Fréttablaðið - 28.03.2006, Page 19
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR FERMING TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
LÝÐHEILSUSTÖÐ OG MANN-
ELDISRÁÐ HAFA BIRT NÝJA
RÁÐLAGÐA DAGSKAMMTA
HINNA ÝMSU NÆRINGAREFNA.
Hinir nýju dagskammtar (RDS
2005) koma í stað RDS frá
árinu 1996. RDS-gildin eru
endurskoðuð reglulega með
hliðsjón af nýrri þekkingu í
næringarfræði og byggir hið
nýja RDS-gildi í stórum drátt-
um á norrænum næringarráð-
leggingum sem unnar voru af
vinnuhópi á vegum norrænu
ráðherranefndarinnar og gefn-
ar voru út á árinu 2005.
Ekki hafa verið gerðar miklar
breytingar á ráðleggingunum
en þó ber að nefna að RDS af
A-vítamíni hefur verið lækk-
aður lítillega fyrir konur og af
kalki fyrir börn. Dagskammt-
ur af D-vítamíni og C-vítam-
íni fyrir fullorðna hefur verið
hækkaður og af fólati fyrir
konur á barneignaaldri, barns-
hafandi konur og konur með
barn á brjósti. Þá er þetta í
fyrsta sinn sem birtar eru ráð-
leggingar um koparneyslu.
Frekari upplýsingar eru á vef
lýðheilsustöðvar www.lyd-
heilsustod.is
Ráðlagðir dagskammtar
Ráðlagður dagskammtur fyrir konur
af A-vítamíni hefur verið lækkaður
lítillega.
Jóhannes Haukur Jóhannesson, leikari,
hefur lést umtalsvert síðustu vikurnar.
Hann segist ekki hafa sérstaklega
gaman af líkamsræktinni en að honum
líði samt alltaf vel eftir hana.
Ástæðan fyrir þessu heilsuátaki Jóhannesar
er sú að hann er nú að leika í uppfærslu Leik-
félags Akureyrar á Litlu hryllingsbúðinni þar
sem hann leikur átta ólík hlutverk, þar á
meðal konu. ,,Þess vegna vildum við leikstjór-
inn gefa líkama mínum hlutlausara útlit, losna
við bumbuna og svona. Ég fékk þess vegna
meðleikara minn, hann Benna, með mér í
þetta verkefni. Hann er í raun einkaþjálfar-
inn minn,“ útskýrir Jóhannes galvaskur.
Að sögn Jóhannesar hefur heilsuátakið
aðallega falist í brennslu og smá lyftingum.
Þeir félagarnir hafa mætt fjórum til fimm
sinnum í viku en annars segir Jóhannes að
matarræðið skipti mestu máli. Hefur
Jóhannes reynt að sleppa öllu skyndibita-
fæði og gosi, þó honum finnist sú fórn nokk-
uð erfið. ,,Mér fannst ekkert mál að sleppa
namminu en mann langar svo oft í pylsu,
hamborgara eða pitsu. Mér finnst erfiðast
að þurfa sleppa því öllu,“ segir Jóhannes en
bætir þó við að hann hafi nokkrum sinnum
stolist til þess að fá sér skyndibita. ,,Ég
gefst samt ekki upp þó að ég stelist.“
Í sjálfri líkamsræktinni segir Jóhannes
að honum finnist skemmtilegast á þrekhjól-
inu. Hann vill þó frekar segja að þrekhjólið
sé minnst leiðinlegt frekar en skemmtileg-
ast. ,,Ég lít ekki á þetta sem skemmtun, mér
finnst þetta ekkert gaman. Líkamsræktin er
samt allt í lagi um leið og hún kemst upp í
vana.“ Jóhannes forðast hins vegar eitt
ákveðið tæki eins og heitan eldinn. ,,Ég vil
helst ekki fara í róðrarvélina. Ég var einu
sinni hjá einkaþjálfara sem notaði róðrar-
vélina sem refsingu ef ég mætti of seint
þannig að ég hef vondar tilfinningar
gangvart því tæki.“
Á þeim tíu vikum sem átakið hefur staðið
yfir hefur Jóhannes misst heil tíu kíló og
stefnir ótrauður áfram. ,,Ég hef hugsað mér
að ná 15-20 kílóum í heildina. Þá er þetta
orðið nokkuð gott. Þó að þetta sé misleiðin-
legt þá líður manni samt svo vel eftir þetta,“
segir Jóhannes að lokum og er greinilega
sáttur með sjálfan sig og árangurinn enda
ekki furða. steinthor@frettabladid.is
Erfiðast að sleppa
skyndibitanum
Jóhannes Haukur hefur verið að létta sig undanfarnar vikur svo að hann geti meðal annars brugðið sér í hlutverk konu. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
GÓÐAN DAG
Í dag er þriðjudagurinn
28. mars, 87. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 7.00 13.33 20.07
Akureyri 6.43 13.17 19.54
NÝIR GAMLIR
KJÓLAR
Fermingarstelpur leita
til fortíðar við val á
fermingarfötum
FERMING 2
Málstofa lyfjafræðideildar við
Háskóla Íslands um lyfjafræði-
lega umsjá í apótekum fer fram
í dag. Málstofunni er stjórnað
af Aðalheiði Pálmadóttur og fer
hún fram í Haga á Hofsvallagötu
53.
Fermingargjafabréf er nýr
valkostur hjá Iceland
Express. Boðið
er upp á
gjafabréf
í öll flug
flugfé-
lagsins
frá upp-
hæð tvö
þúsund
og upp
úr. Gjafa-
bréfin gilda í
tvö ár.
Nýtt frétta-
blað ISF,
Icland Spa and fitness, kom út
fyrir stuttu. Í blaðinu er meðal
annars viðtal við Unni Birnu,
kynning á nýjum námskeiðum,
ný tilboð og margt fleira.
Ný göngudeild og dagdeild fyrir
átröskunarsjúklinga hefur verið
opnuð í tengslum við ferli- og
bráðamóttöku geðsviðs LSH við
Hringbraut. Göngudeildin hóf
starfsemi 1. febrúar 2006 en
dagdeildin fimmtudaginn 23.
mars 2006.
ALLT HITT
[FERMINGAR OG HEILSA]
HJÓLAÐ MEÐ
BÖRNIN
Mikilvægt er að gæta fyllsta
öryggis þegar hjólað er með
börn
HEILSA 4