Fréttablaðið - 28.02.2006, Side 46

Fréttablaðið - 28.02.2006, Side 46
 28. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR34 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Hefur sé› DV í dag? flú FANGARNIR AXEL OG INGÓLFUR Sviku 600 þúsund af ÁTVR úr klefanum á Litla-Hrauni dv 2x10 -lesið 27.2.2006 20:33 Page 1 LÁRÉTT 2 skriða 6 tveir eins 8 forsögn 9 flan 11 fyrir hönd 12 ofan á brauð 14 gorta 16 ætíð 17 undir þaki 18 tunnu 20 grískur bókstafur 21 glufa. LÓÐRÉTT 1 dreifa 3 í röð 4 mikill ávinningur 5 lík 7 fjarskiptatæki 10 sæti 13 síðasti dagur 15 heimsálfa 16 aum 19 tveir eins. LAUSN HRÓSIÐ ...fá hjónin Ragnar Kjartansson og Ásdís Sif Gunnarsdóttir fyrir skemmtileg myndlistarnámskeið fyrir ungt fólk þar sem þau blanda saman tónlist og mynd- list. LÁRÉTT: 2 hrun, 6 tt, 8 spá, 9 ras, 11 pr, 12 álegg, 14 stæra, 16 sí, 17 ris, 18 ámu, 20 pí, 21 rauf. LÓÐRÉTT: 1 strá, 3 rs, 4 uppgrip, 5 nár, 7 talsíma, 10 set, 13 gær, 15 asía, 16 sár, 19 uu. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á síðu 8 1 Barnaverndarstofu. 2 Nýja-Delí. 3 Stjarnan. �������������� ������� ���������� ���� ������������ ���������� ��� � FRÉTTIR AF FÓLKI Kvikmyndahátíðinni Icelandic Film Festival, sem sló öll met á vormánuðunum í fyrra, hefur verið frestað fram á haust. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins þótti forsvarsmönnum hátíðarinnar vera of stutt á milli hátíða en eins og margir muna kom Quentin Tarantino hingað á Októberbíófest á vegum sömu aðila og frumsýndi Hostel við mikinn fögnuð viðstaddra. Vitað er þó að vegna þessa mun hátíðin í haust vera með stærra móti og ætla aðstandendur að tjalda öllu til. Í fyrra mættu þeir Walter Salles og Gael Garcia Bernal til að vera viðstaddir frumsýningu myndarinnar Mótorhjóladagbækur en ráðgert er að fá enn stærri nöfn til landsins og frum- sýna enn stærri myndir. Kvikmynda- áhugamenn landsins geta því byrjað að láta sig hlakka til veislunnar sem framundan er. Landið verður væntanlega sótt af stjörnum og mektar- fólki utan úr heimi eins og vaninn er þó vissulega sýnist sitt hverjum um gæði þessara gesta. Chippendales - dansararnir yrðu vænt- anlega settir undir flokk- inn „vafasamir heiðursgestir“ en samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins munu sjö íturvaxnir dansarar úr þessum heimsfræga strípiflokk ætla að trylla kvenþjóðina á næstunni. Eddie Izzard er einnig væntanlegur aftur en þessi breski grínari er af mörgum talinn einn fyndnasti maður heims. Ef einhver gæti skákað honum væri það Ricky Gervais en nú er róið að því öllum árum að fá hann hingað til lands að skemmta. Þetta væri að sjálfsögðu hvalreki á fjörur grínunnnenda enda Gervais einn eftir- sóttasti gamanleikari heims um þessar mundir en hann er heilinn á bak við þáttaraðirnar The Office og Extras. - fgg Margir eiga sér átrúnaðargoð en aðeins örfáir fá tækifæri til að hitta þau einhvern tímann á lífs- leiðinni. Útvarpsmaðurinn og U2-aðdá- andinn Skúli Örn Sigurðsson er einn af þessum fáu útvöldu því fyrir nokkrum árum hitti hann meðlimi sveitarinnar að loknum eftirminnilegum tónleikum á Wembley fyrir framan áttatíu þúsund manns. Átti hann stutt spjall við söngv- arann Bono, sem hefur alla tíð verið í sérstöku uppáhaldi hjá honum. „Ég er búinn að eiga Bono sem átrúnaðargoð í fleiri, fleiri ár og að sjá hann í fyrsta skipti var eins og að fara í Disneyworld fyrir fimm ára krakka því þetta var þvílík upplifun fyrir mig,“ segir Skúli Örn. „Þetta er eins og ef pabbi hefði séð Lennon eða John Fogerty.“ Skúli segist hafa beðið í þrjá klukkutíma fyrir framan Wembley til að berja goðin sín augum. „Til að sýna hvað maður er klikkaður þá vildi ég fullvissa mig um allar undankomuleiðir. Ég rölti hring- inn í kringum völlinn en það var voðalítið að gerast. Síðan sá ég fjórar til fimm svartar limósínur fyrir utan inngang og það var ein- hver mannskapur að hrúgast þar að. Það gaf vel til kynna að þeir ætluðu að koma þarna út og ég beið þarna áfram með öðru fólki. Síðan skömmu seinna fóru þeir að girða svæðið að með litlum járn- grindverkum og þá birtist Larry Mullen Jr. [trommuleikari U2] og fer að raða þeim sjálfur. Hann var rólegur á því og mjög töff,“ segir Skúli Örn sem notaði tækifærið og fékk eiginhandaráritun hjá kappanum. „Skömmu seinna kemur Paul McGuinness, umboðsmaður U2, sem hefur fylgt þeim frá byrjun og sagði að strákarnir væru inni og væru væntanlegir fljótlega. Síðan kemur The Edge [gítarleik- ari] með kúrekahatt og brosandi út í eitt. Hann gaf hverjum ein- asta manni eiginhandaráritun og síðan var það punkturinn yfir i-ið þegar hann kemur sjálfur, meist- arinn út. Hann tók stökk og „pósur“ og kom fram með miklum töffaraskap. Hann vildi ekki gefa áritanir, heldur vildi frekar ræða við fólkið,“ segir Skúli, sem var þarna orðinn ansi spenntur eins og gefur að skilja. „Hann rölti hringinn og kinkaði til fólksins og spjallaði við það og þá varð ég voða æstur og hrópaði og kallaði til hans. Ég sá að hann gjóaði augunum til mín og síðan rölti hann beint til mín og rétti út höndina og hneigði sig. Ég myndi bregðast öðruvísi við núna en ég vissi ég allt um U2 en datt ekki í hug nein spurning til að spyrja hann. Ég svaraði bara já og nei og sá að hann beið eftir að ég myndi koma með spurningar, en ég var frosinn eins og asni,“ segir Skúli og bætir því við að Bono hafi verið mjög vingjarnlegur. „Hann þakk- aði kærlega fyrir og maður fann að hann bar rosamikla virðingu fyrir aðdáendum sínum.“ Skúli hefur nagað sig mjög í handarbökin fyrir að hafa ekki náð að smella ljósmynd af goðinu. „Ég hafði tekið með mér einnota myndavél fyrir tónleikana og tók þrjátíu myndir, hver annarri lélegri. Svo mætir kallinn og þá var filman í myndavélinni búin. Þetta hefði verið gott kódak móm- ent. Ég sá svo á eftir þeim aka í burtu hver í sinni limmu.“ Skúli ekur um á bíl með núm- eraplötunni Bono, sem hann fékk gefins fyrir þremur árum. Hann segir meira spunnið í þennan smáa en knáa söngvara en flesta aðra kollega hans. „Það sem mér finnst flott við hann er að hann er að styðja rosalega gott málefni. Hann er svolítið framhald af Lennon finnst mér í dag. Ég ber mikla virðingu fyrir svona mönnum.“ freyr@frettabladid.is SKÚLI ÖRN SIGURÐSSON: HITTI ÁTRÚNAÐARGOÐIÐ EFTIR TÓNLEIKA Á WEMBLEY Fraus fyrir framan Bono ALVÖRU AÐDÁANDI Skúli Örn Sigurðsson við Bono-númeraplötuna sem hann fékk að gjöf fyrir nokkrum árum.FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Elva Ósk Ólafsdótt- ir leikkona „Mér fannst þetta ynd- isleg mynd, henni var einstak- lega vel leikstýrt. Gaman að sjá íslenska mynd sem gengur út á tilfinningar og mismunandi viðbrögð fólks við erfiðum aðstæðum. Leikararnir stóðu sig allir voðalega vel.“ Friðrik Erlingsson rithöfundur „Mér fannst hún í stuttu máli sagt stór- kostleg. Þetta er svolítið svona loksins komin íslensk kvikmynd þar sem maður gleymir hvað leikarinn heitir og upplifir karakterinn. Það er það besta sem hægt er að segja um kvikmynd.“ Bryndís Bjarnadóttir mannréttinda- fræðingur Ég var óskaplega ánægð með myndina. Mér fannst hún mannleg, dramatísk og vel leikin. Hinn áreynslulausi leikur kom vel út ásamt flottri myndatöku. Mér fannst allir leikararnir standa sig prýðilega vel.“ Vigdís Gunn- arsdóttir leikkona Ég var mjög hrifin af þessari mynd. Leikstjór- inn vissi alveg hvað hann vildi fá út úr leikurunum. Þetta er mynd sem er ekk- ert að reyna að vera meira en hún er. Ég gleymdi mér alveg í sögunni.“ FJÓRIR SPURÐIR KVIKMYNDIN BLÓÐBÖND VAR FRUMSÝND Á FÖSTUDAGSKVÖLD Hvernig fannst þér myndin? Þráinn Bertelsson sló í gegn með minningabók sinni Einhvers konar ég árið 2003 og er nú byrjaður á framhaldi hennar sem gengur undir nafninu Ýmiss konar ég. Það er óhætt að segja að hann sitji sveittur við skriftir um þessar mundir þar sem hann var áður byrjaður á sakamálasögu með vinnuheitinu Engill dauðans. Þetta þýðir þó ekki að aðdáend- ur Þráins fái tvöfaldan skammt af honum í næsta bókaflóði. „Ég er nú ekki nógu afkastamikill til til þess að geta gefið út tvær bækur samtímis, enda væri engin glóra í því,“ segir Þráinn. „Sú bók sem ég klára fyrst kemur út á undan. Það er svo óspennandi starf að sitja á óæðri endanum og þreifa á lykla- borði alla daga þannig að þetta kapphlaup hleypir smá spennu í líf mitt.“ Þráinn segir Einhvers konar ég standa nær skáldsögu en ævisögu þó að hún fjalli um raunverulega atburði. „Ég sé þetta fyrir mér í þremur bókum sem er það sem bókmenntafræðingar kalla tríló- gíu, eða þríleik, og er rosalega fínt.“ Þráin gerir ráð fyrir að verkið í heild sinni muni spanna eina mannsævi þar sem hann leggur lífshlaup sitt til grundvallar. „Fyrsta bindi lýkur þegar eitt stykki fullorðinn karlmapur, 20 ára að aldri, gengur út af færi- bandinu til móts við lífið. Næsta bók fjallar þá vonandi um næstu 40 ár, sem er það sem við köllum normal starfsævi þar sem þessi tiltekni karlmaður leitar að til- gangi og glímir við spurninguna um hver sendi hann hingað og til hvers.“ - þþ Kapphlaup við Engil dauðans ÞRÁINN BERTELSSON „Einhvers konar ég fer í það að lýsa því hvernig eitt stykki manneskja verður til á ákveðnum stað á plánetunni, á ákveðnum tíma og rúmi,“ segir Þráinn sem vinnur að framhaldi þess- arar vinsælu bókar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.