Tíminn - 11.08.1977, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 11. ágúst 1977
9
Útgefandi Framsóknarfiokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Jón Sigurósson. Auglýsingastjóri: Steingrímur
Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og
auglýsingar Siöumúla 15. Simi 86300. Verö I lausasölu kr.
70.00. Áskriftargjald kr. 1.300 á mánuöi.
Blaöaprent h.f.
Gamall grýlusöngur
Morgunblaðið ber ekki á móti þvi, að hnignun
sú, sem átt hefur sér stað i atvinnulifi höfuð-
borgarinnar, stafi öðru fremur 'af deyfð og at-
hafnaleysi borgarstjórnarmeirihlutans. Slikt er
heldur ekki hægt. Það er stefna Sjálfstæðisflokks-
ins, að hið opinbera eigi að hafa sem minnst af-
skipti af atvinnumálum og treysta alfarið á
einkaframtakið. í samræmi við þetta hefur
borgarstjórnarmeirihlutinn hagað aðgerðum sin-
um, eða réttara sagt aðgerðaleysi. Þó hafa verið
til frávik frá þessu, eins og t.d. þegar Jón Þor-
láksson var borgarstjóri. Hann hófst m.a. handa
um virkan stuðning við útgerðina i Reykjavik.
Hins vegar hefur aldrei verið gert minna en siðan
þeir menn, sem nú ráða mestu hjá borgar-
stjórnarmeirihlutanum, tóku við forustunni. Þeir
virðast alveg fara eftir kokkabókum hinna
þrengstu ihaldsskoðana, sem eru túlkaðar i Visi
og felast i þvi, að hið opinbera eigi ekki að aðhaf-
ast neitt, heldur eigi að treysta eingöngu á einka-
framtakið.
I stað þess að reyna nokkuð að afsaka að-
gerðarleysi borgarstjórnarmeirihlutans, sem er
lika alveg rétt, byrjar Mbl. á gamla grýlusöngn-
um um, að ekkert annað en hreinn voði blasi
framundan i Reykjavik ef Sjálfstæðisflokkurinn
missi meirihlutann. Þá taki við vinstri stjórn og
glundroði. Til þess að sýna Mbl. hversu fjar-
stæður þessi grýlusöngur þess er, þarf ekki annað
en að visa til nágrannabæjanna. Er nokkur
glundroði rikjandi i Kópavogi, i Hafnarfirði, i
Keflavik eða á Akranesi, þótt Sjálfstæðisflokkur-
inn sé ekki i meirihluta þar? Hafa ekki myndazt
þar starfshæfir meirihlutar, myndaðir á breiðum
grundvelli? Benda mætti á fleiri staði þessu til
sönnunar. Sannleikurinn er sá, að i sveita-
stjórnarmálum ber oftast ekki það mikið á milli
flokka, að þeir geti ekki unnið saman að fram-
faramálum viðkomandi staðar. Samstarf þeirra
á breiðum grundvelli hefur þar oftast reynzt
æskilegasta lausnin. Og hvað Sjálfstæðismenn
snertir ber að viðurkenna það, að þeir reynast
yfirleitt betur, þegar þeir vinna með öðrum, en
þegar þeir ráða einir og kyrrstöðustefna þeirra
fær að ráða rikjum.
Reynslan frá sveitarfélögum og bæjarfélögum
viðs vegar um land er ótviræð sönnun þess, að hér
myndi ekki skapast neinn glundroði eða vand-
ræði, þótt Sjálfstæðisflokkurinn missti meirihlut-
ann i borgarstjórninni. Þvert á móti er meiri von
þeirra nauðsynlegu stefnubreytingar, að hafizt
verði rösklega handa i atvinnumálum borgarinn-
ar.
Hvað gerðu hinir átta?
I vandræðum sinum vegna aðgerðarleysis
borgarstjórnarmeirihlutans i atvinnumálum,
hefur Morgunblaðið upp mikinn söng um slæman
aðbúnað Reykjavikurhafnar. Helzt virðist af
þeim skrifum að ráða, að hann stafi af aðgerðar-
leysi Þórarins Þórarinssonar á Alþingi. í þvi
sambandi er ekki úr vegi að benda á, að flokkur
borgarstjórnarmeirihlutans fékk ekki færri en
sjö þingmenn kjörna i Reykjavik i siðustu
kosningum og auk þess einn uppbótarmann. Væri
það úr vegi, að Mbl. birti skýrslu um hvað þessir
átta þingmenn hafa gert á Alþingi i hafnarmálum
höfuðborgarinnar?
ERLENT YFIRLIT
,, Alvarlegas ta heims
s tyrj aldarhættan”
„Illkynjaðasta nýlendustefna á vorum dögum”
Hua formaöur.
Menningardeild sendiráös
alþýöulýöveldisins Kina á
tsíandi gefur ööru hverju út
sérstakt fréttablaö, sem
nefnist Fréttir frá Klna. í'
siöasta fréttablaöinu, sem
Timanum hefur borizt er all-
löng grein, sem fjallar um
sambúö Kina og Sovétrikj-
anna. Grein þessi mun all-
gott sýnishorn þess, hvernig
kinverskir fjölmiölar haga
nú áróöri gegn Sovétrikjun-
um og þykir þvi rétt til fróö-
leiks aö birta hér kafla úr
henni. 1 upphafi greinarinn-
ar er vikiö aö ádeilum rúss-
neskra fjölmiöla á stefnu
Kinverja og þeim svaraö.
Slöan segir:
„VIÐ HÖFUM sýnt fram á og
munum halda áfram aö sýna
fram á, aö sovézkur-imperlal-
ismi er oröin alvarlegasta
heimsstyrjaldarhættan á yfir-
standandi timabili. Bresnjev-
klíkan framfylgir nú af meiri
ákafa en nokkru sinni fyrr al-
hliöa vigbúnaöarstefnu og út-
þenslu á heimsmælikvaröa.
Hún hefur lagt út i hættulega
sókn i samkeppni sinni um
heimsyfirráö viö hitt risaveld-
iö og býr sig á allan hátt undir
að hrinda af stað nýrri heims-
styrjöld. Hún hefur ekkert til
sparaö til að framleiöa og
þróa kjarnavopn og hefðbund-
in vopn og efla herstyrk sinn I
kapphlaupinu um hemaöar-
lega yfirburði yfir hitt risa-
veldiö. Þar að auki hefur hún
lagaö allt efnahagslif landsins
að styrjaldarþörfum, aukiö
innrætingu hernaöaranda,
gerthernaöarlegar ráöstafan-
ir miöaöar viö árás og haldið
heræfingar hverjar af öörum.
Herforingjagarpar hennar
hafa jafnvel lýst opinberlega
yfir þvi, aö þeir „séu aö undir-
búa að heyja strið meö öllum
tegundum vopna” og aö þeir
mundu fara út I „óvænt leift-
urstriö meö kjarnavopnum,
flugvélum og skriðdrekaflot-
um”.
Þessi taflbrögö sovézku
endurskoöunarsinnanna, yfir-
skyns afvopnun og raunveru-
legur vigbúnaður, yfirskyns-
slökun og raunveruleg mögn-
un spennu, eru i sannleika
„hlaöin hættulegum afleiðing-
um”, ef okkur tekst ekki aö
sýna þessi taflbrögö, eins og
þau eru, en leyfum þeim aö
blekkja og svæfa alþýðu allra
landa. Þaö getum við alls ekki
gert.
Viö höfum sýnt fram á og
munum halda áfram aö sýna
fram á, aö sovézkur sósial-
imperialismi er illkynjaöasta
tegund nútima nýlendustefnu
á vorum dögum. t þvi að
BrésnjeVklikan dulbýr sig
sem „eðlilegan bandamann”
og veifar fána „stuðnings viö
þjóðlegar frelsishreyfingar”,
ástundar hún af kappi út-
þenslu og þaö að hreiöra um
sig i stórum stil i þriðja heim-
inum og gera sitt ýtrasta til að
færa út áhrif sin þar. Hún hik-
ar aldrei viö aö beita öllum
ráðum til aö skapa upplausn,
blanda sér i málefni rikja,
beita undirferli og ihlutun til
aö ná undir sig hráefnalindum
og tryggja sér markaði fyrir
iðnaðarvörur sinar, staði til
fjárfestingar og herstöövar.
Sovézkur sósial-imperialismi
er oröinn annar af mestu al-
þjóðlegu aröræningjum vorra
tima. Nýlegar yfirgangsaö-
feröir hans i Afriku sýna á enn
meira sannfærandi hátt en
fyrr skefjaleysi hans sem nú-
timanýlendustefnu. Viö mun-
um valda alþýöu þriöja
heimsins vonbrigöum, ef viö
létum undir höfuö leggjast aö
draga fram i dagsljósiö eöli
sovézku endurskoöunarsinn-
anna sem sósial-imperialista
og sýna fram á, aö þeir eru
hatrömmustu óvinir undirok-
aöra þjóöa og undirokaðrar
alþýöu. Þaö getum viö alls
ekki gert.
VIÐ HÖFUM sýnt og mun-
um halda áfram aö sýna, aö
sovézkir endurskoöunarsinnar
eru verstu svikarar viö marx-
leniniismann á vorum timurn.
Brésnjevklikan hefur endur-
reist kapitalismann á öllum
sviöum og framkvæmt fasiskt
einræöi á skefjalausan hátt i
landi sinu. A alþjóölegum
vettvangi hefur hún rekiö
pólitík i anda sósial-imperial-
isma og farið inn á yfirgangs-
og útþenslustefnu i stórum
stil. Daginn út og daginn inn
fremur hún þann glæp aö
svikja marx-Ieninismann
svikja alþýöu Ráðstjórnar-
rikjanna og alþýöu heimsins
yfirleitt. I nýbirtu uppkasti aö
nýrri stjórnarskrá fyrir Ráö-
stjórnarrikin hefur hún form-
lega sett endurskoöunarrugl
eins og „riki allrar þjóðarinn-
ar” og „flokkur allrar þjóöar-
innar” og opinskátt hafnaö
undirstööukenningu marx-
leninismans — alræöi öreig-
anna. Viö værum ekki marx-
istar, ef viö létum undir höfuö
leggjast aö rifa niöur sósial-
ismaskilti þeirra og sýna
sannan litþeirra sem svikara.
Þaö ætlum viö alls ekki að láta
hjá líða.
I frekari stigmögnun and-
kinversks áróöurs sins hafa
sovézkir endurskoðunarsinnar
hnotiö ofan i nýtt hyldýpi.
Meginaöferö þeirra hefur ver-
iö rógur og lygar. En aö þessu
sinni bera þeir a Dorö slika
stórlygi eins og þá aö Kina
vilji byggja upp voldugt stór-
veldi ogáformi aö ná fótfestu i
Japan, á Filipseyjum og I San
Fransiskó, og setja þetta jafn-
vel i tilvitnunarmerki. Þar
sukku þeir niður i djúp blygð-
unarleysisins! Meö klunna-
legri stjórnlist fenginni frá
Krúsjeff reynir Brésnjevklík-
an aö eitra samskiptin milli
Kina og annarra landa meö
grýlu „gulu hættunnar”,
Vitanlega er þetta þýöingar-
laust.”
HÉRvpröurrúmsins vegna aö
sleppa úr allöngum kafla, en
þar er m.a. sagt frá tilraunum
Rússa til aö reyna aö fá Hua
formann til aö vikja frá utan-
rikisstefnu Maós, en slikt hafi
vitanlega misheppnazt. Þá
eru raktar tilraunir Rússa til
aö ná fótfestu i Afriku og sagt
frá viöleitni þeirra til aö spilla
á milli þjóöa þar og i Aslu.
Rússum hafi ekki gengiö þetta
vel, og þvi magni þeir andkin-
verskan áróöur. Aö lokum
segir:
„Marx vitnaði gjarnan I
spakmæli eftir Italska skáldiö
Dante: „Haltu þina eigin
braut, hvaö sem hver segir!”
Hversu rætnislega sem sov-
ézkir enaurskoðunarsinnar
rægja okkur og formæla, geta
þeir ekki haft nokkur áhrif á
kinverska alþýöu i risaskref-
um hennar fram á viö, eftir aö
hún hefur brotiö á bak aftur
„fjórmenningaklikuna” og
geta ekki haggaö þeirri ætlun
hennar aö heyja til enda af
fullri festu baráttuna gegn
sovézkri nútima endurskoöun.
Sjáum til, hvernig fer fyrir
þeim.
Þ.Þ.
Þ.Þ.