Fréttablaðið - 07.04.2006, Page 8
7. apríl 2006 FÖSTUDAGUR8
Ed
da
R
ós
fió
r›
ur
La
rs
Horfur í íslenskum efnahagsmálum
Hádegisver›arfundur mi›vikudaginn 12. apríl nk.
Grand Hótel - Gullteigi frá kl: 12.00-14.00
Fundurinn fer fram á ensku.
FUNDARSTJÓRI
Halla Tómasdóttir,
Framkvæmdastjóri Vi›skiptará›s Íslands
F R U M M Æ L E N D U R :
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
0
8
6
1
Lars Christensen,
Senior analyst Den Danske bank
fiór›ur Fri›jónsson
Forstjóri Kauphallarinnar
Edda Rós Karlsdóttir
Forstö›uma›ur greiningardeildar
Landsbanka Íslands
Til vi›bótar fyrirlesurum ver›a á pallbor›i:
Carsten Valgreen,
Chief Economist, Danske Bank group
Arnór Sighvatsson,
A›alhagfræ›ingur Se›labanka Íslands
Tryggvi fiór Herbertsson,
Prófessor og forstö›uma›ur
Hagfræ›istofnunar Háskóla Íslands
Samkvæmt n‡legri sk‡rslu Den Danske bank eru horfurnar vægast sagt
ekki bjartar og gefa ekki tilefni til mikillar bjarts‡ni um íslensk efnahags-
mál. Hinsvegar eru ekki allir á eitt sáttir me› ni›urstö›ur og úrvinnslu
sk‡rslunnar. Hver er sta›an og hverjar eru horfurnar?
H
al
la
Skrá›u flig strax - takmarka› sætaframbo› !
Vinsamlega skrái› flátttöku á vef FVH, www.fvh.is e›a í síma 551 1317.
Ver› kr. 3.000 fyrir félagsmenn FVH og 4.800 fyrir a›ra.
Pallbor› a› erindum loknum
Reikna má me› líflegum umræ›um
Höfundar sk‡rslunnar „Iceland: Geysir Crisis“
frá greiningardeild Den Danske bank taka flátt á fundinum.
HEILBRIGÐISMÁL Nærri ellefu þús-
und einstaklingar greiddu saman-
lagt 255 milljónir króna í tekjuskatt
og útsvar af styrkjum úr sjúkra- og
styrktarsjóðum stéttarfélagnna
árið 2004.
Þetta kom fram í svari Árna
Mathiesen fjármálaráðherra við
fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur,
Samfylkingunni, á Alþingi. Tilefni
fyrirspurnarinnar má rekja til bar-
áttu Árna Heimis Jónssonar
menntaskólakennara. Hann glímir
við krabbamein og hafa sjúkra-
styrkir frá stéttarfélagi hans verið
skattlagðir. Hann ritaði meðal ann-
ars þingmönnum bréf um málið á
dögunum og benti á að kostnaður úr
eigin vasa vegna læknisþjónustu og
rannsóknar væri um tíu þúsund
krónur á mánuði.
Fram kom í svari fjármálaráð-
herra að samanlagt námu styrkir
úr sjúkra- og styrktarsjóðum alls
843 milljónum króna árið
2004; þar af voru 722 millj-
ónir skattlagðar. Að jafn-
aði nam framlag um 79
þúsund krónum á hvern
styrkþega.
Þingmenn sem til máls
tóku töldu skattlagninguna
óréttláta og skoruðu á fjár-
málaráðherra að afnema
skattlagningu styrkjanna
með lögum svo fljótt sem
auðið yrði. „Skattlagningin er sið-
leysi,“ sagði Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, Samfylkingunni.
Guðjón A. Kristjánsson, Frjálslynda
flokknum, sagði að styrkurinn væri
ætlaður til að bæta upp tekjutap og
ætti að vera skattfrjáls.
Ögmundur Jónasson, Vinstri
grænum, sagði fráleitt að skatt-
leggja styrkina og sagði það ósk
verkalýðshreyfingarinnar allrar að
skattlagningin yrði afnumin. Hann
upplýsti að sem formaður
BSRB hefði hann óskað
eftir fundi með fjármála-
ráðherra um málið.
Jóhanna Sigurðardóttir
taldi vafasamt af stjórn-
völdum að hafa tekið upp
staðgreiðslu skatta af
styrkjunum svo sem gert
var árið 2004. Hún spurði
hvort fjármálaráðherra
hygðist beita sér fyrir
afnámi skattsins.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra vísaði til nefndar sem hefði
það verkefni að endurskoða skatta-
reglur. Reglan væri að hafa undan-
þágur sem fæstar en það hlyti að
koma til skoðunar hjá nefndinni
hvort gera ætti breytingar á skatta-
legri meðferð styrkjanna. Árni
væntir þess að nefndin skili niður-
stöðum sínum í haust.
johannh@frettabladid.is
Þriðjungur sjúkra-
styrkja fer í skattinn
Nefnd sem endurskoðar skattareglur athugar hvort afnema beri skattlagningu
styrkja úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga. Þingmenn segja 255 milljóna
króna skattlagningu styrkjanna siðlausa og krefjast þess að hún verði afnumin.
ALÞINGI Af nærri 850 milljóna króna
sjúkrastyrkjum frá stéttarfélögunum fóru 255
milljónir króna í skatt og útsvar árið 2004.
Skattlagningin verður tekin til athugunar.
ÁRNI MATHIESEN
VERSLUN Smáratorg, eigandi Gler-
ártorgs á Akureyri, hefur gengið
frá kaupum á öllum gömlu verk-
smiðjuhúsunum vestan verslunar-
miðstöðvarinnar og húsnæði Hölds
sunnan Glerártorgs. Agnes Geirs-
dóttir, framkvæmdastjóri Smára-
torgs, segir að í byrjun næsta árs
verði húsin rifin og Glerártorg
stækkað um tæplega helming.
Stefnt er á að framkvæmdum ljúki
í október 2007. Ekki liggur fyrir
hvaða nýjar verslanir verða á Gler-
ártorgi en Agnes segir marga um
hituna; bæði heimamenn og versl-
anir utan Eyjafjarðar. - kk
Verslunarmiðstöðin Glerártorg á Akureyri:
Stækkun fram undan
GLERÁRTORG Að stækkun lokinni verður Glerártorg um tuttugu þúsund fermetrar. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
LÖGGÆSLUMÁL Viðræðuhópur um
löggæslumálefni í Reykjavík hefur
skilað skýrslu og meðal tillagna er
að efla miðborgargæslu um helgar,
samstarf um úrræði gegn nei-
kvæðri hópamyndun unglinga og
aðgerðir til að auka og efla öryggi í
hverfum borgarinnar.
Viðræðuhópurinn var stofnaður
í ágúst árið 2003 að frumkvæði
Björns Bjarnasonar dóms- og
kirkjumálaráðherra og hefur
hópurinn rætt leiðir til að styrkja
og efla samvinnu um öryggis- og
löggæslumál í borginni.
Í skýrslunni er meðal annars
lagt til að hverfalöggæsla verði
þróuð áfram í hverfum borgar-
innar í nánum tengslum við þjón-
ustumiðstöðvar hverfanna og að
samvinna lögreglu og borgaryfir-
valda verði aukin, til dæmis með
óeinkennisklæddu eftirliti lög-
reglu í samvinnu við starfsmenn
borgarinnar. Einnig er lagt til að
unnið verði að skipulagningu
nágrannavörslu í náinni samvinnu
við borgaryfirvöld og viðeigandi
hverfisfélög og stutt verði við þá
tilraun sem hafin er um nágranna-
vörslu þar sem staðið er að nám-
skeiðum í hverju þjónustuhverfi
borgarinnar. Þá er lagt til að lög-
regla verði sýnilegri með aukinni
viðveru hennar í hverfum borgar-
innar. - sdg
Tillögur um úrbætur í löggæslu í Reykjavík:
Öryggi í hverfum verði eflt
LÖGREGLUBÍLL Í REYKJAVÍK Meðal tillagna
er að komið verði á formlegu samstarfi
milli lögreglu og þjónustumiðstöðva í
hverfum borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.