Tíminn - 19.08.1977, Blaðsíða 8

Tíminn - 19.08.1977, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 19. ágúst 1977 Heimilið '77 MÓL-Reykjavik — Undirbúningur að þessari sýningu hófst þegar eftir alþjóðasýn- inguna fyrir tveimur árum, sagði Halldór Guðmundsson, blaða- fulltrúi sýningarinnar Heimilið ’77, sem hefst á föstudaginn i næstu viku og stendur til sunnudagsins 11. september. — S.l. sum- ar voru svo svæðin boð- in út og i vor voru þau uppseld. Eins og stór hluti landsmanna kannast viö aí' eigin reynslu hafa sýningar Kaupstefnunnar h.f. í Laugardalshöllinni verið nær árviss atburður á þessum áratug. Sýningin sem hefst i næstu viku, er fimmta stórsýn- ingin frá Heimilissýningunni 1970, en slik sýning var einnig Landssamband hjálparsveita skáta með sýningu á sinni margvislegu starfsemi. Að vestanverðu verða sumarbú- staðir, bifreiðar og hjólhýsi, en við erum reyndar enn að bæta við það svæði. — Þátttakendur að þessu sinni eru komnir hátt upp i 200 hundr- uð sem er hámarkstala og til samanburðar má nefna, aö á siðustu heimilissýningu losuðu þeir rétt 100. Þessir aðilar munu byrja að setja upp bása sina á mánudaginn n.k. og svo hefst sýningin föstudaginn 26. ágúst og stendur til 11. sept. Um helg- ar verður opið milli eitt e.h. og 10 á kvöldin en á virkum dögum frá kl. þrjú til tfu. Nýjungár kynntar. — Þarna verður vitanlega margl að sjá, þvi á sýningunni verður bókstaflega allt sem við- kemur heimilishaldi, innflutt sem innlend framleiðsla. Fólk frá fyrirtækjunum mun kynna og leiðbeina sýningargestum, en ég veit til þess, að nokkrar merkar nýjungar verða kynntar á sýningunni, þó ekki sé hægt að Merki sýningarinnar í ár þar verður hægt sem skiptir máli heimilisrekstur haldin árið 1973. Arin 1971 og 75 voru svo haldnar alþjóöasýn- ingar, en i allt hefur Kaupstefn- an h i. staðið fyrir um 10 sýning- um. Gifurlegur fjöldi manna hefur sótt þær eöa allt milli 55 og 75 þúsund, sem þýðir að meir en fjórði hver landsmaður og allt upp i þriðji hver hefur skoöað þessar sýningar i hvert sinn. Nær 200 sýningaraðil- ar. — Að þessu sinni verðum við með um 6000 fermetra sýn- ingarsvæði, bæði innan hallar- innar og svo tvö útisvæði, sagði Halldór i samtali við Timann i gær. A útisvæðinu austan viö Laugardalshöllina verður gefa upp enn hverjar þær eru. — En þarna gefst fólki einnig tækifæri til að skemmta sér eitt- hvað, þvi a hverjum degi verða einhver skemmtiatriði, þó ekki hafi verið gengið frá þeim endanlega. Þó er vist, að á hverjum virkum degi verðum við með 2 tizkusýningar og sennilega 3 um helgar. Við höf- um gert þá breytingu frá fyrri sýningum að færa tizkusýn- ingarnar frá veitingasalnum og upp á áhorfendapallana, en sviði verður komið fyrir þar sem handriðið er nú. Ahorfend- ur munu svo standa fyrir ofan sviðið og ættu þeir þvi að hafa all góða sjón yfir það. Úrvalslið mun sjá um þessar tizkusýning- ar, en það er fólk frá Módel- og Karonsamtökunum sem verður þar á ferð undir stjórn Pálinu Jónmundsdóttur. Það er Magn- ús Axelsson sem hefur hannað tizkusýningarnar og hefur hann samhæft bæði Ijós og tónlist við þær. — Þá má ekki gleyma happ- drættinu, sem býður upp á eina beztu vinninga sem völ er á i dag og glæsilegri en áður hefur þekkzt. Vonumst eftir utanbæj- arfólki — Það má segja að hlutfallið milli þátttakenda af höfuð- borgarsvæðinu og landsbyggð- inni sé nokkuð jafnt, enda er •Í-wv.Wv.'n : í\ i .LvM. V íímrn ' \ 1 1 1 1 1 1 1 \ \ \ 1 1 | l \ 1 11 V KMurn m mi i m y £ Þessi mynd var tekin, þegar siðasta heimilissýning stóðyfir fyrir fjórum árum. aö sjá allt varðandi þessi sýning alls ekki miðuð ein- ungis við höfuðborgarbúa. Það hefur lika komið í ljós á siðustu sýningum, að fjöldi utanbæjar- manna hefur verið ótrúlega mikill og vonum við að svo verði i þetta sinn. 1 þvi skyni hafa samningar tekizt við Flugleiðir, þannig að utanbæjarfólk sem ætlar á sýninguna fær 25% af- slátt ef það ferðast i 10 manna hópum eða meir, sagði Halldór Guðmundsson, blaðafulltrúi sýningarinnar að lokum. Likan að sviðinu þar sem tizkusýningarnar eiga að fara fram. Handan skilrúmsins er sjálfur salurinn, en sviðið er byggt ofan á handriðið. Áhorfendur munu svo standa ofarog ættu þeir aðsjá vei þaðan. Unnið við undirbúning sýningarinnar i vikunni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.