Mánudagsblaðið - 27.04.1970, Side 7
Mánudagur 27 apríl 1970
Mánudagsblaðið
7
Framtíðin leiftrandi björt!
Framhald af 8. síðu.
ö. o.: Það, sem áður hafði tekið
milljónir ára, eða a. m. k. nokkur
hundruð þúsundir ára, hafði nú
gerzt á stuttu æviskeiði einnar
kynslóðar, og á árabilinu 1960—
L975 mun sagan hafa endurtekið
sig, en að því sinni á aðeins 15 ár-
um. Árið 1975 verður mannfjöld-
inn á jörðinni orðinn fast að 4
milljörðum — fjórum þúsundum
miljóna.
Og mannkynið, sem þurfti alda-
þúsundir til þess að nú núverandi
fjölda, 3.500—3.700 millj., mun að
öllum líkindum tvöfalda mergð
sína á næstu 30—50 árum, og vera
orðið um 7.000 millj. um næstu
aldamót. þ.e. árið 2000, að því er
Claus Jacobi telur, 6.000—6.500
millj, að áliti Anton Zischka, en
„aðeins 5.965 millj. samkvæmt á-
litsgerð Sameinuðu þjóðanna. Nið-
urstaðan úr glerhúsinu á Manhatt-
an, aðalbækistöövum óða apans,
ber það reyndar greinilega með
sér, að forsendur hennar eru í meira
lagi hæpnar, þar sem hún er byggð
á draumórum um að „fólkið sjálft"
hafi komizt að raun um það af
hyggjuviti sínu, að affarasælast
muni reynast að létta af sér fram-
færsluþunga t.d. með pilluáti og
öðrum getnaðarvörnum, s. s. mjög
aukinni iðkan og vinsældum hinn-
ar gamalkunnu aðferðar Ónans,
coitus interruptus, sbr. I. Mósebók
38; 9—10. Slíkt er vitanlega fjar-
stæða, sem ekki verður tekin al-
varlega, enda væri það þá í fyrsta
=> & t" ■ ,
skipti í veraldarsögunni, að múg-
vizkan forðaði frá vandræðum.
--'TiI fróðleiksauka má bæta því
hér við, að fróðustu mannfjölda-
hagfræðingar telja sig hafa kom-
izt að þeirri niðurstöðu, að frá ár-
inu 600.000 f. Kr. fram á síðustu
ár, hafi alls fæðzt 77 milljarðar
manna á jörðinni, og að það muni
því láta nærri, að af öllum þessum
fjölda, sem lifað hefir á jörðinni
frá upphafi vega, hafi næstum
þriðjungur séð dagsins Ijós síðustu
þrjá aldirnar.
ÓBREYTT
ATHAFNASVIGRÚM
Það er engum blöðum um það
að fletta, að innan fárra ára mun
fjöldi jarðarbarna verða orðinn
geigvænlegur, og skiptir þá ekki
meginmáli, hvort gert er ráð fyrir
5.565 milljónum eða 7.000 millj.
eftir 30 ár. En lífsrýmið, der Leb-
ensraum, mun verða nákvæmlega
það sama og nú, eithvað nálægt
147.000.000 km’ að flatarmáli, og
eu þá innhöf, stöðuvötn og ókönn
u°’ heimskautalönd (um 10-14 milj.
km°) talin til viðbótar þurrlendi
jarðar. Höfuðstóll jarðlífsins, nátt-
úruauðæfin, munu og ekki heldur
hafa vaxið. Auk þess er afar senni-
legt, má rauna telja víst, að á hann
muni hafa gengið allverulega, svo
og arðsemi hans. Brauðfýsnir óða
apans munu hafa urgað f jölda dýra-
og jurtategunda upp til agna. M.
a. s. er ekki ólíklegt að velferðar-
fiskur eins og loðnan kunni að
hafa. gengið til þurrðar.
„Við hlustum ekki í þvílíkt svart-
sýnisraus", anza lýðræðissinnar og
kommúnistar einum munni. „Vel-
ferð vinstrimennskunnar ræður alls
staðar í heiminum í dag, og for-
ingjar okkar hém öllu mannkyni
óendanlegu sældarlífi að unnum
sigri yfir hinu illa í heiminum fyrir
aldarfjórðungi! Þetta hlýtur því að
reddast einhvern veginn".
Ekki fer það á miili mála: Iýð-
ræðið og kommúnisminn unnu
fullnaðarsigur á „hinu illa í heim-
inum" vorið og sumarið 1945,
„tryggðu lýðræðinu heiminn" — í
hið síðara sinnið —, og skuldbind-
andi yfirlýsingar forsprakkanna um
allsnægtaþjóðfélög frelsis, réttlætis,
o. s. frv. skipta nokkrum þúsund-
um. En hvort „þetta reddast ein-
hvern veginn", það er enn ósönnuð
tilgáta, sem tilhlaup forsprakkanna
til efnda gefa ákaflega hæpin til-
efni til þess að byggja á glæstar
vonir. Afmr á móti er ekki nema
sanngjarnt að geta þess þegar hér,
að þessar vonir atkvæðapenings
þeirra hlym að sjálfsögðu að hafa
orðið allnokkuð veruleikabundnari,
ef hann hefði ekki verið og væri
alls ófær um að meta og vega þær
hömlur, sem á því em, að atvinnu-
lýðræðismenn standi við orð sín og
eiða. Fyrsta skilyrði til þess, að
loforð verði nokkurn tíma annað
og meira en hjómið eitt, þarf það
að hafa hvílt á hugsun, viti og vilja.
En eigi að síður, nefndir og nefnda-
nefndir hafa „setið að störfum",
fmmvörp og álitsgerðir hafa fæðzt
með hverju nýju tungli, framtíð-
arheimur lýðræðis og annarrar
vinstrimennsku er tekinn að varpa
ljóm fram fyrir sig — og aragrúi
atvinnulýðræðismanna hefir hirt
s!i laun.
„Það er engin vöntun á frá-
bærlega heimildaauðugum
bókum um sögu vitleysunn-
ar og heimskunnar. Lesum
við okkur til í siíkum heim-
ildasöfnum um það, hvílík-
um bábiljum, hversu hrylli-
legum heilaspuna, hversu
heimskulegri hjátrú mann-
kynið hefir gengið á hönd í
aldanna rás, þá gætum við
freistast til þess að fyllast
notakennd af tilhugsuninni
um það, hversu dásamlega
langt við höfum komizt á
leið, og að álíta uppvakn-
ingu ýmsra tilbrigða heimsk
unnar með öllu fráleita sök-
um hins rækilega og æðra
menntunarkerfis okkar. En
slík notakennd og slíkt trún
aðartraust væri hins vegar
aðeins sönnun fyrir okkar
eigin heimsku.11
— Eugen Gurster: „MACHT
UND GEHEIMNIS DER
DUMMHEIT” (Artimes Ver-
Iag; Zúrich und Stuttgart 1967),
bls. 222.
MEGAPOLIS
Sérfrasðingar á sviði mannfjölda-
vísinda hafa þegar fyrir fjórum ár-
um vakið athygli atvinnulýðræðis-
manna á afar sterkum líkum fyrir
því, að árið 2000 muni um 70—90
af hundraði mannkynsins, sem þá
muni telja 6—7 milljarða eins og
að framan er greint frá, vilja búa
í borgum, þ.e. minnst 4.200 millj.,
mest 6.300 millj. (nú um 1.100
millj.; þar af rúmlega 350 millj.
í eymdarhverfum). Þess vegna sjá
framtíðarfræðingarnir nú þegar
móta fyrir börgarmörkum tröllauk-
inna stál og steypuþyrpinga, sem
um næstu aldamót munu hafa fellt
sérhvert tré, kæft sérhvert strá á
a.m.k. fimm stórflæmum hnattar-
ins:
0 150 millj. Bandaríkjamenn, 50
af hundraði þeirra, sem vænt-
anlega munu byggja Bandaríkin
árið 2000, munu hreiðra um
sig í þremur risaborgum — í
Boswash" (frá Boston til Was-
hington), í „Chipitts" (frá
Chicago til Pittsburg) og í
„Sansan" frá San Francisco til
San Diego).
£ 45 millj. Evrópumanna munu
strjúka bílana sína innan þrí-
hyrnings, sem ætlað er að tak-
markist af borgunum Brússel,
Köln og Amsterdam, og nefnd-
ur hefur verið „Deltapol"; og
V 30—50 millj. Indverja munu
hringa hátignir sínar niður í
rottubæli, sem ætlað er að nefn
ast muni hinu tilkomumikla
nafni „The Metropolitan Dts-
trict of Calutta."
Varla gerist þess þörf, að vekja
athygli á því, sem hver skyniborin
manneskja sér í hendi sér, að ef
unnt ætti að vera að mæta slíkum
firnum með árangri og forða frá
ógnarafleiðingum þvílíkra búskap-
arhátta, sem skammsýni og hugs-
unarleti mannanna sjálfra hljóta ó-
hjákvæmilega að hafa í för með
sér, þá þyrfti nú strax að vera búið
að gera fullkomna uppdrætti að
lýðrasðisborgum framtíðarinnar eða
jafnvel reisa. En hugmyndirnar um
það, hvernig þessi fyrirtæki eigi að
geta þrifizt, eru ekki einu sinni ril
í stórum dráttum, þaðan af síður
auðvitað í einstökum atriðum. Og
hjá öllum, sem skilyrðislaust ber
skylda til að Iáta sig verkefnin
varða — atvinnulýðræðismönnum
og félagsmálafrömuðum, skipulags-
fræðingum borga og iðnrekendum
— verður ekki komið auga á ann-
að en „heimsþrúgandi úrræðaleysi"
eins og hið víðkunna sérgreinar-
tímarit „Baumeister" í Múnchen
komst nýlega að orði, eða „allt og
sumt, sem núráðandi skipuleggi-
endur hafa mannað sig upp í að
gera, fellur mætavel undir kafla-
heitið neyðarúrræði'' eins og „Der
Spiegel" hikar ekki við að fullyrða,
og styður mörgum dæmum.
SAMVERKAN ANDAGIFTAR
OG SNILLDAR
Það hlýtur ávallt að vera bæði
læi '' usríkt og uppörfandi fyrir
sanntrúað lýðræðisfólk að öðlast
tækifæri til þess að dást að snilld
Iöglega kjörinna Ieiðtoga sinna við
urlausnir hinna ýmsu viðfangsefna,
hvernig þeir „vinna" fyrir milljón-
unum sínum, og virða síðan fyrir
sér pappírslegar afurðir þvílíkrar á-
reynslu. Hér á eftir gefur að líta
örfá sýnishorn, tekin úr fréttadálk-
um nokkurra heimsblaða nýlega, af
hvílíkum árangri má ná með sam-
stilltu átaki atvinnulýðrasðismanna,
er vita nákvæmlega, hvernig búa
ber að fylgi sínu til þess að það
gefi af sér sem mestan og beztan
arð:
London: Borgarstjórnin hefir bann-
að nýsmíði skrifstofubákna í
miðborginni (The City); ríkis-
stjórnin hefir aflað sér heimildar
til þess að hindra að reist verði
ný iðjuver í miklu þéttbýli nema
með sérstöku leyfi.
París: Lagður hefir verið aukafast-
eignaskattur á allar nýbyggingar
í miðborginni
Stockholm: Borgarstjórnir víða í
Svíþjóð hafa heimilað fjárveit-
ingar til kaupa á óbyggðum Ióð-
um og lendum í útjöðrunum.
Haag: í HoIIandi er bannað að selja
iðnfyrirtækjum lóðir og lendur,
en hins vegar aðeins heimilt að
leigja.
Washington: Á yfirstandandi fjár-
hagsari áformar Bandaríkjastjórn
að verja .$ 300’ millj. til vamar
vatnsmengun og $ 88,7 millj.
gegn eitrun andrúmsloftsins
enda þótt ’árlegur kostnáður við
aðeins að halda í horfinu sé áætl-
aður $ 20 milljarðar!
Ef við, sem höfum gerzt svo
djörf að láta í Ijós vissar efasemdir
um að atkvæðakassar séu óþrjótandi
uppsprettulindir vits og vizku, og
erum ákaflega fá eins og kunnugt
er, teljum okkur hafa ráð á að
brosa illgirnislega að ofannsýndum
tilburðum, þá hljótum við að við-
urkenna, að við skuldum heimslýð-
ræðinu verulegar upphæðir í
skemmtanaskatt, þegar við veitum
okkur þá ánægju að skoða tiltektir
Bonndverga. Því að einnig þeir
hafa „setið að störfum". Árangur-
inn, „das Raumordungsgesetz", var
birt fullfrágengið hinn 8. Apríl
1965 að afloknum feiknvíðtækum
og langvarandi samningaumleitun-
um við hagsmunasamtök af ýmsu
tagi.
Fyrsta uppkast þessa frumvarps
til laga var gert þegar árið 1955,
tíu árum áður! í endanlegum bún-
ingi skartar lögverk þetta meining-
arlausu slagorðarugli og pólitískum
óskadraumum. Lítum bara á:
• ,dComa ber þeirri skipan á yfir-
ráðasvæði Sambandslýðveldisinj
.....sem bezt þjónar frjálsri
útbreiðslu persónuleikans í sam
félaginu". (Já orðrétt svona á
þýzkunni: „Das Bundesgebiet
ist .... einer Entwicklung
zuzufiihren, die der freien Ent-
faltung der Persönlichkeit in
der Gemeinschaft am besten
dient.").
0 ..Tillit ber að taka til takmarks-
ins um endursameiningu alls
Þýzkalands".
En verkið hefir upp á enn lýð-
ræðislegri vinstrimennsku að bjóða,
því að einnig þar, sem káfað er í
viðfangsefnið sjálft, grillir varla í
nokkuð, sem á Hitlersárunum hefði
verið talið Geopolitik í smækkaðri
mynd eða neitt það, sem „Politisc-
hes Lexikon" skilgreinir undir at-
riðisorðinu Raumordnung, heldur
er svo að segja allt vafið sundur-
slitnum strigaumbúðum og á nær
óskiljanlegri skollaþýzku, s. s.:
0 „Hinar samgöngu- og aðdrátt-
arlegu hugmyndir, þjónustu
með flutninga- og birgðaöflun-
arstarfsemi og hina áformuðu
þróun, ber að samræma hverju
öðru."
0 „Hin landbúnaðarlega nýting
vel til fallins jarðvegs skal að-
eins koma til álita í hinum skil
yrðislaust nauðsynlega mæli til
annarra nýtingarhátta".
(Vegna þeirra, sem kunna að
eiga erfitt með að skilja ofan-
greinda orðaperlufesti, tel ég mig
knúin til þess að láta þess getið,
svona innan hæversklegra sviga, að
þýðing mín tekur þýzka textanum
(sbr. „Bundes-Gesetzblatt", I. 1965,
bls. 306) langt fram um fegurð
máls og stíls, svo og skýrleika í
hugsun). ’ ’> ;
Það vakti því síður en svo
nokkra furðu, þegar hinn víðkunni
sérfræðingur í landrýmisskipulags-
I fræðum, Rossow prófessor í Ber-
lín, nefndi þessa svokölluðu heild-
arlagasetningu „ekki einu sinni hálf
verknað, hvað þá heldur meira",
enda varð þáverandi innanríkis-
ráðherra, hinn dæmalausi Paul
Lúcke, að viðurkenna, þvernauðug-
ur þó, að lögin gætu tæplega talizt
annað en áskorun. „Því að", mælti
hann, „í ríki, sem stofnað er á sam
bandsfylkjagrundvelli, brestur rík-
isstjórnina lögaðildir."
En það er sem betur fer ekki alls
staðar í lýðrasðinu, að yfirvöldin
bresmr „lögaðildir" til þess að
vernda borgarana gegn yfirvofandi
háska. T. d. hefir meirihluti sjálf-
stæðiskrata í borgarstjórn Reykja-
víkur, sem telur sig öruggan um a.
m. k. 40% — fjörutíu af hundraði!
— greiddra atkvæða á komandi
kjósendavertíð hinn 31. Maí n. k.,
heitið því hátíðlega að geyma ekki
miklar arsenikbirgðir við vatnsból
höfuðborgarsvæðisins næsta kjör-
tímabil, ef hann má nokkru ráða.
/. Þ. Á.
— Með litprentuðu sniðörkinni og hárnákvæmu
sniðunum!
— Útbreiddasta tizku- og handavinnublað
Evrópu!
— Með notkun „Burda-moden" er leikur að
sníða og sauma sjálfar!