Mánudagsblaðið - 22.03.1965, Page 6
i
ÚR EINU
í ANNAÐ
Sjónvarpssérnám B. G. — Beðið eítir Múlabræðr-
um — Götur og gler — Hjalað um embætti —
Politímál — Vegir og ofaníburður —
Margir brostu að því í Tímanum um s.l. helgi, þegar
skýrt var frá boðsför þiggja manna til Englands en
þeir voru Asgeir Pétursson, Einar Ágústsson og Bene-
dikt Göndal. Um Ásgeir og Einar var ekkert að segja,
en þegar skýrt var frá, að Benedikt óskaði eindregið eftir
að skoða sjónvarpsstöðvar þar, þá minntust margir þess
með brosi, að álíka og þessi voru kynni núverandi út-
varpsstjóra af útvarpsstarfsemi þegar hann sigldi til að
fullkomna sig til að taka við útvapinu. Það er engin
furða þótt allt þetta gangi svo á afturlöppunum.
Jæja, þrátt fyrir lélegt leikár Þjóðleikhússins á þessu
leikári (sjá leikgagnrýni), segja margir að „kassastykk-
ið“ sé væntanlegt. „Járnhausinn“ þeirra bræðra Jóns
Múla og Jónasar Árnasona, ku vera hreint afbragðsverk,
fullt af beztu bröndurum og hrífandi söngvum, en söngva
smiðurinn Jón Múli, nýtur mikilla vinsælda fyrir mörg
mjög góð sönglög. Það verður gaman að sjá þetta nýja
verk, og vonandi flýtir Þjóðleikhúsið uppfærzlu þess, en
þó ekki — fyrir alla lifandi muni — á kostnað æfinga.
Sjónvarpið
Sunnudagur
1200 Chapel of the Air
1230 Star and the Story
1300 This Is the Life
1330 Pro Bowlers Tour
1500 The Christophers
1515 Sacred Heart
1530 Wonderful World of Golf
1630 Armer Forces Mil. Report
1700 The Big Picture
1730 Sky King
1800 Disney Presents
1900 AFRTS News
1915 Social Security in Action
1930 Bonanza
2030 Sunday Special
2130 The Ed Sullivan Show
2230 Grindl
2300 AFRTS Final Edition News
2315 Northem Lights Playhouse
„Stolen Face“
Mánudagur t
1630 Men of Annapolis
1700 Password
1730 Mayor of the Town
1800 Tac Library
1830 Shotgun SÍade
1900 AFRTS News
1915 Sports Round-up
1930 Lucky Lager Sports
2000 Death Valley Days
2030 The Bell Telephone Hour
2130 Dick Powell Theater
2230 Bold Venture
2300 AFRTS Finai Edition News
2315 The Tonight Show
Um þessar mundir og í öllum þessum árekstrum er
illt að eiga bíl í Reykjavík. Allar götur ataðar glerbrot-
um úr bílum eða öðrum farartækjum sem lent hafa í
óhappi, - en gleymst að hreinsa brotamslið á eftir. Það
ætti að vera skylda lögregluþjóna að hreinsa burtu
eftir bilana a. m. k. sópa brotunum til hliðar út í renn-
una, en ekki skilja svona við árekstrarstað. Gler þessi
eru orðin mörgum dekkjunum dýr.
Enn er hjalað um ný embætti, nýja menn o. s. frv.
Nú er það Guðmundur I., sem á að fara til London en
sendiherrann þar Hendrik Sv. Björnsson til Washington.
Utanríkisráðherrar em nefndir margir, helzt þó Benedikt
Gröndal til að orna sér áður en hann verður sjónvarps-
stjóri. Sannleikurinn er sá, að þessi hráskinnaleikur með
embættin er hreinn viðbjóður.
i nu’T^ij.uztr.
Nú hafa lögregluþjónar afþakkað það að Erlingur
Pálsson sé þeirra leiðtogi lengur. Erlingur hefur um ára-
bil verið forustumaður þeira, en nú ér nýr, ungur mað-
ur og duglegur, sérlega í byggingarmálum lögreglunnar
komið í sess sundkappans. Lögreglan hefur nú skánað
mikið hvað eftirlit snertir en ennþá er ekki nema hálf-
unninn björninn.
Er það vegamálastjóri sem leyfir ofaníburð þann, sem
nú er á veginum upp í Mosfellssveit, skömmu eftir að
komið er að Lágafelli? Ef svo er þá ætti hann að vera
ábyrgur fyrir því stórhættulega grjótflugi, sem þama
hefur skapast. Ofaníburðurinn er smámöl með miðlungs-
stómm hnullungum, sem skjótast undan hjólunum eins
og byssukúlur og geta orðið stórhættulegir auk skemmda,
sem þeir valda á bifreiðum. Eitt gamalmenni var með
hrífuna að raka veginn s.l. miðvikudag, en umferðin rauk
framhjá og jós grjótinu. Þetta er víst það nýjasta, sem
vegaverkfræðingarnir okkar hafa lært — en það gekk
úr gildi með hestvögnunum.
Vméamál iðnaðarins
Framhald af 3. síðu.
breyta ýmsum lögum til þess
að þetta verði framkvæman-
legt. Þegar núverandi stjórn
tók við völdum gaf hún vilyrði
á forréttindi aðeins sömu fyrir-
greiðslu og hinir aðal-atvinnu-
vegirnir hafa þegar fengið. Tal-
ið er að fleiri hafi framfæri af
iðnaðinum en nokkrum öðrum
Þriðjudagnr
1630 Tuesday Matinee:
„Maryland"
1800 Silver Wings
1830 Glynis
1900 AFRTS News
1915 The Telenews Weekly
1930 The Andy Griffith Show
2000 My Favorite Martian
2030 The Entertainers
2130 Combat
2230 Dupont Cavalcade (Drama)
23nn AFRTS Final EditionNews
2315 Lawrence Welk
Miðvikudagur
1630 Town Hall Party
1730 My Three Sons
1800 Meaning of Commtmism
1830 Shindig *• cttt r~> #■ • r>nev M
1900 AFRTS NewS
1915 Encyclopedia Britannica
1930 The Dick Van Dyke Show
2000 Hollywood Palace
2100 I Led Three Lives
130 The Untouchables
2230 Markham
23no AFRTt- EditionNews
2315 Tonight Show
Fimmtudagur
1630 Bob Cummings Show
1700 School Story
1730 I‘ve Got a Secret
1800 True Adventure
1830 Ripcord
1900 AFRTS News
1915 The Telenews Weekly
mao The Dannv Kaye Show
2030 The Defenders
2130 The Jimmy Dean Show
2230 The Third Man
ARRTS Final EditionN-^s
2315 Lawrence Welk
Föstudagur
1630 Tilkynnt síðar
1730 Science in Acion
1800 TosTell the Truth
1830 Sea Hunt
moo AFRTS News
1915 Encyelopedia Britannica
1930 Harrigan and Son
2000 The Sid Caesar Show
2030 The Jack Paar Show
2130 Rawhide
2230 Heart of the City
2300 AFT S Final Edition News
2315 K' -■•h— n T.ights Playhouse
„Maryland“
Laugardagur
að þetta mál yrði rannsakað
og undirbúið og fól Seðlabank-
anum þá framkvæmd. Síðan hef-
ur ekkert heyrzt um málið enda
hafa yfirvöld banka og fjár-
mála af augljósum ástæðum
engan áhuga á málinu og vilja
það feigt.
Stjórnarvöldin geta ekki
lengur gengið framhjá vanda-
málum iðnaðarins. Þeir verða
að taka þessi mál föstum tök-
um ef að ekki á að komast í
óefni. Iðnaðurinn fer ekki fram
atvinnuvegi hér í Reykjavík.
Iðnaðurinn nýtir auk þess þann
mannafla sem annars mundi
ekki vera nýttur þ.e.s. gamalt
fólk og öryrkja.
Það er ekki nokkur vafi á
því, að ef að búið er betur að
iðnaðinum en gert hefur verið
undanfarið og ef að iðnaður-
inn hefur aðgang að hagstæð-
um rekstrarlánum þá þurfum
við ekki að óttast framtíð þessa
atvinnuvegar.
‘ðnrekandi.
1000 Children’s Comer
1200 Roy Rogers
1930 Mv Little Margie
1300 Country America
1400 Ford Star Anthology
1430 Saturday Sports Time
17nn Purront ents
1730 G. E. College Bowl
1800 A’-ne’-ican Bandst.
1855 Chaplain’s Comer
’9nn AFRTS News
1915 Encyclopedia Britanni"-
1930 Perry Mason
2030 Desilu Playhouse
2130 Gunsmoke
2230 King of Diamonds
2300 AFRTS Final Edition N ew.
„Breakout*4
Blaé Jynr all&
Mánudagur 22. marz 1965
Fáránlegt ,siðferðisfrumvarp'
Er það satt, að KEÁ sé komið
í stórvandræði í málaferlum
við Bjöm á Löngumýri?
Hr. ritstjóri.
Þessi saga er sögð um skatta
lögreglu:
Skattalögreglumaður kemur
og athugar bókhald hjá fyrir-
tæki hér í bæ. Hann finnur ekk
ert athugavert annað en, að
það er enginn hreingerningar-
kostnaður færður til gjalda, og
hann spyr hverju það sæti.
Eigandinn gefur þá skýringu,
að nokkrar stúlkur, sem vinni
hjá fyrirtækinu skiptist á um
að halda hreinu, og að það sé
innifalið í þeirra kaupi.
Þessari skýringu er tekið
með efasemd en sennilegri.
Næsta dag, þegar forstjórinn
var ekki við, birtist lögreglu-
maður og gefur sig á tal við
eina af stúlkumun, sem vinna
við fyrirtækið, og spyr, hvað
hún heiti konan, sem gerir
hreint í fyrirtækinu. Hann fékk
um hæl þau sömu svör, sem
hann hafði fengið daginn áður
hjá eigandanum.
E.t.v. er þessi saga ekki sönn,
en ef sönn væri, þá minnir hún
á Gestapoaðferðir og allavega
þurfa þeir menn, sem veljast
•til þessara starfa, að vera öðr-
um kostum og dómgreind búnir
en þessi skattarannsóknarmað-
ur. Járnhaus.
ratmsærri en það, að þeir taki
svona frumbýlingslega á þess-
um málutn.
Frumvarpið í þingi nefnir 3
aðila, sem bezt er að varast
varðandi það, að leiða börn og
unglinga inan 18 ára á siðferð-
islega glapstigu. Þessir þrír
hættulegu flokkar eru foreldr-
ar, forráðamenn og starfsmenn
barnaheimila, kennarar sérlega
nefndir, en til vara er „og aðr-
ir“ tekið fram.
EINS OG I
EINRÆÐISLÖNDUM
Maður hefði nú aldrei þorað
að sverja fyrir það, að siðferð-
iskenndin væri nú svona voða-
lega rík hjá þinginu okkar, svo
ekki sé talað um postulana í
ríkisstjórninni. Það er því næsta
nýlunda þegar í lög er leitt að
unglingar skuli njósna um at-
ferli hvers annars og „report-
era“ til yfirvaldanna. Þetta
þykir nú ekki góð latina nema
í einræðislöndunum þar seln
börnin voru hvött til að njósna
um stjórnmálaskoðanir foreldra
sinna og kynna lögreglunni þau
samtöl sem heyrðust á heimil-
unum varðandi stjórnarvöldin.
Þessi aðferð stjórnarliðsins nú,
er í eðli sínu ekki ólik hinni
fyrri, og yfirvöldunum og þingi
til verðugs sóma.
VELFEKÐARVITLEYSAN
ÓBEIN ORSÖK
Þingið gæti nú gert eitthvað
gagnlegra en vera að brjóta
heilann um leiðir og möguleika
WVAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
SÖLUBÖRN
Mánudagsblaðið vantar söluböm, sem búa
í úthveríunum.
Blaðið verður sent til þeirra sem óska.
— Sími 13975 — 13496.
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAa
til svona starfsemi. Mörg eru
verkefnin, og það fylgir ein-
mitt velferðarvitleysunni, að
unglingar með kynferðisþroska
vita að þeir Bjarni Benedikts-
son og Geir borgarstjóri sjá
Um króana þegar þeir skjótast
í heiminn og fyrirvinnan er 16
ára en móðirin á 18. ári eða
máske nýfermd. Það er þessi
geðveikislega velferðarríkishug-
mynd, sem hér á sína sök. Að
semja lög til að hefta „siðferði"
unglinga er álíka og banna
skepnu munnlega að éta ekki
grænu töðuna í túninu. Bænd
ur vita hvaða þýðingu þáð hef-
ur, og frumvarpið, þessi hluti
þess, er eins og saminn af hálf
geðveiku fólki, meinlætamönn-
um eða beinlínis til þess að
reyna að hvítþvo sinn siðferðis-
Iega styrk.
Vorfargjöld
Flugfélagsins
Gilda til 16 boiga
Vorfargjöld Flugfélags ta-
lands milli Islandg og Evrópu
ganga í gildi 1. apríl n.k„ en
þau eru 25% lægri en venjuleg
fargjöld á sömu flugleiðum.
Það var fyrir rúmum tveim
árum, að Flugfélagi Islands
tókst að fá samþykki fargjalda
ráðstefnu IATA fyrir iægri vor
Og haustfargjöldum millí Is-
lands og nokkurra horga í Ev-
rópu. Þessi hagkvæmu fargjöld,
sem margir Islendingar hafa
sí,an notfært sér til sumar-
auka í suðlægari löndum, gilda
í vor til fleiri borga en fyrr;
Hinn 1. apríl bætast Berlín og
Frankfurt við þær sem fyrir
voru og gilda þá vorfargjald
félagsins til sextán horga.
Vorfargjoldin gilda frá og
með 1. apríl til þessara boiga;
Amsterdam, Bergen, Berlm,
Bruxelles, Glasgow, Gautaborg
Frankfurt, Hamborg, Helsing-
fors, Kaupmannahöfn, London,
Luxemburg, Oslo, Stavanger,
París, Stokkhólmur.
lÉSÉ '”^ss» , • - __________
| Sviðsmynd úr Ieikriti Þjóðleikhússins „Sannleil.ur úr gifsi (Sjá leikdóm á 2. síðu).