Fréttablaðið - 28.02.2006, Síða 43
ÞRIÐJUDAGUR 28. febrúar 2006 31
FÓTBOLTI Blaðamaður Trinidad &
Tobago Express, sem er stærsta
dagblaðið þar í landi, fylgist
grannt með undirbúningi lands-
liðsins fyrir leikinn gegn Íslandi
og hefur verið að birta stórar
greinar í sínum miðli þar sem ítar-
lega er greint frá æfingum liðsins
og andrúmsloftinu í landsliðs-
hópnum.
En eins og margir leikmanna
liðsins er blaðamaðurinn ekki
vanur veðráttunni í London en þar
hefur veðrið undanfarna daga
verið keimlíkt því sem hefur verið
á Íslandi upp á síðkastið, hitastig
rétt yfir frostmarki og stillt veður.
„En sem betur fer klæðast lands-
liðsmennirnir sérsaumuðum
æfingatreyjum frá Adidas sem
héldu mönnum frá því að krókna,”
segir m.a. í blaðinu. Þess má geta
að meðalhitinn í Trínidad á þess-
um árstíma er í kringum 30 gráð-
ur, reyndar eins og hann er nánast
allt árið um kring. - vig
Blaðamenn frá Trínidad:
Ekki vanir
svona kulda
KULDASKRÆFUR Blaðamennirnir frá Tríni-
dad voru vel klæddir á æfingu liðsins í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI „Með nýjum þjálfara
koma nýjar áherslur svo að þetta
er vissulega aðeins frábrugðið því
sem áður var. En andinn í hópnum
er sá sami. Þetta eru sömu vitleys-
ingarnir sem eru í hópnum og
sama stemningin en mesta breyt-
ingin finnst mér fólgin í því að
undankeppni HM er afstaðin og
nú tekur annað við,“ sagði varnar-
maðurinn Hermann Hreiðarsson í
gær, spurður um hvort það væri
mikið öðruvísi að vera undir stjórn
Eyjólfs Sverrissonar sem lands-
liðsþjálfara.
Hermann telur að nokkuð
þungu fargi hafi verið létt af
íslenska hópnum þegar undan-
keppni HM lauk og segir að leik-
urinn gegn Trínidad í kvöld marki
upphafið að nýju tveggja ára
skeiði íslenska liðsins sem felst í
undankeppninni fyrir EM.
„Við vorum ekki ánægðir með
útkomuna úr undankeppni HM –
við spiluðum ágætis bolta en töp-
uðum alltaf. Þessu ætlum við að
reyna að breyta,” segir Hermann
sem fullyrðir að hópurinn hjá
landsliðinu í dag hafi sjaldan eða
aldrei verið sterkari. „Ég held að
ég þori alveg að fullyrða það ef
litið er á pappírinn. Við erum flest-
ir að spila reglulega með liðum
okkar í toppdeildum á Englandi,
Hollandi, Noregi, Svíþjóð og fleiri
löndum og þessi hópur núna hefur
verið saman í nokkurn tíma eftir
ákveðna uppstokkun fyrir tveim-
ur árum. Það þarf að slípa liðið
saman, það er ekki spurning, en
hópurinn lofar góðu,“ segir Her-
mann og bætir því við að leikurinn
í kvöld marki í raun nýtt upphafi.
„Nú byrjum við aftur á núlli.
Ný keppni framundan og nýr
þjálfari og allir möguleikar fyrir
hendi. Við erum að fara að keppa á
móti liði sem er að fara á HM og
þangað komast aðeins góð lið. Ég á
því von á hörkuleik,” sagði Her-
mann sem spilaði nokkrum sinn-
um gegn Dwight Yorke á sínum
tíma. „Hann er frábær leikmaður í
sínu besta formi og erfiður að eiga
við en við teljum okkur geta haldið
honum niðri.“
- vig
Hermann Hreiðarsson segir leikinn í kvöld marka nýtt upphaf hjá landsliðinu:
Hópurinn aldrei verið sterkari
Í SVIÐSLJÓSINU Hermann Hreiðarsson sést hér í viðtali við Sky-sjónvarpsstöðina í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið æfði
ekki á Loftus Road í gær og var
þess í stað kosið að hafa síðustu
æfinguna fyrir leikinn á æfinga-
svæðinu sem íslenska liðið hefur
verið á frá því á sunnudag. Að
sögn Eyjólfs Sverrissonar lands-
liðsþjálfara var þetta ákveðið
vegna fjarlægðarinnar frá hótel-
inu að leikvanginum, en það er
um klukkustundar langur akstur.
„Fram og til baka gerir það tvo
tíma sem er langur tími og þreyt-
andi. Við erum þrjár mínútur að
æfingasvæðinu og töldum að það
væri alveg nóg. Þess vegna
afþökkuðum við æfinguna á Loft-
us,“ sagði Eyjólfur við Frétta-
blaðið. - vig
Þreyttir landsliðsstrákar:
Æfðu ekki á
Loftus Road
FERSKUR Eyjólfur þjálfari lék á als oddi á
æfingu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Ívar Ingimarsson segir
að andrúmsloftið í íslenska liðinu
sé mjög gott, en hann er kominn í
hópinn að nýju eftir eins og hálfs
árs fjarveru. „Mér líst mjög vel á
þetta og ég hlakka mikið til leiks-
ins,“ sagði hann við Fréttablaðið í
gær.
Ívar leikur með Reading í
ensku 1. deildinni og hefur spilað
gegn QPR á útivelli í vetur, en það
spilar heimaleiki sína á Loftus
Road. „Þetta er þrusuvöllur og
sérstakur að því leyti að áhorfend-
ur eru gríðarlega nálægt. Þegar
völlurinn er fullur eru áhorfend-
urnir nánast ofan í þér og þetta
verður mikil gryfja. Svo að ef það
verður góð mæting á völlinn ætti
að geta myndast góð stemning,“
segir Ívar. - vig
Ívar Ingimarsson:
Loftus Road
er gryfja
MÆTTUR AFTUR Það var létt yfir Ívari á
blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI KSÍ gerði í gær samninga
til fjögurra ára við sjö fyrirtæki
undir yfirskriftinni Alltaf í boltan-
um með KSÍ. Samningarnir hljóða
upp á 250 milljónir íslenskra króna
sem skiptist jafnt á milli fyrir-
tækjanna. Fyrirtækin eru Lands-
bankinn, Mastercard, Vífilfell,
Icelandair, OgVodafone, VÍS og
Íslenskar getraunir. Eggert Magn-
ússon, formaður KSÍ, segir að
samningurinn brjóti blað í
íslenskri íþróttasögu.
„Þetta er nýtt skref í samning-
um sambanda við fyrirtæki, þá á
ég ekki bara við KSÍ heldur
íþróttahreyfinguna í heild sinni.
Þetta sýnir það fyrst og fremst að
þau fyrirtæki sem hafa verið með
okkur undanfarin ár eru ánægð
með samstarfið líkt og við erum.
Þetta byggist á gagnkvæmum
skilningi,“ sagði Eggert. - hþh
KSÍ gerir nýja samninga:
Alltaf að
hugsa stórt