Mánudagsblaðið - 09.11.1970, Qupperneq 5
Mánudagur 9. nóvember 1970
Mánudagsblaðið
5
TIL BIADSIIMS
Enn um Mallorca
Hr. ritstj.
Svo við erum lauslátar á Spáni.
Sei, sei. Eg vil segja að við séum
það og höfum ástæðu til. Þar eru
menn, sem kunna að umgangast
kvenfólk, kurteisir, ófullir og tala
utn alla heima og geima, hiæja og
dansa. Þá langar kennske í okkur
og okkur langar í þá! íslenzki karl-
maðurinn, úti og heima, er alltaf
fullur, þungur og slappur, drunga-
legur og kann ekki neina manna-
siði. Hann er vanur að vaða í hótel-
og dansleikjastóðið, innan um fullt
kvenfólk, flest af því í framhjá-
haldi eða dómgreindarlaust. Hann
er rasssíður, krumpinn og getur
ekki neitt þegar til framkvæmda
kemur, kauðast þetta eins og rúg-
mjölssekkur, fiktar og klúðrast, elsk
ar ekki heldur rymur og flýtir sér
að öllu eins og hann eigi Iífið að
leysa. Svo hrýtur hann og vaknar
til þess að seilast í flöskuna, sveitt-
ur og illa lyktandi. Þetta er úrvalið
okkar, þetta er draumurinn okkar
og þetta er það sem við verðum að
gera okkur að góðu heima. Eg og
nokkrar vinkonur lásum lýsingu
bréfritara ykkar í blaðinu, sem kom
hingað með síðustu flugvél. Við
höfðum það konunglegt í nótt og
„endurtökum þetta við fyrsta tæki-
færi" eins og einn Spánverjinn
sagði er hann fór í vinnuna í morg
un. í kvöld skiptir hann um föt
og hittir okkur. Þið þarna heima
getið slavrað ykkur á búlurnar,
svitnað og nuddað ykkur í þrengsl-
unum við barina. Verði ykkur að
góðu. Kondu hingað sjálfur.
Happy í Mallorka.
(Leyndu nafninu, for Helvede).
Þakka gott boð, heji aldrei kom-
ið þangad. Þessi tegund karlmanna
er okkur ókunn, þó lýsingin kunni
að vera sönn í sumum til.fellum.
Gott er að þið erum ófeimnar að
segja ykkar meiningu, og við þegj-
um um nöfnin. Kynni ykkar af
landanum er heldur hvimleið, en
ekki berum við hann saman við
spanskan gigoló, brúnan og sœtan.
'Sízt skal öfunda ykkur af því þó
þið skemmtið ykkur, en þið verðið
að muna, að þessi bréfadálkur lýsir
skoðunum einstaklinga en alls ekki
blaðsins. En samkvcemt opinberum
skýrslum, þá gildir ekki þetta nátt-
úruleysi um alla.karlmenn, ef dcema
á eftir áratigrinum. Ritstj.
Keflavíkursjón-
varpið
Hr. ritstjóri.
Það var af hreinni tilviljun, að
ég greip niður í blaði yðar og las
grein eftir Kakala um varnarliðs-
sjónvarpið. Þar er ég yður sam-
mála og ættuð þér að hafa birt fleiri
greinar um þetta efni og hjákát-
lega afstöðu ríkisstjórnarinnar. Við
hér við Faxaflóann erum mjög undr
andi yfir, að Iokað er fyrir sjón-
varpið syðra, eins og þér kallið það,
því við hlustum á útvarp utan úr
heimi og frá Keflavík að vild, en
mér skilst að Vallarsjónvarpið sé
bannað vegna þes sað það sé á ensku
en sama gildi um útvarpið þaðan
og allur „átóður" alveg í sama stíl,
ef þá er um áróður að ræða. And-
stæðingar sjónvarpsins gætu vel lok
að fyrir það, ef þeir fyndu að þeir
væru að veikjast á ættjarðarástar-
svellinu, en við hinir, sem eru ekki
verri íslendingar þolum vel banda-
ríska gamanþætti og önnur „show"
þaðan að sunnan. Eg mun kaupa
blaðið yðar allt af hér eftir, en hefi
ekki gert það til þessa. Með þökk.
Frjálslyndur.
Það er okkur dálítið undrunar-
efni, að til skuli vera menn, sem
EKKI hafa séð blaðið okkar, en
auðvitað tökum við slíkum „Mav-
erics" (frávillingum, bréfið að ofan
er skreytt allskyns útlendum orð-
um, sem við sleppum m.a. maveric)
með mestu áncegju og bjóðum þá
velkomna í hópinn fjölmenna. Til
upplýsinga má geta þess, að síðan
Gylfi og Gröndal skrúfuðu fyrir
vallarsjónvarpið, hefur blaðið marg
sinnis, árangurslaust rcett þetta mál
og ofbeldi fámennrar klíku í þessu
sambandi. — Ritstj.
Svik blaðsins
Hr. ritstjóri.
Þú er furðulegur maður. í vor
skrifaði ég þér og bað um greinar á
móts við Raquel Welch-flokkinn
og bréfið var birt og lofað bót og
betrun. Ekkert hefur verið efnt í
þá átt, en hinsvegar birt japl af
þjóðsögum, sem aðeins fáir hafa
áhuga á, en þessu nútímaefni
sleppt. Það hljóta að finnast viðtöl,
sem þýða má um frægt fólk, því
gaman er að lesa skoðanir þess á
lífinu og máefnum dagsins. Hvort
ein kerling hefur verið fjölkunnug
eða Vestfirðingur seiðskratti hinn
mesti skiptir minna máli og má
lesa það í hinum fjölmörgu þjóð-
sögubindum og Mbl. Það er ástæðu-
laust að lofa svona og svíkja það
svo, er ekki satt. — Sárreiður.
Satt að vísu Þó var ekki beinlínis
lofað greinum a la Welch-greinina,
en hins vegar lofað skyldu efni.
Blaðið hefur birt ýmsar nútíma-
greinar t.d. Mafíu-greinina, en játar
að efrtdir hafa verið minni en til
stóð. Varðandi þjóðsögur er það
að segja, að í dag eru þcer í lengsta
lagi, enda verið að klára frásögn af
Eiríki í Vogsósum, en þcer verða nú
styttar mjög í ncestu blöðum og
stundum sleppt. Þcer greinar af
hinu taginu, sem til eru, verða birt-
ar á ncestunni og í stcerri stíl að
loknum jólum. — Ritstj.
Kakali og ránin
Hr ritstjóri.
Þakka mikið Kakala-greinina í
blaðinu síðast um mannrán og flug
vélarán, og þcer umbcetur, sem höf-
undm stingur upp á. Þó þessi atvik
séu fjarri okkur, þá geta þau hent
hér sem víðar og ef rán af þessu
tagi fara að aukast í Evrópu verð-
ur ekki langt að bíða að að okkur
komi. Hart þarf að mceta hörðu um
það deilir enginn. Aðeins eitt vant-
ar, að einhver þjóð eða yfirvöld
refsi þessum bandíttum harðlega.
Þá hverfur þetta.
S. Jóhannsson.
liV UIVXU
ÍBÚÐIR TIL SÖLU
í HÁHÝSI VIÐ ÆSUFELL í BREIÐHOLTI IÍT
Húsið er staðsett í jaðri hins nýja hverfis með fögru útsýni yfir borgina og nágrenni.
nrms* rnnltOH * IIU
SÖLUVERÐ:
2ja herb. 65,5 ferm. Kr. 915.000,00
3ja herb. 95 ferm. Kr. 1.235.000,00
3ja—4ra herb. 102,5 ferm. Kr. 1.335.000,00
4ra—5 herb 117, ferm. Kr. 1.480.000,00
íbúðirnar eru seldar fullfrágengnar. Einnig verður öll sameign að fullu
frágengin með teppum á stigum og göngum. Sérgeymslur og frystihólf
eru í kjallara. Lóð verður fullfrágengin. Lyfta af fullkominni gerð. Húsið
er 8 hæðir og af þakgarði þess má njóta hins fagra útsýnis, sem hvar-
vetna basir við. Væntanlegir kaupendur eru beðnir að hafa samband
við skrifstofu okkar, þar eru til teikningar til sýnis og líkan af húsinu.
Breiðholt hf.
Lágmúla 9 — hús Bræðurnir Ormsson,
— gengið inn frá Háaleitisbraut. Sími 81550.
v .