Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 27.09.1971, Síða 8

Mánudagsblaðið - 27.09.1971, Síða 8
ÚR EINU« ÍANNAÐ Áhugaverð mynd í Háskólabíói Kvenfólk í áfengisbúðunum — Hann sr. Árelíus — Slysahætta af flutningabílum — Rauðsubbur og „réttindin“ — Hross við þjóðvegi — Spennandi sjónvarpsþáttur. MENN HAFA tekið eftir því hve miklu konur fjöimenna meira í innkaupaferðir í áfengisútsölurnar en áður. Þá þótti nýlunda ef kvenfólk kom inn, en nú eru þær oft fjölmennari en karl- menn á sumum tímum dags. Þarna kunna dúfurnar litlu vel við sig, þær eru jafningjar karlanna, og eiginlega enginn munur á kynjunum nema sá, að þær koma oft með blessuð börnin sín á staðinn, enda eru þau viðskiptavinir framtíðar- innar. Það lyftir sannarlega upp á andrúmsloftið þegar þessar ungu og fallegu dömur mæta þar sem áður var einveldi karl- dýrsins. „MIKIL HELVÍTIS afköst eru þetta hjá sr. Árelíusi" segir í smápistli sem okkur barst „þótt þetta sé sennilega ekki rétt komizt að orði. Sannleikurinn er sá, að maður varla opnar blað, að ekki rekist maður á grein eftir klerk, og þau eru mörg vandamálin sem hann brýtur til mergjar; þó kastaði tólfunum þegar hann byrjaði að skipta sér af akstri og slysum, því þar voru fátt annað en fullyrðingar og slagorð. Slys eru að vísu ískyggileg en ef prestarnir okkar ætla nú að færa úr verksvið sitt í svona mál, þá er einum of langt gengið. Sr. Árelíus er eflaust góður maður en alltof fjölþreifinn í efum, sem kirkj- unni koma ekki við . . .“ •---------------------- SLYS HEFÐI getað orðið á nýja veginum upp Ártúnsbrekkurn- ar er stór steinn, hreinn hnullungur.féll aftan af bílpalli á leið upp brekkuna og veltist,svo áfratn. niður yeginn. Umferð var lítil en a. m. k. einn bílstjóri varð að vinda bíl sínum út á kant til að fá ekki bjargið framan á sig. Það er orðið stór- hættulegt hvemíg sumir bhstjóranna hlaða bifreiðir sínar og gæta þess jafnan ekki að hafa einhver ,,hlið“ á afturpalli sín- um svo ekki detti af steinar eða möl. Auðvitað tekur lögreglan ekki neitt tillit til þess arna, því hún sinnir ekki svona málum nema slys verði. Fín afstaða það. SAMKVÆMT bandaríska fjármálablaðinu Wall Street Journal, þá eru enskar Rauðsokkur farnar að endurrita ýms æfintýri, sem þær telja að hallað sé á rétt kvenmanna. T. d. hefur nú Mjallhvítaræfintýrið verið „endurskoðað" og segja Rauðsubb- urnar, að engin stúlka með snefil af metnaði, eins og Mjallhvít, léti sig hafa það að þvo upp fyrir sjö karlmenn —jafnvel hina dásamlegu dverga. Og hvernig fer Mjallhvít okkar út úr þessu? Jú í lokin er hún byrjuð að þræla í námunum, ásamt prinsinum sínum og dvergunum sjö. ÞAÐ ER undarlegt hve mikið af hrossun, ungum og gömlum, eru alltaf á flækingi meðfram þjóðvegunum. Þessi hross valda oft töfum og það sem verra er geta valdið stórslysum er þau hlaupa upp á vegina. Hross.aeigendur t. d. við Þingvalla- veginn ættu að hemja þessa gripi innan girðingar því þess eru og mörg dæmi, að hestar hafa slasazt og verið aflífaðir vegna árekstra við bíla. Þessir gripir kosta; nú allt upp í kr. 50 þúsund og ætti að vera auðvelt að koma þeim á öruggt beitarland fyrst siík efni eru fyrir hendi. ÞAÐ ER oft spennandi að fá „dagskrá næstu viku" sjón- varpsins. En þó halda menn, að fátt ef nokkurt efni hafi valdið eins mikilli spennu og þáttur sá, sem sýndur er 24. september: „Finnmerkureyjan Loppa. Mynd um litla eyju við strendur Norður-Noregs, þar sem ibúarnir lifa af landsins gæðum og stunda meðal annars hellutekju til þaklagningar. Nordvision — Norska sjónvarpið". Þetta er sennilega heims- met af öllu því rusli sem Nordvision sendir hingað og hungr- aður dagskrárstjóri okkar gleypir við. Maður er farin að skilja þetta mánaðarfrí starfsfólksins ár h.vert. Það er að lieita má algjör undan- tekning að sjá fallega mvnd nú til dags. Eins og myndin „Coogan’s bluff" í Laugarásbíói er hrottaleg og beint að því einu að-espa upp unglinga, þá er myndin í Háslcola- bíói gerð í þveröfugum tijgangi. Hún leitar til betri tilfinninga á- horfandans, ef þá æskan í dag bvr yfir einhverju slíku. Þessi mynd, Ástarsaga, er falleg og ákaflega vel gerð lýsing á ást tveggja unglinga í skóla og fylgir þeim síðan að prófi Ioknu, hann verður lögfræð- ingur, þann stutta tíma sem }:>au eiga eftir að vera saman unz hún deyr. Margir myndu halda, að þetta væri eins konar táratragedía, lang- dregin þvæla um óréttlæti guðs að kalla svona unga, fríska og ham- ingjusama stúlku burtu á hátindi hamingjunnar. Því fer þó víðs fjarri. Mestur hluti myndarinnar er skemmtileg lýsing á hamingju Ali MacGraws og Ryan O'Neals, ósköp venjulegir atburðir, dagsstritið þeirra og rifrildi, vonir og erfið- leikar, einkum milli þeirra feðg- ana. það er ekki aðeins sjaldgæft að sjá mynd um æskufólk þar sem ekki öll áherzlan er lögð á kyn- æðið eðá afbrigði þess né heldur glögglega lýst yfir, að æskan geti yfirleitt ekki hreyft sig nema undir áhrifum eiturlyfja, að svona mynd er eins og sólskinsgeisli eftir ský- fal 1. Efnið er ósköp einfalt og hversdagslegt, en þó svo vel unnið úr því, að athygli áhorfandans er óslitin frá upphafi. Leikur Mac- Graws og O’Neals er mjög heill- andi, einknm hennar, sem sýnir alveg útrúleg tilþrif og þó bezt í giftingaratriðinu og bæði vinna þau stöðugt á út myndina, þótt hvorugt þeirra búi yfir þeim stand- ard kröfum um fríðleika manns eða konu, sem glansmyndamagazine gera í þeim efnum. Þá er og gam- an að sjá Ray Milland, snillinginn úr Lost Weekend sköllóttann í hlutverki föðursins. Ég fer ekki oft í bíó, orðinn alltof heimsvanur og vissi reyndar löngu á undan sænskum kvik- myndaiðnaði, að konur og karlar hefðu kynfæri og að þessi tól héldu lífinu gangandi í henni veröld, og þetta er síður en svo sagt vegna siðferðiskenndar eða hneykslunar. En ég benda fólki á að skoða þessa mynd. Hún svíkur ekki nokkurn og meira segja ætti að vera mörgum kærkomin tilbreyting frá hinu ei- lífa tema um kynóra, eitur og ann- að álíka. — A. B. Vonbrigði i Laugarásbíói Hann er töff hann Clint East- wood, kunnur úr „dollara-myndun- um" og ekki lætur hann sig þegar honum er att til New York-borgar alla leiðina frá Arizona, þar sem hann eltir glæpamenn .og útlaga sem lögregluaðstoðarsheriff og hoppar upp á einmana eiginkonur meðan bænchir eru fjarverandi. Eins og margir Arizona-búar gera þá fer hann í þetta ferðalag sitt klæddur háhæluðum stígvélum og Stetson-hatti, en þetta er stand- ard íverudót cowboyhetja kvikmynd anna. Eastwood (Coogan) er vart fyrr kominn til New York, en hann lendir upp á kant við Lee J. Cobb (McElroy) lögreglurannsóknara stórborgarinnar, enda ferst honum geysiklaufalega í eltingarleik sínum við glæpamanninn Ringerman (Don Stroud) er rotaður og nær drepinn þegar hann ætlar að fljúga með fanga sinn heim. Eftir þetta er Eastwood ýmist í ástaratlotum við Júlíu (Susan Clark) eða hálf- slasaður á spítala og svo skemmti- lega óskammfeilinn, að hann nær sambandi við eins konar viðhald Ringermans Linny (Tisha Sterling), sem síðan teymir hann á billiard- stofu þar sem enn einu sinni dregur til stórslagsmála, eins harðneskju- Framhald á 6. síðu. Mikið reykt í veröldinni! — Nokkrar USA staðreyndir Eftirfarandi listi er tekinn úr Marketing/Communications og sýnir að ekki er litið reykt í úttlandinu, þótt víða sé bannað að auglýsa tóbak í sjónvarpi. Það er talin staðreynd, að auglýs- ingar eða bann við þeim þreyta engu um neyzluna en hafa mest áhriif á hvaða tegundir menn reykja. Sígarettuauglýsinga- bann verður um næstu áramót og gaman væri ef einhver stofnun rannsakaði hve mikið dregur úr neyzlunni. Neyzlan á íslandi er meðtalin í þessarri töflu. Þá geta menn líka gert sér Ijóst að aðeins amerískar sígarettur eru á þessum lista. Filter 1. WINSTON 2. Malboro 3. Kent 4. Viceroy “5. L&M Menthol Filter 1. Salem (Reyno sumstaðar) 2. Kool Venjulegar 1. CAMEL 2. Lucky Strike 79.740.000.000 43.610.000.000 28.100.000.000 19.290.000.000 16.000.000.000 43.990.000.000 33.730.000.000 32.690.000.000 18.020.000.000 King-stærð 1. Pall Mall 2. Chesterfield Framleiðendur 1. R.J. Reynolds 2. American Tobacco 3. Brown & Williamson 4. Philip Morris 5. P. Lorillard 6. Liggett & Myers 50.000.000.000 7.220.000.000 166.230.000.000 109.470.000.000 81.570.000.000 78.460.000.000 47.690.000.000 35.690.000.000 Nýstárleg keppni: Bahama- og Mallorca- ferðir verða verðlaun Winston—Kóróna keppnin á vegum R. Johansen & Co Okkur barst í hendur eftirfarandi bréf sem Rolf Johansson & Company hefur sent kaupmönnum. Ber ekki að efa að margir hafa geysilegan áhuga að vinna dvöl á Bahamaeyjum eða Mallorca, eða hljóta einhvern annan vinning. Nýmæli er að kaupmaðurinn fær einnig sinn vinning, dvöl í Höfn og verður skemmtileg keppni milli kauphéðna að viðskiptavinir þeirra tþki þátt í þessarri framtakssemi fyrirtækisins og síga- rettuframleiðendanna. Við birtum bréfið næstum í heild. Heiðraði kaupmaður. Innan skamms hefst hér á landi svonefnd „WINSTON-kórónu keppni." Verður þar keppt um verðlaun, sem telja má óvenju glæsi leg 1. Flugferð fyrir 2 til Bah’amaeyja 17 dagar. 2. Flugferð fyrir 2 til Mallorca 14 dagar, auk 100 aukavinninga. Dvalið verður á 1. flokks hótel- um og allur kostnaður innifalinn auk dagpeninga. Enginn vafi er á,að þessi keppni mun laða til yðar fjölda viðskipta- vina, því að marga mun fýsa að verða sér úti um keppnisseðil, vegna þessara glæsilegu verðlauna. WINSTON er sú sígarettuteg- und,_sem mestra vinsælda nýtur í Ameríku og nýtur sívaxandi vin- sælda hérlendis. Keppnin verður kynnt í dagblöðunum. Loks skal þess getið, að kaup- manni þeim, sem afhendir seðilinn, er iyrstu verðlaun hlýtur, verða veítt sérstök verðlaun, en þau eru: Flugfar fyrir 2 til Kaupmanna- hafnar ásamt vikudvöl á 1. floklcs hóteli. Munið að merkja hvern keppnis- seðil, sem þér afhendið, nafni verzl- unarinnar. Dómnefnd sker úr um beztu lausnirnar. Með fyrirfram þökk fyrir góða samvinnii. ROLF JOHANSEN & COMPANY. S. 36840 — 378S0.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.