum fjólublá- um lokkum eða í ljósu hári með rauð- um lokkum. Þetta eru allt partalitanir en ekki strípur. Það eru fáir í þekkt- ustu hárfyrirtækjunum sem nota stríp- ur í dag,“ segir Herdís sem sér um hár nokkurra keppenda í Idolinu. „Klipp- ingarnar eru einfaldar í grunninn og útlínur hársins eru sterkar en notaðir eru lokkar til að brjóta klippinguna upp og fá meira flæði og hreyfingu í hárið. Herra- tískan er sjúskuð en listamanna- leg. Hárið er heillitað og frekar dökkt en litirnir eru mattir og náttúruleg- ir.“ Herdís hefur sjálf unnið fyrir Vidal Sassoon en hún er eini Íslendingurinn sem hefur lokið post graduate kúrs. „Það er stórt atriði hjá Vidal Sassoon að við- skiptavinurinn eigi auðvelt með að ná klippingunni rétt. Hann á ekki að þurfa að vera fastur í speglinum í marga klukkutíma heldur á að nægja að þurrka hárið og þá er það flott. Þeir hönnuðu meðal annars bítlaklipping- arnar, David Beckham klippinguna og hafa séð um Óskarinn í sautján ár.“ Aðspurð hvort hún telji að þessar nýju línur frá Vidal Sassoon muni fá meðbyr í hári Íslendinga segir hún: „Íslendingar eru frekar stífir en mér finnst þeir vera hægt og rólega að breytast. Það er fullt af fólki sem þorir að vera öðruvísi og auðvitað er ekki til nein uppskrift að flottu hári. Það þurfa allir bara að finna sinn stíl í hárinu eins og öðru.“ hilda@frettabladid.is Ferskir straumar í hártískunni Rauði liturinn kemur eins og þruma inn í vortískuna. Splæstu á þig einhverju rauðu og lífgaðu upp á hversdagsleikann. Það er aldrei of mikið af litum í til- verunni. • Taktu til heima hjá þér og settu nokkra ferska og fallega túlipana í vasa. Þeir lífga upp á tilveruna. • Það er orðið línuskautafært í Reykja-víkurborg. Ef þú átt ekki línu- skauta skaltu fara strax og fjárfesta í einum slíkum. Það fást flott- ir skautar í Útilíf og Intersport. • Jarðarberjafreyðivín frá Fresita er sérlega stelpuvænt og gott. • Taktu vítamín. Þau bæta og kæta. Hresstu þig við...

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.