Tíminn - 02.09.1977, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.09.1977, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 2. september 1977 Stöðvarfjörður að vetrarlagi. — Nú er þar bæði nýr togari og nýtt frystihús. Dr. Bragi settur náms- ráðgjafi KEJ-Reykjavik — Bragi Jósepsson hefur veriö settur námsráðgjafi i Fjölbrauta- skólanum f Breiðholti frá upp- hafi komandi skólaárs. Var staða námsráðgjafa auglýst laus til umsóknar og mælti fræðsluráð Reykjavlkur með Braga i stöðuna, sem siðan var samþykkt af Mennta- málaráðuneyti, sagði Arni Gunnarsson, deildarstjóri I Menntamálaráðuneytinu i samtali við Timann I gær. Dr. Bragi Jósepsson. 800 kennarar Stöðvfirðingar í essinu sínu: NÝR SKUTTOGARI OG SPLUNKUNÝTT FRYSTIHÚS VÍGT KEJ-Reykjavik — Mikiðvarum hátíðarhöld á Stöðvarfiröi sl. miðvikudag, en þá fögnuðu Stöðfirðingar komu nýs togara og ekki nóg með það heldur vigðu þeir I leiðinni nýtt frysti- hús sagði Björn Kristjánsson, oddviti Stöðfirðinga og fréttarit- ari Tlmans I samtali við blaðið I gær. Nýi togarinn heitir Kambaröst og ber einkennis- stafina SU 200, smiðaður I Svolver I Noregi, tæplega 500 Útboð á verkamanna- bústöðum á Selfossi SJ-Reykjavík. t dag voru opnuö tilboð I að gera fokhelda tvo kjarna i þriggja hæða fjölbýlis- húsi á vegum Verkamannabú- staða á Selfossi. Þessi tilboð bár- ust: Siguröur Guömundsson 39 milljtínir, Arni Leósson og fl. 36.634.046.00 kr., Róbert Bene- diktsson 34.964.842.00 kr., Sigfús Kristinsson 45.835.680.00 kr., Gisli Geir Sigurjónsson og Þtírður Arnason 47.774.644.00 kr. Kostnaðaráætlun var 42.159.004.00 kr. tonna skip og eigandinn Hrað- frystihús Stöðvarfjarðar hf. Að sögn Björns safnaðist saman gifurlegur mannfjöldi á bryggjunni til að taka á móti hinu nýja skipi og voru þar saman komnir langflestir ibúar byggðarlagsins. Þegar skipið hafði lagzt að bryggju flutti Séra Kristinn Hóseasson ávarp og bæn og Björn Kristjánsson oddviti flutti ávarp, þar sem hann bauð skip og skipshöfn vel- komna. Skipsstjórinn, Auðunn Auðunsson bauð siðan öllum viðstöddum að skoða skipið sem Stöðf i rðingar vænta sér svo mikils af. Slðan hélt öll hersingin upp I frystihúsið nýja þar sem það var vigt og siðan var setzt að Mánudaginn 5. september 1977 gengur I gildi vetrarúætlun S.V.K., er þá ekið á 12 mln. fresti I stað 15 mln. I sumaráætl- un. Þetta er sama fyrirkomulag og verið hefur undanfarna þrjá vetur og er ekki um að ræða kaffiborði. Þar rakti Sólmundur Jónsson, formaður stjórnar hraðfrystihússins, þróunar- og byggingarsögu hússins og gestir fluttu ávörp. Þegar öllu þessu var lokið og klukkan orðin 19.30 hófst dans- leikur fyrir yngsta fólkið á staðnum og stóð til hálf tíu. Og klukkan tiu hófst siðan dans- leikur fyrir alla þá sem staðfest höfðu skírnarheitið og stóð sú skemmtun til klukkan 3 um nóttina. Þetta hátiðarskap Stöð- firðinga er ekki nema litið en gott dæmi um það hvers menn vænta sér af atvinnutæki eins og skuttogara i litlu byggðarlagi. Og vonandi verður Kambaröst Stöðfirðingum mikil lyftistöng. breytingu á akstursleið. Hins vegar er leiðarkerfið i endur- skoðun og eru niðurstöður úr henni væntanlegar innan skamms. Farþegum er bent á að hægt er að fá áætlanaspjöld i vögnunum og á skiptistöðinni i Kópavogi. KÓPAVOGSVAGNAR Á 12 MÍNÚTNA FRESTI veiðihornið Þverá i Borgarfirði — Veiðin hefur verið sæmileg siðustu daga, en nú eru bændur aö veiða I ánni, sagði Rikharður Kristjánsson veiðivörður i Guðnabakka i samtali við Veiði- hornið. — Þeir fá tvo daga og ég veit ekki betur en að þeim hafi gengið vel. A ellefta hundrað laxar eru komnir úr neðri hluta Þverár I sumar, en á efra svæðinu hefur veiðin verið mjög góð. Yfirleitt er þetta góður lax og gerði Rikharður ráð fyrir þvi aö meðalþyngdin væri á milli 8 og 9 pund. Siðastlitinn þriðjudag fékkstþyngsti laxinn, sem hefur komið upp úr ánni i sumar. Þetta var 28 punda lax sem veiddist i Kastalahyl. Veiði- maðurinn var Guðmundur Kjartansson og notaði hann Toby. Rikharður sagði, að vel hefði gengið að landa laxinum, enda væri Guðmundur mikill og góður veiðimaður. Næstþyngsti laxinn sem hefur veiözt i sumar vóg 26 pund. — Ain er mjög lítil i dag, viö höfum ekki fengiö rigningu siö- an fyrir verzlunarmannahelgi, sagöi Rikharður, — hún er búin að vera svo i mánuð enda er fiskiriið eftir þvl. Veiöin hefur verið miklu minni I ár á neðsta partinum, miðað við i fyrra, en aftur á móti er veiðin meiri á fjallinu en I fyrra. Ekki hefur neitt verið átt við ræktun i sumar, enda ekki hægt að fá nein seiöi frá Laxalóni. Þverárlaxinn eryfirleitt stór og það kemur varla fyrir að minni fiskur en fjögur pund fáist úr ánni. Siðasti veiðidagur er næstkomandi sunnudagur. Vesturdalsá i Vopna- firði — Þaðhefur verið jöfn og góð veiði I allt sumar og hún hefur glæðzt siðan sólskinið og hitinn minnkaði i seinnihluta ágúst, sagði Sigurjón Friðriksson i Ytri-Hlið. — Það hefur þegar veiðzt meira úr Vesturdalsá, en nokkurn timaáðurá einu sumri. 1 gærkvöldi voru komnir á land 473 laxar, og til samanburðar má geta þess, að i fyrra veidd- ust 326 laxar. Mesta veiði- sumarið, sem nokkru sinni hef- ur komið var með 437 laxa, þannig að þetta ár verður greinilega metár. Það er veitt á tvær og hálfa stöng á dag i ánni og einnig er hámarksveiði. Sigurjón sagði, að það hefði oft komið fyrir i sumar, að hámarki hafi verið náö. Hvert holl fær að veiða i þrjá daga i ánni hverju sinni, og hver stöng má einungis veiöa 12 laxa á þessum þremur dögum. Nokkrir átján punda laxar hafa Framhald á bls. 23 sóttu náxnskeið' in í sumar SJ-Reykjavík. í sumar hafa um 800 kennarar sótt námskeið I tiu námsgreinum til undirbúnings kennslustarfinu á komandi vetri. Haldin voru alls rúmlega 20 námskeiðþar af tvö erlendis, 50 kennarar sóttu dönskukenn- aranámskeið i Danmörku og 20 manna hópur enskukennara fór til Englands. — Kennarar al- mennt hafa niikinn áhuga á þvl að fylgjast meö nýjungum og búa sig undir starfið, sagði Pál- ina Jónsdóttir sem skipuleggur námskeiðin á vegum Kennara- háskóla tsiands: — Þetta er virðingarvert, þvi það er auð- velt að staðna i kennslu. Fjöldi kennara er alltaf að fylgjast með þvi nýjasta og sækir nám- skeið á hverju ári. A námskeiðunum búa kennar- amir sig undir að kenna nýjar námsbækur og hagnýta sér ný kennslugögn. Nú er ekki lengur raðað i bekki á grunnsktílastigi eftir getu heldur blandað i þá, en sú tilhögun krefst þess að kennarinn hafi gnægð mismun- andi verkefna fyrir nemendur á reiðum höndum. Með þessu skipulagi þarf kennarinn lika að sinna hverjum einstaklingi miklu meira en áður, og eru þar með einnig gerðar meiri kröfur til kennarans. Leitazt er við að kenna nemendum sjálfstæð vinnubrögð, og er það liöur i viðleitnitilað gera nemenduma virkari i skólastarfinu. Kennar- inn er þvi nú orðinn fremur verkstjóri en fyrirlesari eins og svo mjög tiðkaðist hér til skamms tima. A kennaranámskeiðunum eru einnig kynntar nýjar náms- skrár, sem eru smátt og smátt að koma út, og þar með ný markmið i náminu. Einnig er verið að kynna nýja þætti i gömlum námsgreinum. Sem dæmi má nefna, að stöðugt er verið að taka fleiri þætti inn i Framhald á bls. 23 Sónötuhlj ómleikar í Norræna húsinu Sunnudaginn þann 4. sept munu Guðný Guðmundsdóttir og Philip Jenkins haida sónötuhljómleika i Norræna húsinu. A efnisskrá verða sónata i D-dúr eftir Jean Marie Leclaiijsónata I A-dúr eftir Brahms, sónata eftir Jón Nordal og sónata i c-moll eftir Grieg. A alþjóðlegri listahátið i Bergen sl. vor léku þau Guðný og Philip þessa sónötu Griegs I húsi hans, Troldhaugen og hlutu frá- bæra dóma blaðanna þar I borg. Aðgangur að hljómleikunum sem hefjast kl. 20.30 verður seld- ur við innganginn. Guðný Guðmundsdóttir og Philip Jenkins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.