Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 27.04.1970, Blaðsíða 8

Mánudagsblaðið - 27.04.1970, Blaðsíða 8
Bluó fynr a/la Mánudagur 27. apríl 1970 Hörmungar-kvenskór — Draumar fegurðardísa — 40 milljóna hopp — Fæðingarangist á Vísi — Kvenréttindaómyndir — Klaufskir menntskælingar — R. Welch í næsta blaði ALDREI hefur það komið betur í Ijós en á nýafstaðinni feg- urðarkeppni hve hið nýja lag á kvennskóm næstum eyðileggur fagra fætur. Þessir klumpar, sem móðins kona gengur á eru svo einmuna Ijótir að engu er líkara en snaróður svarinn óvinur kvenþjóðarinar hafi fundið upp þennan ófögnuð. Þeg- ar náhvítir sokkar bætast nú við, þá er sýnilegt að stúlkan klæðist eingöngu til að fylgja tízkufrömuðum, og keppa við kynsystur sínar, en alls ekki til að bæta og auka kvenlegan yndisþokka. UNDRANDI skrifar: „Ég var að lesa viðtal fegurðardrottningar okkar í blöðun- um. Það sem ætíð undrar mig í þessum tilvikum, er sú ein- dæma vitleysa, sem þessar stúlkur láta hafa eftir hér. „Mér finnst ég ekki vera lagleg" segir ungfrú ísland í einu blað- inu. „Kann bezt við mig í aflahrotu" í öðru. Hvers vegna er þetta kvenfólk að láta hafa sig í þetta, ef það kann bezt við sig við slortunnuna eða telur sig ófrítt? Satt að segja er hér aðeins um að ræða einhverja tegund af misskildu alþýðu- snobbi, því persónulega tel ég, að þessar stelpur eigi að reyna að þroska persónuleika sinn, fríðleika og framkomu en hætta plebiskri aðdáun sinni á slorinu, þótt það gefi okkur aura“. ÞAÐ YRÐI dálaglegt ástand á skemmtistöðum íslands, ef hvert framhjáhald kostaði hina sjálfskipuðu don juans hér kr. 40 milljónir per hopp, eins og henti vin okkar Dean Martin nú á dögunum. Martin segir hinn algilda sannleika, að „heima er bezt“, einkum þó eftirá, en þrengjast myndi kostur ýmissa hér heima, ef. svo dýrt yrði drottins orðið. Sem .betur fer er það einn af fáum kostum norræna kvenfólksins, að það met- ur meydóm sinn einskis og þarf nálega við öll möguleg og ömöguleg tækifaari að sanna, að það kanmsitt fag. „Fjórmenningar" — Þórbergur — Háskólinn — Sauðburður og vor Veðurfréttir — veðurfar Nöfn á myndir „Fjórmenningarnir" í þætti Svav- ars Gests, Guðmundur Jónsson, Guðmundur Guðjónsson, Kristinn Hallsson og Magnús Jónsson, vöktu hvað mesta athygli í s.l. viku, en öll framkoma þeirra, léttlyndi og svo söngurinn féll í góðan jarðveg. Það er gott að eiga Brynjólf Jóhann esson í gervi séra Sigvalda á kvik- mynd, því sennilega er það vand- aðasta hlutverk íslenzkrar leikritun- ar og eitt bezt leikna, sem enn hef- ur sézt, þótt meðferð þess nú jafn- ist ekki á við hana fyrir þrem ára- tugum. Annars hefur allt verið sagt um flutning Manns og konu, sem þörf er á í bili. ÓTTI MIKILL hefur gripið um sig meðal Vísis-manna, en þar bíða allir í ofvæni um hversu minknum, nýinnflutta, tekst að gjóta hvolpum sínum. Lýsir blaðið ástandinu skilmerkilega og telur almenna taugaveiki hafa gripið um sig vegna þessa ein- stæða atburðar. Þetta getur maður sannarlega kallað árvakra blaðamennsku, og sannarlega þakkarvert að segja okkur hve- nær við eigum að vera spenntir. ÞAÐ ER skrítið, en hafið þið tekið eftir hvað flestar, ef ekki allar fyrirsvarskonur kvenréttinda og andstæðingar fegurðar- keppna eru fádæma Ijót kvikindi. Um daginn voru nokkrar þessar ófreskjur ,að bera út áróðursplagg utan Háskólabíós, enda sýnilegt að þær kæmust ekki einu sinni á nautgripa- keppni. Svona er þetta allstaðar. í Bandaríkjunum og á Bret- landi, auðvitað í Danmörku, er kvenfólkið að „vakna og berj- ast“ fyrir réttindum, og það hafa þær allar sameiginlegt, sam- kvæmt myndum, að þær eru hinar mestu herfur, illa smíðaðar, skeggjaðar og í allskyns útskotum óþörfum. Þetta er allt ósköp raunalegt. MaSur er nefndur Þórbergur Þórðarson, í umsjá Magnúsar Bjarn freðssonar var eins vel heppnaður og síðasti þáttur undir sama aðal- nafni var misheppnaður. Þórbergi tókst eindæma vel, ekki sízt er hann lýsti nokkuð háttum séra Árna Þórarinssonar, en Þórbergur reit ævisögu hans á eftirminnilegan hátt. Þátmrinn var báðum til verð- ugs sóma. Það var heldur lítið ris yfir 100 ára minningu Leníns, enda var kvik myndun í hans daga ófullkomin. Sjónvarpið gerði rétt í að minnast þessa áhrifamikla manns virðulega, þótt óþarfur hafi hann verið veröld- Kynning háskólastúdenta var í senn fræðandi og mjög þokkalega unnin. Almenningur fékk innsýn í þetta musteri æðra lærdóms og kynntist verkefnum nemenda í hug vísindadeildunum fjórum. Nemend ur komu skemmtilega og skýrt fram, á þeim var ekki neinn ræksn- isbragur lieldur skilmerkilegar spurningar og svör. Sauðburðurinn í Helgadal er, ao því virðist, tákn sjónvarpsins um að vor sé í vændum. Þessi mynd var einkar fáfengileg, nýfædd lömb stauluðust um eins og krakk- ar á skóladansæfingu, nýkomin í heiminn og öll hin ósjálegustu. Eitt hvað annað hefði verið heppilegra en þessi mynd, en með þessu áfram haldi mætti ætla að sjónvarpiÖ mið aði að fengitíma sauðfjár til að fagna komu vetrar. ★ Það er orðinn ansi mikill glans yfir veðurfréttunum, þær eru kynnt ar með dilandi klarinett-músikk og veðurfræðingar eru þeir einu í sjón- varpinu, sem bjóða gott kvöld, hneygja sig, en þetta er óvænt kurt- eisi af stofnun, sem aldrei býður gott kvöld og heilsar yfirleitt ekki nema með hinu vinsæla: komið þið sæl. Þó er það nokkur galli við veð urstofuna að veðrið fer orðiÖ æ minna eftir spádómum hennar en áður. Það er eins og spárnar séu ekki eins nákvæmar og áreiðanleg- ar og áður. Hverju þetta sætir skal ekki leitt getum að, en fle irien við k\ 'jrtum. Það hefur verið minnst á það áður hér í dálkunum, en það er al- gjörlega ótækt, að þær myndir, er- lendar, sem sýndar eru, skuli ekki kynntar, strax að kvöldi kl. átta, ásamt erlenda titlinum réttum. íslenzku nöfnin á þessum myndum koma oft hvergi nærri heitum þeirra á frummálinu og menn bíða von úr viti eftir að þær hefjast, að- eins til þess að finna, að þeir hafa séð þær áður. Sjónvarpið verður að skilja, að flest eru þetta gamlar myndir, sem fjölmargir hafa séð, og því ber skylda til að verða að óskum almennings í þessum e.fnum. Die schðnsten Brant- hleider STAÐREYNDIR — sem ekki mega gleymast: (52) Framtíðin leiftrandi björt! Reiknað í milljörðum — Átrúnaður í Aðalbækirtöðvum — „Boswash“, „Chipitts11 og „Sansan“ — Arsenik og stærstu dvergar lýðræðisins — VAXTAVEXTIR MIÐJUNNAR FER EKKI að verða nóg um fyNinisferðir menntaskólanema daginn, sem þeir fara í upplestrarfrí? Ekki það, að við mælum móti drykkjunni, heldur hinu, að þeir sýna óvirðulegan við- vaningshátt eftir talsverða reynslu og æfingu í neðri bekkjun- um. Drykkjusiðir þurfa ástundun og einbeitni, ekki sízt hjá kvennaliði skólanna, sem verður næsta hvimleitt er það veifar flöskum sínum í heyvögnunum éða bara ruggandi á götunum. Því miður fellur niður viðtalið við Raquel Welch, amerísku kynbombuna, sem vakið hefur geysiathygli. Kemur þetta til af klaufaskap, en heldur áfram í næsta blaði með myndum og öðru góðmeti. „[ sérhverri stórborg, hvaða nafni, sem hún annars kann að nefnast, og tilviljunin flækir mér til, furða ég mig alltaf á því, að þar skuli ekki geisa borgarastyrjöld á hverjum degi, fjöldadráp, óumræðileg slátrun, ringul- reið eins og að heimsendi væri komið. Hvernig getur svona margt fólk búið sam- an á jafn þröngu svæði, án þess að dauðhatast inn- byrðis? Það hatast raunar svo sannarlega, en hatur þess hefir enn ekki náð há- marki. Þessi meðal- mennska þetta þrekleysi er hlíf þjóðfélagsins, tryggir því endingu og festu“. — E. N. Cioran (1911—), rúm- enskur rithöfundur og heim- spekingur: „HISTOIRE ET UTOPIE" (þ. útg. Ernst Klect Verlag, Stuttgart 1965) bls. 91. Á hverjum einasta sólarhring, sem Guð gefur yfir, mun áhöfn og farþegum geimfarsins Jörð hafa fjölgað og fjölga á árinu 1970 um rösklega 172.000 manns og mannsmyndir, eða um 63.000.000 líkami alls á árinu. Það þýðir, að frá jafnlengd í gær til jafnlengdar í dag, hafa tvær borgir heldur fjöl- mennari en Reykjavík bætzt við á byggt ból, og til jafnlengdar á morgun munu enn hafa bætzt við tvær aðrar. Á árinu 1971 mun fjölg unin verða meiri, og með hverju árinu, sem líður, mun hún aukast miðað við árið áður, því að börn og barnabörn hlaðast upp eins og vextir og vaxtavextir. Að því er til mergðar tekur, eru rotturnar allra spendýra hæstar að höfðatölu á jörðinni. Mennirnir eru sú spendýrategund, sem næst þeim kemstí og munu innan skamms sigra með yfirburðum í útungunar- keppninni, sjálfum sér og umhverfi sínu til óútreiknanlegra hörmunga. Mannkyninu fjölgar ekki aðeins — það margfaldast, það eykur kyn sitt og uppfyllir jörðina með hraða sprengjubylgjunnar. í algeru hugs- unarleysi og án minnstu ábyrgð- ar, þ.e. á fullkomlega lýðræðisleg- an hátt. Samkvæmt nýjustu og fullkomn- usm rannsóknarniðurstöðum er talið, að um 300 millj. manna hafi lifað á jörðinni um fæðingu Krists, og þegar jarðarbúar höfðu náð 500 millj. markinu í byrjun 17. aldar, tóku ógnir Þrjátíu ára stríðsins (1618—1647) að hrjá þá í stað skelfinga Þjóðflutninganna miklu, Svartadauða og Mongólaherhlaup- anna áður, þannig að á landssvæð- inu, sem Rómverjar höfðu drottn- að yfir á dögum Ágústusar keisara (63 f. Kr. — 14 e. Kr.), og byggt var 60 millj. manna, lifðu aðeins um 100 millj. árið 1720 — sextíu kynslóðum síðar! Tíminn leið allt til ársins 1830, áður en heildarmannfjöldinn á jörð inni náði fyrsta myilljarðinum, komst upp í 1.000 millj. Árið 1900 var hann kominn upp í 1.570 millj., árið 1930 í 2 milljarða, og árið 1960 hafði hann aukizt um helm- ing, var kominn í 3 milljarða. M. Framhald á 7. síðu

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.