Tíminn - 19.08.1977, Qupperneq 9

Tíminn - 19.08.1977, Qupperneq 9
Föstudagur 19. ágúst 1977 IJJif'l 9 Hefur veðrið vond áhrif á stjórnendur Reykjavíkur? Sagt er, að skapferli Islendinga fari mjög eftir veörinu. Þegar veöurbliöa er einstök, sé skapiö létt og iundin kát, en þegar vond veöur geisa, leggist menn i þung- lyndi og séu illir i allri umgengni. Ef þessi kenning er rétt, ættu fbú- ar höfuöborgarinnar aö hafa veriö mjög skapléttir á þessu sumri, svo mjög hafa veöur- guöirnir ieikiö viö þá allar götur siöan i fyrrahaust. Þessu er þó ekki á þennan veg fariö. A.m.k. hafa stjórnendur höfuöborgarinnar legið I miklu þunglyndi þaö sem af er árinu, og þó sérstaklega það sem af er sumri. Hefur þetta orsakaö mikil ónot frá þeim i garö landsbyggö- arinnar og þeirra, sem þar búa. Þannig telur borgarstjóri, aö landsbyggöarfólk fái mun betri fyrirgreiöslu á flestum sviöum hjá hónu opinbera, og byggöa- stefnan hafi leitt til þess, aö höfuöborgin sé oröin afskipt meö fjárhagslega fyrirgreiöslu frá rikinu. Þá hljóp veöriö ekki siöur i stjórnendur fræöslumála borg- arinnar. Ruku þeir upp eftir um- mæli borgarstjóra um mikla fyrirgreiöslu rikisins til lands- byggöarinnar og hugöust nú fara aö ná einhverju af þessum fjár- munum til borgarinnar aftur. Var þá ákveöiö, aö ef unglingar utan af landi vildu sækja skóla yröu þeirra heimasveitarfélög aö greiöa Reykjavikurborg svo og svo miklar fjárhæöir. Þegar þokan byrgir útsýnið Þótt þokur hafi litlar legiö yfir höfuöborginni þaö sem af er sumri, hafa miklar þokur huliö fræösluyfirvöldum borgarinnar sýn. Þvi var þaö svo, aö þeir grilltu alls ekki i þaö, aö þaö væri rikissjóöur, sem byggöi umrædda skóla i samvinnu viö borgina, og rikiö greiddi föst laun kenn- aranna og fjölmargt fleira. Sérhvert sveitarfélag Uti um land telur þaö mikil hlunnindi, ef rikiö fæst til aö leggja I skóla- byggingu i sveitarfélaginu, og viöa eru það talin forréttindi aö hafa framhaldsskóla i nágrenni u. Þvi hefur ekki um þaö heyrzt, aö nokkurri sveitarstjórn úti á landi hafi dottiö i hug aö fara aö krefja önnur sveitarfélög um greiðslur, þótt þangaö sæki nemendur úr ööru sveitarfélagi. Aherzla er fremur lögö á aö fá skólana byggða upp en nemendur siöan boönir velkomnir til náms. Fáheyrð ósvifni Það veröur þvi aö telja þaö fá- heyröa ósvifni af yfirvöldum i Reykjavik aö fara aö krefja landsbyggöarfólk um þessar greiöslur. Svo mörg eru þau hlunnindi, sem borgin hefur fram yfir sveitarfélög Uti um land, og hefur haft um áraraðir. Og ekki er ósvifnin minni sé þess gætt, aö þetta var gert án samráös viö menntamálaráöherra og mennta- málaráðuneyti. Fari svo, aö Reykjavikurborg fái sitt fram á þessu sviði, hlýtur þaö aö hafa miklar og margvis- legar afleiöingar i för meö sér. T.d. hljóta aö margfaldast kröfur byggöarlaga Uti á landi um fjár- veitingar til bygginga skóla. Hug- myndirhljóta að koma upp um aö flytja háskólann og aöra æöri skóla burt frá Reykjavfk. Alger- lega óeðlilegt er, að þessir skólar, sem alfariö eru kostaöir af rikinu, séu i þvi sveitarfélagi, sem vill hafa aöstöðuleysi smárra sveit- arfélaga útium landiö aö féþUfu. Svo miklar tekjur hefur Reykjavikurborg af þessum æöri skólum. Skyldi hann þurfa að rigna? I upphafi var aö þvi vikiö, hvernig veöriö heföi áhrif á skap- ferli manna. Og hver veit nema þessi ónot borgaryfirvalda Reykjavikur séu einmitt Ut af veöurbliðunni. Það vita allir, sem vilja vita, að ihaldsstjórnendur borgarinnar eru um fjölmargt ööruvisi en aörir sveitarstjórnar- menn. Þvi er þaö svo, aö þótt sagt sé, aö slæm veður geri alla venju- lega menn verri i skapi er ekkert trúlegra en veðurbliðan hlaupi illa I ihaldsblóð borgaryfirvaida. Þvi hniga ýmis rök aö þvi, aö hann þurfi aö fara aö rigna og venjulegan þokudrunga aö leggja yfir borgina. Forréttindi Reykjavíkur Ekkert sveitarfélag landsins hefur vaxiö jafnhrööum skrefum á umliönum áratugum og Reykjavik. Þetta er vegnff þess, aö þar eru opinber umsvfFmest. Þar er öll stjórnsýslan, þar-eru aöalmenntastofnanirnar, o£-þar eru flest þjónustufyrirtækin. Þaö er ekki fyrr en á sföustu árum, sem mönnum varö al- mennt ljóst, aö landiö var aö sporörisa. Byggöin úti um land dróst saman, en óx hröðum skrefum á Faxaflóasvæöinu. Viö þessum vanda varö aö bregöast. Þaö varö aö efla byggö- ina úti um land, ekki eingöngu vegna þeirra, sem þar búa, heldur til hagsbóta fyrir alla landsmenn. Myndarlega hefur veriö tekiö á þessum málum siöustu árin, en enn má meira, ef duga skal. Stjórnendur Reykjavikur veröa aö skilja, aö þaö er borginni ekki fyrirbeztu,að stór byggöarlög úti á landi leggist i auðn. Og hagsæld ibúa borgarinnar vex ékki heldur meö þvi, aö borgin þenjist sifellt meir og meir út. A þessari staöreynd veröa Reykvikingarallir aö átta sig, og láta eitthvaö af þeim forréttind- um af hendi, sem borgin hefur haft um fjölda ára. MÓ íslenzka-útlenzka Afstaöa islendinga til út- lendinga hefur löngum veriö hjákátleg. Ýmist gera menn aö dásama tilteknar þjóöir eöa sýna öörum ákveöna litils- viröingu. Þjóöir, sem viö teljum okkur hafa efni á a-sýna litils- viröingu, eru að visu ekki marg- ar og aöallega þær sem næstar okkur eru. Grænlendingum er litiö sinnt, eða þeirra málefn- um, af okkur Islendingum. Færeyinga teljum við frændur okkar og vini en litla smáa og vanmáttuga nágrannann. Þó eru Færeyingar á margan hátt fremri okkur Islendingum. Hitt erþó algengara aö viö sýnum af okkur furöulegan undirlægju- hátt gagnvart erlendum mönn- um. Þaö á sér vissa sögulega hefö frá þeim tima er Islending- ar smjööruöu sig I hóp meö hirö- mönnum erlendra höföingja. Siöar, þegar þjóöin var undir Noregs- og Danakonungum, var þaö lenzka hjá flestum hérlend- um að draga frekar taum út- lendra höföingja en fylgja fram málum landa sinna. Þessi viö- horfhafa breytzt, en samtheld- ur ákveðinn hluti þessa þjóö- félags áfram málflutningi um snilld.rfkidæmiog merkilegheit hinna fjarlægu og dugmiklu út- lendinga. Sé hluturinn fram- kvæmdur i útlöndum eöa af út- lendingum jafnvel hérlendis þá veröur hann um leiö mjög eftir- tektarveröur ef ekki stórmerki- legur. Morgunblaöiö sem er tal- pipa einhvers mesta afturhalds á vesturlöndum gengur mjög fram i þessum áróöri. Fréttir af kóngafólki og fyrirmönnum fylla hverja siöu blaösins og landinn getur i andakt fylgzt meö lifsstreöi þessa fólks. Þegar siöan þessir goöumliku höföingjar slæöast hingaö til Is- lands og þeim veröur þaö á aö opna munninn eru allt gullkorn, sem af vörum þeirra hrýtur. Þessi hliö málsins er raunar smá, en áróöurinn hefur sin áhrif og sérstaklega er merki- legt hugarfariö sem aö baki þessum skrifum liggur.-Hitt er alvarlegra að þetta stærsta blaö landsmanna básúnar þaö dag- eftir dag, aö við Islendingar veröum aö treysta á aörar þjóö- ir meö tilveru okkar og sjálf- stæði. Ráöleggingum Utlend- inga og vernd verðum viö aö hlita. Vanmátturinn sem fylgir þessum málflutningi er aumk- unarverður og er beinlinis arfur þeirrar sögulegu hefðar sem áö- ur er lýst. I framhaldi af þessu er forsætisráðherra landsins þátttakandi i leynikliku auö- manna, sem kennd er viö Bildenberg og sá ágæti maður lýsir þvi yfir, aö hann segi nú ekki hvaö rætt er á þeim viröu- legu fundum, en muni taka miö af þvi sem fram kemur á þeim fundum viö ákvaröanatöku sina i ýmsum málum. Morgunblaöiö er ekki eitt um þaö aö draga kjarkinn úr is- lenzku þjóöinni. Þjóöviljinn meö linnulausum niöurrifsskrifum sinum vinnur markvisst aö þvi aö telja almenningií þessu landi trú um aö hér riki kúgun, mis- rétti arörán og misferli á öllum sviöum, nema þá helzt á skrif- stofum Þjóðviljans. Meö þess- um skrifum á aö koma hér á fót imynduöu fyrirmyndarriki, sem á sér enga stoö i Islenzkum veruleika, en á erlendar fyrir- myndir. Það er nokkur bót, aö fyrir þessum skrifum stendur aöeins klika háskólaborgara, sem hefur sérkennilega nautn af þvi aö jaskast á elliærum kenn- ingum Marx meö langlokuskrif- um, vangaveltum og snakki, sem er langt utanviö hugsana- gang hins islenzka alþýöu- manns. Eyöileggingarmáttur þessara skrifa skal samt ekki vanmetinn. Ahrifin sem þau hafa er aö fylla lesendur vantrú og vanþóknun á samborgurm sinum.en lifa þar á mótil þeirri blekkingu, að i einhverju fjar- lægu rlki — jafnvel imynduöu — sé allt i lukkunar velstandi.. Islenzka lýðveldiö er aö visu mjög ungt og er enn á reynslu- skeiöi en þvi mikilvægara er aö ibúar þess geri sér ljósa grein fyrir þvi aö þjóöin er jafningi hvaöa þjóöar sem er á þessari jörö aö kostum og atgervi. Full- trúar okkar eiga þannig alltaf aö kappkosta aö koma fram viö allar þjóöir sem jafningja og gera þar engan greinarmun á. Þegar viö horfum til annarra landa, gæöa þeirra og rikidæmis þá skulum viö einnig minnast hinna sem búa viö skort og hall- æri. Viö skulum einnig vera þess minnug, aö ekki er langt siö an aö islenzka þjóöin bjó viö skort og örbirgö. Viö ættum heldur ekki aö þurfa útlendinga til þess aö benda okkur á þaö, aö það er undravert hvernig viö höfum þraukaö á þessu landi, sem af flestum þjóöum er taliö nær óbyggilegt. Okkur tslend- ingum er óhættaö vera stoltir af þrótti og elju forfeðra okkar og einnig af okkur sjálfum sem nú lifum. Þaö er vert alvarlegrar ihug- unar hvort þaö þjóöskipulag sem viöhöfum gertokkurá þessu landi er ekki þaöfullkomnasta sem þekkist á okkar timum. Þjööfélag þar sem stéttarskipt- ing þekkist ekki, fátækt engin og engir kaupmenn á mælikvaröa hins stóra heims. Er ekki nær að leggja krafta slna I það, aö full- komna og þróa þessa þjóöfélags- mynd en að apa og stæla erlendar fyrirmyndir sem sprottnar eru upp Ur allt öörum aöstæöum. Gætum að þvi aö skipulag á aö vera gert fyrir manninn en ekki maöurinn fyrir skipulagiö. Þaö sem vekur fyrst athygli manna er smæö þessarar þjóö- ar. Hér bUa aðeins 220 þUs. manns, eöa likt og ein gata i New York, en hvaöa gata i þeirri borg hefur eigin tungu, sjálfstæöa menningu, Iþrótta- menn anda og llkama sem þola samanburö viö þaö bezta sem gerist og listafólk I öllum grein- um fagurfræöinnar sem einnig stendur sem jafningjar frammi fyrirmönnum af hvaöa þjóöerni sem er. Er ekki ástæða til þess aö vera hreykinn af því aö fá tækifæri til þess aö taka þátt i þróun og viöhaldi þessa ein- stæöa þjóöfélags? „Island er eyja meö fjöl- breytt landslag” sagöi erlendur maöur sem siglt haföi umhverf- islandið.Þaö þótti fyndiö. En er þaö sérstaklega fyndiö aö Is- lendingum sé bent á sérkenni lands sins af Utlendingum. Þaö er fjöldi tslendinga, sem nú fyrst er aö átta sig á því, að þetta land er búiö sérstakri og ótrúlega fjölbreyttri náttúru- fegurö. Þessir Islendingar tóku fyrst eftir hrifningu Utlendinga áöur en þeir sáu þessa fegurö sjálfir. Þaö er hluti af margum- ræddri vanmáttarkennd Islend- inga gagnvart útlendingum, aö halda aö önnur lönd séu öll betri og fegurri en heimalandiö. Meö þessu er auövitaö ekki veriö aö segja aö ekki fyrirfinnist fegurri staöir á þessari jörö, heldur aö viö ráöum ef til vill yfir nokkr- um fegurstu stööum veraldar, sem ástæöa er til aö vera stoltur af. Viö skulum lika huga aö is- lenzka andrúmsloftinu, sem er tærara og hreinna en viöast annars staöar. Viö eigum þar auölind, sem er oröin gifurlega eftirsóknarverö. I framhaldi af þvi sem áöur er sagt um þjónk- un viö erlend sjónarmiö er freistandi aö geta ummæla full- trúa erlends auðhrings hérlend- is, sem lýsa skelfilegu áhuga- leysi á Islandi og islenzkum málefnum. Hann segir eitthvað á þá leiö, aö mengun af stóriöju á Islandi sé hégómi á móti mengun frá eldgosum, jöklum og landrofi. Þetta sjónarmiö — ef frá er skýrt i réttu samhengi — er varla af þessum heimi. Liklega er þetta grundaö á vitr- un aö handan. tslenzka þjóöin er liklega þeg- ar á allt er litiö ein rikasta þjóö veraldar, enda bendir lifsmát- inn allur til þess Auölindir landsins eiga aö veröa sifellt eftirsóknarveröari i framtlö- inni. Ef rétt er á haldið er mat- vælaforöi okkar nær óþrjótandi, fossaafliö og orka heitavatnsins veröa mengunarlitlir og ódýrir orkugjafar. Jafnframt þvi sem þjóöin á feimnislaust aö gera sér grein fyrir verðleikum slnum veröur hún einnig aö skoöa sjálfan sig af óvæginni gagnryni, sú gagnrýni á aö vera af íslenzkum uppruna. Jafnvel þótt aöferöir Washington Post dugi vel i Ameriku er ekki fullsynt aö þær falli óbreyttar aö islenzku þjóöfélagi. Þetta er sagt meö það I huga aö alltaf hefur þekkzt á Islandi drengskapur, heiöar- leiki og islenzk siöferöisvitund. Viö getum kennt útlendingum ýmislegt. Islendingar eru vissu- lega sérfræðingar i þvl sem lýt- ur aö fiskveiöi og hafréttarmál- um, aörar þjóöir gætu ef til vill lært mikiö af stéttlausa Islenzka lýöræöisrikinu og eftir þvi sem , fólkinu fjölgar á jöröinni veröur brýnna aö kunna aö komast af á löndum viö heimskautsbaug. Jafnframt þvi aö vera vel meö- vitandi um þjóðerni okkar og uppruna á þjóöin aö haf a mikinn samgang viö útlendinga og sækjast eftir aö tileinka sér hiö bezta I tækniþekkingu þeirra. I þekkingaröflun okkar hjá öör- um þjóöum veröum viö aö gæta þess aö glata ekki sérkennum okkar, þvi aö öllu samanlögöu er bezt að vera tslendingur. P.E. Umsjónarmenn: Pétur Einarsson Ómar Kristjó.nsson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.