Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.04.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 07.04.2006, Qupperneq 4
4 7. apríl 2006 FÖSTUDAGUR FORVARNIR Íslensku forvarnar- verðlaunin verða veitt í fyrsta sinn í maí næstkomandi. Verðlaunin eru samstarfsverk- efni Landspítala, Lýðheilsustöðv- ar, Landsbjargar og Sjóvár, sem er bakhjarl verkefnisins. Veittar verða viðurkenningar í þremur flokkum. Í fyrsta lagi fyrirtæki, í öðru lagi einstaklingi og í þriðja lagi félagasamtökum eða stofnun. Einn af þeim þremur sem hljóta viðurkenningu fær síðan Íslensku forvarnarverð- launin. Hægt er að senda inn tilnefn- ingar á heimasíðu Sjóvár, www. sjova.is, fram til 1. maí. - sdg Íslensku forvarnarverðlaunin: Verðlaunað fyrir forvarnir FUGLAFLENSA Allir alifuglar á land- inu eiga að vera komnir undir þak eftir tæpa viku, samkvæmt ákvörðun landbúnaðaryfirvalda í gær. Þá var ákveðið að áhættustig II vegna fuglaflensu tæki gildi 12. apríl, að sögn Halldórs Runólfs- sonar, yfirdýralæknis Landbúnað- arstofnunar. Ástæða þessa er staðfesting á því að dauður svanur sem fannst í Skotlandi væri með fuglaflensu- veiruna H5N1, sem getur dregið menn til dauða. Staðfesting barst hingað til lands í gær bæði frá yfirdýralækni í Bretlandi og Evr- ópusambandinu, að sögn Hall- dórs. „Við vorum búin á undanförn- um mánuðum að setja þau tilmæli fram í ræðu og riti að menn yrðu búnir undir svona fyrirskipun, þannig að það á ekki að koma mönnum á óvart,“ segir yfirdýra- læknir. „Þetta verður nú auglýst þannig að mönnum sé ljóst hvað er á ferðinni.“ Hann segir erfitt að meta hvort fuglaflensan sé á leiðinni hingað til lands á næstunni. „Við vorum búin að segja að um leið og hún greindist á Bretlands- eyjum væri mikil hætta á að hún gæti borist hingað,“ segir yfir- dýralæknir. Í auglýsingunni sem Landbún- aðarstofnun sendi frá sér í gær segir meðal annars að finnist tveir eða fleiri dauðir fuglar á sama stað skuli tilkynna um það án tafar til Landbúnaðarstofnunar, eða héraðsdýralæknis, sem taki ákvörðun um aðgerðir. Verði eigandi eða umráðamað- ur alifugla ekki við tilmælum Landbúnaðarstofnunar um aðgerðir samkvæmt auglýsingu þessari geti landbúnaðarráðherra, með vísan til 21. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, fyrirskipað bótalausa förgun eða eyðingu fuglanna að fengnum tillögum Landbúnaðarstofnunar. Brot gegn auglýsingunni varði sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Með mál vegna brota sé farið að hætti opinberra mála. Landbúnaðarstofnun hefur eftirlit með framkvæmd þessara reglna og getur veitt undanþágur frá þeim við sérstakar aðstæður, að því tilskildu að smitvarnir séu nægilega tryggðar með öðrum hætti að mati stofnunarinnar. jss@frettabladid.is HALLDÓR RUNÓLFSSON Yfirdýralæknir segir menn eiga að vera búna undir áhættustig II. Alifuglar í hús innan viku Áhættustig II vegna fuglaflensu tók gildi hér á landi í gær, eftir að opinber staðfesting hafði borist á því að dauður svanur sem fannst í Skotlandi hefði verið sýktur af fuglaflensuveirunni H5N1. Allir alifuglar eiga að vera komnir undir þak eftir viku, ella liggja þung viðurlög við, sem varða sektum eða fangelsi. © GRAPHIC NEWS EDS -- DATA CORRECT AS AT APRIL 6, 2006 CurrentAffairs Science MED,OVR :Medical BIRD FLU: Spread of H5N1 in Europe Duncan Mil, Phil Bainbridge, Jordi Bou, Mario Lendvai, Mike Tyler, Julie Mullins (research) GRAPHIC NEWS Adobe Illustrator version 8.01 2 columns by 112mm deep 6/4/2006 WHO, wire agencies 19370 CATEGORY: IPTC CODE: SUBJECT: ARTISTS: ORIGIN: TYPE: SIZE: DATE: SOURCES: GRAPHIC #: STANDARD MEASURES (SAU) Picas 12p5 25p7 38p9 52p 65p1 78.p3 millimetres 52.3 107.7 163.2 219.0 274.4 329.7 © Copyright 2006 Graphic News. Reprint by permission only. The credit “GRAPHIC NEWS” must appear with all uses of this graphic image. 8 Ely Place, London EC1N 6RY, United Kingdom. Tel: +44 (0)20 7404 4270. Fax: +44 (0)20 7404 4290 Width 1 col 2 col 3 col 4 col 5 col 6 col Fuglaflensa breiðist út um Evrópu Mynd: AP H ei m ild ir: W H O , f ré tt as to fu r H5N1 staðfest: Útbreiðsla H5N1: í villtum fuglum árið 2005 jan-feb 2006 mars-apr 2006 í hænsnum í mönnum Staðsetning smits Rúmenía Ítalía Frakkland Austurríki Georgía Úkraína Rússland Tyrkland 12 manns smitaðir 4 látnir Þýskaland Tékkland Búlgaría Ungverjaland Slóvakía GrikklandSerbíaAlbaníaKróatíaSviss BosníaSlóvenía Danmörk Pólland Svíþjóð Bret- land Áhættustig II ● Mikil hætta á að fuglaflensa berist til landsins. ● Fuglaflensa (H5N1) greinist á Bretlandseyjum eða í öðrum nágrannaríkjum. ● Fuglaflensa greinist í villtum fuglum hér á landi. Viðbrögð Til að forða því að smit berist inn á alifuglabú er meðal annars lagt til að: ● Hýsa alla alifugla. ● Tryggja að fuglar sleppi ekki út úr húsum. ● Tryggja að ekkert í umhverfi alifuglabúa laði að villta fugla. ● Setja hatta á allar loftræstitúður. ● Setja fuglanet fyrir allar loftræsti- túður, op og glugga. ● Öllum óviðkomandi verði bannaður aðgangur. ● Aðeins einn inngangur með fordyri verði í hverju eldishúsi. ● Hlífðarföt verði notuð fyrir nauðsynlega gesti. ● Þvottur og sótthreinsun handa verði í fordyri. ● Sótthreinsimottur eða –bakkar verði við inngang í fordyri. ● Rjúfa smitleiðir á milli dýrategunda. ● Tryggja góðar meindýravarnir. ● Tryggja góðar smitvarnir við vatnsból. ● Almennum hreinlætisreglum verði framfylgt. Smit berst fyrst og fremst inn á búið með fugladriti. Staðfest hefur verið að svanur sem fannst dauður í Skotlandi hafi verið smitaður af fuglaflensuveirunni H5N1, skæða afbrigðinu sem stund- um hefur valdið smiti í mönnum. Svanurinn fannst dauður á mið- vikudaginn í höfninni í Cellardyke, bæ á austurströnd Skotlands. Bresk stjórnvöld hafa í kjölfarið lagt bann við því á 2.500 ferkílómetra svæði að bændur hafi hænsnfugla sína utandyra. Einnig er gengið í gildi bann við flutningi á hænsnfuglum. Skosk og bresk stjórnvöld vinna nú að því að meta hvort fleiri fuglar hafi smitast, en ekki þykir þörf á að láta fyrrgreint bann ná til alls lands- ins. Tveir dauðir svanir fundust einn- ig í borginni Glasgow og er verið að kanna hvort þeir hafi smitast af veir- unni H5N1. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigð- isstofnuninni hafa nú samtals 192 menn smitast af þessu skæða afbrigði veirunnar og af þeim hafa 109 manns látist, en það er meira en helmingur hinna smituðu. Nánast allir þeir menn sem hafa smitast af veirunni hafa umgengist hænsnfugla mikið. - gb Útbreiðsla fuglaflensu: Staðfest smit í Skotlandi VIÐ HÖFNINA Í CELLERDYKE Hér fannst dauður svanur á miðvikudaginn, sem nú hefur verið staðfest að hafi borið með sér veiruna H5N1. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MANNDRÁP Phu Tién Nguyen var í gær dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir manndráp. Phu réðst á annan mann í íbúð í Kópavogi í október árið 2004 og stakk hann margsinnis, með þeim afleiðingum að maðurinn lést af völdum innvortis blæðinga skömmu síðar. Phu var einnig gert að greiða eiginkonu mannsins sem lést tíu milljónir króna í bætur. Phu var einnig ákærður fyrir stinga mann í lærið, sem reyndi að koma í veg fyrir að honum tækist að stinga manninn sem lést. Í yfirheyrslum hjá lögreglu játaði Phu að hafa stungið mann- inn sem særðist í lærið en bar því við að maðurinn sem lést hefði ráðist á hann í kjölfar deilna um hvort árásarmaðurinn hefði verið ávarpaður rétt að víetnömskum sið. Fjöldi fólks var í húsinu þegar maðurinn lést og gat lögregla fengið glögga mynd af því sem gerðist með hjálp vitna. Í dómsorði Hæstaréttar kemur fram að frásögn Phu þyki afar ótrúleg. Dómurinn taldi ekki að neinar refsilækkunarástæður væru fyrir hendi og því fékk hann hæstu mögulegu refsingu sem hægt er að fá fyrir manndráp hér á landi. - mh Phu Tién Nguyen dæmdur í Hæstarétti fyrir manndráp: Dæmdur til hámarksrefsingar PHU VIÐ HÉRAÐSDÓM Phu sagði manninn sem hann varð að bana hafa ráðist á sig eftir minniháttar deilur. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Bandaríkjadalur 72,76 73,1 Sterlingspund 127,89 128,51 Evra 89,56 90,06 Dönsk króna 12 12,07 Norsk króna 11,349 11,415 Sænsk króna 9,6 9,656 Japanskt jen 0,6193 0,6229 SDR 105,61 106,23 GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 6.4.2006 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA Gengisvísitala krónunnar 124,546
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.