Tíminn - 12.07.1977, Qupperneq 20
20
Þriöjudagur 12. júll 1977
Skagamenn
áttu ékki
í erfiðleik-
ummeðÞór
og unnu öruggan sigur
(2:0) uppi á Skaga
Skagamenn áttu ekki i erfiðleik-
um með Akureyrarliðiö Þór á
Akranesi — unnu stórsigur 3:0 í 1.
deildarkeppninni. Skagamenn
tóku leikinn strax i sinar hendur
og hefðu hæglega getað unnið
stærri sigur, ef þeirhefðu fullnýtt
hin mýmörgu tækifæri sem þeir
fengu.
Pétur Pétursson opnaöi leikinn,
með þvi að skora örugglega af
stuttu færi á 29. minútu. Jón
Alfreðsson skoraði siðan stór-
glæsilegt mark á 68. min. þegar
hann kastaöi sér fram og skallaði
knöttinn i mark Þórsara, eftir að
Kristinn Björnsson hafði átt góða
sendingu fyrir mark Akureyr-
inga. Pétur bætti siðan þriðja
markinu við á 80. min. — einnig
skalla, eftir aukaspyrnu frá Arna
Sveinssyni.
Skagamenn léku oftágætlega —
og er greinilegt að þeir ætla sér aö
endurheimta Islandsmeistaratit-
ilinn. Jón Alfreðsson var mjög
góður á miöjunni — ávallt á ferð-
inni, byggjandi upp sóknarlotur.
Arni Sveinsson átti góða spretti
og einnig Pétur Pétursson. Jón
Gunnláugsson er alltaf traustur i
vörninni hjá Skagamönnum.
Þórsarar voru mjög daufir —
vantaði alla bíiráttu I leik þeirra.
Þeir verða heldur betur að taka á
honum stóra sinum, ef þeir ætla
aðforða sér frá fallinu, sem blas-
ir við þeim:Gunnar Austfjörð lék
ekki meö þeim — og munaði um
minna.
MAÐUR LEIKSINS: Jón
Alfreösson,
ÖRN ÓSKARSSON...sést hér skora mark KR-inga gegn Breiðabliki -
markverði Blikanna.
fram hjá Ómari Guðmundssyni,
(Tfmamynd Gunnar)
Gísli varði víta-
spyrnu frá Heiðari
en það dugði KR-ingxim ekki gegn Breiðabliki.
Peir voru óheppnir og töpuðu 1:2
Gisli Gislason, markvörður KR
liðsins, sýndi glæsileg tilþrif, þeg-
ar hann varði vítaspyrnu frá
Heiðari Breiðfjörð á Laugardals-
vellinum á sunnudagskvöldið.
Þetta dugði KR-ingum skammt,
þvi aö þeir máttu sætta sig við tap
vind- og regngallar
fyrir göngu- og íþróttafólk
— 1:2, og er KR-liðið nú komið I
alvarlega fallhættu I 1. deildar-
keppninni i knattspyrnu.
KR-ingar byrjuðu leikinn af
fullum krafti og réöu þeir gangi
leiksins i fyrri hálfleik, sem þó
gekk ekki stórslysalaust hjá
þeim, þvi að þeir máttu hirða
knöttinn úr netinu hjá sér eftir 12
minútur, og þvilíkt klaufamark,
sem þeir fengu á sig! — Hinn
bráðefnilegi miðvörður Breiða-
bliks, Valdimar'^Valdimarsson,
tók þá aukaspyrnu á sinum eigin
vallarhelmingi og spyrnti
knettinum fram völlinn. Knöttur-
inn flaug inn f vitateig KR-inga,
þar sem Gisli Gislason, mark-
vörður Vesturbæjarliðsins, hugö-
ist handsama hann — Gisli náði
ekki knettinum, sem fór á milli
handanna á honum og hafnaði i
markinu fyrir aftan hann. Mjög
klaufalegt hjá honum, en hann
réði ekki við hálan knöttinn — og
aukaspyrnan frá Valdimari, af 55
m færi, var áfall fyrir KR-liðiö.
Þráttfyrir þetta mótlæti gáfust
KR-ingar ekki upp — þeir sóttu
stift og örn Óskarsson náöi aö
jafna (1:1) fyrir þá á 38. minútu,
þegar hann komst einn inn fyrir
vörn Blikanna, eftir að Vilhelm
Fredriksen hafði skallað knöttinn
til hans — örn renndi knettinum
örugglega fram hjá ómari Guð-
mundssyni, mark’.'erði Breiða-
bliks.
Gisli ver vitaspyrnu
Blikarnir voru mun liflegri
heldur en KR-ingar i siðari hálf-
leik og fengu þeir vitaspyrnu á 5.
min. þegar Ottó Guðmundsson
stjakaði við Hinriki Þórhallssyni
inni I vitateig. Heiðar Breiðfjörð
tók vitaspyrnuna, en Gisli Gisla-
son, markvörður KRliösins, gerði
sér litiö fyrir og varöi glæsilega.
Þoka í
Keflavik
— þegar Keflvikingar og FH-ingar
gerðu jafntefli, 0:0
Það sló þoku yfir i Keflavik,
þegar Keflvikingar og FH-ingar
mættust þar i 1. deildarkeppninni
I knattspyrnu I tilþrifalitlum leik,
sem lauk með jafntefli 0:0.Um
tlma sást ekki á milli markanna
vegna þoku — en það kom ekki að
sök, þar sem þokan stóð stutt yfir.
Leikur liðanna var mikill
baráttuleikur og einkenndist
hann af miðjuþófi — þær fáu
hættulegu sóknarlotur, sem liöin
náðu, stöðvuöust á markvöröum
liðanna, þeim Þorsteini Bjarna
syni hjá Keflavik og FH-ingnum
Þorvaldi Þóröarsyni, en þeir tóku
þá bolta, sem komu að marki.
GIsli Torfason átti stórleik hjá
Keflavikurliöinu og var sem
klettur I vörn Keflvikinga — FH-
ingar báru óttablandna virðingu
fyrir þessum sterka miðverði,
sem var 1 essinu sinu. Óskar
Færseth og Þorsteinn Bjarnason
áttu einnig góðan leik. Hjá FH-
ingum bar mest á miðvörðunum
Janusi Guðlaugssyni og Gunnari
Bjarnasyni, sem voru mjög
sterkir i loftinu — hirtu alla
skallabolta. Helgi Ragnarsson
var liflegásti framlinumaður FH-
liðsins.
Maður leiksins: GIsliTorfason.
Blikarnir gerðu út um leikinn á
80. min., þegar Valdimar Valdi-
marsson skoraöi örugglega af
stuttu færi, eftir mikla pressu að
marki KR-liösins — og þar með
gulltryggði þessi ungi og efnilegi
leikmaður Blikunum sigur, en
KR-ingar sátu með sárt ennið.
KR-ingarvoru óheppnir aðtapa
— þeir léku sinn bezta leik i lang-
an tima og var fyrri hálfleikurinn
sérstakíega góður hjá þeim, en
aftur á móti sóttu Blikarnir i sig
veörið I siðari hálfleiknum.
MAÐUR LEIKSINS: Valdimar
Valdimarsson. ^-SOS
Gífur-
legu
einvígi
ígolfi
— lauk með
sigri Watson
Bandarikjamaðurinn Tom
Watson varö sigurvegari i
brezka meistaramótinu i
golfi um helgina eftir geysi-
lega spennandi keppni við
landa sinn, Jack Nicklaus.
Keppni þeirra var mjög
spennandi og var um hreint
einvigiað ræða, þar sem þeir
tveir höfðu yfirburði yfir
næsiu kepþendur. Þaö var
ekki fyrr en I siðasta „pútt-
inu” i keppninni, að úrslit
réðust — Watson sýndi mikið
öryggi, þegar hann renndi
kúlunni niður i siðustu hol-
una og tryggði sér sigur.
Watson fór 72 holurnar á 268
höggum, en Nicklaus á 269
höggum. Watson lék umferö-
irnar fjórar þannig — 68,
70,65 og 65, eða samtals 268
högg, sem er nýtt meistara-
mótsmet— bætti gamla met-
iðum hvorki minna né meira
en 8 högg. Nicklaus iék þann-
ig — 68, 70, 65 og 66.