Fréttablaðið - 28.02.2006, Page 42

Fréttablaðið - 28.02.2006, Page 42
30 28. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FEBRÚAR 25 26 27 28 1 2 3 Þriðjudagur ■ ■ LEIKIR  19.15 HK og Selfoss mætast í DHL-deild karla í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  19.00 Meistaradeild Evrópu á Sýn. Fréttaþáttur.  19.30 Ísland gegn Trínidad & Tóbagó á Sýn. Bein útsending.  21.40 Destination Germany á Sýn.  23.35 Ísland gegn Trínidad & Tóbagó á Sýn. Endursýning. ÍSLAND - TRÍNIDAD VIGNIR GUÐJÓNSSON skrifar frá London. vignir@frettabladid.is Þjálfarinn Leo Beenhakker og fyrirliðinn Dwight Yorke eru sammála um að vin- áttuleikurinn gegn Íslandi í dag sé mun mikilvægari en margir vilja halda og að hann sé í raun fyrsta skref Trínidad & Tóbagó í undirbúningi liðsins fyrir HM í sumar. Blaðamannafundurinn sem liðið hélt á hóteli sínu í London í gær var vel sóttur af enskum blaðamönnum sem vildu aðeins vita um væntanlegan leik liðsins gegn Englandi á HM í sumar. En Been- hakker vildi litlu svara um þann leik. „Ég og leikmennirnir hugsum lítið um leikinn gegn Englandi. Við horfum styttra fram í tímann og hugsum um næsta leik, sem er á morgun [í dag] gegn Íslandi. Þetta er síðasti leikur okkar áður en formlegur undirbúningur HM hefst svo að þetta er síðasta tækifæri margra leikmanna til að sanna sig. Það er mikið undir,” sagði Beehnakker. Yorke sagði leikmenn landsliðsins spennta fyrir leiknum gegn Íslandi. „Það skiptir máli að ná góðum úrslitum, vinna sigur og venja okkur leikmennina við þá tilfinningu hvernig það er að sigra. Leikstíll íslenska liðsins svipar til þeirra liða sem eru með okkur í riðli á HM og verður leikurinn því ákveðin prófraun fyrir okkar lið fyrir það sem koma skal á HM,” sagði Yorke jafnframt og bætti því við að enginn vafi léki á því að Eiður Smári Guð- johnsen væri lykilmaður íslenska liðsins. „Íslenska liðið er gott, skipað duglegum og sívinnandi leikmönnum þar sem Eiður Smári er í fararbroddi. Hann er hjá Chelsea og þar spila aðeins frábærir leikmenn,” sagði Yorke sem vildi aðspurður ekkert segja um hvort hann teldi að Eiður Smári kæmist í byrjunarlið Man. Utd í dag. „Það er ekki mitt að svara en hann er magnaður leikmaður.” ÞJÁLFARI OG FYRIRLIÐI TRÍNIDAD: SEGJA LEIKMENN ÍSLANDS DUGLEGA OG SÍVINNANDI Leikurinn er prófsteinn fyrir okkar lið > Alda Leif og Hlynur í stjörnuleikjum Alda Leif Jónsdóttir skoraði tvö stig í stjörnuleik hollenska körfuboltans um helgina en liðið hennar vann leikinn. Alda fékk lítið að spila og stigin tvö komu úr hennar eina skoti í leiknum. Hlynur Bæringsson spilaði karlaleik- inn og stóð sig ágætlega. FÓTBOLTI Fjölmargir blaða- og sjónvarpsmenn fylgdust með æfingu landsliðs Trínidad og Tóbagó í gær og mættu á blaða- mannafund liðsins um hádegið. Enskir fjölmiðlar sýna liðinu mikinn áhuga, einkum vegna þess að Trínidad & Tóbagó er með enska landsliðinu í B-riðli heims- meistarakeppninar í Þýskalandi í sumar. Á fundinum voru blaða- menn frá Sky, BBC auk annarra af stærstu miðlum Bretlands. Þá voru hollenskir heimildarmynda- gerðarmenn að fylgjast með Beenhakker, sænskir blaðamenn voru á staðnum þar sem Svíþjóð er einnig í B-riðlinum á HM, að ógleymdum fjölmiðlamönnunum frá Trínidad og Tóbagó. Leo Beenhakker, þjálfari Trínidad og Tóbagó, var ítrekað spurður að því hvort hann hefði áhuga á því að taka við enska landsliðinu en hann er þekktur þjálfari sem m.a. hefur stjórnað Real Madrid og hollenska lands- liðinu í sinni þjálfaratíð. Þá hefur Jack Warner, formaður knatt- spyrnusambands Trínidad og einn af varaformönnum FIFA, verið sterklega bendlaður við miðabrask fyrir leiki Trínidad á HM og hafa margir farið fram á afsögn hans hjá FIFA. Warner sat fyrir svörum á fundinum og hélt því staðfastlega fram að hann hefði ekki gert neitt rangt. Svo má ekki gleyma fyrirlið- anum Dwight Yorke, fyrrum leik- manni Man. Utd., sem spilar með Sydney FC í Ástralíu. Þar í landi er tímabilið senn á enda og sagði Yorke að það væri möguleiki á að hann myndi spila á Englandi fram að HM. „Það er mikilvægt að vera í formi þegar HM hefst. Það er verið að vinna í ákveðnum málum fyrir mig hér sem gætu farið að skýrast á næstu vikum. Það væri mjög gaman að spila aftur á Englandi í smá tíma í vor,“ sagði Yorke. - vig Fjölmiðlar hvaðanæva úr heiminum eru í London: Mikill áhugi fyrir liði Trínidad FJÖLDI Fjölmennt var á blaðamannafundi landsliðs Trinidad. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson stjórnar íslenska landsliðinu í knattspyrnu í fyrsta sinn í kvöld þegar það tekur á móti Trínidad og Tóbagó á Loftus Road í London. Eyjólfur segir engar róttækar breytingar á leik íslenska liðsins væntanlegar en með nýjum þjálf- ara felist að sjálfsögðu einhverjar breytingar. „Það eru ákveðnir hlutir í varnarleiknum sem ég vil breyta og tengjast þær breytingar færslum leikmanna í vörninni. Við ætlum þó ekki að leggja ofur- áherslu á vörnina á morgun og munum sækja af krafti og ákveðni. Samt vil ég halda hreinu,“ sagði Eyjólfur við Fréttablaðið í gær. Íslenska liðinu verður stillt upp í leikkerfið 4-4-2 á morgun en end- anlegt byrjunarlið verður ekki gefið upp fyrr en síðdegis í dag. „Þá verður annar framherjinn í því hlutverki að koma niður og sækja boltann á meðan hinn verð- ur uppi á toppi,“ segir Eyjólfur sem gerir fastlega ráð fyrir því að þessir tveir framherjar verði Eiður Smári Guðjohnsen og Heið- ar Helguson. Líklegt er að Ívar Ingimarsson og Jóhannes Karl Guðjónsson komi beint inn í byrj- unarliðið en mesta spennan felst í hvort Grétar Steinsson muni spila á hægri kantinum eða í stöðu bakvarðar og þá hvaða leikmenn verða notaðir á köntunum. „Þessi leikur er sérstakur að því leyti að bæði lið eru að leggja tiltölulega litla áherslu á að kort- leggja andstæðingana. Ég er að stjórna liðinu í fyrsta sinn og er að innleiða það skipulag sem ég vil hafa á meðan Trínidad er að undir- búa sig fyrir HM í sumar. Við vitum lítið um þá og ég held að þeir viti lítið um okkur,“ segir Eyj- ólfur en hann hefur horft á upp- töku af einum leik með lið Tríni- dad og Tóbagó. „Þeir eru léttleikandi og tekn- ískir en um leið með stóra menn inn á milli. Þeir eru agaðir í vörn- inni og fá ekki á sig mikið af mörk- um en í sókninni er Dwight Yorke þeirra aðalmaður. Það á helst allt að fara í gegnum hann,“ segir Eyj- ólfur sem mun þó ekki ætla að setja mann honum til höfuðs í leiknum. „Nei, fyrst og fremst ætlum við að hugsa um okkur sjálfa, finna okkar takt og vona að það skili okkur góðum leik. Stærstu breytingarnar eru í varnarleik liðsins Það munar tæpum 50 sætum á Íslandi og Trínidad á FIFA-listanum. Samt sem áður telur landsliðsþjálfarinn, Eyjólfur Sverrisson, að íslenska liðið sé alls ekki síðra. Eyjólfur segir að það verði leikið til sigurs í kvöld. NÝR MAÐUR Í BRÚNNI Eyjólfur Sverrisson sést hér stýra æfingu hjá íslenska liðinu í gær. Eyjólfur ætlar sér sigur í sínum fyrsta leik sem landsliðsþjálfari. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI „Það er mjög gott að spila leikinn hér í London,” sagði Heiðar Helguson, framherji íslenska liðs- ins og Fulham í Englandi, en hann flaug til móts við landsliðið í gær en hann spilaði með Fulham gegn Bolton á sunnudag. „Það væri fínt að hafa þetta alltaf svona. Bara að fá Icelandair til að ferja áhorfend- ur á góðu verði. QPR er að mér skilst í einhverjum peningavand- ræðum svo það er örugglega hægt að breyta „Loftus Road“ í „Laugar- dalsvöllinn“. Svo er líka hægt að fá Baug til að kaupa dæmið,“ sagði Heiðar og brosti en sjálfur býr hann í nágrenni London. Heiðar sagðist við Fréttablaðið vera svolítið stirður eftir leikinn en að hann yrði orðinn góður fyrir leikinn í kvöld. - vig Heiðar Helguson: Fá Baug til að fjárfesta STEMNING Það var létt yfir strákunum á æfingu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Landsliðsþjálfarinn Eyj- ólfur Sverrisson sagði við Frétta- blaðið í gær að engin óformleg beiðni hefði borist til hans frá Jose Mourinho eða öðrum forráða- mönnum Chelsea um að láta fyrir- liðann Eið Smára Guðjohnsen helst komast hjá því að spila allan leikinn. Framundan eru mikilvæg- ir leikir hjá Chelsea, meðal annars síðari leikurinn gegn Barcelona í Meistaradeildinni. Slíkar beiðnir eru tíðar þegar um leikmenn hjá stærstu liðum heims er að ræða, en landsliðsþjálfurum ber engin skylda til að svara slíkri beiðni. „Eiður Smári spilaði hálftíma í deildinni um helgina og við erum ekki að æfa mikið svo að það er ekki hægt að segja að þetta sé mikið álag. Ég reikna því ekki með því að sú beiðni komi,” sagði Eyjólfur og glotti. - vig Forráðamenn Chelsea: Báðu ekki um hvíld fyrir Eið FYRIRLIÐINN Eiður Smári mun væntanlega spila mikið í kvöld.FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Búist er við því að áhorf- endur á landsleik Íslands og Tríni- dad og Tóbagó í dag verði ein- hvers staðar á bilinu 1.500-3.000 manns sem áætla má að flestir muni styðja landslið Trínidad & Tóbagó, en fjölmargir ríkisborg- arar landsins eru búsettir í nágrenni London. Samkvæmt upplýsingum frá KSÍ seldust um 300 miðar í forsölu á leikinn, flestir til Íslendinga sem eru búsettir í London eða í nágrenni höfuðborgarinnar, en þó má búast við því að slatti af miðum seljist fyrir utan völlinn á leikdag. Upplýsingafulltrúi Trínidad og Tóbagó tjáði Fréttablaðinu að allt að 2.500 manns gætu mætt á völl- inn til að styðja þeirra lið en í þeim tölum fælist þó ákveðin bjartsýni. Þess má geta að knattspyrnu- samband Trínidad sótti um og fékk í kjölfarið sérstakt leyfi hjá yfir- völdum Loftus Road um að fá að taka hljóðfæri með í áhorfenda- stúkurnar. Helsti stuðningsmanna- kjarni landsliðsins er þekktur fyrir mikinn bumbuslátt. Það verður því sannkölluð Mið-Amer- íkustemning á pöllunum á leiknum í kvöld. - vig Það verður tómlegt á Loftus Road í kvöld: Von á 500 Íslendingum FÓTBOLTI Leikur Íslands og Tríni- dad og Tóbagó í kvöld mun fara fram á Loftus Road í London, heimavelli hins fornfræga félags Queens Park Rangers, sem nú leikur í ensku 1. deildinni. Leik- vangurinn tekur rétt um 19 þús- und manns í sæti. Leikvangurinn var byggður árið 1904 og er einn af elstu og sögufrægustu leikvöngum á Eng- landi. Spilað á velli QPR: Gamall en glæsi- legur völlur LOFTUS ROAD Verður hálftómur í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Taktlaus æfing Eyjólfur Sverrisson stillti ekki upp byrjunarliði á æfingu landsliðsins í gær og heldur var ekki æfð nein taktík. Þess í stað var spilaður fótbolti á milli yngri og eldri leikmanna liðsins og sigruðu hinir ungu, 6-5. Dómaraskandall sögðu einhverjir af hinum eldri.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.