Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 09.11.1970, Blaðsíða 1

Mánudagsblaðið - 09.11.1970, Blaðsíða 1
I BlaéJyrir alla 22. árgangur Mánudagur 9. nóvember 1970 43. tölublað ^Verðstöðvun' Hráskinnaleikur ríkisstjórnar Hækkunum rigndi — Bolmagnið ekkert Ráð ríkisstjórnarháðungarinnar til þess, að bjarga þjóðinni frá bráðum fjárhagslegum bana er svokölluð „verðstöðvun“, sennilega til að stemma stigu fyrir óðaverðbólgu þá sem nú ríður þökum. Þjóðin var síður en svo afhuga þessum aðgerð- um a. m. k. um takmarkaðan tíma, þótt margir álitu réttilega að verðstöðvun án kaupbindingar væri algerlega gagnslaust æfintýri. En verðstöðvunin, sem slík, og framkvæmd þeirra Jóhanns og Gylfa var með þeim endemum, að fáheyrt ef ekki með öllu óheyrt er. Við skulum athuga. HINN MIKLI ÁRANGUR Röskum þrem vikum áður en verðstöðvunin skall á, var sú ákvörðun gerð opinber með þessum líka árangri. • 1. 17. okt. Benzín og olía hækkun um 1% (benzín) — 20% (olía). Sama dag kjöt um 25,2%, mjólk um 27,6% og smjör um 7,3%. Mjólk og rjómi — EN EKKI SMJ'ÖR, — hefur verið lækkað síðan á kostnað hækkunar á áfengi og tó- baki. Burstavörur hækka um 20%. w_w Orvænting eða örlætí? Guðni í Sunnu hefur und- anfarið boðið ýmsum framá mönnum m.a. 20 þingmönn- um, slangri af forstjórum, og auðkýfingum í ferð til Mallorka. Aðeins fimm þing menn þekktust hið höfðing- lega boð Guðna, sem þykir sæta tíðindum, en aðrir mun hafa mætt. Það mun vaka fyrir Guðna að kynna þessum forkólf- um dásemdir sólareyjunnar með tilliti til vetrarorlofa al- þýðu, sem á döfinni er: Mik- ill er nú völlur á ferðaskrif- stofum ef þær hafa efni á slíkum útlátum, og halda sumir, að örvænting og sam keppni milli ferðaskrifstof- anna ráði þar mestu um, enda hafa þær verið óeðli- lega gjöfular síðustu miss- eri. • 2. 20. okt. Læknar hækka viðtalsgjöld sín um lítil 40% — bezt launaða stétt landsins. • 3. 27. okt. Vínarbrauð hækka, kringlur, heilhveiti- brauð, franskbrauð og gos- drykkir (um 7%), og selzt gos nú á kr. 45.00 á veit- ingastöðum. Sala til veit- ingastaða um kr. 5,00 per flösku. • 4. 30. okt. Áfengi og tóbak hækka um 15%. Farmgjöld á stykkjavöru um 4%, önn- ur farmgjöld um allt að 10 %. Innflytjendum bannað að hækka. • 5. 31. okt. Lyf til manna og dýra hækka um 7,28%, en lyf eru með ábatasömustu verzlunarvöru í kaup- mennsku. • 1. nóv. Daginn, sem verð- stöðvun gekk í gildi hækka öll sérleyfi landsins um 15 %, póst- og símagjöld um 15%, flugfargjöld innan- lands um 10%, og öll dag- blöðin þ. á m. Þjóðviljirsr> úr kr. 165,00 í kr. 195,00 eða um 18%, auk auglýs- ingagjalda. Þjóðviljinn hef- ur barizt móti verðhækkun- um, en það skipti ekki máli, þegar eigin pyngja á í hlut. Utan þess arna eru svo kennarar, sjómenn á bátum, opinberir starfsmenn og fleiri að fá kauphækkun á næstunni. FIPAST! Ráðherrarnir, sem fengust í að verja þetta þrjálæði, játa opinberlega, að þarna hafi þeim fipazt, en telja þó, án þess að roðna, að það komi ekki að sök!!! Þessir skrumar- ar sýna ekki aðeins óskamm- feilni og algjöra Iítilsvirðingu á almenningi, heldur hika ekki við að Ijúga því upp, að þessar svokölluðu ráðstafanir muni lækna öll þau mein, sem að þjóðfélaginu steðja! KOSNINGABRAGÐ Hve lengi ætla þeir Jóhann og Gylfi að halda þessum blekkingum áfram? Það er að verða hverjum manni Ijóst, að hér er um að ræða svívirðilegt kosningabragð, sem aldrei fær staðizt þegar á reynir. Þingmannaliðið samþykkir orðalaust hvert svikaloforðið á fætur öðru, bæði vegna flokksagans og svo vegna komandi kosninga. SVIK Það væri gaman að vita hvernig leiðtogum stjórnarinn- ar kemur í hug, að þetta geti blessazt án kaupbindingar. Að gera ,,ráðstafanir“ sem dæmd- ar eru til þess eins að verða kák vegna hræðslu við kosn- ingar er sama og að svíkja trúnað. Þar er núverandi ríkis- stjórn einskis manns eftirbát- ur. Fellir vailar- sjónvarpið Gylfa og Gröndal? Allur almenningur á Suðvest- urlandi er nú orðinn svo reiður þeim dr. Gylfa og Gröndai vegna varnarliðssjónvarpsbanns- ins, að til mála hefur komið, að láta það bitna á þeim í kosning- unum. Sú staðreynd að sjónvarp ið syðra sást-betur nm tíma nú á dögunum, hefur verkað eins og olía á falinn eld, enda hefur íslenzka sjónvarpið versnað geysilega síðustu tvö árin. Hafa margir ákveðið að sýna þeim félögum, sem komu lokunum til leiðar í tvo lieimana, og talað er um að mynda samtök, allra á- hugamanna, hvort heldur í flokki krata eða annarsstaðar, til að kjósa ekki þessa tvo. Kratar hafa engin efni á að fiktað verði með framboðslista þeirra, strikað út og atkyæði gerð ógild, því þeir standa. mjög höllum fæti. Sagt er að verið sé að undirbúa lista, sem fara á í gang eftir áramót. Óska íslenzks lauslætis Sænskar elliærar — íslenzkar lauslátar Ekki stóð lengi á því hjá Svíum, að auglýsa okkur sem sið- lausustu þjóð heimsins jafnframt því, að þeir tilkynntu að kvenfólk yrði elzt þar í landi. Ekki stóð heldur á árangrinum, ef dæma má eftir umsögn fréttaritara Tímans í Svíþjóð. Daginn eftir að sænsk blöð auglýstu, að 30% íslenzkra barna, sam- kvæmt hagskýrslum, væru óskilgetin, flykktust menn að ferða- skrifstofum í Stokkhólmi og spurðu um ferðirtil íslands, kostn- að etc., enda girnilegt að kynnast íslenzkum kvenkosti. Óbreytt sala á víni og tóhaki Þrátt fyrir hækkanir hefur ekki dregið neitt úr vín- og sigar- ettukaupum almennings, en eins og skýrt var frá hér í blaðinu, er þessi munaður mjög ódýr ef borið er saman við önnur Evrópulönd. Gallinn við íslenzka vínverðið er einungis sá, að ekki er gerður réttur verðmunur milli einstakra gæðategunda, heldur öllu sullað saman og ,,jafnað“ af áfengissölunni. Þetta er hinn mesti villimannaháttur, sem hvergi líðst nema hér, enda Gjá allir, jafnvel framleiðendur, að fyrirkomulagið er út í hött. Brugg í heimahúsum er svo til ekkert, og að vefja eigin sígar- ettur er næstum óþekkt. Gnótt fanga Er ljóst, að þessir sænsku frænd- ur okkar ætla sér að nýta hið frjálsa líf íslenzkra kvenna, sem mjög er rómað af ölliim þeim ferðamönn- nm, sem hingað rekast. Eru ýmsir „beztu og virtustu" danssalir stærstu hótelanna viðurkenndir vændisstað- ir og þar gnótt fanga fyrir þá, sem í nauðum eru. Okkar gjöld Það er, sem slíkt, ekki svo bölv- að að þetta orðspor fari af þjóðinni, og rauðsokkum hennar, heldur hitt, að saklaust karldýrið verður sí og æ að gjalda bolatollinn fyrir þá út- lenda sem hingað koma. Gjöldin með svokölluðum „einstæðum mæðrum", sem tryggingarkerfið greiðir þeim, ýtir auðvitað undir algjörlega taumlaust lauslífi þegar þær vita, að ríkið og borgin Ieika hlutverk ríka pabba, og það þykir ekki nema sjálfsagt að ógefin kona gangi í hjónaband sem óspillt mey. Fyrir þá, sem vilja eigna sér undan öðrum króana, er ekkert við að segja, en hvimleitt er þegar ein- mana menn auglýsa eftir mæðrum óskilgetinna til búíiags við sig, þótt auðvitað sé hér ekki átt við þær stúlkur, sem fráskildar eru éða ekkjur. Vafasamur uppruni Það má jafnvel telja vafasamt, að hinu opinbera leyfist að greiða upp- hæðir með hverju því barni sem fæðist og kallað er óskilgetið með- an sannleikurinn er sá, að þetta dót er komið undir frá hermönn- um, túristum, sem hér dvelja dag- langt eða dönskum starfshópum, sem vinna stundarkorn í Grænlandi og fá tannpínufrí á íslandi. Mórall —útgjöld Typiskt dæmi um móralinn er t.d. bréf til Vikunnar, sem er eftir „tvær óléttar" sem barnaðar hafa verið af sama manninum, vinkonur, sem nú telja upp raunir sínar fyr- ir sálusorgara blaðsins Þótt flestum sé nákvæmlega sama um þessar stelpur, þá horfir öðruvísi við þeg- ar almenningur á að fara að greiða fyrir næturgaman þeirra. Ekki bæt- ir úr skák þegar heil félög eru far- in að sjá dagsins ljós til aðstoðar fyrir þessar vesalings masður, og blöðin eru farin að taka alvarlega það einmuna kæruleysi, þótt mór- allinn sé ekki til umrseðu, sem þess ar varphænur sýna. Það eru útgjöld- in, sem á eru lögð, sem máli skipta, en ekki sá mórall, sem þessar hefð- arkonur, sem ekki mega heyra nokk urn álasa sér, valda okkur. Nízkur. Leikfang Mánudagsblaðsins

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.