Fréttablaðið - 28.02.2006, Qupperneq 40
Leikarinn Morgan Freeman sá ekk-
ert að því að verða við beiðni með-
leikara síns Sir Bens Kingsley og
kalla hann Sir Ben. Aðrir leikarar
hafa kvartað undan snobbinu í
Kingsley og fundist hann góður með
sig en hann og Morgan leika saman
í myndinni Lucky Number Slevin.
„Hann bað mig að kalla sig Sir Ben
svo ég kallaði hann alltaf því nafni,“
sagði hinn hógværi Freeman. „Mér
finnst ennþá spennandi að hitta
svona stórar stjörnur. Ég ólst upp
með kvikmyndunum og verð ennþá
rosalega spenntur þegar ég hitti
fólk sem ég lít jafn mikið upp til og
Sir Ben. ■
Hógværðin
uppmáluð
MORGAN FREEMAN Lítur upp til Sir Bens.
Hin fagra rokkaradóttir Elizabeth
Jagger heldur áfram að feta í fót-
spor móður sinnar. Núna þegar hún
er orðin eftirsótt fyrirsæta vill hún
líka gerast leikkona. Jerry Hall,
móðir hennar, hóf feril sinn sem
fyrirsæta en er nú frægari fyrir
leik sinn í leikhúsum Lundúna og
síðast í söngleiknum High Society.
Elizabeth sást aðeins í myndinni
Igby Goes Down en þar voru Kieran
Culkin og Claire Danes í aðalhlut-
verkum. „Mér er alvara með að
læra að leika,“ sagði Elizabeth í við-
tali við The Daily Mail. „Ég veit að
ég get ekki gengið inn í stjörnuhlut-
verk. Ég vil bara fá lítið hlutverk,
þrjár mínútur í kvikmynd einhvers
toppleikstjóra.“ Elizabeth var næst-
um búin að fá hlutverk í næstu kvik-
mynd Sofiu Coppola, Marie Antoin-
ette, en atriðið sem hún átti að koma
fram í var fellt niður.
Langar í hlutverk
FRÉTTIR AF FÓLKI
Kate Moss sást með nýjan strákgeml-ing upp á arminn kvöldið fyrir NME-
verðlaunahátíðina og var sá heppni
enginn annar en Albert Hammond Jr. úr
hljómsveitinni The Strokes.
„Hann hvíslaði í eyra
hennar allt kvöldið og
hún brosti og hló dátt
að öllu sem hann lét
út úr sér,“ sagði vitni.
Þau tvö sáust einnig
yfirgefa skemmtistað-
inn í Landrover í lok
kvöldsins. Þegar Albert var
svo spurður út í atvikið
sagði hann: „Við vorum
bara full og vinaleg hvort
við annað. Hún er svöl
stelpa og ég skemmti mér vel, en ég er í
sambandi við aðra stelpu.“ Sú stelpa er
einmitt þjóðlagasöngkonan Catherine
Pierce, en þau skötuhjúin eru trúlofuð.
Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. Fax 554 4102.
rafport@rafport.is www.rafport.is
Umboðsmenn um land allt
• Miðar á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
• Á CD/DVD diska, miðar úr plasti
• Prentar miða úr Word-, Excel- og Outlook
• Prentar merkiborða bæði á pappír og plast,
stærðir eftir vali, allt að eins meters langa
• Allt að 62mm breidd
• 50 miðar á mínútu*
• USB tenging
• Windows hugbúnaður
• Sjálfvirk klipping
• Heilar lengjur eða staðlaðar
*Staðlaðir póstfangamiðar
Fljótvirkasti miðaprentarinn
Umboðsaðili:
QL-550
Ti lboðsverð 12.999 kr. Augl. Þórhildar 1390.43
Óskarsverðlaunin verða afhent á
sunnudaginn en þetta er einhver
mesta glamúrhátíð afþreyingar-
iðnaðarins þar sem stjörnurnar
koma saman til að sýna sig. Kvik-
myndaáhugamenn bíða spenntir
eftir að sjá hvort einhverjum tak-
ist að skáka smalastrákunum
hans Angs Lee á Brokeback-fjalli
en tískufrömuðir og spekingar
eru ekki síður fullir eftirvænting-
ar enda reyna leikkonurnar að
skarta sínu fegursta fyrir mynda-
vélarnar.
Breska leikkkonan Keira
Knightley er lafhrædd við rauða
dregilinn ef marka má orð hennar
í bandarískum spjallþætti en hún
er tilnefnd fyrir leik sinn í kvik-
myndinni Pride & Prejudice. Ekki
eru það þó úrslitin sem stúlkan
kvíðir mest fyrir heldur hvernig
tískumógúlar heimsins taka henni.
„Þetta er eins og hundasýning og
mér verður vafalaust líkt við
breskan púðulhund,“ sagði leik-
konan en þetta verður í fyrsta
skipti sem hún mætir á þessa
miklu hátíð. „Það er skelfilegt að
hugsa til þess að ég verð mæld og
vegin frá toppi til táar, og gefin
einkunn út frá kjólnum og skart-
gripunum,“ bætti hún við.
KEIRA KNIGHTLEY Leikkonan fagra segist
vera hrædd við alla tískusérfræðingana
sem munu mæla hana út á rauða dreglin-
um næstkomandi sunnudag.
FRÉTTABLAÐIÐ / MYND: REUTERS
Óttaslegin Keira
Bæjarbíó í Hafnarfirði sýnir í
kvöld myndina House of Usher
frá árinu 1960 eftir hinn rómaða
hryllingsmyndaleikstjóra Roger
Corman, með engum öðrum en
Vincent Price í aðalhlutverki.
Myndin, sem þykir með betri
myndum Cormans, byggir á smá-
sögu eftir Edgar Allan Poe. Alls
gerði Corman sjö myndir byggðar
á smásögum Poes og þykir hafa
tekist sérstaklega vel að blanda
saman gamaldags draugasögu og
nútímalegri hrollvekju í þessari
mynd. House of Usher fjallar um
ungan mann, Philip Winthrop að
nafni, sem kemur óboðinn í heim-
sókn á heimili Usher-fjölskyld-
unnar til að heimsækja kærustuna
sína Madeleine. Ekki er allt með
felldu og kemst hann að því að
bölvun hvílir á fjölskyldunni sem
hefur meðal annars firrt Roder-
ick, bróður Madeleine, (leikinn af
Price) vitinu.
Myndin verður sýnd klukkan
20 í Bæjarbíói á Strandgötu númer
6, en miðasala hefst um það bil
hálftíma fyrir sýningu og er
aðgangseyrir 500 krónur. Myndin
verður sýnd aftur laugardaginn 4.
mars klukkan 16. - bs
VINCENT PRICE Leikur Roderick Usher, en
fjölskyldubölvun hefur gert hann geðveik-
an. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Corman í Bæjarbíói
Pétur Yamagata í Nexus fór á
bókamarkaðinn í Perlunni.
„Ég valdi þrjár ferðahandbæk-
ur sem heita Á ferð um landið og
innihalda bæði aksturs og göngu-
leiðir. Ég ætla að þramma um
landið eins mikið og ég get í sumar.
Svo fékk ég mér bókina um selinn
hann Snorra. Hún er snilldarbók
og jafnvel undanfari The DaVinci
Code og að lokum valdi ég mér
nokkrar Snúð og Snældu barna-
bækur. Mig er búið að langa lengi
að hafa afsökun fyrir að lesa þær
bækur aftur og núna á ég tveggja
ára strák og get lesið þetta fyrir
hann. Þá er bara að sjá hvort þess-
ar frábæru bækur hafi staðist
tímans tönn.“
Selurinn Snorri og ferðalög
PÉTUR YAMAGATA Hann valdi sér nokkrar
bækur á bókamarkaðnum í Perlunni.
ÆVINTÝRIÐ ER RÉTT AÐ BYRJA!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
- SV MBL
- VJV topp5.is
VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM YKKUR HENTAR
NANNY MCPHEE kl. 6 og 8
CONSTANT GARDENER kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
UNDERWORLD kl. 10 B.I. 16 ÁRA
FINAL DESTINATION 3 kl. 6 B.I. 16 ÁRA
CAPOTE kl. 5.30, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
TRANSAMERICA kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 14 ÁRA
WALK THE LINE kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
VINSÆLASTA
MYNDIN Á ÍSLANDI
2 VIKUR Í RÖÐ
CONTANT GARDENER kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 16 ÁRA
NANNY MCPHEE kl. 3.40 og 5.50
UNDERWORLD kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
ZATHURA m/íslensku tali kl. 3.40 og 5.50 B.I. 10 ÁRA
ZATHURA m/ensku tali kl. 5.50 B.I. 10 ÁRA
WALK THE LINE kl. 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.40, 8 og 10.10
S.
S
Ó.
YFIRVOFANDI HÆTTA OG SAMSÆRI
LÍF OKKAR ER Í HÖNDUM
TVEGGJA EINSTAKLINGA
FRÁ LEIKSTJÓRA CITY OF GOD
EFTIR METSÖLUBÓK JOHN LE CARRÉ
EIN BESTA MYND ÁRSINS
BAFTA
tilnefningar
10
Tilnefningar
til ÓSKARS-
VERÐLAUNA
4
Tilnefningar
til ÓSKARS-
VERÐLAUNA
M.A. BESTA MYND,
BESTI LEIKSTJÓRI
OG BESTI LEIKARI
Í AÐALHUTVERKI
5
STÓRKOSTLEG VERÐLAUNAMYND
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
BESTI LEIKARI
ÁRSINS
Í AÐALHLUT-
VERKI
TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
ÓÞEKKUSTU BÖRN Í HEIMI HAFA FENGIÐ
NÝJA BARNFÓSTRU SEM ER EKKI ÖLL
ÞAR SEM HÚN ER SÉÐ.
„...listaverk,
sannkölluð perla“
- DÖJ, kvikmyndir.com
Tilnefningar til
GOLDEN GLOBE
verðlauna
3
- MMJ Kvikmyndir.com
- VJV -Topp5.is
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI YNDISLEGU MYND
MARGVERÐLAUNUÐ OG MÖGNUÐ MYND
MEÐ FELICITY HUFFMAN ÚR DESPERATE HOUSEWIVES
-MMJ, Kvikmyndir.com
- HJ -MBL
- BLAÐIÐ
- „..ótrúlega
áhrifarík, minnisstæð
og örgrandi
kvikmyndagerð.“
L.I.B. - topp5.is