Mánudagsblaðið - 22.02.1971, Síða 3
Mártudagur 22. teötfer f933t
3
■iiri>iiiMMni<arwaiÉM»rMM»-áiniri>n-li'riii' ii mlfni—
FURÐUHEIMAR:
TRÚIRÐU ÞESSU
Veiztu sögu
spilanna?
Að spila á spil byrjaði sem
dægradvöl karlmanna einna sam-
an. Kínverjar fundu upp pappír-
inn og síðan pappírspeninga fyrir
um 20 öldum síðan, en síðan fundu
þeir upp spilin úr pappír og fjór-
ar „sagnir" eða sortir og svo númer
fyrir fjárhættuspil. Kínversku spil-
in komu til Evrópu um árið 1300,
og við spilanúmerin bættust brátt
spilamyndir, sem sýndu menn,
kónga, riddara og gosa, en engar
drottningar. Eins og búast mátti
við voru það Frakkar, sem loksins
komu kynþokkanum í spilin. Hin-
ar fjórar „dömur" þeirra — les
dames — eins og þær eru kallaðar
í Frakklandi — urðu viðurkenndar
í Evrópu. Samt sem áður sættust
ekki öll lönd á drottningar. Spán-
verjar vildu ekki sjá drottningar
og árangurinn er sá, að Spánvarjar
og í Rómversku Ameríku spila
menn enn þann dag í dag á spil,
sem í eru aðeins karlmenn. Þess er
vert að geta, að uppáhaldsspilið
þeirra, eftir 400 ár, heldur áfram
að vera karlmannaspilið „Hombre".
Þátttakendur eru aðeins þrír karl-
menn, en einn þeirra er E1 Hombre
(Maðurinn) og spilar gegn hinum
tveim.
í Austurlöndum þar sem kvenna
búr voru og eru í meira áliti en
drottningar, þá hefur t.d. Indland
enn hin kringlóttu Hindu-spil. Þau
eru tölusett frá 1—1Ó og hafa að-
gin tvö mannspil: Kóng og vizier
eða forsætisráðherra.
Mean með
kattaraugu
Fólk með kattaraugu eða endur-
skinsaugu er sjaldgæft, en samt nóg
til þess, að sanna að mannleg augu,
eins og kattarins, geta skinið eða
lýst í myrkri. Augnaskin er í senn
vel skiljanlegt og dularfullt. Það
kveikir ekki í sér sálft, þótt þeir,
sem stóðu að galdraofsóknum á
miðöldum, héldu að kettir gætu
látið augu sín skína að vild —
verandi dýr djöfulsins. Endurskins-
augu varpa aðeins aftur Ijósi, sem
beint er að þeim Venulega kemur
endurskinið frá sellu-þili sem er í
aftasta hluta augans. Þetta lag er
kallað tapedum eða „bjarta teppið"
af vísindamönnum. Samt sem áður
hafa sum dýr, sem í eru augu sem
skína, enga tepetum eða endur-
skinsefni, og það er hreinlega ekki
vitað af hverju þau lýsa. Maðurinn,
ásamt nokkrum tegundum fugla,
fiska og snúka, fellur í þennan hóp
sem ekki fæst skýring á. Þessir
■ dularfullu menn og konur, sem
hafa glóandi augu má þekkja út úr
með því að fylgjast með geisla,
sem beint er í augu þeitra.
Gómsæt
hýsnusúpa
Að ala og fita hýenur er listgrein,
sem ekki hefur verið í mikilli eftir-
spurn síðustu 4000 árin. Myndir á
veggjum gamalla grafa í Egypta-
landi sýna þó hvernig þessi list var
framin. Það þurfti tvo karlmenn
til að inna þetta verk af hendi.
Annar hélt lifandi hýenu á bak-
inu en fætur hennar voru bundnar
saman. Hinn maðurinn hélt hausn-
um í kjöltu sinni, milii hnjánna,
greip um hálsinn með hinni, en
með hægri hendinni tróð hann
litlum, steiktum kjúklingum í gap-
andi gin hýenunnar unz hún varð
bókstaflega stútfull af þessum mat.
Þegar þessi tegund matgjafar var
endurtekin slag í slag, þá fitnaði
hýenan og fitnaði. Þá var hún drep
in, matreidd og étin. Þetta var auð
vitað allt of dýrt fyrir almúgan,
en „ali-hýenur" urðu afbragðsmat-
ur sem sómdi ágætlega sjálfum
Faraóunum. Það er dýrafræðingum
ekkert undrunarefni, að hýenunni
gæti verið haldið kyrri svona lengi
meðan troðið var ofan í hana. Þeir
vita, að ef hýenum er náð ungum
eða fæddar í dýragörðum, þá eru
þetta meinlaus, ástrík kjöltudýr.
En hýenur eru líka mathákar, eilíft
hungraðar. Þegar þær eru villtar
þá éta þær allskyns skrokka þ. á m.
mannahræ, sem þær grafa upp úr
kirkjugörðum. Fyrir skömmu náð-
ist hýena, sem var að leita sér að
æti kringum fornleifafræðinga við
gröft í Palestínu. Verkamennirnir
bundu skjótt enda á æfi hennar og
innan skamms var hún orðin að
hinni ljúffengustu hýenu-kássu.
Örlög
skriðdrekanna
Vegir skriðdrekanna eru órann-
sakanlegir, og svo er um vopn,
sem framleidd eru í Bandaríkjun-
um. Fimm Sherman-skriðdrekar frá
síðustu heimsstyrjöld voru notaðir
af hernum í Uganda um daginn
þegar hann rak Milton Obote, for-
seta frá völdum. Hvernig. komust
þeir þangað? Jú, í upphafi vega
sinna voru þeir gjöf til Rússa í
stríðinu, á vegum láns- og leigu-
samninganna, en síðar voru skrið-
drekarnir sendir Egyptum að gjöf
frá Rússum. ísraelsmenn hertóku
skriðdrekana í sex daga stríðinu við
Egypta. Eftir að þeir höfðu verið
standsettir, þá voru þeir sendir til
Uganda sem vopnaaðstoð ísraels-
manna til Uganda. Hvar sjást þeir
næst?
Aðeins fyrir
Júða
ísraelsbúar eru ákaflega fýknir í
að ná til sín lærðum mönnum er-
lendis frá, einkum Ameríkana. Á
síðasta ári tókst þeim að hreppa
1200 verkfræðinga og tæknimennt-
aða menn og 700 lækna, mest frá
Bandaríkjunum. Á þessu ári, 1971,
hafa þeir lagt til hliðar 1.5 millj-
ónir dollara til að næla sér í fimmt
án vísindamenn, sem innflytjendur.
Allir verða þeir að vera gyðingar
og allir fá þeir, utan.Iauna sinna,
eitt hundrað þúsund dollara fyrir
starfsfólkið og áhöld í vinnustofur
sínar.
Mánudagsblaðið verður að gera þá játningu, að það hefur engan franibcerilegan balletgagnrjnanda, þótt
öll hin blöðin hafi hámenntaða sérfrceðinga í þeim efnum. — Myndin að ofan er af þeim Helga Tóm-
assyni og Elizabeth Carroll, ballettdönsurunum sem hér voru um síðustu helgi og hrifu hug allra er þau
sáu dansa á sviði Þjóðleikhússins. Má fullyrða að þetta er með beztu og áncegjuríkustu listviðburðum
hér um langt skeið.
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda
Er umferðarráð óþörf stofnun?
Umferðarráð var sett á stofn me
reglugerð, útgefinni af dómsmála-
ráðherra 24. janúar 1969. Var ráð-
ið sett á stofn í beinu framhaldi af
starfsemi framkvæmdanefndar
hægri umferðar, sem lét formlega
af störfum sama dag. Lög um ráð-
ið voru samþykkt af Alþingi í
maí 1970. Verkefnr háðsins hafa
verið fjölbreytt.
Meðal annars:
1. Athugun á umferðarfræðslu í
skólúm.
2. Styrkur til Ríkisútgáfu náms-
bóka vegna útgáfu kennslubókar
um umferðarmál fyrir 7—9 ara
skólabörn.
3. Útgáfa á fræðslubæklingi
handa 7 ára börnum „Leiðin í skól-
ann".
4. Jólagetraun fyrir 7—12 ára
börn, sem sent var til 30 þúsund
barna, ennfremur spurningakeppni
meðal 4 þúsund barna frá-119 skól-
um.
5. Umferðarfræðsla fyrir börn
undir skólaskyldualdri „Ungir veg-
farendur". í þessum skóla eru inn-
rituð 13 þúsund börn í 20 sveitar-
félögum.
6. Umferðarfræðsla í Ríkisút-
varpi.
7. Ljósaathugun bifreiða.
8. Reiðhjólaskoðun.
9- Upplýsingamiðstöð í samvinnu
við lögregluna um verzlunamanna-
helgarnar 1969—1970.
10. Útgáfustarfsemi á Ökumann-
inum.
11. Fræðsla um giidi öryggis-
belta.
12. Áróður um notkun endur-
skinsmerkja.
13. Athugun á hættulegum veg-
ræsum.
14. Slysarannsóknir ásamt mörg-
um öðrum verkefnum.
.Samkvæmt f(járhagsáætlun ráðs-
ins fyrir árið 1971 var áætluð fjár-
þörf 6.8 milljónir króna.
í Alþingi var ákveðið að veita
ráðinu 900 þúsund krónur. Með
þessu er látið það álit í Ijós, að
Umferðarráð sé gagnlítið og öll
starfsemi þess lögð niður að mestu.
Hér hafa greinilega átt sér stað
mikil mistök og er það lágmarks-
krafa, að af þeim hundruðum millj-
óna króna, sem ríkisvaldið tekur af
umferðinni í tolla, sé haldið uppi
lágmarks umferðafræðslu fyrir al-
menning, er þegar hefur sýnt að
skilar margföldum hagnaði fyrir
þjóðina í heild.
Ótrúlegt er, að Alþingi meti ör-
yggi vegfarenda svo lítils, að 6.8
milljónir króna sé of mikil fjár-
festing til að koma í v gefyrir slys.
. . FÍáÚI?«^ÍÞingis til Umferðr
arráðs árið 1971 var 900 þúsund
krónur, eins og-áður er getið.: Árið
1969 var áætlað, að kostnaður
vegna slysa væri 330 milljónir
króna eða rúmar 27 milljónir króna
í hverjum mánuði eða daglega 900
þúsund krónur.
F. I. B. skorar á Alþingi að veita
Umferðarráði nægilegt reksmrsfé
úr ríkissjóði og með því leggja sitt
af mörkum til að tryggja líf og
limi borgaranna.
BENZÍN0KRID
Á ÍSLANDI
Gerð hefur verið athugun á benzínverði til neytenda á Norðurlönd-
um í samanburði við íslands. Miðað er við verð í október 1970.
Til þess að slíkur samanburður sé raunhæfur, vegna mismunandi
lífskjara, þá er miðað við verkamannalaun, eins og þau gerast hæst
í þessum löndum og hvað það tekur langan tíma fyrir verkamanninn
að vinna fyrir einum benzínlítra.
Hér er gerður samanburður á oktantölu, söluverði miðað við gengi,
verkamannalaun og verði breytt í vinnustundir:
TOXhiMtuCr.M-tO
UuchWnðe
urOtn fur
m neuen Kletötr
%a charman? *«*rtn
Kostumc
:.nge n,cM mtf*
Sítfí-tCmíiltr
Oktan- Sölu V erkamanna- Verði benzín- lítra breytt í
tala verð laun hcest (ísl. kr. vinnustundir
ísland . . . . ... 93 13,30 89,50 8,1 mín.
Noregur , .. 92 15,86 194,70 4,9 —
Svíþjóð ... 94 14,97 239,20 3,8 —
Danmörk . ... 93 15,86 198,90 4,4 —
Hér kemur í ljós að verkamaðurinn á íslandi, er 8,1 mínúm að
vinna fyrir einum benzínlítra í samanburði við sænska verkamanninn,
sem er ekki nema 3,8 mínútur, danski verkamaðurinn 4,4 mínútur og
norski verkamaðurinn 4,9 mínútur. Ef þessu er breytt í prósentur, þá
kemur í ljós, að benzínverði á íslandi er 65,3% hærra en í Danmörku,
84,1% hærra en í Noregi og 113,2% hærra en í Svíþjóð.
I