Mánudagsblaðið - 02.02.1970, Page 2
2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 2. febrúar 1970
Nýlega vax undirritaður
samningur við Líftryggingafé-
lagið Andvöku um hóplíftrygg-
ingu á starfsfólki Kaupfélags
Borgfirðinga. Felur samningur-
inn í sér líftryggingu á hverj-
um starfsmanni að upphæð kr.
200.000,00. Mun kaupfélagið
greiða helming iðgjaldsins og
starfsfólkið sjálft hinn helm-
inginn.
Vitað er, að fleiri kaiupfélög
hafa nú ákveðið að taka svip-
aða líftryggingu og Kf. Borg-
firðinga og ýmsir starfs- og fé-
lagahópar hafa sýnt verulegan
,ábuga. . ...... ...... .r, ;;nn
í fréttatilkynningu frá And-
vöku segiir svo um hóplíftrygg-
ingair og fleira:
Sitjandi: Ásgeir Magnússon, framkvæmdastjóri Samvinnutrygg-
inga og Andvöku og Ólafur Sverrisson, kaupfélagsstjóri í Borg-
arnesi. Standandi: Björn Vilmundarson, deildarstjóri og Bjarni
Þórðarson, tryggingafræðingur.
Hóplíftiyggingar
verða æ algengari
Hóptryggingar, eru ætlaðar
starfsfólki fyrirtækja, félögum
í félagssamtökum eða öðrum
hópi manna, sem vilja skapa
fjölskyldum sínum áðurnefnt
öryggi. 20 menn eða fleiri geta
tryggt sig sem hóp. Trygging-
airfjárhæðin verður einungis
greidd við andiót manns í
tryggðum hópi og þá til ekkju
hins látna, barna hans eða lög-
erfingja A þennan hátt fá við-
komandi menn slíkt öryggi á
stórum ódýrari hátt en hugsan-
legt er með nokkru öðru móti.
Við slíkar hóptryggingar er
hægt að veita kjör. sem eru ó-®~
hugsandi, ef hver tryggir fyrir
sig, enda einstaklingstrygging-
ar að ýmsu leyti annars eðlis.
Hóptryggingar og fyrirtæki.
Erlendis hafa hóptryggingar
tíðkazt í 25—30 ár. og hafa
gefizt með ágætum. Er algeng-
ast að hópar starfsmanna hjá
einstökum fyrirtækjum taki
slíkar tryggingar. og hafa fyr-
irtækin þá oft aðstoðað við
trygginguna á ýmsan hátt. Oft
hafa fyrirtækin greitt einhvem
hluta iðgjaldsins, sem venju-
lega er óveruleg upphæð, en þó
hefur slik umhyggja reynzt af-
ar vinsæl meðal starfsfólksins
og orðið til að auka samhug
þess og velvild í garð atvinnu-
rekandans. Auk þess er kostn-
aður við slíka þátttöku í trygg-
ingum víðast frádráttarbær til
skatts svo sem launagrei ðslur.
Hvað, ef þér fallið frá?
Hver fjölskyldum.aðuir með
ábyrgðartilfinningu hlýtur að
hafa velt þeirri spurningu fyrir
sér og gert upp við sig, hvern-
ig konan og börnin færu að.
ef hann félli frá. Örlög sín fær
enginn umflúið og það er ekki
varlegt að treysta góðri heilsu
og trúa því, að ekkert geti
komið fyrir.
Öll þekkjum við dæmi um
sorgleg örlög ekkna og barna
þeirra, er menn hafa fallið frá
skyndilega. Hið opinbera hefur
gert margt til að létta slíkt
hlutskipti. en þó nægja þær
aðgerðir engan veginn. At-
vinnurekendum og samstarfs-
mönnum ber engin lagaleg
skylda til að hlaupa undir
bagga. en finnst oftast siðferði-
leg skylda hvíla á sér. Þegjandi
leggja menn eitthvað af mörk-
um — og döprum hug er það
þegið.
Hóptryggingar eru svar
tryggingavísindanna við þess-
um vanda. Þær skapa hið
nauðsynlega öryggi á sann-
gjarnan ódýran og viðeigandi
hátt.
Hóptryggingar koma ekki í
staðinr, fyrir líftryggingar ein-
staklinga. Upphæðir þeirra eru
alltaf lágmarkstrygging, sem
hver einstaklingur ætti að
hafa.
Tilkynnsng
Athygli innflytjenda skal hér með vakin
á því, að samkvæmt auglýsingu viðskipta-
málaráðuneytisins dags 31. des. 1969, sem
birtist í 8. tbl. Lögbirtingablaðsins 1970 fer
1. úthlutun gjaldeyris- og/eða innflutn-
ingsleyfa árið 1970 fyrir þeim innflutn-
ingskvótum, sem taldir eru í auglýsing-
unni, fram í febr/marz 1970.
Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa
borizt Landsbanka íslands eða Útvegs-
banka íslands fyrir 20. febr. n.k.
LANDSBANKI ÍSLANDS
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS.
— Með litprentuðu sniðörkinni og hárnákvæmu
sniðunum!
— Útbreiddasta tízku- og handavinnublað
Evrópu!
Með notkun „Burda-moden" er leikur að
sníða og sauma sjálfar!
• ri
axminster
ANNADEKKI
axmTnster