Tíminn - 17.08.1977, Qupperneq 2

Tíminn - 17.08.1977, Qupperneq 2
2 Miðvikudagur 17. ágúst 1977 veiðihornið Að veiða 11 punda hrygnu i Vatnsdalsá I glampandi veðri, logni og sólskini, kom tiöindamaður Veiðihornsins að Hnausastreng i Vatnsdalsá i fyrradag, skömmu fyrir hádegi. En þótt veörið væri fagurt var langt frá þvi aö veiðimenn teldu gott veiðiveður. Heldur kjósa þeir einhverja golu og helzt rign- ingu. Þá tekur hann betur. Samt sem áöur voru tveir veiöimenn við ána. Annar var við austurbakkann og kastaöi án afláts, en hinn dyttaöi að flugum sinum og öðrum veiöi- búnaði á vesturbakkanum. Tók- um við hann tali. Kvaðst hann vera frá Masachusetts i Banda- rikjunum og koma til Islands á hverju sumri til laxveiða. A fá- um stöðum i heiminum væri jafn skemmtilegt að veiða og vonaöist hann til þess að eiga eftir aö koma hingaö oft aftur. Litlar likur taldi hann á að okkur auðnaöist aö sjá lax veiddan þótt við stönzuðum nokkra stund. Veöriö væri ekki nægjanlega hagstætt til veiöa. Aldrei væri þó að vita hvaö gerzt gæti. Góð veiöi væri i ánni og hefði hann sjálfur t.d. veitt þrjá laxa daginn áöur. Sumir veiddu lika miklu meira, t.d. höföu 27 laxar veiðzt einn dag- inn i Hnausastreng. Gleðihrópið. Ekki vorum við komnir lengra i samtalinu, þegar gleði- hróp mikið barst til okkar aust- an yfir ána. Ég hef einn á, hróp- aði veiðimaðurinn á austur- bakkanum. Sjáið þið, þetta er ekki neinn smálax, aldrei minna en b'u til tólf pund Og svo var rætt fram og aftur, hvort hann væri svona stór, jafnvel stærri eöa hugsanlega eitthvað minni, meðan viðureignin stóö og veiðimaðurinn þreytti lax- inn. Smámsaman dró af laxin- um en ekki var það fyrr en nær hálfri klukkustund siðar, sem veiðimaðurinn gat loks náð lax- inum á þurrt land. Síðan var veiðimaðurinn og laxinn myndaður i bak og fyrir og laxinn veginn. Reyndist þetta vera ellefu punda hrygna ný- Itichard Buck með hrygnuna nýveidda gengin úr sjó. Veiðimaðurinn, sem heitir Richard Buck frá New Hampshire i Bandarikjun- um var sérlega ánægður, og vinur hans Allen Keyworth frá Massachuseth samgladdist hon- um innilega. Nær 800 laxar á land úr Vatnsdalsá Sérlega góð veiði hefur verið i Vatnsdalsá i sumar. A sunnu- dagskvöld var búið að veiða rúmlega 700 laxa fyrir framan Hnausabrú. Ekki er vitað nákvæmlega hve mikið hefur veiðzt fyrir neðan brú, en talið er, aö þar hafi veiðzt a.m.k. 50 laxar og jafnvel meir. Alls hafa þvi veiðzt hátt á áttunda hundr- að laxar úr ánni og er það veru- lega meiri veiði en hefur verið undanfarin ár. Auk þess er svo ævinlega allmikil silungsveiði i ánni. Árangur ræktunarinn- ar Mikið hefur verið um það að seiöum hafi verið sleppt i Vatns- dalsá. T.d. hefur 12—15 þúsund sumaröldum seiðum veriö sleppt i þær ár, sem renna i Vatnsdalsá, ár hvert undanfarin fjögur ár. Þessi seiði dvelja ár i ánni áður en þau ganga i sjó. Þvi var það fyrst i fyrra, sem möguleiki var á, að þau færu að skila sér aftur i ána, sem full- vaxnir laxar. í fyrra var veiðin vel I meðallagi, en i sumar er hún betri, en verið hefur um langtárabil. Vonast menn þvi til aö framhald verði á vaxandi veiði i ánni. Gifurlegar gjaldeyris- tekjur. Lengi hefur það viðgengizt að erlendir veiðimenn sæki i Vatnsdalsá tilveiða. Þykir þeim þar gaman að veiða og greiöa gjarnan mikið fyrir veiðileyfin. Fjölmargir innlendir aðilar eru mjög andvigir þessu og vilja ekki að erlendum mönnum sé leyft að veiða hér á landi. Vilja þeir láta tslendinga sjálfa sitja að veiðiám landsins. Ofteru þetta þó sömu menn- irnir, sem f jálglega tala um aö auka verði feröamannastraum- inn til landsins til þess að fá auknar gjaldeyristekjur. En hvaða ferðamenn gefa af sér meiri gjaldeyristekjur, en ein- mitt laxveiðimennirnir. Það er ekki einungis að þeir greiði verulegar upphæöir yfir ýmsa þjónustu, sem þeir þiggja hér á landi. T.d. er það mjög algengt að erlendir laxveiðimenn taki flug- vél á leigu frá Reykjavik að viökomandi laxveiöiá, og þetta gera þeir jafnvel þótt áætlunar- flugvél fari nær þvi á sama tima til viðkomandi staðar. Þeim munarekki um nokkra tugi þús- unda. Fjölmargt fleira mætti telja, þótt eigi verði það gert hér. Dýr silungur það Hér er þó rétt að færa i letur eina sögu af erlendum veiði- manni, sem kom til veiöa i Vatnsdalsá vegna þess aö hann hafði fregnað að stórkostlegt væri að veiða lax á Islandi. Aldrei hafði hann þó fyrr rennt fyrir fisk, en einhvern tima er allt fyrst. Kom maðurinn nú til landsins og tdk tveggja hreyfla flugvél á leigu norður á Blönduós. Þar beið hans leiðsögumaöur á bil og fór með hann að ánni og sýndi honum álitlega veiöistaði. Jafnframt sýndi leiösögu- maðurinn veiðim anninum hvernig ætti að bera sig til viö veiðarnar. Þannig var haldið áfram I tvo daga án árangurs og ekki fékkst neinn laxinn. Var þvi hinn erlendi veiðimaður mjög óánægður, þegar hann yfirgaf ána og hélt með sinni leiguflug- vél til Keflavikur og þaðan áleiðis með áætlunarvél til sins heima. En i nokkur þúsund feta hæð yfir öldum Atlandshafsins sat hinn hnuggni veiðimaður hugs- andi yfir hve illa hefði nú fariö. Engin leið væri nú að segja vin- um frá fræknum árangri i islenzkri laxveiðiá og þvi siður möguleiki á að sýna myndir ,,af þeim stóra”. Hvað var til ráða? En rétt áður en flugvélin lenti handan Atlantshafsins laust hugmynd niður. Hvers vegna prófaði hann ekki að veiða silung. Silungur er mun minni fiskur en lax, og hlaut aö vera auðveiddari. Og vart gat á þvi verið mkill munur að segja sög- ur af silungsveiði eða laxveiði. Ekki var látið staðar numið viö umhugsunina eina saman. Framkvæmdir voru þegar hafn- ar. Farmiði var keyptur með fyrstu vél til Islands aftur og leiguflugvél tekin að Vatnsdals- á. Þar var fengið leyfi til að renna fyrir silung og viti menn, meö góðri aðstoð leiösögu- mannsins tókst að kasta svo að bitið var á. Ekki var hinn erlendi veiði- maður lengi að hugsa sig um hvað nú skildi gera.Heldur snaraði stönginni um öxl sér og hljóp sem fætur toguðu frá ánni og hugist landa hið bráðasta. En þótt fæstir skilji i þvi, þá losnaði silungurinn ekki af önglinum og með góðri aðstoð leiðsögu- mannsins tókst að ná silungnum upp á bakkann. Og með tveggja punda silung i höndum hélt veiðimaðurinn hinn ánægðasti heim i veiðihús, þar sem veiðin var matbúin eftir kúnstarinnar reglum eftir tilheyrandimynda- tökur og silungurinn snæddur af mikilli lyst. Að þvi búnu hélt veiðimaðurinn sæll og glaöur með sinnileiguvél til Keflavikur og þaðan til sins heima. Vatnsdalsá boðin út á næstunni Nú er að renna út leigusamn- ingur um Vatnsdalsá og veröur hún boðin út á næstu dögum. Tilboð i ána munu eiga að berast stjórn veiðifélagsins fyrir 20. september. Nú hafa þrir aðilar ána á leigu. Arnaldur Þór hefur ána fyrirneðan Hnausabrú, en fyrir ofan Hnausabrú eru leigutakar tveir. Hluta veiðitimans hefur Ingimundur Sigfússon og fleiri ána á leigu, en hluta timans er áin leigð brezkum manni, Major Cooper. Akveðið hefur verið aö bjóöa ána útþannig að unnt sé aö gera tilboö i alla ána, eða hluta henn- ar, allan veiðitimann eða hluta hans. Sfðan verður ákveðiö á fundi i Veiðifélagi Vatnsdalsár hvaða tilboði eða tilboöum verði tekið. Mó. Og þá er að kanna, hvað laxinn er þungur. Allen Keywork vegur laxinn fyrir vin sinn Richard Buck. Timamyndir MÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.