Tíminn - 17.08.1977, Page 4
4
Miövikudagur 17. ágúst 1977
Samtök sunnlenzkra sveitarfélaga:
Ráða nýjan fram
kvæmdas tj óra
— hagkvæmasta lausnin verður valin,
segir Helgi Hallgrímsson yfirverkfræðingur
gébé Reykjavík — Helgi Bjarna-
son, verkfræöingur hefur veriö
ráöinn framkvæmdastjóri Sam-
taka sunnlenzkra sveitarfélaga.
Helgi er sonur Bjarna Pálssonar
byggingafulltrúa á Selfossi og
konu hans Margrétar Helgadótt-
ur. Hann lauk námi I byggingar-
verkfræöi i Lundi i Sviþjóö áriö
1972 og starfaöi siöan á verk-
fræöistofu Guömundar G. Þórar-
inssonar i Reykjavik, þangaö til
hann réöst sem verkfræöingur
Selfosshrepps 1973.
Helgi Bjarnason er búsettur á
Selfossi og er kvæntur Sigriöi
Hermannsdóttur og eiga þau eitt
barn.
Helgi Bjarnason.
hjá Vegagerðinni
Kás-Reykjavík. — Vegur-
inn um Víkurskarð gerir
það ekki endasleppt, enda
löngum gefið tilefni til
frjósamrar umræðu um
vegamál norðanmanna.
En menn eru ekki á eitt
sáttir <um hvað varðar
staðsetningu vegarins
austur mn land frá Akur-
eyri, hvort farið skuli
norður um Dalsmynni,
Víkurskarð, eða yfir sjálfa
Vaðlaheiði.
Nú hefur nýrri bólu skotið upp
kollinum. bar sem verið er aö
leggja Vikurskarðsveginn upp
Hrossadal veröur vatnsfall
nokkurt á leiöinni, og ganga þær
sögusagnlr nú viða um sveitir
norðurlands, að brúa eigi ána
fyrir nokkur hundruö milljónir, i
stað þess að leggja hana i ræsi,
sem gæti kostað 10-15 milljónir
króna, og komið að jafn miklu
gagni.
Timinn bar þetta undir Helga
Hallgrimsson yfirverkstjóra hjá
Vegagerðinni, og spurði hann
hvað væri hæft i þessu.
Sagði Helgi að ekkert væri hæft
i þessum sögusögnum, enda væri
málið i frumrannsókn og engin
endanleg ákvörðun enn verið tek-
in.
— Það er vatnsfall þarna á
leiðinni, i djúpu gili. Þetta er
ekki stór á, en á engu að siður. 1
tilviki sem þessu berum viö hjá
Vegageröinnisaman hugsanlegar
lausnir, en um tvo valkosti er áð
ræða.brú eða ræsi. Þaö fer siöan
mikið eftir aðstæðum hvort er
dýrara. Kostnaður við ræsi fer
t.d. eftir hæð fyllingar yfir gilið,
þ.e. i réttu hlutfalli við visst
margfeldi af hæð þess.
— Nú segjum, að við komumst
að þvi að ræsi borgi sig, þá verð-
um við einnig að taka tillit til þess
að um þröngt gil er að ræða, og
snjdr kemur til með að setjast i
þaö, en i leysingum getur aftur
grafið undan veginum.
— betta er ekki spurningin um
að reisa brú eða ræsi, heldur aö
finna hagkvæmustu lausnina, en
rannsóknir eru enn i gangi.
— Hvað sem öðru liður, þá er
hitt ljóst, að þetta er dýr staöur,
hvor leiðin sem farin verður.
— Það sem ég tel, að geti hafa
komið slikum sögusögnum af
stað, er það, að við vorum staddir
þarna fyrir norðan fyrir stuttu
siðan að kanna betur aðstæður, og
hvort ekki væri um fleiri valkosti
að ræða varðandi staðsetningu
vegarins, i beinu sambandi við
mannvirkjagerð yfir vatnsfallið,
sagði Helgi að lokum.
Helgi Haligrimsson
Annir framundan hjá
skákmönnum okkar
MÓL-Reykjavik — Miklar annir
eru framundan hjá skákmönnum
þjóðarinnar, jafnt hjá okkar
sterkustu og reyndustu mönnum
sem nýliðum. Ber þar hæst
sex-landa keppnina, en islenzka
sveitin verður skipuð okkar beztu
mönnum, tvö heimsmeistaramót
unglinga og Norðurlandakeppni
gagnfræöaskóla.
Sex-landa keppnin verður hald-
in i Glucksburg, nálægt dönsku
landamærunum, Þýzkalands-
megin dagana 10. til 16. septem-
ber. Auk Þýzkalands taka Norð-
urlöndin fimm þátt I keppninni.
Islenzka sveitin verður all vel
skipuð, en á 1. borði teflir Friðrik
Ólafsson, stórmeistari, Guð-
mundur Sigurjónsson, stórmeist-
ari, á öðru, Ingi R. Jóhannsson,
alþjóðlegur meistari, á þriðja og
Ingvar Asmundsson á fjórða
borði. Á fimmta borði, sem skal
vera skipað skákmanni yngri en
24 ára, tetlir Helgi Ólafsson og á
sjötta borði, kvennaborðinu, teflir
Guðlaug Þorsteinsdóttir.
Þessi sveit er ein sú öflugasta,
sem við höfum nokkru sinni sent á
alþjóðlegt mót, og það er þvi ekki
fráleittaðhugsa sér sigurlikur Is-
lands mjög miklar. Það er ekki
einungis sjálf sveitin, þ.e. fjögur
efstu borðin, sem er mjög vel
skipuð, heldur eru unglinga- og
kvennaborðin það einnig, en hér
áður fyrr voru þau borð helzti
dragbitur sveitarinna. Guðlaug
hefur aldrei verið betri og er i
fremstu röð skákkvenna á Vest-
urlöndum og Helgi er einn albezti
skákmaður i þessum aldursflokki
i þessum sex löndum.
Eins og lesendur taka eftir
vantar Islandsmeistarann, Jón L.
Arnason, i sveitina. Hann verður
þó ekki fjarri góðu gamni, þvi um
svipað leyti mun hann taka þátt i
heimsmeistaramóti sveina, undir
17 ára aldri, en það mót verður
haldið i Gcagnes Sur Ner i Frakk-
landi dagana 8. til 18. september.
Þar sem Jón hefur töluverða
'möguleika á að sigra það mót,
þótti tilhlýðilegra að senda hann á
það i stað heimsmeistaramóts
unglinga, en þar eru aldurstak-
mörkin 20 ár. Margeir Pétursson
fer sennilega með Jóni á mótið
sem aðstoðarmaður og ekki dreg-
ur það úr sigurlikum Jóns, en
Margeir tók þátt i þessu móti i
fyrra.
Heimsmeistaramót unglinga
verður svo haldið i Innsbruck i
Austurrlki 4. til 19. september og
þar teflir fyrir Islands hönd As-
geir Þ. Arnason, bróðir Jóns.
Að lokum má nefna, að Island
mun taka þátt i grunnskólakeppni
Norðurlanda i fyrsta sinn og fer
sveit Hvassaleitisskóla til Svi-
þjóðar I næstu viku til að taka þátt
i mótinu.
Víkurskarðsvegurinn:
Brú eða ræsi?
Nýtt Nesti
opnað
Nýlega var opnuð ný veitinga-
stofa við Miðbæ, Háaleitisbraut i
Reykjavik, og hefur hún hlotiö
nefnið: NESTl. Eigendur eru
sömu aöilar og reka greiða-
sölurnar Nesti i Fossvogi og
víðar. Þessi nýji staður er þó meö
nokkru öðru sniði en hinar greiða-
söiurnar, en þarna geta væntan-
legir viðskiptavinir tylit sér niður
og fengiö sér nær alit sem hugur-
inn girnist. A meðfylgjandi Tima-
mynd Gunnars eru starstúlk-
urnar I hinu nýja NESTI við Háa-
ieitisbraut.
Endurnýjun á ónotaðri lántökuheimild
I nóvember 1975 gerði Seðiabank-
inn samning um 45 milijóna doll-
ara lántökuheimild hjá nokkrum
erlendum bönkum I þvl skyni að
styrkja lausafjárstöðu þjóðarbús-
ins út á við. Á þeim tima var
gjaldeyrisstaöa tslendinga mjög
veik, og var þessi lánssamningur
mikilvægur I þvi skyni að tryggja
frjáls og eðlileg utanrlkisvið-
skipti, á meðan unnið var að þvi
að bæta viðskiptajöfnuö vib út-
lönd. Svo mikill árangur hefur
náðst I þvi efni, að ekki hefur ver-
ið þörf á þvi að nota þá iántöku-
heimild, sem I þessum samningi
fólst, enda var tilgangur hans
fyrst og fremst að vera til örygg-
is, ef á móti blési i efnahagsmál-
um.
Þrátt fyrir þann bata, sem orð-
ið hefur I efnahagsmálum á
undanförnu ári, telurbankastjórn
Seðlabankans ennþá nauðsynlegt,
að lántökumöguleikar af þessu
tagi séu fyrir hendi til að tryggja
greiðslustöðu þjóðarbúsins við
núverandi aðstæður. Bankastjórn
Seðlabankans hefur þvi tekið upp
samninga við þá banka, sem hér
eiga hlut að máli, um endurnýjun
samningsins frá 1975, en með
hagstæðari kjörum að þvi er
varðar lántökukostnað, vexti og
lánstima. Felst I þessu viður-
kenning hinna erlendu banka á
batnandi greiöslustöðu Islenzka
þjóðarbúsins út á við. Hinir er-
lendu aðilar að samningnum eru
nú að mestu leyti hinir sömu og
áöur, en þeir eru undir forustu
Citicorp International Bank
Limited ásamt Morgan Guaranty
Trust Company of New York og
Kreditbank S.A. Luxembourg-
oise.
Leiðrétting
Leiðinleg mistök urðu við
prentun greinar I sunnudags-
blaði um útflutning grásleppu-
hrogna. I viðtali við Jón Þ.
Ölafsson skrifstofustjóra hjá
Framleiðslueftirliti sjávar-
afurða, var sagt að hann væri
Gíslason, sem er rangt.
Hins vegar misritaðist tala
um útflutning saltaðra grá-
sleppuhrogna á þessu ári, þar
stóð að hann væri oröinn 1300
tunnur, en átti að vera 13000
tunnur.