Tíminn - 17.08.1977, Blaðsíða 13

Tíminn - 17.08.1977, Blaðsíða 13
Miövikudagur 17. ágúst 1977 13 12.00 Dagskráin, Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: „Föndrararnir” cftir Leif Panduro. Orn Ólafsson les þýðingu sina (8). 15.00 Miðdegistónleikar. David Rubinstein leikur Pi- anósónötu i F-diir op. 12 eft- ir Jean Sibelius. Csilla Szabó og Tátrai kvartettinn leika Kvintett fyrir pianó og strengiakvartett eftir Béla Bartók. 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir) 16.20 Popphorn. Halldór Gunnarsson kynnir. 17.30 Litli barnatiminn Finn- borg Scheving sér um tim- ann. 17.50 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kv öldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Viðsjá. Umsjónarmenn: Ölafur Jónsson og Silja Aöalsteinsdóttir. 20.00 Sunnukórinn á tsafiröi syngur lög eftir islenzka og erlenda höfunda. Sigriður Ragnarsdóttir leikur á pfanó, Jónas Tómasson leikur á altflautu. Hjálmar Helgi Ragnarsson stjórnar. 20.20 Sumarvaka. a. Óvenju- lega kaupstaöarferð. Sól- mundur Sigurðsson segir frá. b. Kvæöi eftir Sigurö Einarsson Baldur Pálma- son les. c. A jökulgöngu. Þorsteinn frá Hamri les frá- sögu eftir Hlöðver Sigurðs- son. d. Lög eftir islenzk tón- skáld. Pétur Þorvaldsson leikur á selló og Ólafur Vignir Albertsson á pianó. 21.15 Reykjavikurleikar i frjáisum iþróttum. Her- mann Gunnarsson lýsir. 21.30 tJtvarpssagan: „Ditta mannsbarn” eftir Martin Andersen-Nexö Þýöandinn, Einar Bragi les (21). 22.00 Fréttir. 22.15 Kvöldsagan: „Sagan af San Michele” eftir Axel Munthe Þórarinn Guðnason les (30). 22.40 Nútimatónlist. Þorkell Sigurbjörnsson kynnir. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Miövikudagur I7.ágústl977 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Nýjasta tækni og visindi Umsjónarmaður Sigurður H. Richter. 20.55 Onedin-skipaféiagiö (L) Breskur myndaflokkur. 9. þáttur. Hættuspil. Efni átt- unda þáttar: James og Róbert fara til Falmouth að kaupa dráttarbát. Elisabet er þar ásamt Harvey skip- stjóra, og hafa þau gert til- boð i bát. Baines siglir „Charlotte Rhodes” áleiöis til Southampton með dýr- mætan varning, en skonn- ortan strandar á gömlu skipsflaki. Dráttarbáturinn, sem Elisabet hefur nú eign- ast, kemur á vettvang, en Baines hafnar björgun. Elisabet fer i fússi, en Bain- es og skipshöfn hans tekst að koma skonnortunni á flot eftir langa mæöu. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 21.45 Aöalstræti Leitast er við að lýsa svipmóti Aðalstrætis og sýna þær breytingar, sem þar urðu, meðan Reykjavik óx úr litlu þorpi i höfuðborg. Texti Arni óla. Umsjón Andrés Indriðason. Aður á dagskrá 9. október 1970. 22.05 Gltartónlist (L) 22.30 Dagskrárlok framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan LÍKI OFAUKIÐ — Hvað seturðu upp? sagði Whiting. — Hvað veiztu um Roy Hiller? Whiting tókst að verða ringlaður á svip. — Líklega álíka mikiðog þú. Hann er sérf ræðingur í fögrum listum. Hann hef ur góðar tekjur og getur gert það sem hann vill. Hann er fjárhættuspilari og líkar næturlífið vel. Milan stóð aftur upp. — Ég geri ekki léleg viðskipti, Pug. — Þá skil ég þig ekki, sagði Whiting gramur. — Kannski er bezt að þú spyrjir bara — Hvaðan fær hann peningana sína? — Ég býst við, að hann hafi erft þá. Milan stefndi til dyra og greip hattinn og frakkann á leiðinni. Whiting sagði: — Allt í lagi. Hann er tálbeita fyrir Nat og Max Kane. Milan lagði hattinn og frakkann aftur frá sér. — Ég veit það, en mig langar ekki til að þurfa að draga hvert sannleikskorn út úr þér með töngum, Pug. — Ef þú veizt það, allt í lagi, sagði Whiting. Hann saug vindilinn, sá að dautt var í honum og teygði sig eftir eld- spýtu. — Hvað veiztu um hann auk þeirrar staðreyndar, að hann er tálbeita? Whiting gaf sér góðan tíma til að kveikja í vindlinum. Hann blés ónotalega hægt áeldspýtuna og leit svo upp á Milan. — Ég? Ekkert. — Hann lætur þig hafa góðar sögur — fyrir þögn þína. Whiting brosti umburðarlyndur. — Ef ég væri nógu vitlaus til að viðurkenna það, segði ég að hann væri klár. Myndir þú ekki gera það líka? — Ég segði, að það væri nægilegt til að menn væru hræddir við þig. — Er hann það? — Láttu ekki svona, Pug, Milan dró sígarettupakka upp úr vasanum og fékk sér eina. — Þessi verzlun með smámyndir Neilsons er alveg út í bláinn. Mig langar að vita, hvernig Hiller kemur inn í myndina. Þetta var ekki skot í myrkri, heldur afleiðing rök- réttrar hugsunar. Hann virti Whiting vandlega fyrir sér og sá, að hann hafði hitt í mark. — Ég sagði þér allt sem ég veit um þessar smámyndir, Milan. — Gerði Fritz Elios eftirlíkingar? spurði Milan. Whiting yppti öxlum og Milan fleygði hálfreyktri sígarettu i öskubakkann. — Haltu fast við það, sagði hann. — Ég afhendi sögur mínar annars staðar. — Ég veit ekki einu sinni, hvað þú hefur að segja, kvartaði Whiting. — Hvernig get ég vitað, hvers virði saga þín er? Milan lagði hendurnar á skrifborðsbrúnina og hallaði sér yfir ritvél Whitings. — Hef ég nokkurn tíma svikið einhvern? Whiting hristi höfuðið. — Ekki ennþá. Milan rétti úr sér. — Ég gef þér f imm sekúndur, Pug. Hann dró upp ermina og starði á úrið. Whiting var gráðugur, og Milan vissi, að hann var að velta fyrir sér, hvort það væri þess virði að deila upp- lýsingum sínum með honum og ná í sögu, eða þegja og missa söguna. Milan dró ermina niður yfir úrið. — Þáð var það! — Alltsem ég veit, sagði Whiting fljótmæltur, —er að Hiller fékk Max Kane til að selja Silone sett af smá- myndum fyrir milligöngu Hillers að sjálfsögðu. — Var það Hillers hugmynd? — Já. — Haltu áfram, sagði Milan. — Þetta er allt, sem þú veizt, en hvernig komstu að því? Whiting svaraði. — Starf mitt er að komast að hlut- unum. Ég komst bara að því. — Hvernig? spurði Milan þrjózkur. Hann settist aftur. Hann hafði undirtökin. Whiting var byrjaður. Ef hann þagnaði núna, tapaði hann. Hann hafði þegar gefið of mikið í skyn til að geta dregið sig í hlé, og hann haf ði ekki sagt nóg til að fá það, sem hann vildi fá. Whiting tuggði vindilinn, áhyggjuf ullur á svip. — Þetta er einkamál, Milan. — Ég kæri mig ekki um að missa samböndin. — Ef ég nota það, sagði Milan. — Verður það ekki fyrr en eftir að þú ert búinn að missa samböndin hvort sem er. Hann næstum æpti: — Hvernig? — Ég talaði við Fritz, svaraði Whiting. — Eða hann við mig. Hann gerði eftirlíkingarnar og eftir að Neilson hafði fengið tryggingaféð, fannst Fritz eitthvað bogið við þetta. Hann kom til mín. — Hann bauð þér að deila með sér tryggingafénu, sagði Milan fyrir hann. Whiting var aumlegur á svipinn. — Þannig lagað geri ég nú ekki. Þá tækist mér ekki að bjarga mér í þessu starf i. Ég sagði honum, að hann gæti gert það, sem hann vildi. Ég hjálpaði honum, en sjálf ur átti ég ekki að græöa neitt á þvi. — Enga peninga, sagði Milan. En hann var viss um, að Whiting hafði einhvern veginn fengið umbun. — Og þá kastaðirðu þér yfir Neilson og komst að raun um, að Hiller var á bak við þetta allt? — Þúættiraðvera í minni stöðu, sagði Whiting fyrirlit- lega. — Hvers vegna ertu að spyrja mig, þegar þú veizt öll svörin? Milan sagði: — Þií sérð hvaða ástæðu þetta gefur Hiller til að myrða Fritz, ekki satt? — Auðvitað. — Og þú segir löggunni það ekki? — Ég geymi það, svaraði Whiting. Hann glotti og hallaði sér aftur i stólnum. — Þar fékkstu það, Milan . Það er allt, sem ég veit. Ég hef ekki einu sinni reynt að setja alla söguna saman. Hiller var á höttunum eftir ein- hverju, en ég get ekki f yrir mitt litla líf séð hvað það var. Hann fékk ekkert út úr þessu nema smávegis umboðs- laun. — Það gefur Hiller líka ástæðu til að drepa Neilson, sagði Milan. — Það gat hann ekki? — Hvers vegna ekki? Hann hefur nógu oft komið í búningsherbergi Fran. Hann hefði getað haft skipti á byssunum. Gleymdu ekki, að það var hann, sem sagði henni, hvað Neilson ætlaði að gera. — Nú, ætlaði hann að gera eitthvað? — Vertu ekki að grínast, Pug. Þú veizt að hann vann með Emile á fölsku rúllettunni hjá Nat. Whiting sló út höndunum. — Ef til vill. Og hvað þá, ef Hiller gerði það? Það gætirðu aldrei sannað. — Nei, sagði Milan blíðlega. — Það eina, sem gæti gef ið löggunni einhverja vísbendingu, ert þú, Pug. Hann brosti meðaumkunarlega. — Ef Hiller hefur framið tvö morð, getur hann hæglega framið það þriðja, Pug. Ef hann hef ur myrttvo menn til að þagga niður i þeim, gæti hann vel myrt þann þriðja. Whiting horfði á hann í undrun og vantrú. Hann opnaði munninn og lokaði honum aftur. Hann tók vindilinn út úr sér og horfði á hann eins og furðuverk. Síðan stakk hann honum upp í sig aftur og klemmdi varirnar um hann. — Hvað ertu að reyna? Að gera mig hræddan? Kettinum þykir lifur aldeilis- góð, ha? vi DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.