Tíminn - 11.08.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.08.1977, Blaðsíða 1
Banaslys á Vel lítur út með heyskap á Suður- og Vesturlandi margir hafa þegar náð öllu inn i hlöðu ÁÞ-REykjavik. Heyskapur hefur gengið mjög vel á Suöur- og Vesturlandi aö undanförnu. Þurrkurinn sem hefur veriö i um vikutima, hefur gert bændum kleift aö ná inn mestum hluta sinna heyja og eru sumir búnir, en aörir rétt aö ljúka. Voru þeir bændur, er Tíminn ræddi viö i gær, sammála um aö spretta heföi veriö allgóö isumar, en þess voru dæmi aö gras heföi veriö úr sér sprottiö er þurrkdagarnir komu. Einn bóndinn sagöist ekki muna aöra eins sprettu i úthögum og gengdi sama máli um tún. — Heyskapur hefur gengiö mjög vel slðustu viku og þaö kom ekki á neitt aö ráöi fyrr en núna fyrir stuttu sagöi Þorarinn Sigur- jónsson a' Laugardælum í Hraun- geröishreppi, —• timinn nýttist mjög vel og þó kæmu skúrir ööru hvoru þá gátu menn vel þurrkað. Ég held aö þaö séu ákaflega margir búnir aö ná inn bróður- partinum, en auðvitaö er þaö misjafnt eins og gengur. Hins vegar geri ég ekkiráö fyriraö um mánaöarmótin júli-ágúst hafi verö komiö meira hey, en á sama tima i fyrra. í ágúst i fyrrasumar kom snögg breyting og þaö fór áö rigna,en i byrjun þessa mánaöar geröi strax ágætis þurrk, og núna er bara lokið heyskap á mörgum bæjum. — Það er allt ágætt að frétta af heyskapnum, ég held aö honum sélokið eða aö ljúka hé 1 sveitinni, sagöi Sigurður Björnsson bóndi i Kviskerjum i Oræfum, — veðrið hefur veriöágætt þar til i gær, en þetta var svo samfelldur þurrkur aö menn náöu vel upp. Hér hafa ekki veriö nein vandræöi. Sumir eru búnir, en eitthvað getur veriö eftir aö slá i seinni slátt. Hey eru yfirleitt góö og óhrakin, en sums- staðar var ef til vill heldur mikiö sprottið. Þó mun þaö ekki vera til skaða. Yfirleitt hiröum viö i þurr- hey, en bændur eru eitthvaö aö auka súrheysverkun og taka gjarnan tillit til hennar þegar byggðar eru nýjar hlööur. ÞórðurGislasonbóndi i Olkeidu i Staöarsveit sagöi aö ekkert nema gott væri aö frétta af slnum slóöum. Fyrsta vætan, sem stóð i um vikutima, kom i fyrrinótt og hafa náöst mikil og góö hey i Staðarsveit. — Grassprétta var mjög góö og jörö kom alveg ókalin undan snjónum og allur þorri bænda eru búnir aö ná mestu af sinum heyjum, sagöi Þórður. — Þaö eru dæmi þess að menn séu búnir, en margir eiga eftir að ganga frá heyjum og koma i hlöðu. Verði þessi vika þurr og góöættu flestir bændur aö klára. Annars vorum viöfarnir aö óttast aö sumarið yröi eitthvaö keimlikt siðustu tveim sumrum, en sem betur fór varö þaö ekki. Eins og nú horfir þarf enginn aö farga ám né kúm eins og segir i visunni. — Hérna eru anzi margirbúnir, sagöi Magnús Kristjánsson böndi I Norðtungu i Þvérárhliðar- hreppi, — ég á hinsvegar eftir nokkuö grænfóöur, en þeir sem ekki eru búnir eiga bara umskök eftir. Ég tel að heyin sem viö höfum fengið séu ekki góö, en gras var oröið ofsprottið þegar siðasti þurrkurinn kom. Auövitaö má finna góö hey, en i heildina gætu þau verið betri. Þaö er feikna grasspretta hér um alla jörð og úthagar eru lika mjög mikiö sprottnir. Ég man ekki eftir jafnmiklu I áraraöir. Aö lokum var rætt við Guö- mund Inga Kritjánssoná Kirkju- bóli i Mósvallahreppi. Hann sagöi aö heyskapur heföi gengiö vel þar um slóöir og aö sumir bændur væru að mestu búnir meö heyákap. Taöan er góö sagði Guö- mundur og litiö hrakin. Vel litur út með kartöflusprettu og meö svipaöri tiö ætti uppskera aö vera góö i haust. Hópur barna tók á móti Uhro Kekkonen, for- seta Finnlands við ráðherrabústaðinn i Tjarnar- götu i gær og veifuðu þau bæði finnska og islenzka þjóðfánanum. Kekkonen kunni vel að meta nærveru þeirra og á meðfylgjandi mynd sést hann taka i hönd litils sex ára drengs, Arnar Simonarsonar, sem verður að vonum ósköp feim- inn fyrir bragðið. Hann mun örugglega kunna að meta heiðurinn siðar meir. Sjá frásögn af komu Uhro Kekkonen i máli og myndum — á bls. 15 Ljósmynd. Timans Róbert Unga kynslóðin og Uhro Kekkonen Reyðarfirði áþ-ReykjavIk. Um hadegisbiliö i gær varð banaslys skammt irá Reyðarfirði. Þar ók ungur maður á mótorhjóli út i Njörva- dalsá og samkvæmt úrskurði læknis er kom á staðinn, mun pilturinn ekki hafa drukknaö. Að sögn lögreglunnar á Seyðis- firöi var pilturinn á leið tii Egilsstaða er slysið gerðist. Slysiö átti sér staö viö brú, en beygjan að henni er slæm og hafa oft orðið þar slys áður. Ekki er hægt að birta nafn pilts- ins að svo stöddu. Þrennt slasast í árekstri Þ-Reykjavik. Siðdegis i gær arð umferðarslys við bæinn lásvatn i Suður -Þingeyjar- ýslu. Þar voru tveir böar að nætast og var tvennt i hvorum líl. ökumaður annars bilsins slapp aiveg við meiðsli, en þrennt var flutt á sjúkrahúsið á Húsavik. Að sögn lögreglunnar á Húsavik, var ekki ljóst i gærkvöldi hvort fóikið fengi að fara af sjúkra- húsinu þá um kvöldið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.