Mánudagsblaðið - 27.04.1970, Side 2
2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 27. apríl 1970
ÚR SÖGU LANDS OG LÝÐS
Móðir mín í kví.
kví
'66
Einu sinni var vinnukona á bæ,
Hún hafði orðið þunguð, alið barn
og borið út, sem ekki var mjög ó-
títt á landi hér, meðan harðar skrift
ir, sektir eða líflát vorú lögð við
slíkum brotum. Eftir það bar svo
til eitthvert sinn, að halda átti gleði
þá, er vikivaki nefndist og alltíðir
voru hér áður á landi, og var þess-
ari hinni sömu stúlku boðið til
vikivakans. En af því hún var ekki
svo fjölskrúðug, að hún ætti skart-
föt, er sambyði slíkum skemmti-
fundi sem vikivakar voru á fyrri
dögum, en var kona glysgjörn, Iá
allilla á henni, að hún yrði þess
vegna að sitja heima og verða af
gleðinni. Einu sinni á málum, með-
an gleðin stóð til, var griðkona
þessi að mjólka ær í kvíunum með
öðrum kvenmanni; var hún þá að
fárast um það við hina mjaltakon-
una, að sig vantaði föt að vera í
á vikivakann; en í því hún sleppir
orðinu, heyra þær þessa vísu kveðna
undir kvíaveggnum:
„Móðir mín í kví, kví,
kvíddu ekki því, því;
eg skal Ijá þér duluna mína
að dansa í
að dansa í."
Griðkona sú, sem hafði borið út
barn sitt, þóttist þekkja hér skeyti
sitt; enda brá henni svo við.vísuna
að hún varð vitstola alla ævi síðan.
„Þu átt eftir að
bíta ur nálinni64
Galdramaður er nefndur, sem
Finnur hét; hann var svo forn og
illur í skapi, að allir voru hræddir
við hann. Þegar hann dó, vildi eng-
inn, hvorki karl né kona, verða til
þess að Iíkklæða hann og sauma
utan um hann. Þó varð kvenmaður
einn til þess að reyna það; komst
hún ekki nema hálfa leið og varð
svo vitstola. Þá gaf önnur sig til, og
gaf hún sig ekki að því, hvernig
Iíkið lét. Þegar hún var nærri búin,
sagði Finnur: „Þú átt eftir að bíta
úr nálinni." Hún svarar: „Ég ætlaði
að slíta, en ekki bíta, bölvaður."
Sleit hú síðan nálina frá, braut
hana í sundur og stakk brotunum í
iljar líkinu. Er þess ekki getið
hann gjörði neinum framar mein.
„Skemmtilegt er
myrkrið64
í fyrndinni og allt til vorra daga
var það landssiður að vaka yfir lík-
um, og var það oftast gjört við
ljós, ef nótt var eigi björt. Einu
sinni dó galdramaður nokkur, forn
í skapi og illur viðureignar; vildu
fáir verða til að vaka yfir líki hans.
Þó fékkst maður til þess, sem var
hraustmenni mikið og fullhugi að
því skapi. Fórst honum vel að vaka.
Nóttina áður en átti að kistuleggja,
sloknaði ljósið litlu fyrr en dagur
rann. Reis þá líkið upp og mælti:
„Skemmtilegt er myrkrið." Vöku-
maður svarar: „Þess nýtur þú ekki."
Kvað hann þá stöku þessa:
„Alskínandi er nú fold,
út er runnin gríma.
Það var kerti, en þú ert mold,
og þegiðu einhvern tíma."
Síðan hljóp hann á líkið og braut
það á bak afmr. Var það síðan
kyrrt það, sem eftir var nætur.
Mussumaðuriim í
Útskálakirkju-
garði
Frásögn Jóns Sigurðssonar
í Steinum eftir sögn Cecilíu
Jónsdóttur, móður hans.
Einu sinni var grafið í Útskála-
kirkjugarði, — og var þar þá orðin
timburkirkja, — norðan megin við
hlöðin undir kirkjunni miðja vegu.
En er þeir voru búnir að stinga
upp fyrsm páltorfurnar, verður
grafarmönnum heldur en ekki bilt
við, því þar undir lá maður með
hart á höfði og parruk, f mussu
svartri og sortuðum stuttbrókum
og mórauðum sokkum. Hann Ieit
upp á þá. Þeir lögðu niður torfuna
aftur og grófu annars staðar.
Guðrún Gísladóttir, amma og
fósturmóðir mömmu minnar, sýndi
móður minni, hvar klekkirnir höfðu
verið stungnir, eins og henni hafði
verið sýnt. Ekki get ég með vissu
getið til, hvenær þetta mundi hafa
verið, en það heldur móðir mín
það muni hafa verið um það bil, er
amma hennar kom suður, eður hér
um bil 1759, því hún heyrði hana
tala um það sem þann hlut, er ný-
skeður væri.
„Upp koma svik
um síðir66
Einu sinni var tekin gröf í kirkju
garði á prestssetri nokkru; kom þar
upp með öðrum greftri hauskúpa
ein, og stóð bandprjónn gegnum
hana. Prestur geymdi hauskúpuna,
þangað til messað var næst helgan
dag á eftir, Beið hann þess, að allt
fólk var komið í kirkju, og festi
hann þá hauskúpuna upp yfir
kirkjudyrum. Eftir embætti gekk
prestur fyrstur út með meðhjálp-
urunum og hugði að þeim, sem út
gengu. Þeir urðu einskir varir og
gættu þá að, hvort nokkur væri
eftir inni; en þar var kerling ein
gömul mjög, sem bograði að hurð-
arbaki, og varð að neyða hana til
útgöngu. Drupu þá þrír blóðdrop-
ar af kúpunni niður á faldtraf kerl-
ingar. Hún mælti þá „Upp koma
svik um síðir." Gekkst hún þ:á við
því, að hún hefði ráðið fyrri manni
sínum bana með því að reka prjón
gegnum höfuð hans. Var hún þá
ung og hafði átt hann nauðug og
samfarir þeirra verið skammar.
Konan bjó sjálf um líkið, og höfðu
ekki aðrir hugað að því. Síðan hafði
hún gengið að eiga annan mann,
en hann var þá og dauður. Það er
mælt, að kerlingu þessari væri
drekkt, eins og gjört var mæðrum,
er fyrirfóru börnum sínum.
Hauskúpan
Einu sinni var tekin gröf í kirkju
garði, og kom upp mikill gröftur.
En eins og vandi er, var hann lát-
inn niður aftur með kistunni. Um
nóttina eftir dreymdi konu kirkju-
bóndans, að kvenmaður kæmi til
hennar; hún kvað:
„Gengið hef ég um garðin móð,
gleðistundir dvína;
hauskúpuna, heillin góð,
hvergi finn ég mína."
Síðan lét konan leita, og fannst
hauskúpan fyrir utan kirkjugarð-
inn, er hundar höfðu borið út úr
honum, meðan beinin lágu uppi, án
þess því væri veitt eftirtekt. Konan
lét jarða kúpuna og svaf síðan í
næði.
Jv jálkarnir mínir6
Einu sinni var prestur á kirkju-
stað. Hann hafði þann sið, að hann
lét taka allan gröft, sem kom upp
úr kirkjugarðinum hjá sér, og
brenna honum. Einu sinni sem oft-
ar var lík grafið að kirkju hans;
kom þá fyrir gröfmr, og var hann
hirtur af eldakonunni eftir boði
prests. En með því gröfturinn hafði
vöknað, annaðhvort af rigningu eða
snjókomu, er hann var tekinn upp,
gat eldakonan ekki brennt honum
þegar og varð að hafa hann við
eldinn og á hlóðarsteinunum til að
þurrka hann. Meðan á þessu stóð,
heyrði eldakonan, er hún var að
elda í rökkrinu, að sagt var með
veikri röddu einhvers staðar nærri
hlóðunum: „Kjálkarnir mínir,
kjálkarnir mínir. Þessi orð heyrði
hún í annað sinn tvítekin. Fór hún
þá að svipast um mannabeinin, er
lágu kringum hlóðin hjá henni,
hvað þessu mundi olla, en fann
þar engan mannskjálka. Þá heyrir
hún sagt í þriðja sinni með enn
eymdarlegri röddu en áður: „Æ,
kjálkarnir mínir, kjálkarnir mínir."
Fer hún þá og leitar enn betur og
finnur tvo samfasta barnskjálka, er
þokazt höfðu af hlóðarsteininum
ofan í annað hlóðarvikið og voru
nærri farnir að brenna. Skilur hún
þá, að svipur barns þess, er átti
kjálkana, mundi ekki hafa viljað,
að þeir brynni. Síðan tekur hún
kjálkana og vefur þá í líni og kem-
ur þeim ofan í gröf, er næst var
grafið í kirkjugarðinum. Eftir það
bar ekki á neinum reimleika.
„Til fiskiveiða
förum..." ,
Hvítasunnuferð m/s Gullfoss
til Vestmannaeyja
Frá Reykjavik 15.mai
Til Reykjavikur 19. mai
Verð frá kr. 4.040.-
Allar nánari upplýsingar veitir: FARÞEGADEILD EIMSKIPS, SÍMI 21460
H.E EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS