Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 41
Hitt húsið setti upp svokallað
„blint kaffihús“ á Vetrarhátíð
þar sem gestum og gangandi
bauðst að snæða kræsingar í
svartamyrkri og setja sig þannig
í spor blindra. „Fólk var með
blindrastaf og blindir og sjón-
skertir þjónuðu til borðs og vís-
uðu fólki til sætis,“ sagði Linda
Ósk Hilmarsdóttir, starfsmaður
Hins hússins.
Um árabil hafa verið starf-
ræktir svona veitingastaðir í
París og Berlín en nýlega var
slíkur staður einnig opnaður í
London. „Við náðum að plasta vel
fyrir gluggana svo það var gjör-
samlega svartamyrkur niðri í
kjallaranum. Boðið var upp á
bakkelsi frá Korninu, heitt kakó
með rjóma, kaffi og gos. Það
komu margir og flestum þótti
þetta mjög erfitt og áttu í vand-
ræðum með að venjast myrkrinu
þarna niðri. En flestum þótti
þetta umfram allt skemmtileg og
áhugaverð lífsreynsla.“
Snætt í svartamyrkri
BLINDIR Fólk fékk kost á að setja
sig í spor blindra á „blindu kaffi-
húsi“ Hins hússins í gær.
AMINA Hljómsveitin Amina hitar upp fyrir
Adem í London 19. apríl.
George Michael komst í kast við
lögin aðfaranótt laugardags. Marg-
ir muna eflaust eftir því þegar lög-
reglan í Bandaríkjunum handtók
söngvarann fyrir ósiðsamlegt
athæfi á almannafæri en að þessu
sinni voru það yfirvöld í London
sem þurftu að hafa afskipti af
honum. Vegfarendur tóku eftir
Michael þar sem hann átti í erfið-
leikum með akstur og gerðu lög-
reglunni viðvart. Skömmu síðar
var söngvarinn kominn á bak við
lás og slá og í yfirlýsingu frá lög-
reglunni kemur fram að fundist
hafi eiturlyf af C-gerð. Hún vildi þó
ekki staðfesta að George Michael
hefði verið umræddur maður að
því er fram kom í breskum fjöl-
miðlum. „Við leit kom í ljós að hinn
grunaði hafði undir höndum örv-
andi efni,“ segir í yfirlýsingunni en
söngvaranum var sleppt gegn
greiðslu tryggingar. ■
George handtekinn
FRÉTTIR AF FÓLKI
Cuba Gooding Jnr. hefur varað Ter-ence Howard við þeirri skjótfengnu
frægð sem hlýst af tilnefningu til Ósk-
arsverðlauna. Margir muna eflaust eftir
því þegar Gooding fékk styttuna góðu
fyrir leik sinn í Jerry Maguire en síðan þá
hefur ferill hans legið beina leið niður.
Gooding þótti því hollara að minna á að
frægðin er oft fallvölt. „Þú hefur hæfi-
leika og ert heiðraður
fyrir þá. Ekki samt láta
þér detta það til hugar
að þú sért svarið við
bænum allra,“ sagði
leikarinn sem við-
urkenndi að
hafa hafnað
nokkrum
frábærum
hlutverkum
fyrir frekar
vafasamar
myndir.
Victoria Beckham heldur áfram að reyna að koma sér á framfæri og út
úr skugga eiginmanns síns, knattspyrnu-
hetjunnar David Beckham. Samkvæmt
heimildum breska götublaðsins The
Daily Mirror hyggst kryddpían fyrrver-
andi nú setja á markað förðunarlínu
sem selja á í „dýrari“ verslunum.
Heimildarmaður blaðsins segir að „fína
kryddið“ viti sínu viti þegar komi að útliti
og tísku og hafi þegar unnið að þróun
nokkurra vara sem setja eigi á markað.
Er þetta í samræmi við risasamning
Beckham-hjónanna við snyrtivöru-
framleiðandann Coty sem þegar selur
svitalyktareyðir með nafni Beckhams
á. „Það eru margir sem
velta því fyrir sér hvernig
frú Beckham heldur sér
svona vel þrátt fyrir
mikið annríki og því er
eðlilegt að hún hanni
sína eigin línu,“ hefur
The Daily Mirror
eftir heimildarmanni
sínum.
Írsku rokkrisarnir í U2 voru útnefndir sem „Sendiherrar samviskunnar“ af
mannréttindasamtökunum Amnesty Int-
ernational við hátíðlega athöfn í höfu-
borg Chile, Santiago. Irene Khan, aðalrit-
ari samtakanna, hrósaði hljómsveitinni
fyrir framlag sitt í baráttunni gegn fátækt
og mannréttindum „Tenging tónlistar
þeirra við mannhelgi og mannréttindi
á sér engin fordæmi í
sögunni og er einstakt
fyrirbæri,“ sagði
Khan af þessu
tilefni. „Þeir eru
milljónum manna
innblástur og hafa
ætíð verið mál-
svarar þeirra
sem minna
mega sín.“
GEORGE MICHAEL Var handtekinn
eftir að vegfarendur tóku eftir vafa-
sömu aksturslagi hans. Honum var
sleppt að lokinni skýrslutöku.
FRÉTTABLAÐIÐ / MYND: REUTERS
Hljómsveitin Amina mun hita upp
fyrir Adem á tónleikum í London
þann 19. apríl.
Tónleikarnir verða haldnir
aðeins tveimur dögum eftir að
Amina hitar upp fyrir Sigur Rós á
tónleikum í Nýja-Sjálandi. Adem
spilaði á Iceland Airwaves-hátíð-
inni fyrir tveimur árum og má
lýsa tónlist sveitarinnar sem hug-
ljúfu og melódísku gítarpoppi.
Forsprakki sveitarinnar, Adem
Ilhan, er jafnframt bassaleikari
síðrokksveitarinnar Fridge. ■
Hitar upp yrir Adem