Mánudagsblaðið - 28.07.1969, Blaðsíða 6
6
Mánudagsblaðið
Mánudagur 28. júli 1969
Blöðin, sjón- og útvarp og tunglferðin — Morgunblaðið og
útvarpið báru af — Góð fréttaþjónusta — Afstaða Þjóðvilj-
ans — „Rausn“ sjónvarpsins —
Reykvíska pressan gerði yíir-
leitt allt sitt bezta til að fylgj-
ast vel með ferð Apollos til
tunglsins, reportera lendinguna
þar og gefa lesendum sem gleggsta
lýsingu á einstökum atvikum.
Tíminn og Morgunblaðið voiu
miklu fremst, einkum Mbl., sem
sýndi einstaka natni og ágæta
blaðamennsku í nær öllum hliðum
þessa stórviðburðar. Vísir „sló
nær öllu upp“ Idikkandi út með
ág'ætri fyrirsögn í „graðhestaletri11
„ÞAÐ TÓKST“, en gerði jafn-
framt skilmerkilega grein fyrir at-
burðinum. Alþýðublaðið ruddi
nokkrum kvennaifarssögum og
leikstjörnuæfintýrum af síðum
sínum, en var sem fyrr í vand-
ræðum með lélega prentun og
oft heldur naive fréttamennsku-
Þjóðviljinn skýrði hreint og beint
frá tunglferðinni, lét ekki bera á
áróðri í fréttagreinum, en var
þó illa gripinn milli Apollos og
Lunu 15- Blaðið átti erfitt með að
kyngja því, að afrek Rússa, þótt
stórkostleg vaeri, hlyti að falla i
skugga Apollo-ferðarinnar. Að
vísu skipti það engu um ágæta
fréttafrásögn blaðsins af ferðinni
sjálfri, en Þjóðviljinn, bætti alla
slíka réttlætiskennd upp, með
leiðinlegum leiðara um ferðina,
þar sem nýtt var tækifærið til að
skíta í Bandaríkjamenn í sam-
bandi við Viet Nam átökin. Er
þetta einna líkast því, að hæla
manni fyrir afrek, en ráðast á
h'ann fýrir að vera sköllóttur;
Jafnvel gallhörðum kommum
líkaði illa, illkvittni blað.sins gagn-
vart Bandaríkjamönnum, þótt
nokkur nauðsynleg hrósyrði væru
látin falla innan um illgresið.
Luna 15 fékk miklu minni skrif.
Afrek Rússa var geysilegt, en i
kringum það var, að venju, því-
líkur hjúpur laununga og myrk-
viður upplýsingaleysis, að fátt
var hafandi eftir nema opinberar
skýrslur að austan. Þær vonir
manna, að Luna kæmist aftur til
jarðar, jafnvel með sýnishorn af
yfirborði tunglsins, hurfu þegar
tilkynnt var, að samkvæmt áætl-
un, hefði geimfarið verið látið
lenda á tunglinu og eyðileggjast
f lendingu- Um sannleikann skal
ekki deilt-
Flest vikublöðin þögðu eða rlt-
uðu aðeios almennt um þennan
merka viðburð, enda óhægt um
Brjóstin
Framhald af 3. síðu.
cru dýrt spaug, kosta sem svarar
60—90.000 íslenzkar krónur.
Að öllu athuguðu ættu því kon-
ur að una við það sem náttúran
hefur gefið þeim. Þær ættu a.m.k.
að nota þá einu aðferð sem læknir
nokkur sagði að væri sú eina sem
hann gæti ímyndað sér að bæri já-
kvæðan árangur: Það brjóstanudd
og þá hormónaframleiðslu sem
jafnan fylgir hvílubrögðum karlsog
konu.
vik fyrir þau, sem þar hefðu orð-
ið að „éta“ upp fréttir, sem al-
menningi var þegar kunnugt um
bæði af blöðunum sjálfum, út-
varpi og sjónvarpi-
Undarlega reyndist smátt gagn
af eina fréttaritara íslenzku blað-
anna viðstaddan tunglskotið.
Greinar hans voru heldur gagns-
litlar og buðu upp á fátt, sem
ekki var þegar vitað af lestri úr
ofangreindum málgögnum.
Sjónvarpið, sjá Kakala bls. 4,
reis úr rekkju og sýndi góða og
spennandi kafla frá atburðinum,
en ekki stóðu þulirnir sig nú með
sérstökum ágætum, jafnvel ekki
þeir fræðimenn, sem til voru
kallaðir. Hefði verið jafngott, að
láta danska þulinn hafa orðið all-
an tímanin. Sjónvafpið hefur
vissulega EKKI lifað upp til
skyldu sinnar, en, það er annað
mál.
Útvarpið stóð sig með hreinum
ágætum, lýati vel og skilmerki-
lega, gaf hlustendum undraverða
góða „mynd‘‘ af atburðum. skaut
inn fróðlcgum athugascmdum og
vann bæði skjótt og örugglega að
öllu þessu mikla verki, undi scr
hvorki svefns né matar. Var þar
sýnilega allt undirbúið og sýnir,
að ef vilji er fyrir hendi, þá má
gcra talsvert meira í slíkum éfn-
um en oft er gert, þótt ekki sé
um slíka stórviðburði að etja. Er
vissulcga tímabært að þakka út-
varpsmönnum þcim, sem hér að
síóðu. mikillcga fyrir þessa grein
fréttaþjónustunnar.
E523IC
7 8»
Sommetiiche
Frisuren zum
Selbermachen
beschwingt
und
farbenfroh:
ideate Mode
fiir den
Kosmeflk:
Uriaub ohne
Sonnenbramf
7 'LÍ
£Æv«i?œss&,.
nu beraTVÆR
braqðljufar sigarettur
nafniðCAMEL
ÞVÍ CAMEL — FILTER ER KOMIN Á MARKAÐINN
ÍÖl ?£Oi«s ,
FRESH
lOSAj
Á sjö og landi, sumarog vetur
llmandi Camel - og allt gengur betur